Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Síða 3
20
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2000
21
Sport
Sport *
NissandeUd karla í handbolta:
13 mínutur
- án Valsmarks vógu of þungt og Haukar sitja einir á toppnum
Haukar tryggöu sér toppsætiö í
Nissandeild karla í handbolta næstu
fimmtíu daga með 19-20 sigri á Vals-
mönnum á Hlíðarenda í gær. Haukar
hafa tveggja stiga forskot á Fram á
toppnum en næstu leikir eru ekki fyrr
en eftir heimsmeistarakeppnina í
Frakklandi.
Sex mörk í röö
Haukar lögðu grunninn að sínum 12.
sigri í deildinni á þrettán mínútna kafla
þegar þeir gerðu sex mörk í röð án þess
að fá á sig mark og breyttu stöðunni í
9-14 sér í hag. Valsmenn gáfust þó ekki
upp og komu sér aftur inn í leikinn og
áttu góðan möguleika á að tryggja sér
framlengingu á lokasekúndum en
mistókst að nýta síðustu sóknina sína.
Það var hvergi gefið eftir í þessum
leik í gær sem innihélt tlest það sem
góðir handboltaleikir geta boðið upp á.
Leiðinlegast var þó að verða vitni að sí-
felldu nöldri og mótmælum við ágæta
dómara leiksins. Þeirra helstu mistök
voru kannski að taka ekki harðar á
þessum mótmælum sem gáfu þeim lít-
inn vinnufrið allan leikinn.
Leikurinn í gær var sá síðasti í fimm
leikja törn Hafnarfjarðarliðsins á hálf-
um mánuði sem voru tveir Evrópu-
leikir, tveir deildarleikir og útileikur í
bikamum gegn næstefsta liðinu Fram.
Haukar standa uppi sem sannir sigur-
vegarar eftir þennan afar erflða háifa
mánuð með toppsætið, sætið í undanúr-
slitum SS-bikarsins og sætið í átta liða
úrslitum Evrópukeppninnar tryggð.
Þessi hálfi mánuður hefur tekið mik-
ið á leikmenn Hauka, það sást vel á lyk-
ilmanni eins og Halldóri Ingólfssyni,
sem var markalaus í gær, og er mér það
til efs að Haukaliðið hefði átt mikla
möguleika í Hlíðarendaliðið hetöu Vals-
menn náð í framlengingu. Liðið sýndi
aftur á móti mikinn styrk með því að
komast svo vel í gegnum þessa töm og
er til alls líklegt, úthvílt eftir HM-fríið.
Óeölileg dómgæsla
Valdimar Grímsson nýtti öll átta vlt-
in sín i gær og hefur nú nýtt 27 víti í röð
í deildinni. Valdimar var ekki sáttur í
lokin. „Haukar em efsta liðið í deild-
inni og ef þú spilar 13 mínútur án
marks þá gerir þú þér lífið leitt. Ég tel
að við hefðum átt að komast í framleng-
ingu því við vorum klaufar í lokin en
mér finnst það óeðlilegt af hverju
hornamenn fá ekki víti alveg eins og
línumenn þegar farið er í þá. Ég skil
þetta ekki hjá íslenskum dómurum því
ég er að koma úr alþjóðlegum bolta og
hef spilað fullt af landsleikjum og þekki
þetta ekki þaðan. Fall er vonandi farar-
heill hjá okkur. Við erum með áratuga-
reynslu í þessu liði og ég er harður á
því að við komum tvíefldir til leiks eft-
ir jólafrí, við ætlum okkur stóra hluti
og við komum til með að gera þá,“ sagði
Valdimar ákveðinn en hann hefur nýtt
37 af 40 vítum sínum í vetur.
Snorri Steinn Guðjónsson bjó til sex
af vítunum átta fyrir Valdimar, fiskaði
tvö og átti fjórar sendingar sem gáfu
víti en þjálfarinn Geir Sveinsson fiskaði
alls fjögur víti í leiknum. Geir var
annars í strangri gæslu Shamkuts.
Bjarki Sigurðsson kom mjög sterkur
inn af Valsbekknum, skoraði mark, gaf
2 stoðsendingar og stal tveimur boltum
á síðustu tíu mínútum sem átti allt mik-
inn þátt í að koma Valsmönnum aftur
inn í leikinn í lokin.
Bjarni erfiöur í markinu
Bjami Frostason reyndist Valsmönn-
um erfiður í gær og var besti maður
Hauka ásamt þeim Rúnari Sigtryggs-
syni og Aliaksandr Shamkuts sem stigu
varla feilspor í leiknum, hvorki í vöm
né sókn, og skomðu saman átta af 11
mörkum liðsins í seinni hálfleik.
Saman nýttu þeir félagar 13 af 15
skotum sínum. Þeirra góða skotnýting
átti mikinn þátt í því að Roland Eradze,
markvörður Valsmanna, varði aðeins 5
skot eftir hlé eftir að hafa varið 11 í
fyrri hálfleik. -ÓÓJ
Valur-Haukar 19-20
2-0, 3-1, 4-2, 4-4, 6-5, 6-7, 7-7, 8-7, 8-8,
9-8, (9-9), 9-14, 11-14, 12-16, 13-17,
15-17, 15-19, 18-19, 18-20, 19-20.
Valur
Mörk/viti (Skot/viti): Valdimar Gríms-
son, 9/8 (12/8), Markús Michaelsson, 3
(7), Snorri Steinn Guðjónsson, 2 (6),
Bjarki Sigurðsson, 1 (1), Ingvar Sverris-
son, 1 (1), Geir Sveinsson, 1 (2), Daníel
Ragnarsson, 1 (5), Júlíus Jónasson, 1 (6),
Freyr Brynjarsson, (1).
Mörk úr hraöaupphlaupum: 4 (Markús,
Bjarki, Geir, Ingvar).
Vitanýting: Skorað úr 8 af 8.
Varin skot/viti (Skot ú sig): Roland
Eradze, 16/1 (36/3, 44%).
Brottvisanir: 8 mínútur.
Haukar
Mörk/viti (Skot/viti): Rúnar Sigtryggs-
son, 9/2 (11/2), Aliaksandr Shamkuts, 4
(4), Einar Öm Jónsson, 4 (5), Þorvarður
íjörvi Ólafsson, 2_(5), Einar Gunnars-
son, 1 (4), Óskar Ármannsson, (2), Jón
Karl Björnsson, (2), Halldór Ingólfsson,
(5/1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 4, (Sham-
kuts, 2, Einar Öm, Ijörvi).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Varin skot/víti (Skot ú sig): Bjarni
Frostason, 21 (38/6, 55%), Magnús Sig-
mundsson, 0 (2/2, 0%).
Brottvísanir: 4 mínútur.
Dómarar (1-10): Bjarni Viggósson og
Valgeir Ómarsson (7).
Gœði leiks (1-10): 8.
Áhorfendur: 300.
Maður leiksins: Bjarni
Frostason, Maukum.
Bjarni Frostason varði 21 af 32
skotum Valsmanna utan af velli sem
gerir ótrúlega 66% markvörslu.
Bjarni varói öll 10 skot Valsmanna
I návígjum, það er gegnumbrot (6),
af línu (3) og úr hornum (1).
Valsmenn skoruóu aðeins á
þrennan hátt hjá Bjarna: með
langskotum (7), úr vítum (6) og úr
hraðaupphlaupum (4). -OÓJ
Haukar 13 12
Fram 13 11
Grótta/KR 13 9
KA 13 8
FH 13 7
Afturelding 13 7
Valur 13 6
ÍBV 13 6
385-305
350-290
326-320
332-318
319-293
357-338
312-297
356-346
295- 301
325-340
296- 347
264-422
Stjarnan
HK
Breiðblik
Halldór Ingólfsson, fyrirliði Hauka, náði ekki að skora úr sínum 5 skotum gegn Valsmönnum í gær en
sést hér brjótast fram hjá þeim Júlíusi Jónassyni og Geir Sveinssyni í leiknum. DV-mynd Pjetur
Gruber vann
- í stórsviginu í Bormio. Hermann Maier tíundi
Christoph Gruber frá Aust-
urríki vann í gær stórsvig
karla í Bormio á Ítalíu. Gruber
þessi er lítt þekktur á alþjóða-
vettvangi og var þetta fyrsti
sigur hans í heimsbikarnum.
Hans besti árangur þangað
til i gær var annað sætið í risa-
svigi í Bandaríkjunum í síðasta
mánuði og þá kom hann mönn-
um mjög á óvart með árangri
sínum. Sigur Gruber sýnir
hversu mikil breidd er á meðal
Austurríkismanna í skíða-
íþróttinni og ljóst hversu mikl-
ir yfirburðir þjóðarinnar eru
þegar á heildina er litið.
Erik Schlopy frá Bandaríkj-
unum varð annar og er það
einnig árangur sem vert er að
taka eftir. Þetta var fyrsti verð-
launapeningur sem Schlopy
hlýtur á heimsbikarmóti og
besti árangur Bandaríkja-
manns frá árinu 1983. Binda
Bandaríkjamenn miklar vonir
við kappann enda hefur hann
verið að klifra upp metorðastig-
ann í vetur.
Svíinn Fredrik Nyberg var
þriðji í röðinni og sagði hann
að hann hefði viljað sjá betri í
árangur í ljósi þess að hann
leiddi eftir fyrri ferðina.
Hermann Maier varð 10. í
gær og þrátt fyrir að hafa ekki
halað inn verðlaunapeningana
í undanfömum mótum hefur
hann enn örugga forystu í sam-
anlögðum heildarárangri.
Gruber varð á síðasta tíma-
bili efstur í samanlögðum ár-
angri i Evrópubikarnum og svo
náði hann best 11. sæti í heims-
bikamum. Þessi 24 ára gamli
Austurrikismaður er því
greinilega kominn til að vera.
-esá
Úrslit:
Stórsvig karla, Bormio:
1. C. Gruber, Austurr.......2:12,33
2. Erik Schlopy, BNA .......2:12,52
3. Fredrik Nyberg, Svíþjóð . . 2:12,76
4. M. von Grúnigen, Sviss . .. 2:12,94
5. Kenneth Sivertsen, Noregi . 2:13,12
Heildarstaða stórsvigs:
1. M. von Grúnigen, Sviss .. 350 stig
2. Hermann Maier, Austun-. 286 stig
3. H. Schilchegger, Austurr. 219 stig
Samanlögð heildarstaða:
1. Hermann Maier, Austurr. 657 stig
2. Lasse Kjus, Noregi......441 stig
3. S. Eberharter, Austurr. . . 417 stig
Cristoph Gruber byrjaöi meö rásnúmer 32 en stóö uppi sem sig-
urvegari. Reuters
Kjör Samtaka íþróttafréttamanna
á íþróttamanni ársins áriö 2000 tilkynnt 28. desember:
Á fimmtudagskvöldiö kemur,
28. desember, kynna Samtök
íþróttafréttamanna kjör sitt á
íþróttamanni ársins 2000. Þetta
er í 45. skipti sem samtökin
standa að þessu kjöri en Vil-
hjálmur Einarsson var fyrstur
fyrir valinu ári 1956, í kjölfar
silfurverðlauna hans í þrístökki
á Ólympíuleikunum í Melbour-
ne.
Það eru félagar í Samtökum
íþróttafréttamanna, alls 23, sem
hafa atkvæðisrétt í kjörinu og
hver þeirra velur tíu iþrótta-
menn og raðar þeim á lista frá
einum upp í tíu. Sá sem hlýtur
flest stig samtals er sæmdur
nafnbótinni íþróttamaður ársins,
sem án nokkurs vafa er æðsta
viðurkenning sem íslenskum
íþróttamanni hlotnast ár hvert.
Hér að neðan má sjá þá ellefu
íþróttamenn sem urðu í efstu
sætunum í kjörinu að þessu
sinni og er þeim raðað eftir staf-
rófsröð. Tveir íþróttamenn urðu
jafnir að stigum í 10.-11. sæti og
því eru ellefu íþróttamenn á list-
anum í ár. Á fimmtudagskvöldið
tekur einn þeirra við styttunni
glæsilegu sem fylgir nafnbótinni
og varðveitir hana í eitt ár.
Vilhjálmur Einarsson hefur
oftast allra verið kjörinn íþrótta-
maður ársins, alls fimm sinnum
á fyrstu sex árum kjörsins. Einar
Vilhjálmsson, spjótkastari og
sonur Vilhjálms, og Hreinn Hall-
dórsson kúluvarpari voru valdir
þrívegis hvor. Aðeins tveim kon-
um hefur hlotnast þessi nafnbót,
Sigríði Sigurðardóttur hand-
knattleikskonu árið 1964 og í síð-
ara skiptið Ragnheiði Runólfs-
dóttur sundkonu áriö 1991.
Frjálsíþróttamenn hafa oftast
hreppt hnossið, alls 20 sinnum,
sundmenn sjö sinnum og næstir
1 röðinni koma handknattleiks-
og knattspyrnumenn með fimm
útnefningar.
Árið sem nú brátt kveður hef-
ur fyrir margra hluta sakir verið
gjöfult á íþróttasviðinu. íslenskir
íþróttamenn hafa skarað fram úr
á mörgum sviðum og vakið
mikla athygli fyrir afrek sín,
bæði hér á landi og erlendis.
Miðaö við þann árangur sem
náðist á þessu ári má með sanni
segja að bjart sé fram undan á
iþróttasviðinu á næsta ári. Okk-
ar fremstu íþróttamenn hafa lagt
miklu vinnu að baki til að kom-
ast í fremstu röð og hefur fram-
ganga þeirra veriö mikil og góð
auglýsing fyrir land og þjóð.
-JKS
Birgir Leifur Hafþórsson
Golf
Birgir Leifur hefur veriö um ára-
bil einn fremsti kylfingur lands-
ins. Hann komst nýlega lengra I
keppni atvinnumanna en íslend-
ingur hefur áöur gert. Hann
vann sér rétt til aö keppa á sex
mótum á Evrópumótaröðinni og
var hársbreidd frá því aö kom-
ast inn á sjálfa mótaröðina.
Eiöur Smári Guöjohnsen
Knattspyrna
Hann lauk síðasta tfmabili meö
Bolton á sl. vori. Frammistaöa
hans á tímabilinu vakti athygli
margra liöa á Englandi en á end-
anum var þaö stórliö Chelsea
sem keypti hann og hefur aldrei
áöur verið greitt jafnhátt verö
fyrir íslending. í vetur hefur Eið-
ur Smári veriö að leika vel meö
Chelsea. Hann er ungur aö árum
og framtíð hans björt.
Eyjólfur Sverrisson
Knattspyrna
Eyjólfur, sem er fyrirliöi fslenska
landsliösins, hefur getiö sér
gott orö meö Hertha Berlín í
þýsku Bundeslígunni. Liöið
hans var í toppbaráttunni en gaf
aöeins eftir fyrir jólafríiö. Eyjólf-
ur og samherjar hans í landslið-
inu náöu ágætum árangri á
þessu ári og m.a. voru Svíar og
N-írar lagöir aö velli.
Guörún Arnardóttir
Frjálsar fþróttir
Guörún ienti f 7. sæti í 400 metra
grindahlaupi á Ólympíuleikun-
um f Sydney sem er langbesti
árangur sem íslenskur hlaupari
hefur náö á Ólympíuleikum. Hún
setti íslandsmet á EM innan-
húss f 60 m grindahlaupi og 400
m hlaupi. Hún stóö sig vel á al-
þjóöamótum og varö þriðja á
Gullmóti f Monaco.
Hermann Hreiðarsson
Knattspyrna
Hermann gekk í raðir enska úr-
valsdeildarliösins Ipswich fyrir
tímabilið. Hermann leikur stórt
hlutverk í vörn liðsins sem kom-
iö hefur hvaö mest á óvart f
deildinni. Liöiö er í þriöja sæti í
deildinni sem er árangur sem
fæstir áttu von á. Hermann hef-
ur enn fremur leikiö mjög vel
meö íslenska landsliöinu.
Kristín Rós Hákonardóttir
íþróttir fatiaöra
Kristín Rós lét heldur betur aö
sér kveða á Ólympfumóti fatl-
aöra. Hún vann til fernra verö-
launa í sundkeppni mótsins og
vakti framganga hennar mikla
athygli. Kristín Rós hefur lengi
veriö fremst í flokki sundmanna
í sínum flokki f heiminum og
hefur á sínum ferli sett fjölmörg
íslandsmet og heimsmet.
Kristján Helgason
Snóker
Kristján náöi mjög góöum ár-
angri á mótum atvinnumanna á
árinu. Hann komst í 32 manna
úrslit á skoska meistaramótinu
en féll naumlega úr leik fyrir
stigahæsta manni heims. Krist-
ján komst ennfremur í 32 manna
úrslit á heimsmeistaramótinu en
laut í gras fyrir hinum heims-
þekkta spilara Stephen Lee.
Ólafur Stefánsson
Handknattleikur
Ólafur leikur meö þýska liöinu
Magdeburg sem er eitt sterkasta
liö þar f landi um þessar mundir.
Ólafur er einn af lykilmönnum
liösins sem lengst af hefur veriö
í efsta sæti í sterkustu deild f
heimi aö margra mati. Ólafur er
tvímælalaust aö leika sitt besta
tímabil í Þýskalandi og hefur
skoraö grimmt fyrir félag sitt.
Rúnar Aiexandersson
Fimleikar
Besti fimleikamaöur landsins en
brást bogalistin á bogahesti á
Ólympíuleikunum. Á árinu stóö
hann sig vel á mótum á erlend-
um vettvangi og bar m.a. sigur
úr býtum á heimsbikarmóti og
varö þrefaldur Noröurlanda-
meistari í fjölþraut og vann alls
til fimm verðlauna á mótinu.
Vala Flosadóttir
Frjálsar fþróttir
Sá árangur sem stendur uppi
hjá Völu er þegar hún vann til
bronsverölauna f stangarstökki
á Ólympíuleikunum f Sydney og
var þar meö fyrsta íslenska
fþróttakonan sem vinnur til
verðlauna á Ólympfuleikum.
Hún vann ennfremur nokkur al-
þjóðleg mót á árinu. Tvímælaust
einn besti stangarstökkvari
heims.
Örn Arnarson
Sund
Örn lenti f fjóröa sæti f 200
metra baksundi á Ólympfuleík-
unum f Sydney sem er frábær
árangur. Hann vann síöan tvenn
gullverölaun og ein silfurverö-
laun á Evrópumótinu f Valencia í
25 metra laug. Örn hefur skapaö
sér nafn f sundheiminum.