Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Qupperneq 3
Þeir 19 þusund framhalds- skolanemar sem mega ekki mæta í skolann dreifast nu ■m um heiminn i leit að ein- hverju til að stytta ser stundir við i skammdeginu. Fókus rakst a unga MH- mey i kóngsins Kaupinhávn og komst að þvi að ekki fá allir vinnu á lagernum hjá Baugi. Unnur Edda Garöarsdóttir hefur veriö svipt réttinum til aö mennta sig. Hún starfar við skúringar í Kaupmannahöfn. verkfall til Koben „Ég ákvaö bara einn daginn að ég væri búin að fá nóg af því að hanga heima og bora í nefið,“ segir Unnur Edda Garðarsdóttir, 18 ára MH-ingur af málabraut. „Svo ég pantaði mér bara far út og bý hérna hjá vinkonu minni og fjöl- skyldu hennar," heldur hún áfram og bætir við að það sé erfitt að fá vinnu heima því allir menntaskóla- nemar landsins séu á vinnumark- aðinum. Þess vegna fór hún til Köben og vinnur nú við að skúra bókasafn í Norrebro. 8,0 í meðaleinkunn „Síðasti timinn sem ég fór í var íslenska 323, held ég,“ svarar Unn- ur, aðspurð um í hvaða tíma hún var þegar hún var svipt réttinum til að mennta sig. „Ég var að lesa Sjálfstætt fólk. Fín bók,“ heldur hún áfram og glottir yfir ritgerð- inni sinni. Þetta var á fimmtu önn Unnar í MH. í lok þeirrar fjórðu fékk hún 8,0 í meðaleinkunn. En það er svona sú meðaleinkunn sem loðir við hana. Stúlka með átta í meóaleinkunn stefnir nú varla aö því að veróa skúringakona í Norrebro? „Nei. Þó þetta sé auðvitað fram út af fyrir sig þá stefni ég á dans- nám,“ svarar Unnur sem finnur þó hjá sér löngun til að ljúka við stúd- entsprófið áður. Kennarar eiga ekki að fara í verkfali Finnst þér verkfalliö réttlátt? „Nei. Mér fmnst að kennarar eigi að fá hærri laun. Ríkið borgar þeim ekki nóg en það er samt fáránlegt af þeim að fara í verkfall sem bitnar bara á okkur krökkunum en ekki á ríkinu. Þeim er alveg sama þó kennarar séu í verkfalli og því sé ég ekki að þetta breyti nokkru fyrir þá.“ Þetta er annað verkfallið sem Unnur verður fyrir á námsferli sínum. Það fyrra stóð í sex vikur þegar hún var tólf ára. Henni fannst það verkfall skipta minna máli en þetta verkfall sem hefur rústað öll plön hennar um framtíðina. En hvaó er fram undan? „Ég kem heim ef verkfallið leysist og okkur verður leyft að taka próf. Ef ekki þá kem ég heim næsta haust og fer aft- ur í íslensku 323,“ segir Unnur og yppt- ir öxlum í kóngsins Köbenhávn. Hann er helvítis töffari hann Margeir þegar hann er búinn að hlúa nostursamlega að yfirvaraskegginu sínu, sem er réttnefnd klámmyndamotta af þýskum meiði, í heila tvo mánuði og þetta er lengsta setning sem skrifuð hefur verið í Fókus til þessa og ekki úr vegi að setja hér punktinn yfir punktinn: Tveggja mánaða motta „Eina rullan sem mottan spilar er sú að það er mjög óþægilegt að borða með hana, það festist allt í henni. En hún fylgir kvöldinu og hún lítur helviti vel út. Ég upp- götva á mér nýja hlið,“ segir Mar- geir um mottuna sem hylur á hon- um efrivörina. Fimmtíu snúða maki Margeir er gamall jaxl í þeirri grein skemmtanabransans sem snýst um plötur, en það er einmitt það sem hann gerir. Hann hefur fylgt dansþættinum Partyzone út- varpsstööva á milli og spilað á öll- um helstu vettvöngum djammsins síðasta áratuginn. Diskókvöld hans hafa verið fastur liður á annan í jólum síðastliðin fimm ár, og fest sig tryggilega í sessi sem gubb djammhunda í þeirri búlemíu sem jólin eru. Nú hefur líka verið gef- inn út geisladiskur með sýnishorni af því sem maöurinn með mottuna stendur fyrir. Eða eins og hann orðar það sjálfur: „Þetta er tíma- laus diskur með klassískri partítónlist." En ert þú bara eins manns skemmtiatriði á kvöldinu? „Ja, þetta snýst ekki um að vera með 50 plötusnúða á svæðinu og svaka sjóv. Það er bara verið að slá upp góöu partíi með alvöru diskómúsík (og þá er ekki verið að tala um neitt Abba eða Beegees). Svo hef ég alltaf verið með leynigest með mér, meðal þeirra sem verið hafa eru Daníel Ágúst og Páll Óskar.“ Og hver er þaö núna? „Það kemur ekki til greina að ég segi frá því,“ segir Margeir með yfir- vegun. „En það verður líka ásláttar- leikari með mér,“ upplýsir hann þó. Diskó í hjartastað En hvernig stendur á því að þú ert svona mikil diskórotta? „Ég er opinn fyrir góðri músík. Hvort sem það er house, diskó, dub eða rokk. Aha góða músík spila ég og bý svo til eitthvað í kringum hvert og eitt.“ Honum er ekki vel við að tengja diskóið við rottur Og var þér aldrei strítt á þessu? „Nei, ég neita því ekki að diskó er nálægt hjartanu. Ég hef aldrei verið hræddur við að viðurkenna það að ég kann að meta það. Ég er hugrakkur," segir hann, og nær ekki að fela hlát- urinn. En aftur að mottunni, hvenœr byrj- aðirðu að safna fyrir kvöldið? „Þetta er þrotlaus tveggja mánaða vinna, endalausar snyrtingar." Að því gefnu, hvaó yrði um diskó- kvöld Margeirs ef mottan vœri ekki á sinum stað? „Hún þyrfti að vera rökuð af mér í svefni eða eitthvað, ha,ha,ha. En diskóið mundi áfram fá að hljóma," segir þessi káti diskósveinn með næstum því batteríislausan farsíma og heldur jólagjafakaupum áfram. e f n i Jólakort Islendinga: Hverjum senda þeir? Jólasveinninn Stekkjarstaur: Hvað gerir hann eftir jólin? Mikael Torfason: Það hefur ekkert breyst Höfundar Villiljóss: Koma með nýjan tón í kvik- mynda- gerðina Masters at Work: Enn að eftir 10 ár Add n to (xj: Vill gera klámmynd Ungir íslend- ingar: Hvernig er að vera á lausu? Luxus og Fræbbblarnir: Plöturnar dæmdar £mXá*A Yesmine og Anna: Lífið í ræktinni rlí f iö I svörtum fötum með olötu Unbreakable frumsvnd Ki.Od.a;Snýt..aftur Hasshausinn Grace komin í bíó f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíðumyndina tók Pjetur af höfundum Villijóss 22. desember 2000 f Ó k U S 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.