Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2001, Blaðsíða 4
H lifiðFFT,B V T M M I I Vikan 6, aoríl tii 12. apríi Ifókus Blákaldur veruleiki Ég fór að sjá myndina um Lalla Johns á sunnudaginn og þótti hún alveg til fyrirmyndar. Þetta er tragíkómískt verk sem á tvimæla- laust eftir að hreyfa við fólki. Þeir sem komu með mér héldu að þeir voru að fara að sjá rómantíska út- lagamynd um smákrimma en svo blasti bara við blákaldur íslenskur ömurleiki. En engu að síður er myndin verulega góð. Einar Logi Vignisson markaðs- ráðgjafi Kynnti kynjafræði Á sunnudag- inn var nám- skynning há skólanna og tók þátt í kynna kynja- fræðina. Þetta var svolitið skemmtilegt því það stopp- uðu margir hjá okkur og hver einasti spurði okkur hvað kynja- fræði væri. Ég held að okkur hafi tekist ágætlega að svara þessu fólki og náö til þeirra enda erum við skemmtilegasta skorið. Bryndís Nielsen, kynjafrœðinemi og í ritstjórn pólitík.is Pabbahelgi Síðusta helgi var pabbahelgi hjá mér. Ég var sem sagt með börnun- um mínum og við kíktum út í blíðuna og höfðum það huggulegt. Á laugardagskvöldið var lokasýn- ing á Stræti í nemendaleikhúsinu en eftir það fór ég bara heim. Ann- ars er ég aðallega búin að vera í Hafnarfirði þar sem ég er að æfa leikrit og svo er ég að aðstoða vini mína við að koma af stað nýjum bar. Víkingur Kristjánsson leiklistar- nemi Djammað og dansað Eg fór með vin- konu minni á djammið um helg- ina og við skemmtum okkur rosalega vel. Við byrjuðum á Gauknum þar sem eitthvert diskóband var að Jk i spila. Þaðan flúð- um við svo yfir á Café Amsterdam sem hefur lengi verið annað heim- ili mitt. Þetta var mjög skemmti- legt, mikið drukkið, djammað og dansað. Andrea Unnarsdóttir nektar- dansmœr skemmtanir Karlakór Akureyrar er kominn á slóðir Liverpooldrengjanna í The Beatles. Kórinn heldur tónleika með Bítlalögunum um helgina og á miðvikudag í Lóni, félagsheimili kórsins. Karlakór með bítlatónleika í upphafi dymbilviku Karlakór Akureyrar - Geysir stendur fyrir bítlakvöldi í félags- heimili kórsins, Lóni, í kvöld og laugardagskvöld, og svo aftur mið- vikudagskvöldið 11. apríl, daginn fyrir skírdag. Karlakórinn hélt tón- leika í fyrra í dymbilvikunni þar sem eingöngu voru flutt lög The Beatles, flest í útsetningu snilling- anna Johns Lennons og Pauls McCartneys. Tónleikarnar vöktu mikla hrifningu og margir sem voru unglingar á sjöunda áratugn- um og fengu svokallað „bítlaæði" í æð á þeim árum endurlifðu stemn- inguna sem þá ríkti. Hver man ekki eftir lögum eins og „Sgt. Pepp- ers lonely hearts clubs band,“ „Yesterday", „Lady Madonna", Hey Jude“ og þannig mætti lengi telja margar af bestu og mestu perlum The Beatles, hljómsveitarinnar sem verðskuldar sæmdarheitið vin- sælasta popphljómsveit allra tíma. Nú gefst tækifæri til þess að endur- lifa þessa sælutíma með því að koma á bítlatónleika í Lón. Karlakór Akureyrar - Geysir á tónleikum sem karlakórinn hélt nýlega ásamt tveimur öðrum karlakórum við Eyjafjörð, Karlakór Dalvíkur og Karlakór Eyja- fjarðar. Stjórnandi kórsins er Erla Þórólfsdóttir en undirleikari á þessum tón- leikum var Sólveig Anna Jónsdóttir. Erla er enginn nýgræðingur á þessu sviði því hún hefur síðustu 20 ár stjórnað kórum bæði hérlendis og erlendis. Um 20 félagar í Karlakór Akur- eyrar ásamt nokkrum yngri lið- styrk syngja með hljómsveitinni „Éinn & sjötíu" lög Bítlanna, og kemur afraksturinn i ljós í Lóni á fóstudagskvöldið kl. 21. Aðalsöngv- ari auk hljómsveitar og kórs er Kjartan Smári Höskuldsson. Eftir tónleikana á laugardag verður dansleikur. FöstudagurT Popp ■ NOISE Á FÓSTUDAGSBRÆÐINGI Hljómsveitin Noise, sem var eitt af böndunum sem komst í úr- slit á nýafloknum Músiktilraunum Tónabæjar, spil- ar á Föstudagsbræðingi á Geysi Kakóbar. Húsifi opnar kl. 20:30. Auövitað allir 16 ára og eldri vel- komnir, frítt inn og ekkert rugl. •Klúbbar ■ 100% SUMARBRÚV Á THOMSEN Tommi White og Ýmir halda partýinu gangandiaöeins of lengi á Kaffi Thomsen. Sumri fagnaö snemma. ■ BANASTUÐ Á SPQTUGHT Dj Cesar verður í banastuöi á Spotlight allt kvöldiö að spila tónlist fyrir dansþyrsta. Frítt skot á barnum fyrir þá sem borga sig inn fyrir kl 2.00. ■ PJÚPA LAUGIN Á SKUGGANUM Djúpa laugin er á Skuggabar. Húsiö opnaö kl. 22.00 og eftir Ojúpu Laugina tekur viö Einkaklúbbs- djamm á Skugga þar sem hægt verður að skrá sig í klúbb- inn og fá trit á barnum. Allir meðlimir kiúbbsins fá fritt inn en þeir veröa aö vera 22 ára eða eldri. 500 kall inn fyrir aðra eftir 24.00, Nökkvi dj í búr- inu. ■ EYJABALL í KJALLARANUM Það veröur alvöru eyjastemning í Leikhúskjallaranum þegar Paparn- ir mæta og skemmta brottfluttum eyjapeyjum og - meyjum ásamt félögum þeirra. ■ TJÚn Á CLUB 22 Doddi Litli sér um tónlistina á Club 22: 80's og rokk I bland. •Krár ■ TRYLLT Á GAUKNUM Helgi Björns og félagar í SSSÓL sjá um aö trylla lýðinn á Gauknum um helgina. ■ VORHUGUR Á VEGAMÓTUM ítalski plötusnúö- urinn og íslandsvinurinn Leo Young er aftur mætt- ur á klakann til aö fagna vori með gestum Vega- móta á Early Spring Session-kvöldi. ■ HEinÍHÚSI MÁLARANS Gísli og Jól leika lög við allra hæfi í Húsi Málarans. ■ BUNDH) SLITLAG Á DILLQN Þaö veröur ótrúleg stemning á Dillon bar í kvöld því gleðibandið Bund- iö slitlag ætlar að stíga á svíö og leika góða tón- list fram eftir nóttu. ■ PANS Á RÓSUM Á KAFFI REYKJAVÍK Tjútt og tralala á Kaffi Reykjavík, með undirspili frá Dans á rósum. ■ DISKÓ Á WALLSTREET BAR Þaö er spiluö dúndrandi diskótónlist á gæðapöbbnum Wall- street Bar. ■ FJÓR Á KRINGLUKRÁNNI Hljómsveit Rúnars Júlíussonar heldur uppi fjörinu á Kringlukránni langt fram á nótt. ■ SCANDALL Á CAFÉ AMSTERDAM Þegar ólíkir tónlistarmenn koma saman úr ólíkum áttum með ólíkan bakgrunn og ólíkan tónlistarsmekk verður tvímælalaust skandall. Þeir Hanni (Skímó), Stebbi Örn (Reaggie on lce), Jón Sigurjóns Gosl) og Ingvar Valgeirs (trúbador) hafa samt ákveöið aö storka örlögunum og spila saman á Café Amster- dam í kvöld og kalla bandið Scandal. ■ SÍN í KÓPAVOGI Þeir Guðmundur Símonarson og Guðlaugur Sigurðsson í gleði- og danssveitinni SÍN sjá um góða fjörið á Players-Sport Bar i Kópa- vogi í kvöld. ■ SÆLUSVEITIN Á CATALINA Það verður fjör á Catalina, Hamraborg. í kvöld því Sælusveitin ætl- ar að troða upp og leika fyrir gestina sem allir verða aö vera snyrtilega klæddír ef þeir ætla aö sleppa fram hjá dyravörðunum. Ókeypis inn. ■ NJALLI Á LÆKNUM Hann Njalli í Holti tekur lagið á Kaffi Læk í kvöld. Aldrei að vita nema kapp- inn taki Síldarvalsinn fyrir djammþyrstu Hafnfirð- ingana. Bö 1 1 ■ HARMONIKUBALL í ÁSGARÐI Eins og önnur föstudagskvöld veröur harmoníkuball í Ásgarði, Glæsibæ, frá klukkan 22 i kvöld. Hressir félagar úr Harmonikufélagi Reykjavikur leika og Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Allir velkomnir. •Klassík ■ SINFÓNÍAN LEIKUR SÓNGLEIKJATÓNLIST Sinfóníuhljómsveit íslands leikur söngleikjatónlist á tónleikunum klukkan 19.30 í kvöld. Hljómsveit- arstjóri er Martin Yates og söngvarar eru Debbie Gravitte, Liz Callaway, Greg Edelman og Stephen Bogardus sem öll koma úr leikhúsum á Broad- way. ■ SINFÓNÍUHUÓMSVEIT ÍSLANDS Sinfóníu- hljómsveit íslands stendur fýrir Broadway-dag- skrá í Háskólabíói, i samvinnu viö West End International. Spiluð veröa lög úr mörgum vinsæl- ustu söngleikjum sem settir hafa verið upp á Broa- dwaygötunni frægu í New York. Söngvarar með hljómsveitinni verða þau Debble Gravitte, Llz Callaway, Gregg Edelman og Stephen Bogardus sem öll eru þaulreyndir söngleikjaleikarar. Tónleik- arnir eru hluti af grænni áskriftarröð og hefjast kl. 19.30. ■ TÓNLEIKAR í SALNUM Tónfræðideild Tónllst- arskóla Kópavogs heldur tónleika i Salnum, Kópa- vogi, klukkan 20 í kvöld. ■ VORTÓNLEIKAR FÓSTBRÆÐRA Karlakórinn Fóstbræöur heldur sína árlegu vortónleika i Lang- holtskirkju klukkan 20.30 í kvöld. Auk kórsins koma þau Rannveig Fríða Bragadóttir messósópran og Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór fram, bæði með kórnum auk þess sem þau syngja saman nokkra dúetta. Efnisskráin er mjög fjölbreytt. Jónas Ingimundarson sér um píanóleik og stjórnandi Fóstbræðra er Árni Harðarson. •Sveitin ■ ÞÚSÓLD Á KRISTJÁNI X Hljómsveitin Þúsöld þeysir um landið og skemmtir nú Hellubúum og nærsveitungum á toppstaðnum Kristjáni X, Hellu. ■ HAFRÓT í KEFLAVÍK Hljómsveitin Hafrót spilar á Ránnl í Keflavík í kvöld. Mikið gaman. ■ PALLAGHER BROS. Á ORMINUM Pallagher bros. mæta hressir á Orminn, Egilsstöðum, og hræra upp stemningu. ■ PENTA Á SELINU Hljómsveitin Penta skemmt- ir á Selinu, Hvammstanga. Slagverksieikari Greif- anna, Ingólfur Sig., sér um gestaleik. ■ SKUGGABALDUR í ÓLAFSHÚSI Diskórokktek- iö og plötusnúðurinn Dj. Skuggabaldur heldur uppi skuggalegri stemningu í Ólafshúsi á Sauðárkróki i kvöld. Skuggi spilar ABBA, Rammstein og allt þar á milli. Aðgangur ókeypis. ■ STUÐ Á ODDVITANUM Það veröur biluð stemn- ing á Oddvitanum á Akureyri er BéPé&Þegiðu mæta á svæðið. •Leikhús ■ GLÓRULAUS Leikfélag Menntaskólans i Kópa- vogi, Sauðkindin, hefursett upp leikritið Glórulaus sem er byggt á skáldsögunni Emmu eftir Jane Austin. Leikgerðin er í anda kvikmyndarinnar Clu- eless en gerist á Islandi og er um íslenska ung- linga í Verslunarskóla íslands. Leikstjóri erGunnar Hansson. Leikritið veröur sýnt klukkan 20 í kvöld og svo verður miðnætursýning. Miðapantanir í síma: 6963768 eða 8644762. ■ SÖNGLAÐ í DEMBUNNI - FRUMSÝNING Leik ritiö Syngjandi í rigningunni eftir Comden, Green, Brown og Fred verður frumsýnt klukkan 20 í kvöld á Stóra sviði Þjóðleikhússins. Örfá sæti laus. ■ VITLEYSINGARNIR Leikritið Vitleysingarnir eft- ir Ólaf Hauk Símonarson er sýnt í kvöld klukkan 20 í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Örfá sæti eru laus. ■ Á SAMA TÍMA SHJAR Leikritiö Á sama tíma síðar veröur sýnt í kvöld klukkan 20 í Loftkastal- anum. Örfá sæti eru laus. ■ Á SVH) ■ HH) FÚLA FÓLSKUMORÐ Leifélag Mosfellsbæjar sýnir klukkan 20 I kvöld leikritiö Á sviö - hið fúla fólskumorö í Bæjarleikhúsinu, Mos- fellsbæ. Leikstjóri er Ingrid Jónsdóttir. Miðaverð er 1500 kall og miðapantanir eru í síma 566 7788. ■ SAKLAUSI SVALLARINN Leiklistarfélag Sel- tjarnarness sýnir í Mýrarhúsaskéla á Seltjarnar- nesi i kvöld klukkan 23 gamanleikinn Saklausa svallarann i leikgerð og leikstjórn Einars Þorbergs- sonar. Miðasala er við innganginn og miðaverð er 1000 krónur. ■ HUGLEIKUR í TJARNARBÍÓI Áhugamannaleik- húsið Hugleikur sýnir i Tjarnarbíói verkið Víst var Ingjaldur á rauöum skóm eftir þær Hjördisi Hjart- ardöttir, Ingibjörgu Hjartardóttur og Sigrúnu Ósk- arsdóttur í leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur. Miðapantanir í stma 551 2525. ■ SKÁLDANÓTT Skáldanótt eftir Hallgrím Helga- son verður sýnd á Stóra sviði Borgarleikhúsins klukkan 20 í kvöld. Verkið fékk Menningarverð- laun DV 2001. Örfá sæti eru laus. ■ VÖLUSPÁ Leikritiö Vóluspá eftir Þórarin Eldjárn verður sýnt klukkan 11 í dag i Möguleikhúsinu við Hlemm, Uppselt. ■ ÞREK OG TÁR í DOMUS VOX Söngleikjadeild Domus Vox sýnir söng- og leikdagskrána Þrek og Tár, byggða á samnefndu leikriti eftir Ólaf Hauk Símonarson, klukkan 18 og 20. Leikritið var sýnt viö mikla aösókn í Þjóðleikhúsinu fyrir nokkrum árum. Leikstjóri er Margrét Eir. Tónlistarstjórn er í höndum Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. •Opnanir ■ MINNINGAfRlTÓNLEIKAR í GALLERÍ NEMA HVAÐ? Minninga(r)tónleikar verða haldnir í gall- erí Nema Hvað, Skólavörðustíg 22c, í dag. Rutt veröur verkið RQTSORO eftir Margréti M. Norð- dahl og Þórunni Ingu Gísladóttur. Frumflutningur verður í dag og eru allir velkomnir. Sýningin stend- ur yfir 6.-12. apríl og er galleriið opið milli kl. 14 og 18. Bí ó I KVIKAR MYNDIR í NÝLÓ Kvikmyndahátiðin Kvikar myndir er nú haldin f annað sinn, frá 29. mars til 8. april, í Nýlistasafninu og í salarkynnum MÍR við Vatnsstíg. Er yfirskrift þessarar hátíðar Pólitík. Eins og yfirskriftin gefur til kynna er um- fjöllunarefni hátiðarinnar pólítík og verða yfir 50 myndir sem því hugtaki tengjast sýndar. Þann 7. april veröur haldið málþing í tengslum við hátíðina þar sem rætt verður um kalda stríðið og kvik- myndir, og um þá sýn sem Sovétríkin og Bandarik- in höfðu á hugmyndakerfi hvorra annarra og ekki síst hvernig þau lýstu eigin samfélagi. Nýlistasafn- ið er opið alla daga kl. 14-18. Popp ■ RÝMI #5 Á GAUKNUM 808 State, ein áhrifa- mesta danshljómsveit Bretlandseyja, treður upp á Rými #5 á Gauk á Stöng. Óhætt er aö segja að sveitin hafi haft mikil áhrif á þróun danstónlistar- innar þann rúma áratug sem hún hefur starfað og komið frá sér timalausum klassíkum á borð við lögin Pacific State, In Yer Face og Cubik og breið- skífurnar Newbuild, Ex:el og Don Solaris. •Klúbbar ■ ÍVAR AMOR Á SPOTLIGHT Dj ástarinnar, ívar Amor, ætlar að koma fólki í filinginn fyrir páskavik- una meö seiðandi tónum á Spotlight langt fram á sunnudagsmorgun. ■ EINKAKLÚBBSDJAMM 2 Á SKUGGANUM Einkaklúbbsdjamm, part 2, á Skuggabar. Allir meölimir Einkaklúbbsins fá frítt inn í kvöld og trit á barnum. Nökkvi dj með Skuggagrúviö. 22 ára ald- urstakmark og 500 kail inn eftir 24. ■ ELECTRONIC VOODOO Á THOMSEN Snillingur- inn og íslandsofurvinurinn Leo Young mætir á 3mánaða fresti og gerir allt crazy. i þetta skipti eru með í för visuals listamenn sem breyta Kaffi Thomsen i alvöru Voodoo höll! Þessu má enginn missa af! ■ ROKK Á CLUB 22 Óll Palli, það heitasta í rokk- inu i dag á Club 22. • Krár ■ VORHUGUR Á VEGAMÓTUM Plötusnúðarnir Andrés og Dj Margeir fagna vori ásamt upprenn- andi söngstjörnu, Ágústu, á Early Spring session- kvöldi á Vegamótum. ■ TVÍEYKI í HÚSIMÁLARANS Tvieykiö Steinar & Daði taka saman á ný i plötusnúðasamstarfinu í Húsi Málarans og ætla að dusta rykið af plötunum sem hljómuðu á staönum í sumar. ■ BÚRTÓNLIST Á SKÚLA FÓGETA Bjarki Sig- urðsson stjórnar dansbrölti úr búrinu á Skúla fó- geta. ■ DISKÓ Á WALLSTREET BAR Það er spiluð dúndrandi diskótónlist á gæðapöbbnum Wall- street Bar. ■ SCANDALL Á CAFÉ AMSTERDAM Þeir Hanni (Skímó), Stebbi Örn (Reaggie on lce), Jón Sigur- jóns (Gosi) og Ingvar Valgeirs (trúbador) í band- inu Scandal leika aftur á Café Amsterdam i kvöld. ■ STJÖRNUKVÖLD Á KRINGLUKRÁNNI Stjörnu- kvöld meö Pálma Gunnarssyni á Kringlukránni. Húsiö opnað kl. 19.00 fyrir matargesti. Sýningin hefst um kl. 21.20. Hljómsveit Rúna Júll leikur fyr- ir dansi á eftir. ■ STUÐ Á KAFFI REYKJAVÍK Tjútt og tralala á Kaffi Reykjavík, með undirspiii frá Dans á rósum. ■ SÍN OG ESTER j KÓPAVOGI Þeir Guðmundur Simonarson og Guðlaugur Sigurðsson í gleði- og danssveitínni SÍN sjá aftur um fjöriö á Players- Sport Bar i Kópavogi i kvöld. Hún Ester Ágústa, sem er ung og tilvonandi stjarna i tónlistarheimin- um, er gestasöngvari með SlN í kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.