Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Side 17
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 DV 17 Fréttir Jólaskemmtun á Barnaspítala Hringsins Þau voru brosmild börnin á jölaskemmtun Barnaspítala Hringsins í gær. Dansaö var í kringum jólatréð, jólasveinninn kom í heimsókn og skemmti börnunum meö söng og gamansögum. Útibú Landsbankans á Djúpavogi: Fært undir sama bankanúmer og Höfn - íbúarnir óánægðir Mikil óánægja rikir meöal íbúa á Djúpavogi með þá ákvörðun Landsbankans að færa starfsemi útbúsins á staðnum undir útibúið á Höfn. Útibúið á Djúpavogi er nú rekið undir sama bankanúmeri og úti- búið á Höfn. Áður hafði starfsfólki í bankanum verið fækkað og af- greiðslutíminn styttur. Að sögn Ólafs Ragnarssonar, sveitarstjóra á Djúpavogi, hafa íbúamir mót- mælt þessum breytingum Lands- bankans. „Við erum ekki ánægð með breytingarnar, sérstaklega vegna þess að þetta er í andstöðu við stefnu ríkisstjórnarinnar um að færa störf út á land,“ segir Ólafur og bætir við að verið sé að færa störfin jafnt og þétt suður. Hann segir að íbúum á Djúpa- vogi finnist þessi ákvörðun Lands- bankans sérkennileg í ljósi þess að íbúum hefur fjölgað á staðnum. Einnig er stórfyriræki í laxeldi með veltu upp á þrjá milljarða að hefja starfsemi á staðnum. „Þetta er því alveg þvert ofan í allt sem er að gerast hérna,“ segir Ólafur. Sveitarstjórnin hefur rætt við for- svarsmenn Landsbankans og við- skiptaráðherra vegna málsins og hefur viöskiptaráðherra tekið mál- ið til skoðunar. Kristinn Briem, forstöðumaður í Landsbankanum, segir að útibú- ið á Djúpavogi verði rekið áfram þótt það heyri nú undir sama bankanúmer og útibúið á Höfn. „Þetta er fyrst og fremst hagræð- ingarmál innan bankans sem breytir engu varðandi þjónust- una,“ segir Kristinn. -MA DV-MYND DANÍEL V. ÖLAFSSON. Halli í heimabæ ráðherrans Sjúkrahúsiö og heilsugæslustööin í heimabæ heilbrigöisráöherra eru rekin meö miklum halla vegna stór- aukinna verkefna. Akranes: 35 milljóna halli á sjúkrahúsinu DV, AKRANESI: A síðasta fundi stjórnar Sjúkra- hússins og heilsugæsjustöðvarinnar á Akranesi kynnti Ásgeir Ásgeirs- son, skrifstofustjóri rekstarstöðu stofnuninnar fyrir mánuðina janú- ar til október 2000. í máli hans kom fram að halli af rekstri eftir tímabil- ið væri 25,4 milljónir króna, eða 3,7% af tekjum. Nefndi hann þó að taka þyrfti þessar niðurstöður með þeim fyrirvara að í tekjum væru komin rekstrarframlög sem ekki væru komin útgjöld fyrir, svo sem vegna launa. Að þessum framlögum slepptum væri halli rúmlega 35 m.kr., eða rúmlega 5%. Að mati Ásgeirs eru helstu orsak- ir rekstrarvandans stóraukin starf- semi, nokkrir ófyrirséðir kostnaðar- liðir, ásamt því að rekstrargrunnur stofnunarinnar virðist vera vaná- ætlaður vegna annarra liða en launa. -DVÓ íslensk verðbréf hf.: Tilboð í meiri- hluta hlutafjár DV, AKUREYRI: Fjárfestingarfélag Norðlendinga ehf. hefur gert tilboð í 51% eignar- hlut í íslenskum verðbréfum hf. Stjóm íslenskra verðbréfa hefur fjallað um tilboðið og vísað því til hluthafa félagsins. Fjárfestingarfélag Norðlendinga er að fullu i eigu Lífeyrissjóðs Norð- urlands. Sjóðurinn hefur að undan- fömu leitað leiða til að efla eigin eignastýringu og er niðurstaðan sú að farsælast sé að byggja á sam- starfi við heimaaðila. Að sögn Kára Arnórs Kárasonar, framkvæmda- stjóra Lífeyrissjóðs Norðurlands, er markmiðið með þessu samstarfl m.a. að auka sérhæfingu við eignar- stýringu sjóðsins og skjóta um leið styrkari stoðum undir fjármálaþjón- ustu á Norðurlandi með eflingu ís- lenskra verðbréfa hf. Sparisjóður Norðlendinga er stærsti einstaki hluthafinn í íslensk- um verðbréfum og segist Jón Bjöms- son sparisjóðsstjóri fagna þessu til- boði sérstaklega. Hluthafar munu á næstu dögum taka formlega afstöðu tU tUboðsins. Jón segir þetta sam- starf heimamanna mjög ánægjulegt, með því breikki og styrkist starfsemi íslenskra verðbréfa tU muna og al- mennt muni þetta hafa jákvæð áhrif tU uppbyggingar fjármálastarfsemi á svæðinu. -gk hP OmniBook 6000 Ný hönnun. Fyrir þá sem þurfa mikil afköst. Tilvalin fyrir viöskiptaumhverfi&. Mikið úrval fylgihluta. hp OmniBook XE3 Hentug fartölva fyrir Internetið og margmi&lun. Innbyggðir flýtihnappar tryggja skjóta og einfalda leið að aðgerðum. Kemur með því sem þarf til viðskipta og skemmtunar. h p B r i o Intel Plll 800 MHz, Micro turn 256 Mb minni, 20 Gb diskur, nVIDIA GeForce2 GTS 32 Mb , DVD 8x/40x og 4x4x24 skrifari. Windows 98,Word 2000. HP 17" skjár. Verð 199.000 kr. Intel Plll 750 MHz, 128 Mb minni, 15 Gb diskur og DVD drif. Windows 98, WordPerfect. HP 17" skjár. Verft 149.900 kr. h p e-PC e-PC - forskot á framtíðina. Hljóðlát og stöðug. Minni kostnaður. h p Vectra Hágæða tölvur fyrir viðskipta- umhverfið. Fáanleg í þremur mismunandi útfærslum (MT,DT,SFF). i n v e n t Penninn Skrifstofutæki Suðurlandsbraut 4, sími 540 2025 Penninn Bókval Hafnarstræti 91-93, sími 461 5050

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.