Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Síða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001
Útlönd
1>V
Viö góöa heilsu
Dick Cheney, varaforseti Bandaríkj-
anna, segist vera stálsleginn eftir
aö æö til hjartans var blásin.
Cheney kemur á
ný til vinnu í dag
Dick Cheney, varaforseti Banda-
rikjanna, sagði að sér liði vel þegar
hann var útskrifaður af sjúkrahúsi i
Washington, daginn eftir að æð til
hjartans var hreinsuð. Varaforsetinn
kemur aftur til vinnu í dag og ekki
er búist viðp að hann slái slöku við,
frekar en fyrri daginn.
„Landið þarfnast visku hans og
dómgreindar,“ sagðí George W. Bush
forseti I gær um varaforseta sinn.
Cheney hefur fengið fjögur hjarta-
áföll síðan 1978 og aðgerðin á mánu-
dag vekur enn á ný upp spurningar
um hvort hann hafi heilsu til að
gegna jafnþýðingarmiklu embætti.
Læknar sögðu hins vegar að líkum-
ar á að hann kláraði kjörtímabilið
væru mjög miklar.
Kona Arkans út-
húðar morðingja
Eiginkona serbneska stríðsherr-
ans Arkans sagði fyrir rétti í Belgrad
í gær að hún hefði séð manninn, sem
ákærður er fyrir morðið á eigin-
manni hennar, sitja fyrir aftan striðs-
herrann skömmu áður en hann var
skotinn til bana í hótelanddyri á sið-
asta ári.
„Herra dómari, ég get horft í augu
hans allan daginn. Svikarapakk!
Óþverri!,“ sagði Svetlana Raznatovic.
„Ér er handviss um að þetta er
hann,“ sagði Raznatovic, sem er vin-
sæll söngvari i Serbíu.
Sakbomingurinn, Dobrosav Gavr-
ic, er ákærður fyrir morðið á Arkan
ásamt níu öðmm. Hann hefur lýst yf-
ir sakleysi sínu.
Haraldur Noregskóngur
Lýöveldissinnar hafa stofnaö sam-
tök til höfuös konungdæminu.
Vilja losna við
norska kónginn
Hópur norskra lýðveldissinna hóf
í gær barátu fyrir því að konung-
dæmið verði lagt niður þar sem
kóngar og drottningar heföu enga
þýðingu sem þjóðhöfðingjar ríkis
sem stærir sig aí jafnrétti.
„Það var kannski rétt að hafa
kóng fyrir 100 árum en það er ekki
rétt í dag,“ sagði Bernt Nilsen, leiö-
togi lýðveldissinna. Hann gerir sér
vonir um að konungdæmið verði
afnumið 2014, á 200 ára afmæli
norsku stjómarskrárinnar.
ESB lokar mörkuðum með búfé vegna gin- og klaufaveikinnar:
Frosið dýrasæði
getur borið smit
Innflutt frosið dýrasæði og fóstur-
vísar geta borið smit af gin- og
klaufaveiki, að því er norskur dýra-
læknir segir í viðtali við blaðið
Aftenposten í dag.
„Það getur verið breytilegt frá líf-
færi til líffæris hversu lengi veiran
getur lifað. En við vitum að hún get-
ur til dæmis lifað í frystu sæði,“
segir Trude M. Lyngstad sem
starfar hjá embætti norska yfirdýra-
læknisins.
Það sem af er þessu ári hafa
Norðmenn fengið fjórar sendingar
af frystu sæði og eina með fósturvís-
um. Efni þetta hefur komið frá lönd-
um á borð við Danmörku, Þýska-
land og Holland. í fyrra komu fjöru-
tíu sendingar með stórgripasæði til
Noregs, meðal annars frá Frakk-
landi.
Evrópusambandið ákvað í gær að
setja öllum viðskiptum með búfénað
mjög þröngar skorður. Allur flutn-
Kindahræin fjarlægö
Dýralæknar í Frakklandi fjarlægja
kindahræ i suðausturhluta
Frakklands. Dýrunum var fargaö
vegna gin- og klaufaveikinnar.
ingur dýra yfir landamæri hefur
verið takmarkaður og mörkuðum
með búfénað hefur verið lokað til að
koma í veg fyrir að gin- og klaufa-
veikifaraldurinn í Bretlandi breið-
ist út til annarra landa.
Dýralæknanefnd ESB ákvað líka
á fundi sínum í gær að framlengja
bann við útflutningi breskra gripa
og kjöts um tvær vikur, til 27. mars.
Rúmar tvær vikur eru nú liðnar
síðan fyrstu tilfelli gin- og klaufa-
veikinnar voru greind í Bretlandi, í
fyrsta sinn í tuttugu ár. Til þessa
hefur veikin, sem er mjög smitandi
og leggst á svín, sauöfé, geitur og
nautgripi, aðeins greinst í Bret-
landi. Frönsk stjórnvöld hafa bann-
að útflutning á dýrum sem eru í
hættu, en Danir, Belgar og Þjóðverj-
ar eru að prófa búfénað sinn. Yfir-
dýralæknir Bretlands sagðist eiga
von á því að veikin myndi ná
hámarki í þessari viku.
Hreinsaö til eftir snjóbyl aldarinnar
íbúar Andover, eins noröurúthverfa stórborgarinnar Boston á norðausturströnd Bandaríkjanna, fengu svo sannarlega
aö finna fyrir Vetri konungi þegar þeir ætluöu til vinnu í gærmorgun. Bílar voru á kafi í snjó og því eins gott aö vera
vel á sig kominn til aö geta mokað þá út. Skólar og fyrirtæki í mörgum bæjarfélögum voru lokuð í gær.
íhuga að leyfa Júgóslavíu-
her að verja Makedóníu
NATO íhugar að leyfa júgóslav-
neskum hermönnum aö fara inn á
hlutlausa svæðið við landamæri
Kosovo og Makedóníu til að þeir
geti aðstoðað við að hrekja al-
banska uppreisnarmenn frá
Makedóníu.
Uppreisnarmenn hafa gert árásir
frá svæðinu inn í Serbíu og
Makedóníu. Óttast er að hernaður
þeirra í Makedóníu geti leitt til
nýrrar styrjaldar á Balkanskaga.
í gær mátti heyra skothríð öðru
hverju í fjöllunum. Slæmt veður
kom í veg fyrir harða bardaga.
Evrópusambandið fordæmdi í
gær árásir albanskra uppreisnar-
manna. Öryggis- og samvinnustofn-
un Evrópu lýsti i gær yfir stuðningi
við ósk yfirvalda í Makedóníu um
alþjóðlega aðstoð. Friðargæsluliðar
í Kosovo greindu í gær frá hand-
Flóttakona
Nurije Emini flýöi frá landamærabæ
vegna bardaga.
töku sex félaga í nýrri hreyfingu al-
banskra uppreisnarmanna nálægt
landamærunum. Samtímis for-
dæmdu leiðtogar Albana í Kosovo
aðgerðir öfgahreyfinga við landa-
mærin.
Ekki er ljóst hvers vegna upp-
reisnarmenn hafa ráðist inn í
Makedóníu en sérfræðingar segja
öfgasinna meðal Albana dreyma
um Stór-Albaníu. Meirihluti Al-
bana í Kosovo, Makedóníu og Al-
baníu er þó ekki sagður hlynntur
Stór-Albaníu. Albanar í Makedón-
íu, sem flestir eru múslímar, segj-
ast vera meðhöndlaðir eins og ann-
ars flokks þegnar og krefjast jafn-
réttis. Herskáar hreyfingar meðal
þeirra krefjast jafnréttis. Yfirvöld
segja Albana vera um 20 prósent
íbúanna en talsmenn Albana segja
þá vera 40 prósent.
Ætlar ekki að segja af sér
Forsætisráðherra
Japans, Yoshiro
Mori, visar á bug
frétt í dagblaði 1
dag um að hann
ætli að segja af sér.
Mori er undir mikl-
um þrýstingi frá
mörgum innan
samsteypustjórnarinnar um að
segja af sér þar sem þeir telja að sig-
urmöguleikar í kosningunum í júlí
verði meiri án hans.
Kjarnavopn í Kaliningrad
Njósnahnettir Bandaríkjanna
hafa fylgst með flutningi kjarna-
vopna til Kaliningrad í Rússlandi.
Fullyrt er að kjarnaflaugunum sé
beint að Evrópu.
Sprenging í skóla
41 lét lífið og 27 slösuðust er
skólabygging í Kina hrundi af völd-
um sprengingar.
Umbúðir teknar af
Umbúðir hafa verið teknar af
höndum litlu stúlkunnar sem fraus
í Kanada fyrir rúmri viku. Erika er
enn með umbúðir á fótunum.
Flóttakonum nauðgaö
Allt að fjórðu hverri konu í flótta-
mannabúðum í heiminum er nauðg-
að eða konan beitt annars konar of-
beldi. Þetta kemur fram í skýrslu
mannréttindasamtakanna Human
Rights Watch.
Öryggi ábótavant
Áhöfn banda-
ríska kafbátsins
Greeneville, sem
sökkti japönsku
skólaskipi, var svo
önnum kafin við að
sinna gestum sín-
um að öllum örygg-
isreglum var ekki
fylgt um borð. Tæknimaður lét til
dæmis ekki vita af árekstrarhættu,
meðal annars vegna þess að gestir
stóðu í vegi fyrir honum og einnig
vegna þess að skipstjórinn, Scott
Waddle, vildi upplýsingar frá öðr-
um tæknimönnum.
Grænt Ijós á skert úran
Sérfræðinganefnd á vegum Evr-
ópusambandsins hefur úrskurðað
að engin tengsl séu á milli notkunar
skerts úrans í Bosníu og Kosovo og
hvítblæðis meðal hermanna.
Kútsjma veitir vikufrest
Leonid Kútsjma
Úkraínuforseti, sem
sakaður er um að
hafa fyrirskipað
morð á gagnrýnum
blaðamanni, sagði i
gær ráðherrum sín-
um og embættis-
mönnum að hætta
störfum eða hafna
opinberlega tengslum við samtök
stjórnarandstæðinga innan viku.
Nokkrum klukkustundum síðar rak
forsetinn orkumálaráðherra lands-
ins.
Réttarhöldum frestað
Réttarhöldum í máli stærstu
lyfjaframleiðenda heims gegn stjórn
S-Afríku var frestað í gær.
Lyfjafyrirtækin vilja koma í veg
fyrir að stjómvöld flytji inn ódýr lyf
gegn alnæmi. Lyfjafyrirtækin segja
innflutninginn ólöglegan.