Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Side 21
21
MANUDAGUR 18. DESEMBER 2000
I>V
Menning
Margradda
manndómsvígsla
Fyrir nokkrum árum voru sýndir í Ríkis-
sjónvarpinu þættir byggðir á skáldsögu
Aleksis Kivis, Sjö bræður. Ef minnið svík-
ur mig ekki þóttu þetta vondir þættir og ill-
skiljanlegir, svolítið drungalegir líka, og
staðfestu þannig fordóma okkar um
flnnska þjóðarsál. Þess vegna er rétt að
segja strax að skáldsagan Sjö
bræður er bráðskemmtileg lesn-
ing og óhætt að mæla með henni,
jafnvel í svartasta skammdeg-
inu.
Bókmenntir
Sagan segir af lífshlaupi
bræðranna sjö frá Jukola og er
þroskasaga þeirra allra. í upp-
hafi búa þeir einir á föðurleifð
sinni, en óróinn í blóðinu, tor-
næmi á bóknám og smáskærur
við nágranna reka þá út i
óbyggðir þar sem þeir eyða tíu
árum saman. Fyrst lifa þeir
áhyggjulausir við veiðar og skóg-
arlíf, en seinna neyða örlögin þá
til að reisa nýtt býli í jaðri hinn-
ar miklu landareignar sinnar og
þannig leggja þeir grundvöllinn
að inngöngu inn í samfélagið að
nýju þar sem þeir verða að lok-
um nýtir þegnar og gildir bænd-
ur, allir nema einn.
lega afslöppuð í samræmi við þetta
Sjö bræður er meðal merkari skáldsagna
nitjándu aldarinnar á Norðurlöndum. Þess
vegna er fengur að henni á íslensku. En
hún er ekki bara bókmenntalegur minnis-
varði, heldur dæmi um stórskemmtilega og
bráðlifandi skáldsagnalist þar sem klass-
ískt efni um átök menningar og náttúru er
framreitt í mögnuðu umhverfi Finnlands
nitjándu aldarinnar.
Jón Yngvi Jóhannsson
Aleksis Klvi: Sjö bræður. Aöalsteinn Davíösson
þýddi. Mál og menning 2000.
Undir bláhimni
Bjarni Stefán Kon-
ráðsson hefur valið
skagfirsk úrvalsljóð
og gefið út undir
heiti vinsælasta
skagfirska ljóðsins
til margra ára: Undir
bláhimni. Þarna er
að finna margar af
helstu ljóðaperlum
héraðsins fyrr og
síðar eftir fjölda val-
inkunnra höfunda
og má nefna Stephan G., Jóa i Stapa, Magnús
á Vöglum, Andrés Bjömsson eldri, Indriða G.
og Guðmund L. Friðfinnsson.
Bókin er gefin út í tilefni af þrítugsafmæli
Skagfirsku söngsveitarinnar. Hólar gefa út.
Sögufléttan er þess vegna
næstum því jafngömul sagnalist
mannkynsins. Manndómsvígsla
bræðranna felst i því að fara út í
hið óþekkta og hættulega, þaðan
snúa þeir aftur fullþroska menn,
tilbúnir að axla ábyrgð sína í
samfélaginu, giftast og auka kyn
sitt. Þroski þeirra felst lika í því
að tileinka sér siðmenninguna. I
útlegðinni læra þeir að lesa og
nema kristin fræði.
En þessi meginþráður er ekki
það sem gefur sögu Kivis gildi. í
flnnskri bókmenntasögu er talað
um hana sem fyrstu nútíma-
skáldsöguna, þar sem evrópsk
áhrif í stíl og frásagnarhætti
blandast innlendum sagnaarfi.
Sagan byggir mikið á samtölum,
hún er margradda, stundum
næstum óreiðukennd, grodda-
lega fyndin og átakanleg í senn.
Bræðurnir eru hvatvísir í meira
lagi, drykkfelldir á stundum og
mestu slagsmálahundar. Orðfær-
ið er eftir því: mergjuð samsuða
af kraftyrðum, þjóðsagnavísun-
um, gömlu bæna- og biblíumáli,
jafnvel skopstælingum á tali
presta og annarra mektarmanna.
Nú hef ég ekki forsendur til að
bera þýðingu Aðalsteins Davíðs-
sonar saman við frumtexta, en
stíll bókarinnar á íslensku er vel
heppnuð blanda. Eitt af því sem
talið er bókinni til tekna í
heimalandinu er að hún haft
flutt talmálið inn í bókmenntirn-
ar. Þýðing Aðalsteins er mátu-
★ ★★★★
HLJOMTÆKI
ÁRSINS
Awards Issue 2000
einfaldlega betrll
NAD C370 magnari ársins
2 x 120 W RMS 8 ohm
Verð 79.900,-
Beina leiðin á toppinn
er að kaupa NAD hljómtæki
Markmið NAD hefur alltaf verið að framleiða hljómtæki
á viðráðanlegu verði þar sem tóngæðin skipta mestu
máli. Það hefur skipað NAD í fremstu röð meðal
hljómtækjaframleiðenda.
Hvort sem þig vantar bíómagnara, geislaspilara, útvarp
eða venjulegan stereomagnara, finnur þú tækið frá NAD.
Fjárfestu í heyranlegum gæðum - ekki sjónhverfingum
eða óþarfa stillitökkum.
Náðu forskotinu með NAD