Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.2000, Qupperneq 7
Villiljós er ný íslensk kvikmynd sem verður frumsýnd í janúar 2001. Verkefnið er svolítið sérstakt
• - /'i-V. „1' ^ . i'-. ' l ^ - ‘
fimm ieikstjórar standa á bak við myndina en aðeins einn handritshöfundur. Sögurnar gerast í
á meðan borgin er rafmagnslaus og fjalla um sambönd af ólíku tagi. Handritshöfundur er Huldar
fjörð en leikstjórarnir eru Dagur Kári Pétursson, Ragnar Bragason, ÁsgrímurjSvérrió^m^ii^S
Gunnlaugsson og Inga Lísa Middleton sem er í Englandi og komst því ekki í viötal.; ;
„Mér skOst að það hafl verið
Huldar Breiðfjörð handritshöf-
undur og fólkið hjá Zik Zak sem
fengu hugmyndina að fá fimm leik-
stjóra til að gera þessa mynd.
Svona myndir hafa nokkrum sinn-
um verið gerðar en ég man ekki til
þess að þetta hafi verið reynt á
þennan hátt áður. Kvikmyndir af
þessu tagi hafa oft misheppnast
vegna þess að þær hafa verið sund-
urlausar," segir Ásgrímur Sverris-
son en bætir svo viö að það gildi
ekki um þessa mynd. „Villiljós er
náttúrlega rosalegt masterpís."
Ungir athafnamenn
„Allar sögumar gerast i Reykja-
vík um nótt og eiga þaö SEuneigin-
legt að rafmagnið fer af borginni og
tjallar um áhrif þess á persónur
hverrar sögu fyrir sig,“ segir Ragn-
ar Bragason.
Aumingjaskápurinn, sem
Ragnar leikstýrir, segir frá ungu
pari sem er á rómantískum veit-
ingastað en kvöldið breytist í
martröð þegar eldri hjón setjast hjá
þeim og fara að umsnúa þeirra
veruleika. Helstu leikarar eru
Gísli örn Garðarsson, Nína Fil-
ippusdóttir, Eggert Þorleifsson
og Edda Björgvinsdóttir. Ragnar
lærði kvikmyndagerð í Bandaríkj-
unum. Hann skrifaði og leikstýrði
myndinni Fíaskó sem var sýnd
fyrr á þessu ári. Hann hefur líka
gert stuttmyndir, heimildamyndir,
auglýsingar og tónlistarmyndbönd.
Ásgrímur leikstýrir hlutanum
sem nefnist Heimsyfirráð eða
bleiuskiptingar „Popphljómsveit
er á leiðinni með flugvél til Reykja-
víkur. Söngvarinn vill hætta popp-
vitleysunni og verða ábyrgur faðir
en hinir í bandinu eru ekki á því
að leyfa honum það. Helstu leikar-
amir eru Tómas Lemarquis og
Helgi Björnsson. Ásgrímur
kláraði nám í kvikmyndaleikstjóm
í Bretlandi 1994 en eftir það hefur
hann unnið að leikstjóm og fram-
leiðslu ýmissa heimilda-, sjón-
varps- og stuttmynda. Hann hefur
starfað fyrir sjónvarp og var meðal
annars framkvæmdastjóri Eddu-
verðlaunanna.
Einar Þór lauk gráðu frá kvik-
myndaskóla í London árið 1992 og
hlaut viðurkenningu fyrir leik-
stjórn. Hann hefur starfað mikið
fyrir sjónvarp og útvarp, bæði á ís-
landi og í London. Hann er leik-
stjóri síðasta hluta myndarinnar
sem heitir Guð hrapar úr vélinni
sem segir frá ungum manni sem
kemur heim tO sín og að konunni
uppi í rúmi með ókunnugum
manni. „Þetta er svona stutt útgáfa
af klassísku stofudrama og einnig
lokahluti myndarinnar þannig að
hún hnýtir saman aOar sögumar.
Leikarar em Ingvar Sigurðsson,
Baldur Trausti og Nanna Krist-
ín,“ segir Einar.
Dagur Kári er nýskriðinn úr
kvikmyndskóla í Danmörku þar
sem hann lærði leikstjórn. Hann
hefur hlotiö fjölmörg verðlaun fyr-
ir stuttmyndir, handrit, auglýsing-
ar og tónlistarmyndbönd. Líkið í
lestinni heitir sá hluti myndarinn-
ar sem Dagur Kári leikstýrir. „Lík-
bOsstjóri sem leikinn er af Bimi
Jörundi er að rúnta um á líkbOn-
um i myrkrinu og hans veröld er
að hrynja saman. Hann á ímynduð-
um samræðum við páfagaukinn
sinn sem er með honum í bOnum.“
Fyrsta íslenska stórslysa-
myndin
„Myndin hangir saman á
ákveðnum þráðum og þó þetta séu
sjálfstæðar einingar er ramminn
mjög sterklega byggður í kringum
þær,“ segir Ragnar og Ásgrímur
tekur undir: „Já, það verður ekki
nógu vel undirstrikað að þetta er
ein kvikmynd en ekki fimm stutt-
myndir."
„Auk þess hjálpar það tO við
heOdina að það er einn handrits-
höfundur, einn kvikmyndatöku-
maöur, einn sem sér um alla tón-
list, einn klippari og svo framvegis.
Þetta gerir það verkum að myndin
er ekki sundurslitin á neinn hátt,“
segir Einar Þór.
„Sögurnar koma svo aUar saman
i lokin og fléttast saman á skemmti-
legan hátt og áUt endar svo í stór-
slysi,“ segir Dagur Kári og Ragnar
tekur undir, „þetta er stórslysa-
mynd myndi ég segja, fyrsta ís-
lenska stórslysamyndin."
Heilinn í hópnum
„En við gleymum Ingu Lísu, hún
er besti leikstjórinn af okkur. HeO-
inn í hópnum eins og við köUum
hana,“ segir Ragnar. „Við erum
hálfónýtir héma því okkur vantar
„the feminin touch“,“ bætir Einar
Þór við. Inga Lísa lauk MA-gráðu
frá kvikmyndaskóla í London árið
1991. Hún hefur tvisvar hlotið lista-
mannalaun frá íslenska mennta-
málaráðuneytinu og fengiö margar
aðrar viðurkenningar fyrir verk
sin, meðal annars fyrir myndina
Ævintýri á okkar tímum frá 1993.
Mömmuklúbburinn heitir hlut-
inn sem hún leikstýrir og fjallar
um þrjár óléttar unglingsstúlkur og
er aðalpersónan er leikin af Haf-
dísi Huld Þrastardóttur. „Það er
svolítið skemmtOeg tOvUjun að
Inga Lísa var sjálf ófrísk á meöan á
tökum stóð. Þessar unglingsstelpur
eru aUar velta þessu nýja hlutverki
fyrir sér og hvemig framtíðin á eft-
ir að verða,“ segir Ásgrímur. „Þaö
er reyndar það sem er sameiginlegt
í öUum sögunum, þetta er aUt ungt
fólk á krossgötum að glíma við það
að takast á við alvöru lífsins og
horfast í augu við óvissa framtíð.
Það er kannski rauði þráðurinn i
sögunni," bætir hann við.
Getið þiö sagt einhverjar
skemmtilegar sögur af tökum?
„Ég var með flensu aUann tím-
ann á meðan á öUum tökum stóð og
á sterkum lyfjum. Svo hafði ég
aldrei prófað að taka upp í bU áður
þannig að það var sérstök lífs-
reynsla að vera i viku tökum í níst-
ingsfrosti í bU,“ segir Dagur Kári.
„Það er bara mjög skemmtUegt að
gera kvikmynd og maður skemmt-
ir sér vel aUan tímann," segir Ás-
grimur. „Hvað eins og maður muni
einhverjar sögur af tökum, maður
er búinn að blokka það aUt út,“ seg-
ir Ragnar en bætir svo við að hann
hafi komist upp með að taka upp á
stað þar sem er víst kolólöglegt að
vera. „Enginn komst að því að við
höfðum verið þama en fólk verður
svo bara að giska hvar þetta sé tek-
ið.“
Myndin var tekin upp á mjög
löngu tímabUi með löngum hléum.
Tökur hófust í nóvember í fyrra og
lauk ekki fyrr en í haust, þannig að
það er kannski ekki furða að leik-
stjóramir muni engar sögur. „Inga
Lísa var ólétt og líka með flensu -
það voru aUir með flensu þarna,“
segir Dagur Kári. „Sko, ég er sá
eini sem tek lýsi og hreyfi mig og
verð því sjaldan lasinn. En þeir
hinir liggja aUtaf í leti og það má
ekkert gerast því þá verða þeir
bara hundveikir," segir Einar Þór.
Villiljós 2
Ásgrímur segir að ný kynslóð sé
að koma fram í kvikmyndagerð.
„Við emm aUir, fyrir utan Ragga,
að gera okkar fyrstu bíómynd. Ég
held að þetta ár sem er að líða
marki tímamót að minnsta kosti
fyrir kvikmyndagerðarmenn og sé
árið þar sem urðu ákveðin kyn-
slóðaskipti. Það eru miklu fleiri en
bara við sem erum að gera okkar
fyrstu myndir.“ Einar bætir því við
að þau séu öU með bakgrunn í út-
löndum, bæði í námi og starfi. „Það
er svolítið einkennandi fyrir þessa
kynslóð að hafa bæði menntun og
reynslu mjög vfða að, þannig að
það er aö verða tU mjög stöðug stétt
kvikmyndagerðarmanna.“ Ragnar
segist sannfærður um að íslenskir
áhorfendur muni taka þessari
mynd fegins hendi því þetta er al-
veg nýr tónn í íslenskri kvik-
myndagerð og mjög frábrugðið öUu
því sem gert hefur verið áður. „Svo
má alveg gera ViUUjós 2 þar sem
við getum séð hvað verður um allt
þetta fólk, tU dæmis tíu árum
seinna,“ segir Einar Þór.
„Ég þoli reyndar ekki þegar er
verið að afhjúpa öll trikkin í sam-
bandi við kvikmyndagerð. Ég vU að
þetta sé dálítU mystería og að
áhorfendur viti sem minnst áður
en þeir sjá myndina," segir Ás-
grímur.
Hvaó á svo að gera í framtíðinni?
„Halda áfram í kvikmyndagerð,"
er einróma svar frá leikstjórunum.
„Maður kann ekkert annað,“ segir
Einar. „Annars verðum við öU stór-
stjörnur á alþjóðavettvangi eftir
þessa mynd þannig að það verður
auðveldur eftirleikur,“ segir Ragn-
ar öruggur. „Aumingja þið ef
myndin floppar, segi ég nú bara,“
segir hinn hógværi Dagur Kári.
22. desember 2000 f Ókus
7