Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.2001, Side 3
J 16 Sport Eyjólfur Eyjólfur Bragason, þjálfari Stjörn- unnar í Nissandeild karla, hefur sagt upp störfum. Eyjólfur tók við liðinu fyrir þetta keppnistimabil eftir að hafa þjálfað kvennalið félagsins í fyrra en lítið hefur gengið hjá liðinu sem er í 10. sæti Nissandeildarinnar með fjóra sigra úr þrettán leikjum. Liðið tapaði síðustu þremur leikjum sínum fyrir hléið sem gert hefur ver- ið vegna heimsmeistarakeppninnar í Frakklandi og hefur það engan veg- inn staðið undir væntingum í vetur. Opinber ástæða uppsagnarinnar er ónægja Eyjólfs sjáifs með árangur liðsins í vetur en samkvæmt heim- ildum DV-Sport hýr annað að baki. Á siðustu vikum hafa komið brestir í samskipti leikmanna og Eyjólfs og var ástandið svo slæmt á tímabili að aðeins nokkrir leikmenn mættu á æfingu vegna óánægju leikmanna með þjálfarann. Einar Einarsson, sem stýrði liðinu í fyrra, mun að öll- um líkindum taka við af Eyjólfi. -ósk Hallur K. Asgeirsson Hallur - genginn í Grindavík Hallur K. Ásgeirsson, 23 ára sóknarmað- ur frá Djúpavogi, hefur gert þriggja ára samning við úrvalsdeildarlið Grindavíkur. Hallur hefur verið einn mesti markaskorari neðri deildanna undanfarin sumur en ætlar nú að reyna fyrir sér meðal þeirra bestu. Hallur, sem skoraði 34 mörk í 30 deildarleikj- um á síðustu tveimur tímabilum, er marka- hæsti leikmaður Neista frá upphafl, með 37 deildarmörk í 44 leikjum. -ÓÓJ/-ósk - skoraöi tíu mörk í sigri Magdeburg á Essen Ólafur Stefánsson fór hamfórum á laugardaginn þegar Magdeburg tók á móti Patreki Jóhannessyni og félögum I Essen. Magdeburg bar sigur úr býtum, 25-17, og skoraði Ólafur, sem af flestum var talinn vera besti maður vallarins, tíu mörk í leiknum. Lítið hefur gengið hjá Magdeburg upp á síðkastið og hafði liðið aðeins fengið eitt stig í síðustu þrem- ur leikjum fyrir leikinn á laugardaginn. „Það var mikill léttir að vinna þennan leik. Okkur hef- ur gengið illa í síðustu leikjum svo að þessi sigur var mikil- vægur. Við höfum átt í og hálfs árs samning við Essen. Siguröur skoraöi tvö Sigurður Bjarnason og félagar í Wetzlar töpuðu á heimavelli fyrir Lemgo, 27-21. Sigurður skoraði tvö mörk í leiknum en leik- mönnum Wetzlar gekk illa að ráða við stórskytt- una Andrej Siniak hjá Lemgo sem skoraði niu mörk. Lemgo fer því í vetrarfríið í fjórða sæti, einu stigi á undan Magde- burg. Olafur Stefánsson smávandræðum með sóknarleikinn en þegar það verður komið i lag mega önnur lið fara að vara sig,“ sagði Alfreð Gíslason, þjálfari Mag- deburg, eftir leikinn. Patrekur Jóhannesson náði sér engan veginn á strik í leiknum og skoraði aðeins eitt mark. Essen vann þó einn sigur á laugardaginn því liðið tryggði sér úkraínsku stórskyttuna Oleg Velykky eftir harða baráttu við stórliðin Kiel og Barcelona um undirskrift kapp- ans. Velykky, sem var markahæsti maður Evrópumótsins í Króatíu á síðasta ári, skrifaði undir þriggja Gústaf haföi betur Gústaf Bjamason og lið hans Minden hafði betur gegn Ró- bert Sighvatssyni og félögum hans í Bayer Dormagen þegar liðin mættust á heimavelli Minden á laugardaginn. Minden vann leikinn, 27-22, og er Bayer Ðormagen, und- ir stjóm Guðmundar Guð- mundssonar, enn í þriðja neðsta sæti deildarinnar. Gústaf skoraði tvö mörk fyr- ir Minden en Róbert Sig- hvatsson skoraði þrjú mörk fyrir Bayer Dormagen. Guðmundur var ósattur með tvö töpuð stig í leikslok. Guðmundur Guðmundsson „Þeir höfðu meiri kraft á lokamínútum og léleg breidd á bekknum varð okkur að falli,“ sagði Guðmundur. Kiel of sterkt Hið sterka lið Kiel reyndist of sterkt fyrir Wuppertal. Leikmenn Kiel fóru með sigur af hólmi, 26-20. Kiel vann fjórða leik sinn í röð í deildinni en þjálfari liðsins, Júgóslavinn Noka Serdarusic, var ósáttur við leik manna sinna og sagði að einn leikmaður, norski markvöröurinn Steinar Ege, hefði spilað vel. Dimitri Filipov var markahæstur hjá Wuppertal með fimm mörk en Heiðmar Felixson komst ekki á blað. Flensburg enn efst Flensburg heldur enn tveggja stiga forystu í deild- inni eftir sigur á Róbert Duranona og félögum í Nettelstedt, 32-26. Duranona var ekki meðal markaskor- ara hjá Nettelstedt í leikn- um en Daninn Lars Christi- ansen var atkvæðamestur hjá Flensburg með sex mörk. Pólski Þjóðverjinn Bogdan Wenta kom næstur með fimm mörk. -ósk Úrslit helgarinnar: Magdeburg-Essen..........25-17 Solingen-Gummersbach . . . 26-29 Hameln-Grosswalstadt .... 26-30 Minden-Dormagen..........27-22 Flensburg-Nettelstedt....32-26 Wallau-Mass.-Hildesheim . . 32-21 Kiel-Wuppertal ..........26-20 Wetzlar-Lemgo............21-27 Staðan Flensburg 20 15 3 2 564486 33 WaUau 20 14 3 3 550488 31 Kiel 20 15 0 5 554477 30 Lemgo 20 14 2 4 491452 30 Magdeburg 20 13 3 4 516419 29 B. Schwar. 19 12 1 6 455449 25 Grosswalst. 20 12 1 7 498473 25 Essen 20 11 2 7 496484 24 Minden 20 10 1 9 507-516 21 Solingen 20 9 2 9 505-505 20 Nordhorn 19 8 3 8 498462 19 Gummersb. 20 8 2 10 511-510 18 Wetzlar 20 8 0 12 513-516 16 Hameln 20 7 2 11 471-506 16 Nettelstedt 20 7 0 13 492-537 14 Eisenach 19 5 3 11 458479 13 Willstadt 19 4 4 11 468-505 12 B. Dormag. 20 5 1 14 431-508 11 Wuppertal 20 2 1 17 425-515 5 Hildesheim 20 1 2 17 438-554 4 Fjórða sætið Enska úrvalsdeildin: 30 leikmenn - meö lausa samninga í vor íslensku U16 strákarnir töpuðu á laugardag fyrir Svíum í leik um þriðja sætið á Polar Cup 2000 í körfuknattleik. Sviar skoruðu 81 stig á móti 71 stigi íslendinga en í hálfleik var staðan 28-44. íslenska liðið varö því í fjórða sæti á mót- inu. Strákamir sýndu mikinn karakter í seinni hálíleik þegar þeir söxuðu á forskot Svíanna en annar leikhlutinn varð þeim að falli í þetta sinn. Þetta mót var hins vegar góð reynsla fyrir þetta unga lið og þarna eru margir strákar sem eiga bjarta framtíð í körfunni. Stig íslands: Magnús 16 stig, Jón Brynjar 10, Birkir, Þorleifur, Ólafur 8, Fannar, Jón Hrafn 7, Sævar 5, Guð- mundur 2. Fráköst: Magnús, Jón Hrafn og Fannar með 5. Tap gegn Dönum íslenska liðið tapaði á fóstudags- kvöld fyrir Dönum, 66-76. Staðan í hálfleik var 34-34. Leikurinn var jafn og skemmtilegur allan tímann og munaöi mest um leik Ólafs Ingvasonar sem skoraði 28 stig alls staðar af vellinum og var hreint óstöövandi fyrstu 3 leikhlutana. Stig Islands: Ólafur 28 stig, Þorleifur 13, Fannar 10, Kristinn 5, Sævar 4, Kjartan 3, Jón Brynjar 2, Magnús 1. Fráköst: Fannar 9, Kjartan 7, Kristinn 4, Jón Brynjar 3, Pálmar, Ólafur, Sæv- ar, Þorleifur 2. Frá og með deginum í gær gátu 30 leikmenn enskra úrvalsdeildarliða byrjað að semja við önnur félög þar sem samningar þeirra við núver- andi félög renna út í vor. Nokkrir mjög sterkir leikmenn eru í þessum hópi og má þar nefna vamarmann- inn Sol Campbell hjá Tottenham, Tony Adams, David Seaman og Dennis Bergkamp hjá Arsenal, Gianfranco Zola hjá Chelsea og Den- is Irwin og Teddy Sheringham hjá Manchester United. Fastlega er bú- ist við því að Adams, Bergkamp, Irwin og Sheringham muni endur- nýja samninga sína. Campbell spurningarmerki Stærsta spumingarmerkið er Sol Campbell. öll stærstu félagslið Evr- ópu vilja fá hann í sínar raðir en Campbell hefur ekkert viljað láta uppi um framtíðaráform sín. Sol Campbell hefur fyrir löngu sagt að peningar skipti litlu sem engu máli í framhaldinu. Hann hafi aðeins áhuga á því að vinna titla og það er kannski aðalástæðan fyrir því að hann hefur ekki viljað setjast að samningaborði með forráðamönn- um Tottenham enn sem komið er. Campbell hefur verið ósáttur við metnaöarleysi félagsins og þá stað- reynd að félagið virðist vera langt frá því að berjast við bestu liðin um enska meistaratitilinn. Þau félög sem hafa sýnt hvað mestan áhuga á Campbell eru spænska félagið Val- encia og Englandsmeistarar Man- chester United. Alex Ferguson, knattspymustjóri Manchester United, vill gjaman fá Campbell sem félaga fyrir Hollendinginn Jaap Stam og ljóst er að vöm þeirra yrði ókleif með öllu ef sú ósk hans ræt- ist. í gær gaf Campbell hins vegar út þá yfirlýsingu að hann myndi ekki yfirgefa Tottenham í vor en ekki er hægt að fullyrða um hversu mikil alvara býr að baki þeirri yfir- lýsingu. Hanskar á hillu 1 kjölfar þeirra fregna að Arsenal sé búið að ganga frá kaupum á pólska landsliðsmarkverðinum Jerzy Dudek frá Feyenoord fyrir 4,5 milljónir punda er staða Davids Seamans hjá Arsenal orðin veik. Seaman hefur sjálfur sagt að ef hann sé ekki lengur fyrsti kostur hjá félaginu muni hann hætta í stað þess aö spila með öðru félagi. Hann er búinn með samning sinn í vor og því má telja líklegt að Seaman leggi hanskana á hilluna á vordögum. -ósk Spillers til Þórs Bandaríkjamaðurinn Maurice Spillers, sem lék með Þórsurum á síðasta keppnistímabili við góðan orðstír, er kominn tU Islands á ný og mun spUa með liðinu eftir áramót. Spillers spilaði sextán leiki meö liðinu í fyrra og skoraði 24,7 stig og tók 14 fráköst í þeim leikjum. Spillers kemur í staðhm fyrir Clifton Bush en Bush lék ágætlega fyrir Þórsara fyrir áramót. Bush lék eUefu leiki með liöinu og skoraði 21,8 stig og tók 14,1 frákast að meðal- tali í leik. Ástæðan fyrir því aö Bush kemur ekki tU baka er sú að hann varð uppvís af samningsbroti og ákvað stjóm körfuknattleiksdeUdar Þórs að segja upp samningnum við hann í kjölfarið. SpUlers kom tU landsins á laugardag og verður með gegn SkaUagrími á fimmtudaginn. -ósk ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001 33 - United jók forystuna með sigri á West Ham - Arsenal tapaði gegn Charlton Manchester United er í góðri stöðu í ensku úrvalsdeildinn eftir leiki ára- mótahelgarinnar en þeir hafa nú eUefu- ir stiga forskot á næstu lið, Arsenal og Sunderland. Meistararnir sigruðu í gærkvöldi West Ham, 3-1, á Old Traf- ford i leik sem United stjómaði aUan tímann. Gestimir voru alls ekki sann- færandi í leik sínum og var fyrri hálf- leikurinn hreint hroðalegur af þeirra hálfu og máttu þeir þakka fyrir að mun- urinn var ekki meiri en tvö mörk í leikslok. Það kom heldur betur bakslag í sókn Arsenal að enska meistara-titlinum i gær þegar liðið tapaði 1-0 fyrir Charlton. Nýja árið byijar því ekki vel hjá Gunners, sem eru mjög hrjáðir vegna meiðsla lykilmanna, en Nelson ■Vivas átti möguleika á að jafna leikinn úr vítaspymu en Dean Kiely, markverði Charlton, tókst að verja. Arsene Wenger var engan veginn sáttur við leik sinna manna og útUeikja- formið er honum mikið áhyggjuefni. „Mér finnst sem við séum ekki að standa okkur nógu vel í útUeikjunum tU þess að lenda i öðra sæti eða því þriðja og jafnvel því sjötta. Ef maður krækir ekki í stig á útivöUum getur maður ekki verið í toppbaráttunni og við þurfum að taka á þessu vandamáli. Við erum ein- faldlega ekki að skora nóg af mörkum á útiveUi," sagði Wenger. Sunderland náði Arsenal á stigum með stórsigri á Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Ipswich sem tókst engan veginn að fylgja eftir góðum sigri á laugardaginn. Botnliðin Bradford og Derby _unnu mjög mikilvæga sigra í gær. Bradford vann góðan útisigur á Leicester, 1-2, þar sem Eoin Jess skoraði sitt fyrsta mark fyrir Bradford. Arnar Gunnlaugs- son var í byrjunarliði Leicester í leikn- um. Það var markvörðurinn Mart Poom sem tryggði sigur Derby á Everton en hann reddaði félö-gum sinum hvað eftir annað gegn stórsókn gestanna. Eiður Smári Guðjohnsen var i byrj- unarliði Chelsea sem sigraði Aston ViUa, 1-0, en mistök David James mark- varðar kostuðu Aston VUla þennan ósigur. Liverpool náði að sigra Sout- hampton 2-1 með síðbúnu marki frá Markusi Babbel og Leeds lenti í vand- ræðum gegn Middlesborough sem virð- ist vera að ná sér á striki eftir aíleita byrjun á tímabUinu. Leeds var betri að- ilinn í leiknum en lenti undir í fyrri hálUeik. Þeir þurftu síðan umdeilda vítaspymu tU að tryggja sér annað stig- ið á heimaveUi sínum. Heillum horfnir Það var heldur óásjálegur fótbolti sem Tottenham sýndi þegar liðið heim- sótti Hermann Hreiðarsson og félaga í Ipswich á laugardag og var sigur heima- manna, 3-0, síst of stór. Þeir komust yf- ir strax á áttundu mínútu og reyndar var sigur þeirra aldrei spuming, sér- staklega fyrir þær sakir að gestimir áttu ekki eitt einasta markskot sem að kvað og staðan 1-0 í hálUeik. í síðari háUleiknum var svipað upp á teningn- um, Ipswich sótti gegn áhugalausum gestunum, sem ekki hafa unnið á úti- yelli á timabilinu, og tvö mörk tU við- bþtar litu dagsins ljós auk tveggja slár- skota. Hermann átti frnan leik bæði í vörn og fram á við og átti meðal annars send- inguna fyrir sem gaf fyrsta markið. Ge- orge Graham hafði hins vegar liUu að fagna. „Það eina sem ég get gert er að biðja áhangendurna afsökunar. Þetta var örugglega lélegasti leikur okkar á tímabUinu og það hef ég sagt leikmönn- unum,“ sagði Graham eftir leikinn. Jafntefli toppliöanna Tvö efstu liðin í úrvalsdeUdinni, Manchester United og Arsenal, þurftu að sætta sig við jafnteUi á laugardaginn. United komst yfir gegn NewcasUe á St. James’ Park og lengi vel leit út fyrir sig- ur meistaranna gegn vængbrotnu liði heimamanna en þeim tókst að jafna undir lok leiksins og krækja i annaö stigið, United tU mikiUar armæðu. Það varð meisturunum hins vegar tU happs að Arsenal klúðraði niður tveggja marka forskoti á heimaveUi gegn Sund- erland eUir að hafa haft mikla yfirburði í fyrri hálUeik. Gestnmir börðust hat- rammlega í síðari hálUeik og uppskáru eftir því, eitt stig á erfiðum útiveUi. Afmælisdagurinn var ekki happa- drjúgur hjá Noel Whelan, framherja Middlesborough, en hann kom Coventry yfir með sjálfsmarki í botn- baráttuleik á Riverside. Alen Boksic tókst hins vegar að rétta hlut heima- manna og tryggja þeim stigið. Coventry stökk upp af faUsætinu með glæsUegum útisigri á Manchester City, 1-4, þar sem finnski landsliðsmaðurinn Jonatan Johansson skoraði tvö mörk. Nýjasti leikmaður City, Darren Hucker- by, skoraði eina mark liðsins í fyrsta leik sínum. James Beattie skoraði sigur- mark South-ampton gegn Derby og sitt tíunda í jafnmörgum leikjum. Fjórum leikjum var frestað á laugar- dag vegna veðurs. Stoke á góöu skriöi Stoke City er á nokkuð góðu skriði þessa dagana en í gær gerði liðið 2-2 jafnteUi við Notts County á útiveUi. Bjarni Guðjónsson skoraði fyrra mark Stoke með góðu skoti af 25 m færi í mjög lUlegum leik þar jafnt var i hálUeik, 1-1. Heimamenn komust síðan yfir snemma í síðari háUleik en stórsókn gestanna skilaði þeim jöfnunarmarkinu á 80. mínútu. Á laugardag vann Stoke góðan sigur á Bristol City, 1-0, þar sem Bjarni var aftur á ferðinni með eina mark leiksins. Birkir Kristinsson var í marki Stoke í báðum leikjum helgarinnar, Brynjar Björn Gunnarsson var sem fyrr i byrj- unarliðinu, sem og Bjarni, en Ríkharð- ur Daðason kom inn á sem varamaður í síðari hálUeik í báðum leikjum. Bolton náði að rífa sig upp í gær eftir ósigur gegn WBA á laugardag og sigraði Preston á útiveUi, 0-2. Guðni Bergsson var í byrjunarliði Bolton í báðum leikj- unum og þótti spUa vel. Bolton sótti að- eins að Fulham á toppi fyrstu deUdar- innr en þeir síðarnefndu töpuðu fyrir Stockport og hafa nú sjö stiga forystu í deildinni. Ivar Ingimarsson og Ólafur Gott- skálksson voru báðir í byrjunarliði Brentford sem vann góðan sigur á Ox- ford í 2. deild. -ÓK Enn sigrar Nef Sonja Nef frá Sviss sigraði á laugardag í stórsvigi í Semmering í Austur- ríki og er þetta þriðji sigur hennar í greininni á tímabUinu. Landa hennar, Corinne Rey Bellet, varð önnur í stórsviginu og bandaríska stúlkan Sarah Schleper þriðja en það er besti árangur hennar á árinu. Nef var með besta tímann eftir fyrri ferðina þar sem lítið skyggni gerði keppendum erfitt fyrir og tókst að halda forystunni í síðari ferðinni þegar snarpur vindur gerði keppendum lífið leitt. Austurrísku keppendurnir ollu heimamönnum sínum nokkrum von- brigðum í keppninni en Michaela Dorfmeister, heimsbikarmeistari í grein- inni, varð aðeins í fjórða sæti eftir að hafa náð öðrum besta tíma í fyrri ferð. „Það voru svo ólíkar aðstæður í ferðunum tveimur, skyggnið var svo slæmt á tímabUi að ég sá ekki skíðin mín,“ sagði Dorfmeister eftir keppn- ina. -ÓK Sport ^91 ENGLAHD Urvalsdeild Úrslit á laugardag: Arsenal-Sunderland..........2-2 1-0 Vieira (5.), 2-0 Dixon (40.), 2-1 Phillips (53., víti), 2-2 McCann (83.). Ipswich-Tottenham...........3-0 1-0 Stewart (8.), 2-0 Armstrong (62.), 3-0 Clapham (88.). Manchester City-Charlton . . . 1-4 O-l Johansson (27.), 0-2 Johansson (38.), 0-3 Stuart (79., víti), 04 Jensen (89.), 14 Huckerby (90., víti.). Middlesborough-Coventry ... 1-1 0-1 Whelan (41., sjálfsm.), 1-1 Boksic (86.). Newcastle-Man. United ......1-1 0-1 Beckham (24., víti), 1-1 Glass (81.). Southampton-Derby...........1-0 1-0 Beattie (73.). West Ham-Chelsea..........(Fr.) Aston Villa-Leicester.....(Fr.) Bradford-Liverpool .......(Fr.) Everton-Leeds.............(Fr.) Úrslit á nýársdag: Charlton-Arsenal............1-0 1-0 Johansson (38.). Chelsea-Aston Villa.........1-0 1-0 Hasselbaink (45.). Coventry-Manchester City ... 1-1 0-1 Wanchope (54.), 1-1 Edworthy (72.). Derby-Everton...............1-0 1-0 Burton (20.). Leeds-Middlesborough........1-1 0-1 Boksic (27.), 1-1 Keane (55., víti). Leicester-Bradford..........1-2 0-1 Jess (25.), 0-2 Jacobs (30.), 1-2 Izzet (37., viti). Liverpool-Southampton.......2-1 1- 0 Gerrard (12.), 1-1 Soltvedt (20.), 2- 1 Babbel (86.). Sunderland-Ipswich..........4-1 0-1 Stewart (xx.), 1-1 Arce (24.), 2-1 PhUlips (57.), 3-1 Dichio (63.), 4-1 Schwarz (88.). Man. United-West Ham........3-1 1-0 Solskjær (3.), 2-0 Pearce (33., sjálfsm.), 3-0 Yorke (57.), 3-1 Kanoute (72.). Man. Utd 22 Staöan 15 5 2 51-16 50 Arsenal 22 11 6 5 38-22 39 Sunderland 22 11 6 5 29-22 39 Ipswich 22 11 4 7 33-26 37 Liverpool 21 11 3 7 39-26 36 Leicester 21 10 5 6 24-23 35 Newcastle 21 9 4 8 23-26 31 Charlton 22 9 4 9 31-36 31 Chelsea 21 8 6 7 38-27 30 West Ham 21 7 8 6 31-24 29 Aston Villa 20 7 8 5 23-19 29 Southampt. 22 7 6 9 28-34 27 Leeds 20 7 5 8 27-28 26 Tottenham 21 7 5 9 26-32 26 Derby 22 5 8 9 24-36 23 Everton 21 6 4 11 21-33 22 Coventry 22 5 6 11 21-37 21 Middlesbr. 22 4 8 10 23-30 20 Man. City 22 5 5 12 27-38 20 Bradford 21 3 6 12 16-38 15 Fyrsta deild Úrslit á laugardag: Blackbum-Crewe............1-0 Bolton-W.B.A .............0-1 Huddersfield- Sheff. Wed. . . . 0-0 Nott. Forest-Norwich......0-0 QPR-Crystal Palace........1-1 Sheff. United-Preston.....3-2 Wolves-Stockport .........3-2 Wimbledon-Bumley........(Fr.) Fulham-Birmingham.......(Fr.) Gillingham-Tranmere .....(Fr.) Grimsby-Portsmouth......(Fr.) Léku á föstudag: Bamsley-Watford ..........0-1 Úrslit á nýársdag: Preston-Bolton ...........0-2 Bumley-Wolves.............1-2 Birmingham-Nott. Forest .... 0-2 Norwich-Blackbum..........1-1 Portsmouth-Gillingham.....0-0 Sheff. Wed.-Grimsby.......1-0 Stockport-Fulham..........2-0 Tranmere-Sheff. United....1-0 W.B.A-Bamsley.............1-0 Crewe-QPR ..............(Fr.) Crystal Palace-Huddersfield (Fr.) Önnur deild Úrslit á laugardag: Stoke-Bristol City .......1-0 1-0 Bjarni Guðjónsson (82.). Úrslit á nýársdag: Notts Coimty-Stoke........2-2 0-1 Bjarni (1.), 1-1 Liburd (17.), 2-1 Richardson (58.), 2-2 Cooke (80.).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.