Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Síða 25
24
4"
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
41
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarforma&ur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason
Aöstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Fijálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritsfjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf.
Filmu- og plötugerð: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblaö 280 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Sameining bönnuð
Niðurstaða samkeppnisráðs um samruna Búnaðar-
bankans og Landsbankans er skynsamleg og til þess fall-
in að auka traust almennings á yfirvöldum samkeppnis-
mála. Samkeppnisráð telur að sameining bankanna
hefði leitt til „of mikillar samþjöppunar og markaðsráð-
andi stöðu á tilteknum mörkuðum á eftirfarandi sviðum;
markaði fyrir innlán, markaði fyrir útlán, greiðslumiðl-
unarmörkuðum og markaði fyrir verðbréfa- og gjaldeyr-
isviðskipti“.
Álit samkeppnisráðs er í samræmi við það sem hald-
ið hefur verið fram hér í leiðurum DV oftar en einu
sinni. í leiðara 14. október síðastliðinn sagði meðal ann-
ars að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
væri á villigötum í málefnum ríkisviðskiptabankanna:
„Skiptir engu hvort litið er á málið af sjónarhóli stjórn-
málanna eða út frá sjónarmiðum viðskiptalífsins. Sam-
eining Landsbanka og Búnaðarbanka þjónar engum
hagsmunum öðrum en rikissjóðs og gengur gegn anda og
tilgangi samkeppnislaga.“
Það er hins vegar út í hött af forystumönnum stjórn-
arandstöðunnar að halda því fram að niðurstaða sam-
keppnisráðs sé pólitískt áfall fyrir rikisstjórn Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks. Miklu nær væri að halda
því fram að álit samkeppnisráðs hafi gert málflutning
stjómarandstöðunnar að engu - gert hann ótrúverðugan
þar sem látið var í veðri vaka að samkeppnisráð væri lít-
ið annað en viljalaust verkfæri sterkrar ríkisstjórnar.
Á undanförnum vikum hefur stjórnarandstaðan hert
á málflutningi sínum gegn ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
og er það vel. Hitt er svo annað að formaður Samfylking-
arinnar hefur gengið fram með þeim hætti að erfitt verð-
ur fyrir hann að standa undir stórum orðum. Stjórn-
málamaður sem hefur tilheigingu til að mála með sterk-
um litum getur átt erfitt með að standa við gífuryrðin -
skiptir engu hvort hann ætlar sér að berjast eins og villi-
dýr.
Nú, þegar samkeppnisráð hefur sagt sitt, skiptir
mestu að ríkisstjórnin klári það verkefni sem hún hefur
dregið, að selja Búnaðarbanka og Landsbanka. Verkefni
ríkisstjórnarinnar og viðskiptaráðherra sérstaklega, var
aldrei að knýja fram sameiningu á fjármálamarkaði með
þeim hætti sem stefnt var að, en samkeppnisráð hefur
komið í veg fyrir. Verkefnið var og er að draga ríkið fyr-
ir fullt og allt út úr rekstri á fjármálamarkaði, en um
leið að tryggja eðlilega samkeppni. Þar er einkavæðing
ríkisviðskiptabankanna mikilvægt skref - næsta skref
er nátttröllið sem heldur fasteignamarkaði í heljargreip-
um. íbúðalánasjóður ætti fýrir löngu að heyra sögunni
til - sjóður sem var stofnaður á grunni gamalla og úr-
eltra ríkisstofnana, Húsnæðisstofnunar og nær gjald-
þrota Byggingasjóðs verkamanna. Byggðastofnun, Lána-
sjóður landbúnaðarins, Ferðamálasjóður eru aðeins
fleiri dæmi um tilgangslausa þátttöku rikisins á fjár-
málamarkaði - þátttöku sem kemur í veg fyrir eðlilega
þróun.
Fáir bera á móti því að endurskipulagning og hagræð-
ing sé nauðsynleg á íslenskum fjármálamarkaði. Til að
hrinda af stað uppstokkun á íslenskum fjármálamarkaði
sem öll rök benda til að sé nauðsynleg verður ríkið að
draga sig í hlé og lofa markaðsöflunum að ráða ferðinni.
Óli Bjöm Kárason
I>V
Skoðun
Össur formaður fjarar út
„Össuri er að vissu leyti nokkur vorkunn. Hann koltap-
aði fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur í prófkjöri í Reykja-
vík og beitti sér í kjölfarið fyrir því að Margrét
Frímannsdóttir yrði einhvers konar „talsmaður“
flokksins í kosningum á meðan hann undirbjó
jarðveginn betur fyrir sjálfan sig. “
Það hlýtur að vera fólki,
sem ól þá von í brjósti að
hér yrði til stór jafnaðar-
mannaflokkur, mikil von-
brigði hve lítið fylgi Sam-
fylkingin hefur haft í skoð-
anakönnunum að undan-
fórnu. Leitað er skýringa á
þessari vonlausu baráttu og
hefur óánægja fólks beinst í
auknum mæli að formanni
flokksins, Össuri Skarphéð-
inssyni.
Veikleiki Össurar
Margir hafa efast um trú-
verðugleika Össurar og likt honum
við pólitískan vindhana. Hann er
fljótur að hlaupa til og grípa þau
tækifæri sem hendi eru næst fyrir
stundarvinsældir. Össur flúði fyrst
Alþýðubandalagið og sótti eftir veg-
tyÚum í Alþýðuflokknum. Hann rit-
stýrði hinum rammsósialíska Þjóð-
vilja og síðar Alþýðublaðinu, sem
liðu svo undir lok sökum áhugaleys-
is lesenda. Nú er hann formaður
Samfylkingarinnar og enn er ekki
ljóst fyrir hvað hann stendur né
hvert hann stefnir, enda eðli vind-
hana að vísa i þá átt sem
blæs hverju sinni.
Eftir að hlegið var upp-
hátt um land allt þegar
Samfylkingin opinberaði
fyrsta málefnabastarð sinn
fyrir síðustu kosningar
fékk Össur hugljómun. Nú
fer hann um landið og
„prófar" hvaða kosninga-
mál eru kjósendum að
skapi. Hugsjónir hans snú-
ast líka helst um það að ná
völdum. En þar liggur líka
veikleiki Össurar; hann er
tilbúinn að gera hvað sem
er í von um auknar vinsældir. Þetta
er þvi enn ein staðfestingin á stefnu-
og hugsjónaleysi formannsins.
Nokkur vorkunn
Össuri er að vissu leyti nokkur
vorkunn. Hann koltapaði fyrir Jó-
hönnu Sigurðardóttur í prófkjöri í
Reykjavík og beitti sér í kjölfarið fyr-
ir því að Margrét Frímannsdóttir
yrði einhvers konar „talsmaður“
flokksins í kosningum á meðan hann
undirbjó jarðveginn betur fyrir sjálf-
an sig.
Til að binda jarðveginn vel var
lagt í mikla listavinnu, sem fólst í
því að sópa saman öllum listum sem
fundust yfir fyrrverandi flokksfélaga
í Alþýðuflokknum og Alþýðubanda-
laginu, við litla hrifningu margra af
hans fyrri félögum. Jarðvegurinn
sem Össur byggði á var því ótraust-
ur, bæði innan Samfylkingar meðal
samstarfsfólks og utan hjá kjósend-
um. ímyndaruppbygging Össurar
sem leiðtoga hefur runnið út i sand-
inn og senn fjarar undan honum.
Margir hafa gaman af kjaftagang-
inum, þar sem búast má við Össuri,
stundum i óvæntu liki villidýrs, en
hafa ekki trú á að hann sé fær um að
standa í stafni þjóðarskútunnar og
stýra efnahagsstefnu sem fjölskyldur
í landinu byggja fyrirætlanir sínar
og afkomu á. Á vinstri væng stjórn-
málanna hefur hann misst af leið-
togahlutverki sínu og orðið fyrir
háði og spotti fylgismanna Vinstri
grænna. „Bland í poka“ stefnan, sem
átti að tryggja sterka stöðu Össurar
og Samfylkingarinnar, virðist því
hafa snúist gegn honum á meðan
andstæðingar styrkja stöðu sína. Það
er nauðsynlegt fyrir fólk, sem ber
enn von í brjósti um stóran jafnaðar-
mannaflokk, að byggja ekki hug-
myndir sínar á sandi. Vindhanar eru
ekki góðir áttavitar þegar stýra þarf
fleyinu í sviptivindum stjórnmál-
anna. - Hvenær fjarar Össur út?
Björgvin Guðmundsson
Björgvin
Guðmundsson
formaöur Heimdallar
Vondur vegur - góðir ökumenn?
Reykjanesbrautin er elsti þjóðveg-
ur landsins með varanlegu slitlagi.
Um hann er nú rætt sem mesta
slysaþjóðveg landsins og háar raddir
uppi um að stjórnvöld þurfi að gera
hann minna hættulegan.
En er það vegurinn sjálfur sem er
hættulegur?
Einn besti þjóðvegurinn
Til að vegur teljist hættulegur þarf
að vera eitthvað að honum sjálfum
eða lægi hans. Hættulegur vegur er
t.d. með djúp hjólför eða skarpar
brúnir milli akbrautar og axlar.
Hvorugt er til staðar á Reykjanes-
braut eins og er. Óhæfiiega mjóar
akreinar eru einnig hluti af hættu-
legum vegi en það á ekki heldur við
um Reykjanesbrautina. Hættulegt
lægi vegar felst m.a. í blindhæðum
eða vondum beygjum, blindum eða
of kröppum, svo og röngum vegar-
halla.
Á eitthvað af þessu við um Reykja-
nesbrautina? - Sannleikurinn er sá
að Reykjanesbraut er einn besti þjóð-
vegur landsins. Hann er tiltölulega
beinn og mishæðalaus og fátt sem
byrgir yfirsýn. Akreinarnar eru ekki
of mjóar og viðhaldið er a.m.k. um
þessar mundir dágott. Síðastliðið
sumar voru vegaraxlir hans lagfærð-
ar þannig að nú er án teljandi
„Sannleikurinn er sá að Reykjanesbraut er einn besti þjóð-
vegur landsins. Hann er tiltölulega beinn og mishœðalaus
og fátt sem byrgir yfirsýn. Akreinamar eru ekki of mjóar
og viðhaldið er a.m.k. um þessar mundir dágott.“
Allir fara yfir á gulu
j „Það er aðeins eitt
dýrmætara en heils-
MgdHS an - tóbakið. En svo
gSf maður byrji nú á
heimskulegri afleið-
ingarökfræði þá reykja ekki
hlutfallslega fleiri í Bandaríkjun-
um þar sem tóbaksauglýsingar
hafa verið leyfðar í áratugi, en í
kommúnistaríki eins og íslandi
þar sem bannað er að auglýsa
vöru sem ríkið leyfir og er meira
að segja sjálft að selja. Rikið á einfald-
Iega ekki að gefa grænt ljós á vörur eins
og tóbak og áfengi en síðan rautt ljós á
auglýsingar á þeim. Það þýðir einfald-
lega að allir fara yfir á gulu með dulbún-
Sverrir
Stormsker
tónlistarmaöur
um auglýsingum og neðanjarðar-
lestin fer á siglingu. Það verður
að vera eitthvert samræmi í allri
þessari hræðilegu kommaþvælu.
Það er t.d soldið hlálegt að tóbaks-
auglýsingar skuli vera bannaðar
hér á landi á sama tíma og Lax-
ness og fleiri góðir dánir og lif-
andi gæjar eru reykjandi alla sína
spyrla í kaf í sjónvarpsþáttum.
Auglýsingar gefa bara reykinn af
réttunum og rettunum en það er
enginn tilneyddur til þess að taka hann
ofan i sig. Tóbakiö er ætlað fullorðnu
fólki og þó að fullorðið fólk sé vitlaust þá
er skelfilega vitlaust að reyna að hafa vit
fyrir því.“
áhættu hægt fyrir hægfara
umferð að víkja út á þær til
að hleypa hraðari umferð
fram úr.
Vandséð sök vegar
í kjölfar nýlegra og hastar-
legra slysa á Reykjanesbraut
hefur verið talið upp hve
mörg banaslys hafa orðið á
henni. Ekki hefur verið getið
um í því samhengi hver
slysatíðnin var meðan þarna
var hlykkjóttur og holóttur
malarvegur né heldur um-
ferðarþungi þá og síðan. Ekki hefur
heldur verið borin saman slysatíðni
á þessum vegarspotta og öðrum sam-
bærilegum miðað við umferðar-
þunga.
í þessari umræðu hefur lítið farið
fyrir kröfu um að vegfarendur líti i
eigin barm.
Ekki skal lítið gert úr þeirri skelf-
ingu að saklausir og aðgætnir hafa
mátt þola örkuml eða bana á þessum
vegarspotta án þess að geta borið
hönd fyrir höfuð sér, en það er ekkert
einsdæmi eða bundið við Reykjanes-
braut. Flest þeirra slysa sem þama
hafa orðið, eins og annars staðar,
bera þess merki að ökumenn hafi
annaðhvort sofnað eða verið að gera
eitthvað annað en sinna akstrinum.
Sök vegarins er oftast vandséð.
Raunhæfasta umbót í umferðar-
málum íslendinga hlýtur að vera
viðleitni til þess að vekja ökumenn -
vekja þá í eiginlegri merkingu og
einnig til umhugsunar um að akstur
er nokkuð sem krefst óskiptrar at-
hygli og stöðugrar athygli.
Lögreglan á vettvang
Ár út og ár inn er suðað um þörf-
Siguröur Hreiðar
bílablaðamaöur
ina á að ná niður umferð-
arhraða og talað um allt
yfir lögleyfðum hraða sem
„ofsaakstur" og þá sem
staðnir eru að slíku, án til-
lits til aðstæðna, sem
„ökuníðinga". Allt er þetta
varasöm alhæfing og óskil-
greindar fullyrðingar.
Vissulega er of hraður
akstur miðað við aðstæður
glæpsamlegt athæfi en af-
stætt fyrirbæri og verður
ekki metið út frá löghraða
nema að takmörkuðu leyti
og getur allt eins átt við hraða undir
þeim sem lögleyfður er. Að mínu viti
hefur umferðaruppeldi okkar miðast
of mikið við þennan eina og afar of-
metna þátt.
Ég tel að uppbyggilegri afskipti
umferðarlögreglu væru miklu væn-
legri til árangurs. Ég vil sjá lögregl-
una stöðva vegfarendur þegar tilefni
er til, hvort heldur er á ökutækjum
eða gangandi, og kanna hvort þeir
hagi sér svo sem raun ber vitni af
því að þeir viti ekki betur eða af öðr-
um orsökum - og benda á mistök
þeirra. Sekt eða refsipunktar eru
ekki aðalatriði heldur hitt: að vekja
fólkið til skilnings á því að það er
ekki eitt í umferðinni.
Vissulega væri gott að tvöfalda
Reykjanesbraut. En miðað við um-
ferðarþunga eru aðrir spottar meira
áríðandi því endurbætt vegalagning
þar sem góðir vegir eru fyrir hlýtur
að eiga að beinast að því að greiða
fyrir umferð í samræmi við umferð-
arþunga. Og það er ekki síður þörf á
því á tvöfaldri Reykjanesbraut en ein-
faldri að þeir sem hana aka séu vak-
andi - með hugann við aksturinn.
Sigurður Hreiðar
fa reykitigar í auglýsingum?
Fyrirmyndir hafa sterk áhrif
„Auglýsingar eru
(JPPfÍf áhrifamiklar, er
■' r ætlað að vekja þörf
f fyrir afurð, reynslu
og upplifun. Aug-
lýsingar sýna oft fólk og lífsstíl
sem er glæsilegur og eftirsókn-
arverður. Við þekkjum hvem-
ig horaðar fyrirsætur hafa
breytt sjálfsímynd ungra
stúlkna, þær telja eftirsóknar-
vert að vera horaður og tek-______
inn. Ungt fólk leitar eftir
ímynd sem lætur það sýnast fullorð-
ið, kúl. Reykingar í auglýsingum ýta
undir þá ímynd að reykingar séu kúl
Þorsteinn
Njálsson
læknir, formaöurtó-
baksvarnanefndar
og til þess fallnar að falla
inn í hópinn og sýnast full-
orðinn. Ég þekki engan sem
vill ýta undir reykingar
ungs fólks, jafnvel hörðustu
reykingamenn óska engum
svo ills að ánetjast reyking-
um. Fyrirmyndir úr daglega
lífinu, auglýsingar og bíó-
mynd hafa sterk áhrif á
ungt ómótað fólk en líka á
tíðarandann. Reykingar eru
ekki inni lengur, það fylgir
þessu bölvuð fýla.“
Annaö slagiö heyrast raddir sem telja reykingabönn samfélagsins vera komín út í öfgar, þar með taliö bann við reykingum í auglýsingum.
Ummæli
íhaldssemi er dyggð
„Einar K. Guð-
fínnsson sagði við
mig einhvern tíma
löngu áður en
hann varð alþing-
ismaður, að
„íhaldssemi væri
dyggð“. Þegar ég
heyrði þetta fyrst
þótti mér það lítil speki. í dag er ég
ekki eins viss. Sérstaklega eftir að
hafa hlustað á jólaauglýsingu frá
Blómavali i útvarpinu ... Megum við
ekki að minnsta kosti fá að hafa jóla-
sálmana í friði? Varla er þetta sú sátt
sem biskupinn boðaði milli kaup-
manna og kristnihalds, eða hvað? Ég
lít á mig sem frjálslyndan mann og
engan talsmann banna. En á sumum
sviðum verður bara að segjast eins
og er, að íhaldssemi er dyggð!!
Birgir Guðmundsson, aðstoðarritstjóri
Dags, 15. desember.
Ljúgandi á
ríkisframfæri
Landbúnaðarstefna stjórnvalda er
byggðastefna, sem
hefur reynzt þjóð-
inni óheyrilega
dýr, eins og hún
hefur verið útfærð.
Sj ávarútvegsstefn-
an er angi á sama
meiði... Sjávarút-
vegurinn er á rík-
isframfæri og hefur raunar aldrei
getað staðið á eigin fótum ... Útvegur-
inn verður þá enn sem fyrr á ríkis-
framfæri. Það er engum hollt að lifa
lífinu Ijúgandi. En setjum nú svo, að
alþingi ákveði að láta sér nægja „hóf-
legt gjald“ fyrir veiðiheimildir. Gott
og vel, alþingi ræður, en við skulum
þá nefna hlutina réttum nöfnum."
Þorvaldur Gylfason prófessor
í Mbl-grein 15. desember.
Lögregluútgerð á
Reyk j anesbraut
„Það er óskaplega mikil umræða
um Reykjanes-
brautina vegna
hinna tíðu slysa
þar og fólk er uppi
með ýmsar hug-
myndir til úrbóta
þar til brautin hef-
ur verið tvöfólduð
... Þess vegna held
ég að það besta sem
gert verður meðan beðið er sé að gera
út lögreglubíla, einn frá Hafnarfirði
og annan frá Reykjanesbæ sem fara
fram og aftur um Reykjanesbraut.
Ýmsar merkingar ætti að setja upp
um hámarkshraða, að lögreglan sé á
brautinni og bann við framúrakstri."
Hjálmar Árnason alþm.
I Degi 15. desember.
Ráðley sisríkisst j órn
vegna framkvæmdar fisk-
veiðistjómunarkerfisins.
8-12.000 manns
Skammt er nú til jóla.
Það er sá tími sem menn
temja sér fremur að sýna
tillitssemi og umhyggju.
Margt hefur sem betur fer
breyst til mikils batnaðar á
liðnum áratugum en enn
eru óunnin verk sem lúta
frekar að manngildi heldur
en efnahagsaðgerðum og
prósentureikningi. Það eru
þau atriði sem ég hef marg-
nefnt í mínum ræðum og greina-
skrifum og lúta að stöðu þess fólks
sem í dag þarf að lifa við fátæktar-
mörk.
Það er ekki sæmd að því að á Is-
landi skuli vera svo fjölmennur hóp-
ur sem lifir við kröpp kjör. Nýlegt
bréf Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi
landlæknis, greinir frá því að tæp-
lega 7.400 aldraðir lifi við slík kjör
Allstór hópur öryrkja og einnig ein-
stæðra foreldra teljast til þessa
lakast setta hóps þannig að um er að
ræða allt að 12 000 manns.
Betra færi nú en oft áður
Mér er alveg Ijóst að það verða
alltaf einhverjir lakast settir en það
hlýtur að vera lag núna að
bæta sérstaklega hag þess
fólks sem ég hef hér getið
um. Ég veit ekki hvort menn
hafa hugleitt það að 4% af
áætluðum tekjuafgangi rík-
issjóðs á næsta ári myndi
gerbreyta stöðu þeirra sem
hér um ræðir. Það hlýtur að
vera unnt að fá alla þjóðina
til að sættast á slíka lagfær-
ingu. Það þarf ekki að taka
nema stuttan tíma að greina
þann hóp sem um ræðir.
Það er ljóst að mjög margt
hefur breyst til betri vegar á
síðastliðnum 30 -40 árum. Annað aft-
ur til verri vegar vegna hraða og
spennu nútímasamfélagsins. Það er
brýn nauðsyn að breyta hugsuninni
í samfélaginu til betri vegar og setja
mannhyggju ofar peningahyggju.
Við íslendingar eigum möguleika á
einu besta samfélagi heimsins með
álíka aðgerð og þeirri sem ég hér
ræði um. Að minnsta kosti versna
ekki kjör þeirra sem hærra eru sett-
ir í launastiganum þótt hækkun
komi beint í krónutölu fyrir þá sem
hér um ræðir. - Skattaaðgerðir kom
einnig til greina. Þær geta að fullu
og öllu orðið ígildi beinharðra
króna.
Gísli S. Einarsson
Gísli S. Einarsson
þingmaöur
Samfylkingar í
Norövesturkjördæmi
Ekki hefur frést af
góðæri alls staðar
Það sem ég er að
fjalla um hefur verið að
gerast á síðustu árum
sem sumir kalla góðær-
isár, a.m.k á suðvestur-
homi landsins. Ég er
ekki viss um að á mörg-
um stöðum, utan Stór-
Reykjavíkursvæðisins,
hafi fólk fundið fyrir
góöærinu í líkingu við
lýsingar forystumanna
ríkisstjórnarinnar á því
fyrirbrigði. Það á ekki
við að nefna einstaka
staði landsbyggðarinnar
en það er þó ljóst að ein-
staka staðir hafa staðið
af sér verstu áfollin
„Rikisstjórnarflokkamir vinna nú skipulega að því að fœkka
störfum í bönkum á landsbyggðinni hvar sem því verður við
komið. í kjölfar sameiningar Búnaðar- og Landsbanka mun
verða fækkun starfa, sérstaklega hjá konum. “
Ástæða er til að velta fyrir sé ýms-
um afleiðingum aðgerða/aðgerðaleys-
is ríkisstjórna Davíðs Oddssonar.
Vegna m.a. framkvæmdar fiskveiði-
stjórnunar hefur orðið landsbyggðar-
flótti. Afleiðingar eru verðhrun eigna
á landsbyggðinni, kostnaðarsamir
flutningar til Suðvesturlands og
tekjumissir sveitarfélaga þaðan sem
brottflutningur er mestur.
Þetta hefur brotið niður undir-
stöður fjárhags fjölmargra sveitarfé-
laga. Þær undirstöður sem um er að
ræða eru öflug veiðiskip, áhafnir
með miklar tekjur og síðast en ekki
síst lokun stórra fiskverkunarfyrir-
tækja sem hefur orsakað brottflutn-
ing Qölskyldna.
Veiking byggöanna
Afleiðingar alls þessa eru merkj-
anlegar hvert sem litið er. Húsnæðis-
vöntun er á suðvesturhorni landsins
en íbúðir eru auðar úti á landi. Þar
gengur fólk jafnvel út úr verðlausum
húsum eða íbúðum og skilar lykli að
þeim til bankanna. Óglæsilegt það!
Enn virðist haldið áfram að veikja
byggðirnar. Ríkisstjórnarflokkarnir
vinna nú skipulega að því að fækka
störfum í bönkum á landsbyggðinni
hvar sem því verður við komið. í
kjölfar sameiningar Búnaðar- og
Landsbanka mun verða fækkun
starfa, sérstaklega hjá
konum. Þar auki er ver-
ið að undirbúa að leggja
niður störf ýmissa
starfsmanna RARIK
með nýjum breytingatil-
lögum. Með þessu er
verið að stuðla að enn
meiri byggðaröskun en
orðin er af völdum kol-
rangrar framkvæmdar
fiskveiðistjórnunar-
stefnu á liðnum árum.