Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.2000, Side 4
20
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2000
tölvun takni og vísinda
Kenning um votviðrið í Bretlandi:
Lægðir við ísland
meðal sökudólga
- Páll Bergþórsson veðurfræðingur ekki sammála
NAO er heitið á að því
er virðist tilviljana-
kenndum sveiflum á
loftþrýstíngi yfir Norð-
ur~Atlantshafinu sem
gerast mjög hægt,
með ára eða áratuga
millibili. Þetta er hins
vegar umdeild kenning
og ekki samstaða um
hana meðal veður-
fræðinga.
BHópur vísinda-
manna við Uni-
versity College í
London hafa gef-
ið út langtíma-
veðurspá fyrir
Bretlandseyjar
þar sem sagt er 70-75 % líkur séu á
því að sú vætu- og stormatíð sem
riðið hefur yfir eyjarnar að undan-
fömu haldist út veturinn. Ástæðuna
telja þeir að hafi minna með gróður-
húsaáhrifin að gera heldur en hita-
stig sjávar og áhrif þess á lofthjúp-
inn.
Umdeild kenning
Stutt er síðan að rannsóknir
leiddu í ljós hugsanleg tengsl milli
hitstigs sjávar og þess sem á ensku
er kallað North Atlantic Oscillation
(NAO); næsta þýðing á íslensku
væri Norður-Átlantshafssveiflan.
NAO er heitið á að því er virðist til-
viljanakenndum sveiflum á loft-
þrýstingi yflr Norður-Atlantshaflnu
sem gerast mjög hægt, með ára eða
áratuga millibili. Þetta er hins veg-
ar umdeild kenning og ekki sam-
staða um hana meðal veðurfræð-
inga.
Vísindamennirnir, dr. Mark
Saunders, dr. Tony Hamilton og
Steven George, segja skilyrðin í dag
vera þau að lágur loftþrýstingur í
kringum ísland og háþrýstisvæði
úti fyrir ströndum Portúgal, svokall-
að jákvætt NAO. Þar sem vindur í
háþrýstisvæðum fer í réttsælan
^!MMÍÍiiMÍÍS>ÉÍiW#É>SÍ£lMÍwSSÍlÍÍ>ÍWÍÍÍ<ÍÉÍÍiWÍ^ÍWMÍÍÍÍlÍ£fiSw1ÍÍlW,||7ÍlÍBÍwS&(ÍMÍSlÍMÍÍMSÍ
Páll Bergþórsson segir NAO-kenninguna ekki standast
sem skýring á stormum og flóðum í Bretlandi
hring og rangsælan i lágþrýstisvæð-
um (eins og sést á myndinni) þrýsta
þau sterkum vestanvindum inn yfir
Bretlandseyjar og norðvesturhluta
meginlands Evrópu auk hlýs loft-
lags. Hlýja loftslagið og rigningin
koma frá hafsvæðinu á milli Ný-
fundnalands og Bermúda sem er
sagt hlýrra þegar NAO er jákvætt.
Neikvætt NÁO hefur hins vegar í
för með sér kalda, þurra og kyrra
vetur á norðvesturhluta meginlands
Evrópu og Bretlandseyjum auk
kaldari sjós á áðumefndu hafsvæði.
100 ára gróð-
urhúsaáhrif
Páll Bergþórsson
veðurfræðingur
er einn þeirra
sem ekki eru al-
veg tilbúnir að
samþykkja kenn-
inguna um NAO.
Hann segir að sér
finnist of mikið
gert úr langtimaá-
hrifum sjávar í
kenningunni.
„Það er satt að
sjávarhiti hefur
áhrif á veðurfar
en það er meira í
skamman tíma en
til langframa."
Hann bendir
einnig á að það
hafi ekki verið
mikið lágþrýsti-
svæði yfir Islandi
eða við upp á nú seinustu mánuði.
Hins vegar hafi mikið af lægðum far-
ið yfir Bretlandseyjar. Það er því
ekki þessi vindstrengur sem NAO á
valda sem hefur valdið þeim storm-
um flóðum sem gengið hafa yfir á
Englandi og nágrannaríkjum þess
heldur lægðir sem gengið hafa þar
yfir.
Reglulega hafa komið fram vís-
indamenn sem halda því fram að
gróðurhúsaáhrifin séu i raun ekki til
staðar eða hafi ekki nærri því jafn al-
varlegar afleiðingar og haldið sé
fram af mörgum. Aðspurður hvort sú
kenning að hér sé ekki gróðurhúsaá-
hrifum um að kenna svarar Páll að
varlega verði að fara í allar slíkar
fullyrðingar. „Það er mín skoðun að
gróðurhúsaáhrif séu til staðar og
hófust raunar fyrir 100 árum að
mínu mati.“ Páll er ekki með neinar
heimsendaspár í sambandi við gróð-
urhúsaáhrifin. Það dregur þó ekki úr
þörfmni á því aö draga úr útblæstri
koltvisýrings, að sögn Páls, þar sem
öll umsvif manna sem hafa áhrif á
náttúruna séu slæm.
VÆTA
OvÆTA
STORM^ ÞURRt
i •)
Þetta er
veðurkerfiö
sem fylgir
jákvæöu NAO.
HÆÐIR
Yfirborðshiti sjávar úti fyrir
ströndum USA í sept-
eiuber getur sagt til um'
vetrarveöur á Bretiancli.
Hiti yfir meölagi er ‘Tj
tengdur jákvaeðu NAO- &
Miiini yfirborðsliiti sjávar
en i meöallagl úti fyrir
strondum USA er tengdur
ncikvæöum NAO sem
pyðir kalda, þurra og
stillta vetur a BretlandiT
Skýringarmynd á hvernig NAO virkar.
íslensk viöbót viö flughermiforrit frá Microsoft:
Landslagið hundraðfalt nákvæmara
- en í upprunalega forritinu
íslenska fyrir-
tækið IceSim
ehf. hefur gefið
út ísland 2000,
viðbótarlands-
lag fyrir flug-
hermiforritið
Flight SimulatorTM 2000 frá
Microsoft. Landslagið er unnið
upp úr raungögnum frá Landmæl-
ingum íslands sem samanstanda
af hæðarpunktum gefnum á 90
metra millibili (norður/suður,
austur/vestur), en í upprunalegu
útgáfunni er upplausnin
900mx900m. Þannig má segja að
þetta landslag íslands 2000 sé 100-
falt nákvæmara (10x10). Þessar
upplýsingar eru útbúnar með því
að vinna úr gögnum frá gervi-
tunglum þar sem fleiri en ein
mynd af sama landsvæðinu er not-
Svo nákvæm eru
gögnin að það er hægt
að nota þau við korta-
gerð. Þetta skapar
áður óþekkt gæði í
flughermum með ís~
lensku landslagi. Nú er
auðveldlega hægt að
fljúga sjónflug um
landið með gott landa-
kort og þekkja helstu
staðhætti.
uð til þess að reikna út hæð þess.
Þær hafa aldrei áður verið gefnar
út fyrir flugherma í almennri
notkun.
Svo nákvæm eru gögnin að það
er hægt að nota þau við kortagerð.
Þetta skapar áður óþekkt gæði í
flughermum með íslensku lands-
lagi. Nú er auðveldlega hægt að
fljúga sjónflug um landið með gott
landakort og þekkja helstu stað-
hætti. Nú gefst mönnum tækifæri
til að skoða landið með augum
flugmannins. Með íslandi 2000
geta flugnemar t.d. kynnt sér flug-
leiðir áður en lagt er af stað.
Það eru ekki bara flugáhuga-
menn og flugnemar sem geta nýtt
sér leikinn. Jeppamenn og aðrir
sem ferðast um landið með fast
land undir fótum hafa einnig not-
að það til þess að kynna sér stað-
hætti og ákveðið hvaða leiðir skuli
farið sem sýnir hversu nákvæm-
lega hefur tekist að setja upp
landslag.
Þrautir í mismundandi
veðurskilyröum
Þessu til viðbótar fylgja pakkan-
um 20 flugþrautir sem hafa verið
unnar af íslenskum einka- og at-
vinnuflugmönnum og hafa verið
settar upp í ísland 2000 á hinum
ýmsu stöðum á landinu. Þær gefa
mönnum kost á að hefja flug í ís-
lensku landslagi á ýmsum flugvél-
um með uppsett raunveruleg veð-
urskilyrði. Hverri þraut fylgir
lesning þar sem stungið er upp á
flugleiö eða þraut sem hægt er að
framkvæma. Þrautirnar sýna á
raunsæjan hátt íslenskt landslag
og veðurskilyrði og þar með þær
aðstæður sem íslenskir flugmenn
búa við. Þá fylgja pakkanum 40 aö-
flugs-, lendingar- og blindflugskort
frá Flugmálastjóm íslands.
ísland 2000 gefur flugáhuga-
mönnum nú tækifæri til að fljúga
yfir öllu landinu í ótrúlegri ná-
kvæmni. Fjöll, hólar, dalir og firð-
ir birtast eins og fólk þekkir þau í
raunveruleikanum.
Viðbótin er unnin í samvinnu
við Landmælingar íslands, Flug-
kerfi hf„ Flugleiðir hf. og Flugfé-
lagið Geirfugl, Flugskóla.
jjilJJUÓiJj1