Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Page 16
16
á.
Hjálparstarf kirkjunnar beinir söfnunarfé
• tit bágstaddra íslendinga
• til fólks sem býr við örbirgð í þriöja heiminum
• á átaka- og hamfarasvæði um allan heim
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
Fréttir I>V
Klumba og krummi
til manneldis
DV, SUÐUREYRI:______________________
Undanfarin ár hefur Klofningur
hf. á Suðureyri þurrkað fiskhausa á
Suðureyri og flutt út til Nígeríu.
Þann 4. október sl. byrjaði fyrirtæk-
ið að verka hausa í salt og flytja út.
Hausar sem vega 1200 grömm eða
meira blautir eru saltaðir en minni
hausar eru þurrkaðir eins og verið
hefur.
Sérstök fésvel sér um að kljúfa
hausana sem salta á í minni stykki.
Úr vélinni koma sjálf fésin, sem á
eru kinnar og gellur. Einnig koma
úr vélinni önnur tvö stykki auk
tálknanna, klumba og krummi.
Klumban er söltuð en krumminn,
sem er hnakkinn og trýnið á fiskin-
um, er þurrkaður. Fésin og klumban
eru pækilsöltuð í a.m.k. fimm daga.
Síðan er pækillinn látinn renna af í
fjóra daga. Vörunni er svo pakkað í
400 kg pappakassa. Geymsluþol vör-
unnar er 18 mánuðir við 4°C. Söltuðu
fésin og klumbumar eru fluttar út til
Portúgal, þar sem mjög vel hefur lík-
að viö þessa vöru.
Tveir starfsmenn vinna við þessa
framleiðslu Klofnings, þeir Kjartan
Kjartansson verkstjóri og Bjarni
Hannes Ásgrímsson. Forstjóri Klofn-
ings hf. er Guðni A. Einarsson. -VH
DV-MYNDIR VALDIMAR HREIÐARSSON
Klumbur og krummar
Kjartan Kjartansson við vinnu sína í Klofningi hf., allt þarf aö gera eftir
kúnstarinnar reglum til að klumbur og krummar komist á markað.
Eggjahvítuefni í miklu magni
Bjarni Hannes við vinnu sína, framleiöslu á matvöru sem líkar vel á suðlægum slóðum, enda er fiskurinn ríkur af
eggjahvítu sem fólk þar sækist eftir.
Fólk komst í verslunarhallirnar
Gífósedlar liggja frammi í öllurn bönkum,
sparisjódum og á pósthúsum.
DV, SKAGAFIRDl:_________________________
Lágheiðin milli Ólafsfjarðar og
Fljóta lokaðist vegna snjóa síðastlið-
inn sunnudag en þá var heiðin búin
að vera fær í tíu daga eftir að hún
var rudd þann 1. desember. Þetta
gerði Fljótamönnum og Siglfirðing-
um mögulegt að komast til Akureyr-
ar styttri leiðina eins og sagt er, 125
kílómetra leið, og notfærðu margir
sér þennan möguleika. Tilefnið var
líka ærið að þessu sinni eins og
einn ágætur Siglfirðingur orðaði
það: „Maður varð náttúrlega að
komast inn eftir þó ekki væri nema
til aö skoða þessar nýju verslunar-
hallir sem þeir hafa verið að opna
upp á síðkastið." - ÖÞ
989
LGJANi
Strákarnir
Bylgjan og Vísir.is að gefa 100 heppnum
"Strdka aðdáendum" geisladiskinn með Strákunum.
Farðu inn á Vísir.is og taktur þátt í léttum
leik og fglgstu svo með á Bglgjunni en
11. desember gefum 100 diska með
Strákunum á Borginni.
vísir.is