Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2001, Side 4
18
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 2001
Dave Jones.
Jones til Wolves
Enski knatt-
spyrnustjórinn
Dave Jones, sem
tókst að hreinsa
nafn sitt af ákær-
um um barnaníð-
ingar eftir níu
mánaða réttar-
baráttu, var í
gær ráðinn
knattspyrnu-
stjóri 1. deildar-
liðsins Wolves.
Jones, sem var
við stjórnvölinn
hjá úrvalsdeild-
arliðinu Sout-
hampton þegar
ásakanirnar
komu upp í lok
ársins 1998 og
var samstundis
gefið árs leyfl frá
störfum, skrifaði
undir þriggja og
hálfs árs samn-
ing við Úlfana.
Jones fékk á sig
fjórtán ákærur
um barnaníðing-
ar frá þeim tíma
þegar hann vann
á barnaheimili í
Liverpool en var
sýknaður ekki
alls fyrir löngu.
Tékkneski landsliðs-
maðurinn Karel Po-
borsky,
sem leik-
ið hefur
með
portú-
galska
liðinu
Benfica,
er að öll-
um lík-
indum á
leið til ítédska stórliðsins
Lazio fyrir 3,3 milljónir
punda. Lazio hefur leitað
að hægri kantmanni síðan
Portúgalinn Sergio
Conceicao fór til Parma
sem hluti af kaupverði
framherjans Herans Crespo
og ætti Poborsky að geta
Jijálpað í þeim vandræðum.
Welski varnarmaóur-
inn
Chris
Cole-
man,
sem er
fyrirliði
enska 1.
deildar-
liðsins
Fulham, fótbrotnaði illa á
hægri fæti þegar hann lenti
í bílslysi á þriðjudagskvöld-
ið. Þetta er mikið áfall fyr-
ir Fulham sem er efst í 1.
deildinni og leikur gegn
Manchester United í þriðju
umferð ensku bikarkeppn-
innar á sunnudaginn.
Framherjinn Robby
Fowler komst heldur betur
í hann krappan þegar ráð-
ist var á
hann fyrir
utan
skemmti-
stað í
Liverpool
aðfaranótt
miðviku-
dagsins.
Fowler
hlaut nokkur meiðsli á and-
liti en er að öðru leyti i
lagi. Lögreglan hefur hand-
tekið 39 ára gamlan karl-
mann frá Liverpool í
tengslum við árásina.
Franski knattspyrnu-
snillingurinn Zinedine
Zidane, sem var valinn
knattspyrnumaður ársins
ekki alls fyrir löngu, er
fastur á milli tveggja bíla-
fram-
leiðenda
eftir að
hann
kom
fram í
auglýs-
ingu fyr-
ir banda-
ríska
bilaframleiðandann Ford.
Zidane leikur með Juvent-
us á ítaliu en félagið hefur
löngum haft sterk tengsl
við ítalska bílaframleið-
andann Fiat. Fiat átti lengi
stóran hluta í félaginu en
fyrirtaekið seldi hann árið
1990. ítalska félagið harð-
neitaði þó að Zidane hefði
gert eitthvað rangt og sagði
að honum væri frjálst að
auglýsa fyrir hvaða bila-
framleiðanda sem er. -ósk
5.
1
11
íslenska karla- og kvennalandsliöiö í golfi skeilti sér í keilu í Keilúhöllinni í Öskjuhlíö í gærkvöldi og var þaö hluti af
tveggja daga æfingabúðum sem Staffan Johansson landsliösþjálfari setti upp. DV-mynd KK
Æfingabúöir íslenska golflandsliösins:
hjá kylfingum í Öskjuhlíð í gær
Karla- og kvennalandslið íslands í
golfi kom í gær saman í tveggja daga
æfmgabúðir undir stjórn landsliðs-
þjálfara íslands, Svíans Staffan Jo-
hansson. Þetta er í annað sinn sem
hann kallar saman liðin í æfingabúð-
ir á undirbúningstímabilinu en liðið
hefur æft reglulega í vetur í Reiðhöll-
inni í Víðidal undir stjórn liðsstjór-
ans Ragnars Ólafssonar.
Johansson hélt fyrirlestur fyrir
landsliðskylfingana í gær um and-
íslandsmeistarinn í golfi, Björgvin Sig-
urbergsson, sýndi skemmtileg tilþrif í
keilunni í gær. DV-mynd KK
lega þáttinn í keppnisgolfi. Eftir fyr-
irlesturinn hélt landsliðið í keilu í
Öskjuhlíð og átti góða stund þar sem
alvara æfinganna vék fyrir glensi og
gríni.
Þrjú í Bandaríkjunum
Þrir íslenskir kylfmgar, Ólöf Mar-
ía Jónsdóttir, Keili, Örn Ævar Hjart-
arson, GS, og Ómar Halldórsson frá
Akureyri, dvelja í vetur í Bandaríkj-
unum við æfingar og má búast við
þeim sterkum til leiks næsta vor
eftir að hafa æft við toppaðstæður á
iðjagrænum golfvöllum vestanhafs i
allan vetur.
Miklar framfarir
Ólöf María Jónsdóttir er ekki í
vafa um að dvölin ytra eigi eftir að
gera henni gott. „Ég fmn fyrir því að
ég er að taka framfórum og vona að
þessi dvöl mín hér ytra eigi eftir að
gera það að verkum að ég komi betur
undirbúin til leiks næsta vor,“ sagði
Ólöf María Jónsdóttir, golfkonan
snjalla úr Golfklúbbnum Keili í
Hafnarfirði. -ósk
París-Dakar rallið farið af stað:
Meistari Masuoka
- fyrstur eftir þrjár sérleiðir
Japanski ökuþórinn Hiroshi
Masuoka hefur tekið forystu í rall-
inu frá París í Frakklandi til Dak-
ar í Senegal eftir þriðju sérleiðina
en hún var ekin á ströndinni við
borgina Castellon í suðaustur-
hluta Spánar í gær.
Masuoka og aðstoðarmaður
hans, Frakkinn Pascal Maimon,
sem aka Mitsubishi-bíl, hafa ekið
sérleiðirnar þrjár á 42:58 mínút-
um. í öðru sæti eru sigurvegarar
síðustu tveggja ára, Frakkamir
Jean-Louis Schlesser og Henri
Magne, sem aka sérbúnum bíl að
nafni Schlesser Buggy, 46 sekúnd-
um á eftir og í þriðja sæti er ann-
að franskt par, Jean-Pierre
Fontenay og Gilles Picard, einnig
á Mitsubishi, mínútu á eftir Masu-
oka. Fontenay og Picard unnu sér-
leiðina í gær og voru sex sekúnd-
um á undan Masuoka og Maimon.
Schlesser, sem leiddi keppnina
fyrir sérleiðina í gær, var einni
mínútu lengur en Masuoka að aka
sex kílómetra sérleið í spænskri
Qöru í gær og missti því forystuna
í keppninni til Japanans.
Keppni í mótorhjólaflokki var
frestað i gær en þar hefur Frakk-
inn Richard Sainct á KTM-hjóli
forystu, hefur ekið tvær sérleiðir á
35:04 mínútum. Annar er Spán-
verjinn Juan Roma á BMW-hjóli,
54 sekúndum á eftir. -ósk
NBA-DEILDIN
Dúóið
- hjá Lakers gerði
gæfumuninn
Þeir Kobe Bryant og Shaquille
O’Neal leiddu sína menn, LA
Lakers, í 82-71 sigri á Utah í
nótt. Þeir skoruðu samanlagt 56
stig en sá síðarnefndi tók alls 17
fráköst í leiknum.
Úrslit:
Boston-New York..........91-100
Walker 30, Stith 16, Pierce 16, Ander-
son 11 - Houston 25, Childs 17, John-
son 16, Sprewell 12, Thomas 10.
Philadelphia-Atlanta......98-90
Iverson 21, Ratliff 17 (11 frák., 7 varin),
Lynch 12, McKie 11 (10 frák., 10 stoðs.)
- Terry 17, Glover 10, McLeod 10.
Milwaukee-Cleveland........88-83
Allen 25, Cassell 16, G. Robinson 10 (6
frák., 7 stoðs.), T. Thomas 10 (10 frák.)
- Mihm 18 (15 frák.), Gatling 18, L.
Murray 17.
Dallas-Detroit...........104-107
Finley 35, Nowitzki 25 (12 frák.), Nash
22 (9 stoðs.) - Stackhouse 33 (7 frák., 8
stoðs.), J. Smith 28 (15 frák.), Atkins
11 (7 stoðs.).
Phoenix-LA Clippers .......90-85
C. Robinson 21, Kidd 12 (11 stoðs.),
Marion 11 (9 frák.) - Odom 24 (7
frák.), Mclnnis 17, Rooks 12.
Portland-Indiana .........102-86
Wells 27, Pippen 24 (9 stoðs.), R.
Wallace 11 (9 frák.) - J. Rose 16, R.
Miller 13, Croshere 12.
Vancouver-Charlotte .......99-89
Dickerson 22, Bibby 21 (10 stoðs.),
Abdur-Rahim 19 (10 frák.) - Coleman
18, Mashburn 17, Ba. Davis 17 (9 frák.,
8 stoðs.).
LA Lakers-Utah.............82-71
Bryant 31, O’Neal 24 (17 frák.), Hor.
Grant 6 (11 frák.) - Russell 16 (8
frák.), Marshall 16 (8 frák.), Malone
14.
Denver-Golden State .... 111-100
McDyess 25 (17 frák.), Lenard 23,
LaFrentz 13 (8 frák.), McCloud 13 - A.
Jamison 26 (11 frák.), Jackson 22 (12
frák.). L. Hughes 17 (6 stoðs.) -esá
L
9
SPANN
Spænska bikarkeppnin:
Atletico Madrid-Osasuna.......3-1
Badajoz-Racing Santander......0-4
Beasain-Real Zaragoza.........0-3
Ceuta-Barcelona ..............0-3
Compostela-Celta Vigo . . 3-1 (e. frl.)
(Staðan var 1-1 eftir 90. mínútur)
Extramadura-Valladolid . 2-1 (e. frl.)
(Staðan var 1-1 eftir 90 mínútur)
G. Torrelavega-Las Palmas .... 2-1
Guadix-Valencia .........4-4 (e. frl.)
(Guadix vann í vítakeppni, 6-5)
Jaen-Murcia..............1-1 (e. frl.)
(Murcia vann í vítakeppni, 7-6)
Leganes-Numancia ..................2-0
Tenerife-Deportivo La Coruna . . 3-2
Toledo-Rayo Vallecano .........0-1
Xerez-Real Mallorca ...............0-3
Granada-Villareal .......1-1 (e. frl.)
(Granada vann í vítakeppni, 4-2)
Levante-Espanyol ..................0-2
San Sebastian Reyes-A. Bilbao . 1-2
Átta 1. deildarlió duttu út úr annarri
umferö spænsku bikarkeppninnar.
Þar á meðal var efsta lið deildarinnar,
Valencia sem tapaði fyrir 3. deildar-
liöinu Guadix eftir vítaspyrnukeppni.
Guadix, sem er í botnbaráttunni í 3.
deild, komst í 3-0 og síðan 4-2 en Sló-
veninn Zlatko Zahovic skoraði tvö
mörk fyrir Valencia á lokamínútun-
um og náði að knýja fram framleng-
ingu. Þóróur Guðjónsson kom ekki
við sögu í tapi Las Palmas. -ósk
i.