Dagblaðið Vísir - DV

Date
  • previous monthMarch 2001next month
    MoTuWeThFrSaSu
    2627281234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2001, Page 24
28 MIÐVIKUDAGUR 7. MARS 2001 Tilvera X>V Ræflarokk í Borgarleikhúsi Ræflarokkið fær að sleikja tæm- ar á hinni dýru list þegar hljóm- sveitimar Fallega gulrótin og Rass troða upp á litla sviði Borg- arleikhússins í kvöld kl. 21. Fal- lega gulrótin samanstendur af viðundrum þeim sem náttúran ætlaði til búsetu í Kópavogi og hinn gimilegi Rass er undir hin- um hamslausa Óttari Proppé og félögum hans. Klúbbar 1 BREAKBEAT.IS A 22 DÍ HabÍt verður við spilarana á Breakbeat.is- kvöidi á Tuttuguogtveimur. Auk hans munu fasta-snúðar kvöldanna, Dj Addi, Dj Eldar og Dj Reynir, taka í spilarana og kynna gestum það nýjasta sem er að gerast í heimi jungle tónlistarinnar. Klassík ■ SKOLATONLEIKAR Klukkan átta í kvöld verður Tónlistarskóli Kópa- vogsmeð magnaða skólatónleika í Salnum. Síðustu forvöð ■ VATNSLITASYNING I SMIÐJ- UNNII dag lýkur glæsilegri vatns- litasýningu á verkum nokkurra Ijsta- manna í Smlðjunni art gallerí, Ár- múla 36. Listamennirnir eru meðal annars Ásgrímur Jónsson, Guórún Svava, Gunnlaugur Scheving, Haf- stelnn Austmann, Jón Axel, Jón Engilberts, Kjarval, Muggur, Þor- valdur Skúlason, Harpa Björnsdótt- ir, Björg Orvar og Hlíf Ásgrímsdóttir. Fundir ■ BIBLIULESTRAR I HALLGRIMS- KIRKJU I kvöld kl. 20 verður fýrsti Biblíulesturlnn af fimm sem haldnir verða í Hallgrímskirkju næstu miðvikudagskvöld. Aö loknum Biblíulestrinum veröur stutt helgistund á föstu í kirkjunni. Séra Ingþór Indriöason annast lestrana sem veröa úr Fyrra Kórintubréfi. Allir velkomnir. ■ KARLAR Á KVENNAVINNUSTAÐ Á morgun kl. 12 mun Steinunn Haröardóttir félagsráðgjafi,flytja fýrirlestur sem hún nefnir: í veröld kvenna/Karlar á kvennavinnustaö. Fyrirlesturinn er á vegum Rann- sóknarstofu í kvennafræðum og verður haldipn í stofu 101 í Odda. Myndlist ■ GERÐARSAFN í KÓPAVOGI Verk úr einkasafni Sverrls Sigurös- sonar. Sýningin stendur til 31. mars. ■ ÁSMUNDARSAFN VIÐ SIGTÚN Fjöll rímar viö tröll, Páll Guömunds- son í bland við Asmund Svelnsson. ■ LISTASAFN REYKJAVÍKUR HAFNARHUSI Sófamálverkiö er til sýnis til 25. mars. Útisýning Ro- berts Dells stendur til 25. mars en franska frásagnarmálverkið stendur til 21. mars. ■ LISTASAFN REYKJAVÍKUR. KJARVALSSTODUM Gullni pensill- inn, samsýning íslenskra figúratífra málara, stendur til 24. mars. ■ NÝLISTASAFNH) Samsýning Stelngríms Eyfjörös, Rögnu Her- mannsdóttur, Finns Arnars Arnar- sonar og Huldu Stefánsdóttur stendur til 25. mars. Sjá nánar; Lífiö eftir vinnu á Visi.is í veröld kvenna: Karlar á kvennavinnustöðum Fjölskyldumal Gleymdu börnin Þórhallur Heímisson s krifar um fjölskyldumál á miövikudögum Á morgun mun Steinunn Hrafns- dóttir félagsráðgjafi halda fyrirlest- ur í stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn er á vegum Rannsóknastofu í kvennafræðum og nefnist Karlar á kvennavinnustöðum og byggir á niðurstöðum rannsóknar á vinnu- umhverfi stjórnenda í félagsþjón- ustu á íslandi. íslenskur vinnumarkaður ein- kennist meðal annars af þvi að meirihluti kvenna og karla vinnur störf þar sem hitt kynið er í minni- hluta eða ekki til staðar. Til dæmis vinnur meirihluti kvenna á íslandi í opinberum stofnunum við svoköll- uð kvennastörf þar sem karlar eru í minnihluta. Mun fleiri konur en karlar vinna við félagsþjónustu og hið sama má segja um grunnskóla- kennslu, leikskólakennslu, hjúkrun og störf á sviði bókasafns- og upp- lýsingafræði. „Það hafa verið gerðar fáar rann- sóknir hér á landi um karla sem starfa á vinnustöðum þar sem kon- ur eru í meirihluta,“ segir Steinunn Hrafnsdóttir, „aftur á móti benda þær rannsóknir sem hafa verið gerðar til þess að karlar á kvenna- vinnustöðum séu hlutfallslega margir í stjórnunarstörfum og kom- ist skjótar i hærri stjórnunarstörf en konurnar. Þeir virðast einnig leita í ákveðin störf innan grein- anna sem samrýmast frekar hinni hefðbundnu karlmennskuímynd. Viðhorf til karla á kvennavinnu- stöðum er yfirleitt jákvætt og starfs- systur þeirra vilja gjarnan fjölga þeim á vinnustaðnum. Þrátt fyrir þetta gætir ákveðinnar tvíbendni gagnvart körlunum sem birtist m.a. í því að þeir eru oft álitnir öðruvisi en aðrir karlmenn og stundum er talið að þeir séu samkynhneigðir“. Steinunn segir að sínar niður- stöður séu svipaðar og komið hafa fram í erlendum rannsóknum. Karla sem fara í hjúkrun velja sér yfirleitt störf við svæfingar- og slysahjúkrun eða þá við rannsókn- ir. Þetta eru allt störf sem samræm- ast ríkjandi karlmennskuímynd. Karimenn finna fyrir ákveönum þrýstingi Steinunn Hrafnsdóttir féiagsráðgjafi segir að í samfélaginu séu mjög ákveönar hugmyndir um hvað séu karla- og kvennastörf og það geti reynst erfitt fyrir einstaklinga aö brjótast út úr hefðinni. „Ég held að karlmenn finni fyrir ákveðnum þrýstingi frá samfélag- inu, bæði frá körlum og konum, um að það sé ekki nógu karlmannlegt að starfa í ákveðnum greinum. Mér finnst þetta nokkuð sláandi því ég tel að kynin séu ekki í eðli sínu það ólík að þau geti ekki unnið sömu störfin. Það er oft litið á karla sem vinna kvennastörf sem „mjúka menn“ og að þeir hafi öðru vísi félagslegahæfni en aðrir karlmenn. Sumir karlmennirnir sem ég talaði við taka undir þetta og telja sig hafa meiri hæfni á þessu sviði en aðrir karlmenn. Sanifélagið hefur mjög hefðbundnar skoðanir um hvað eru karla- eða kvennastörf og það geti reynst erfitt fyrir einstaklinga að brjótast út úr hefðinni." -Kip Við íslendingur elskum að eignast börn! Það er næstum því hægt að sanna þessa barna- ást okkar tölfræðilega. Fáar þjóðir í Evrópu eignast fleiri börn en við miðað við hina frægu höfðatölu. Mörgum þjóð- um fækkar reyndar og hefur farið fækkandi undanfarna áratugi. En okkur fjölgar. Og það er ekkert lát á þessari fjölgun. Við byrjum líka mun fyrr að eignast börnin okkar en flestar Evrópuþjóðir, þannig að mun hærra hlutfall fjölskyldna hér á landi er ungt en á meginlandinu, ungir foreldrar með fullt af bömum. Svo er auðvitað fullt af einstæðum foreldrum líka með ungu börnin sin. Það er frá- bært að vera svona ung og spræk þjóð. Börnin eru gleðigjafi í lífinu og öll viljum við börnunum okkar hið besta. En þaö er ákveðin mótsögn í gangi i þjóðfélaginu varðandi börn- in og fjölskyldurnar. Annars vegar elskum við sem sagt börnin og vilj- um helst eignast sem flest börn. A hinn bóginn er barnafjölskyldum gert mun erfiðara fyrir hér á landi en í löndunum í kringum okkur. Þegar litið er á heildarútgjöld landa í Evrópu, kemur nefnilega það und- arlega í ljós, að barnaþjóðin ís- lenska fjárfestir einna minnst allra þjóða í barna- og fjölskyldumálum. Á það við bæði hvað varðar skóla og félagsmál sem og bein útgjöld til fjölskyldumála. Afleiðingarnar sjást víða, meðal annars í því hversu fáir hér á landi ljúka framhaldsnámi miðað við í öðrum Evrópulöndum. En þessi forgangsröðun í fjármálum ríkisins hefur ekki síður' áhrif á vettvangi fjölskyldunnar. Því það er nefnilega ekki nóg að fæða börnin i heiminn. Hér njóta fjölskyldurnar mun minni stuðnings en gengur og gerist hjá nágrannaþjóðunum. Til þess að standa straum af barnaupp- eldi og öllu því sem það nú kostar að koma blessuðum börnunum til manns, þá þurfa hinir fullorðnu að vinna langan vinnudag fjarri fjöl- skyldunni. En það er ekki aðeins knýjandi þörf sem veldur þessum langa vinnudegi. Vinnan er dyggð hér á landi og það hefur alltaf þótt flott að geta unnið sem lengst. Við erum mörg ekki enn búin að til- einka okkur það verðgildi sem ríkir í nágrannalöndum okkar, þar sem menn telja tímann með fjölskyld- unni dýrmætari en tímann sem var- ið er í framapot í vinnunni. T.d. er orðið erfitt að fá ungt fjölskyldufólk í ráðherrastörf á Norðurlöndunum, því þau störf taka svo mikinn tíma frá fjölskyldunni. Sjáið þið í anda einhvern af þingmönnunum okkar hafna ráðherrastöðu til þess að-geta varið meiri tima með fjölskyldunni sinni? Nei, ætli ráðherrastóllinn sé þeim ekki dýrmætari en það. Oft bætist við þennan langa vinnudag félagsmálastúss margs konar, líkamsrækt og skemmtanir um helgar þegar hin langþreytta, bammarga þjóð fær útrás eftir stranga vinnuviku. (Hafið þið til dæmis tekið eftir því að öll hin ágætu málþing um m.a. fjölskyldu- mál eru alltaf haldin um helgar, þegar fjölskyldan á frí? Hvar eru þá börnin á meðan foreldrarnir eru að þinga um nauðsyn þess að sinna börnunum sínum betur? Að minnsta kosti ekki hjá foreldrun- uml). Þannig kemur sú undarlega staða í ljós þegar vel er skoðað að þjóðin sem elskar börn, þjóðin sem eignast fleiri börn en flestar aðrar í Evrópu miðað við höfðatölu, þessi þjóð hefur engan tíma til þess að sinna elskuðu börnunum sínum. Þannig kemur sú undar- lega staða í Ijós þegar vel er skoðað að þjóðin sem elskar böm, þjóðin sem eignast fleiri börn en flestar aðrar í Evrópu miðað við höfðatölu, þessi þjóð hefur engan tíma til þess að sinna elskuðu bömunum sín- um. Hún hefur nefnilega svo mikið annað að gera að hún gleymir þeim. Svo em allir hissa á því þegar erfitt er að ná sam- bandi við unglingana. Hún hefur nefnilega svo mikið ann- að að gera að hún gleymir þeim. Svo eru allir hissa á því þegar erfitt er að ná sambandi við unglingana. Hvað ætli unglingarnir hafi svo sem áhuga á því að tala við einhverja foreldra sem aldrei hafa mátt vera að því að sinna þeim áður? En þeg- ar við missum unglingana út úr höndunum á okkur þá er of seint að ætla sér að bæta fyrir öll töpuðu árin. Og þá verður okkur ljóst að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue: 56. tölublað (07.03.2001)
https://timarit.is/issue/200135

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

56. tölublað (07.03.2001)

Actions: