Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Qupperneq 44
">60
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000
Tilvera I>V
lí f iö
fjórir í Kaffi-
leikhúsinu
í dag kl. 17.30 veröur sýndur
5. einleikurinn í einleikjaröð
Kafíileikhússins. Sá nefnist
Missa Solenmis eöa í öðrum
heimi og er eftir finnsku
leikkonuna og leikstjórann
Kristiinu Hurmerinta. Leikari er
Jórunn Sigurðardóttir og leik-
stjóri er höfundurinn sjálfur
Kristiina Hurmerinta.
Leikhús
■ LITLA STULKAN MEÐ ELDSPYT-
URNAR Leikritiö Litla stúlkan með
eldspýturnar veröur sýnt í dag klukk-
an 14 í dag í Hafnarfjarðarleikhús-
inu.
Kabarett
■ NINA BJORK ARNADOTTIR
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
stendur í kvöld fyrir dagskrá helgaðri
Nínu Björk Árnadóttur skáldkonu.
_f. Lesið veröur úr nýútkominni Ijóða-
“ bók og kaflar úr ýmsum verkum
hennar. Dagskráin hefst kl. 20.30.
Myndlist
■ ANTIK BUTASAUMSTEPPI Um
helgina opnaöi sýning á antik
bútasaumsteppum í aðalsal
Hafnarborgar, menningar- og
listastofnunar Hafnarfjarðar. Teppin
koma úr safni Marti og Dick
Michell en safn þeirra er stærsta
einkasafn af þessum toga í Banda-
ríkjunum. Á sýningunni verða um
þrjátíu teppi, þau elstu frá því um
1850. Samstarfsaðili Hafnarborgar
aö þessari sýningunni eru hjónin
Guðfinna Helgadóttir og Helgi Ax-
elsson, eigendur vefnaðarvöruversl-
unarinnar Virku, en Guðfinna hefur
unnið að undirbúningi og valið verkin
á sýninguna í samvinnu við eigend-
ur. Þau hjónin Marti og Dick Michell
eru væntanleg tíl landsins í lok des-
ember og mun Marti Michell halda
fyrirlestur í Hafnarborg miðvikudag-
inn 3. janúar 2001 kl. 20.30. Sýn-
ingin veröur opin kl. 11-17 dagana
16.-23. og 27.-30.desember og
3.-7. janúar, 2001.
' > ■ ÍSLENSK RÝMISVERK
Um helgina var opnuð sýning í Lista-
safni íslands á úrvali rýmisverka
sem safnið hefur keypt á undanförn-
um árum eftir starfandi listamenn.
Á sýningunni verða verk eftir Ragn-
hildi Stefánsdóttur, Rósu Gísladótt-
ur, Brynhildi Þorgelrsdóttur, Stein-
unni Þórarinsdóttur, Guðjón Ketils-
son, Kristin E. Hrafnsson og Daníel
Magnússon. Sýningin stendur til 15.
janúar 2001.
■ TRÚUM VH) Á ENGLA? Listnem
arnir úr f^ölbraut í Breiðholti, þær
Harpa Rún Ólafsdóttir og Inga
Björk Andrésdóttir halda um
þessar mundir sýningu á verkum
'^sínum í Gallerí Geysi. Þema sýningar
er englar.
Sport
■ TÖTTENHAM-ARSENAL Á
SPORTKAFFI A Sportkaffi kl 20.00
má sjá leik Tottenham-Arsenal í
beinni á skjánum.
+ Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Farskóli Norðurlands vestra hlaut styrk frá starfsmenntaáætlun ESB:
Menntunin færð til fólksins
Bíógagnrýni
Ástarsaga
Hiimar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Háskólabíó - Autumn in New York: ý,
„Starfsemi skólans hefur vaxið
jafnt og þétt. Við erum stöðugt að
breyta samsetningu námsins og
erum að stíla inn á lengri námskeið
í auknum mæli. Það þarf stöðugt að
þróa námsefnið og laga það að þeim
breytingum sem verða i þjóðfélag-
inu. Við reynum að miða náms-
framboðið við þörfina og oft erum
við líka milliliðir fyrir aðUa sem
bjóða námskeið á svæðinu. Þá höf-
um við einnig verið í samstarfi við
Endurmenntunarstofnun Háskóla
íslands og skapað aðstöðu fyrir
nemendur þeirra hér á svæðinu,"
segir Anna Kristín Gunnarsdóttir,
skipulagsstjóri Farskóla Noröur-
lands vestra.
Breytum byggð
Anna Kristín átti hugmynd að og
undirbjó umsókn til Evrópusam-
bandsins um styrk tU verkefnis sem
hún kallar „Breytum byggð“ og er
sniðið að Hofsósi. Hlaut það hæsta
styrk sem starfsmenntaáætlun ESB
hefur veitt til íslands, 530.000 evrur
eða rúmar 40 miUjónir íslenskra
króna.
Verkefnið er fimm landa samstarf
en auk íslands taka Svíþjóð, Austur-
ríki, Spánn og Grikkland þátt í því.
Verkefnið snýst um að gefa litlum
byggðarlögum sem búið hafa viö
hnignun í atvinnulífi færi á aðlögun
að nýjum tímum með endurmennt-
un. Aðalefnin sem tekin verða fyrir
á Hofsósi eru enskukennsla, tölvu-
kennsla, kennsla í þjónustu við
ferðamenn og sjálfsefli. Gert er ráð
fyrir að kennslan hefjist um mán-
aðamótin febrúar-mars.
Komið verður upp sérstakri að-
stöðu vegna kennslunnar á Hofsósi,
nýju og fuUkomnu tölvuveri, og
reynt verður að búa þannig um
hnútana að þátttakendur í nám-
skeiðinu geti þjálfað sig og bætt við
þekkingu sína á eigin spýtur.
Líkt gömlu farskólunum
En hvað er Farskóli Norðurlands
vestra? Þetta er ekki sá gamli far-
skóli er þekktist i bama- og grunn-
námi hér áður fyrr, þegar kennar-
inn ferðaðist bæ frá bæ tU sveita, en
þó er eitthvað líkt með þeim. Að
minnsta kosti segir Anna Kristin að
hugmyndafræðin sé sú að kennar-
Aölögun aö nýjum tímum
Anna Kristín Gunnarsdóttir, skipulagsstjóri Farskóia Noröuriands vestra, segir
hér frá skólanum og verkefninu Breytum byggö sem hlaut 40 milljón króna
styrk frá Evrópusambandinu nýveriö.
inn og menntunin séu færð til fólks-
ins en ekki fólkið til skólans. Þetta
hefur gengið vel og hefur Farskól-
inn verið með kennslu á öUum þétt-
býlisstöðunum á Norðurlandi
vestra á hverjum vetri og nemend-
um skólans farið þar fjölgandi.
Farskóli Norðurlands vestra tók
til starfa snemma árs 1993. Hann
hafði strax þá sérstöðu meðal ann-
arra farskóla, að hann var ekki ein-
ungis hluti af framhaldsskólunum á
viðkomandi stað, heldur stóðu sveit-
arfélögin á svæðinu, Iðnþróunarfé-
lag Norðurlands vestra og Menning-
ar- og fræðslusamband alþýðu, sem
fulltrúi stéttarfélaganna, einnig að
honum. Jafnframt var skólanum
sett sérstök skipulagsskrá. „Þessi
rekstrarlega samsetning gerði það
að verkum að þegar lagabreytingar
tóku gUdi á árinu 1997 sem kipptu
fjárhagslegum stoðum undan starf-
semi farskólanna var auðveldara að
leggja málið fyrir eigendur Farskóla
NV, sem gengu þá tU liðs við skól-
ann með aukinni þátttöku, auk þess
sem stéttarfélögin komu þá að starf-
semi skólans með beinum fjárstuðn-
ingi. Þar með var tryggt eitt stöðu-
gildi við skólann."
Fjölbreytt námskrá
Þegar litið er í námskrá Farskól-
ans kemur í ljós að framboð á náms-
efni er mjög fjölbreytt. Fjöldinn aU-
ur af tölvunámskeiðum, tungmála-
nám, matreiðsla, kökugerð, smur-
brauðsnámskeið og jólakonfekt.
Tómstundanámskeið eins og i kerta-
gerð, fluguhnýtingum, körfugerð,
útskurði, bútasaumi, silfursmíði og
í rauninni aUt miUi himins og jarð-
ar. „Við höfum verið með mikið af
námskeiðum fyrir ófaglært starfs-
fólk, námskeið fyrir leiðsögumenn,
vélgæslunám, skipstjómarréttinda-
nám og síðan er með aðstoð fjar-
kennslutækjanna hægt að stunda
nám hjá okkur við bæði Háskóla ís-
lands og Háskólann á Akureyri, s.s.
í leikskólakennaranámi."
- Breytti tilkoma fjarkennslu-
tækninnar miklu í staifsemi skól-
ans?
„Já, hún gefur bókstaUega nýja
möguleika. Gott dæmi um það er
sjúkraliðanámið. Áður þurftu
sjúkraliðar í langflestum tilfeUum
að sækja endurmenntun sína út fyr-
ir heimabyggð. Farskóli Norður-
lands vestra í samvinnu við Far-
skóla Austurlands, VMA og Sjúkra-
liðafélag Norðurlands kom á fót
námskeiðum þar sem Qarkennslu-
búnaðurinn var nýttur og notið var
leiðsagnar og kennslu sérfræðinga
frá Neskaupstað, Akureyri og Sauð-
árkróki auk kennara Farskólans.
Nemendurnir hafa verið frá Höfn í
Homafirði, um Austfirði, af Norður-
landi öUu, VestUörðum og Vestur-
landi og aUt tU Suðurlands.“
Er þá Farskóli Norðurlands
vestra kominn tU að vera?
„Það er ekkert öruggt í þessari
veröld en símenntun er komin til að
vera. Það er talið að fólk sem er að
fara út á vinnumarkaðinn í dag
muni þurfa að skipta um starf sex
til átta sinnum á ævinni. Það þýðir
að fólk þarf sífeUt að endumýja
menntunina en kenningar eru um
að 80% þekkingar úreldist á 10
árum,“ sagði Anna Kristín Gunn-
arsdóttir að endingu.
-ÞÁ/-ss
Dramatískar ástarsögur þar sem
annar aðUinn er með ólæknandi
sjúkdóm er ákaflega varasamt við-
fangsefni í kvikmynd og aUs ekki
skynsamleg ráðstöfun. Það er af
sem áður var að slíkar myndir eigi
upp á paUborðið hjá fjöldanum. Má
segja að Love Story hafi gengið frá
slíkum kvikmyndum á sínum
tíma, en einmitt I hana hefur verið
vitnað í tíma og ótíma þegar slíkar
kvikmyndir koma fram á sjónar-
sviðið. Hinni geðþekku leikkonu
og núverandi leikstjóra Joan Chen
hefur örugglega verið ljóst að hún
var að fara inn á hættulega braut
þegar hún tók við að gera Autumn
in New York sem að grunni tU á
ýmislegt sameiginlegt með Love
Story. Chen varast margar hættur
þó að efnið bjóði vissulega upp á
tilfmningarík atriði. Flestum er þó
óhætt að skilja vasaklútinn eftir
heima.
Autumn in New York er ástar-
saga um WiU og Charlotte. WiU er
mikið kvennaguU, kominn hátt á
fímmtugsaldur og á að baki marga
sigra i samskiptum sínum við kven-
þjóðina. Þegar við hittum hann fyr-
ir er hann að losa sig út úr einu
sambandinu og er á lausu þegar
hann hittir hina ungu Charlotte
sem er rúmlega tvítug. Hann töfrar
hana upp úr skónum og telur að
hér sé einn sigurinn í burðarliðn-
Kvensamur veitingahúseigandi.
Richard Gere í hlutverki Wills sem kynnist ástinni í fyrsta sinn.
um. Það kemur fljótt í ljós að WiU
hefur þekkt móöur Charlotte sem
er látin og amma stúlkunnar er
langt í frá hrifinn af því að WUl sé
að stíga í vænginn við bamabarn
hennar. WiU sem hrífst af ungæðis-
legri fegurð Charlotte er í raun á
sama máli og amman og viU enda
sambandið sem fyrst. Þegar hann
tUkynnir Charlotte að þau eigi ekki
samleið lengur samþykkir hún það
enda sé hún dauðvona. Þetta er
svar sem WiU á ekki von á og má
segja, vægt til orða tekið, að frá
þessu andartaki fari sálarlíf hans í
eina flækju ...
Það sem bjargar Autumn in New
York frá þvi að vera væminn tára-
dalur er kannski fyrst og fremst að
það er mjög erfitt að taka söguna
alvarlega, þá er stundum ágætur
húmor á ferðinni. Þótt þessir tveir
þættir séu teknir með í reikning-
inn er það ekki nóg tU að bjarga
myndinni. Hún er gamaldags og
uppfull af klisjum og það sem er
kannski verst er að sambandið á
mUli WiU og Charlotte er ekki
sannfærandi. Það er ekki hægt að
segja að rafmagnað andrúmsloft
myndist þegar þau hittast. Richard
Gere og Winone Ryder ná samt
ágætum tökum á hlutverkum sín-
um, en kannski er fjarstæðan of
mikU tU að hægt sé fyrir þessa tvo
ágætu leikara að ná saman.
Leikstjóri: Joan Chen. Handrit: Allison
Burnett. Kvikmyndataka: Gangwei Gu.
Tónlist: Gabriel Yared. Aöalleikarar: Ric-
hard Gere, Winona Ryder, Anthony La
Paglia og Eilaine Stritch.