Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2001, Blaðsíða 7
b í ó Regnboginn tekur í kvöld til sýnínga frönsku myndina Crímson Rivers. Franskur tryllir í Alpaumgjörð Það er ekki ósjaldan að það ger- ist að Frakkar framleiði bíómynd- ir sem fara hljótt sökum óstöðv- andi kliðar frá bandarískum bíó- myndum en eru engu að síður gullmolar. Svo virðist vera með myndina Crimson Rivers, á frum- málinu Les riviéres pourpres, sem slegið hefur rækilega í gegn í Evr- ópu. Svo vel hefur henni verið tek- ið að hugsanlegt er að hún verði endurgerð fyrir Bandaríkjamark- að eins og svo oft vill verða með góðar evrópskar myndir, enda eru þær oftast of drungalegar eða tor- skildar fyrir hamborgararassana í Kanaveldi. Crimson Rivers er samkvæmt lýsingum spennuhrollvekja eins og þær gerast bestar. Sagan segir frá rannsóknarlögreglumanninum franska, Pierre, og lögreglumann- inum óbreytta, Max. Þeir vinna við aðskilin sakamál í grennd við Alpana frönsku sem, þegar fram líða stundir, tengjast á dular- fullan hátt, jafn- vel ómennskan, sem endar sjálf- sagt í einum spennuhryll- i n g s - h á r - reisandi-látum og meðfylgjandi ópum úr bíósalnum eins' og góðra spennutrylla er vaninn. Aðalleikari myndarinnar er ekki af verri end- anum, sjálfur Jean Reno. Hann lelkur Pierre sem meðal annars hefur gert garðinn frægari og frægari í myndum eins og Leon, Ronin og Mission Impossible. Á móti honum leikur svo annar Frakki, Vincent Cassel. Hann sást meðal annars í Joan of Arc, auk þess að hafa leikið í gæðaræmunni frönsku Hatur (fr. La Haine). Leikstjóri Crimson Rivers er Mathieu Kassovitz sem þekktastur er fyrir að leikstýra áðurnefndri mynd, La Haine, sem fengið hefur lofsamlega dóma og ekki að ósekju. „Þeir á Thomsen höfðu samband við okkur og báðu okkur um að koma því þeir virðast styðja sömu markmið og við, að fara með tónlistina til allra kima jarðarinnar. Við vonumst aö sjálfsögðu eftir löngu og góðu sam- bandi við íslendinga. Það er gott „vibe“ héma, land- ið er í tisku og íslending- ar virðast vita hvað góð tónlist er. Fyrir okkur er þetta eins og afturhvarf til upprunans," segir Gill Nightingale þegar hún er spurð hvernig standi á komu þeirra til landsins. Er sjálf á leiðinni Cream er tæplega níu ára gamalt fyrirbæri sem hefur haft á sínum snær- um ekki ófrægari plötu- snúða en Sasha, Fatboy Slim, Frankie Knuckles, David Morales og John Digweed svo einhverjir séu nefndir. Þá hefur Cr- eam-gengið ferðast til yfir 75 landa í sama tilgangi og þau koma hingaö nú. En hvernig líst Gill þá á Thom- sen? „Ég hef séð myndir frá staðnum en hef ekki komið á staðinn. Ég er að sjálfsögðu að skipuleggja ferð til ykkar þegar við erum búin að koma okkur fyrir þama.“ Hvernig staðir eru þetta sem þið eruð venjulega að spila á? „Staðirnir sem við erum að spila á eru mismunandi eftir hverju landi. Það er það góða við þetta, við getum verið með átta þúsund manna gigg á Punktinum í Dublin og skömmu seinna lítið 600 manna dæmi í Japan. Stórir og litlir stað- ir hafa báðir sinn sjarma." Fetish fyrir Björk Er ísland í alvörunni nokkuö eins kúl og þið útlendingarnir viljió láta af? „Já, ísland hefur alltaf verið kúl - það er nú einu sinni alveg efst á landakortinu. Öll Skandinavía er kúl og það er einstök senan sem er í gangi þarna í augnablikinu þannig að það er gott fyrir okkur að fá að taka þátt í því. Svo er skipu- leggjandi túrsins lika með eitthvað klikkað fetish fyrir Björk!“ Ættum við að eiga von á einhverj- um breskum klúbbarottum meó ykk- ur? „Við höfum ferðast um allan heiminn og spilað undanfarin átta ár og erum með fast aðsetur um all- an heim, meðal annars í Suður-Am- eríku, Kína og Japan á næstunni. Danstónlistin er fyrir fólkið og nær út fyrir menningarleg landamæri. Við búumst einfaldlega við því að sjá alla á svæðinu sem elska dans- tónlist," segir Gill Nightingale. Fastagestir Thomsen ættu að verða varir við ýmsar breytingar i kvöld því hingað kemur fjöldi manns til að sjá til þess að ljósasjó- ið og hljóðmál standist kröfurnar sem Cream gerir. Húsið verður opnað klukkan 23 og kostar litlar 1000 krónur inn til 1,1500 eftir það. Gestalisti og T-bar kort gilda ekki. Bióborgin Memento Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,15 Pay it Forward Sýnd kl.: 5,40, 8, 10,20 Traffic ★★★★ „Ef eitthvað rétt- læti er til í Hollywood (sem margir efast um) ætti Traffic að ná einhverjum Óskurum, með- al annars sem besta kvikmynd. Soderbergh hefur gert frábæra kvikmynd sem ekki er hægt að segja aö sé ádeilumynd, heldur frek- ar okkur öllum til aðvörunar," HK Sýnd kl.: 5, 8,10,40 Bióhöl1in Sweet November November er góður mán- uður og tilvalið að rifja hann upp fyrir sumar- ið. Sýnd kl.: 3,40, 5,55, 8, 10,20 Exit Wounds .Sagan sem boðiö er upp á myndinni er götótt eins og svissneskur ostur og fátt í töluðu máli sem vit er í. Að öðru leyti er ekkert sem gleður augað og ekki hefur Seagal, meö aukinni reynslu, farið fram I leik- listinni," HK Sýnd kl.: 5,55, 8,10,10 Miss Congeniality ★ „Vinsælasta stúlkan er stórkostlega fyrirsjáanleg mynd SG Sýnd kl.: 3,40, 5,50, 8,10,15 Memento Sýnd kl.: 8,10, 10,20 Thirteen Days Þrettán dagar er nú bara næstum því tvær vikur, en sem betur fer er Costnerinn ekki kominn út í þá pælingu aö gera myndir í rauntíma. Kannski næst. Sýnd kl.: 5,30, 8 Traffic ★★★★ (sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 10,30 Nýi stíllinn keisarans Keisarinn er kominn með nýjan stíl að hætti Disney. Sýnd kl.: 4 Way of the gun ★★ „í einn og hálfan tíma er myndin hröö, samtölin ekki ó þ æ g i I e g a klisjukennd (sérstaklega eru þau ágæt milli Gandolfini og Roberts), myndatakan ágeng og smart og plottið allt í lagi. Síðasti hálftími myndarinnar er ekki nándar eins skemmtilegur," SG Sýnd kl.: 5,40, 8,10,20 Pokemon 3 Glæsileg skemmtun fyrir fólk á þermistlginu og uppúr. Sýnd kl.: 4, 6 Háskólabíó Blow Johnny Depp sýnir á sér nefið og sýg- ur mann og annan. Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30 The Mexlcan Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30 State & Maine Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,15 Thirteen Days (Sjá bíóhöll) Sýnd kl.: 10 Billy Elliot Hommar fara í ballett, en töffar- ar boxa og berja fólk i miöbænum. Ætli Billy litli sé ekki aftaníossi. Sýnd kl.: 8 The Gift ★★ „Athyglisvert hve myndin skil- ur eftir sig,“ -HK Sýnd kl.: 5,45 Kringlubíó Sweet November (Sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 5,40, 8, 10,20 Pokemon 3 (Sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 4, 6 Exit Wounds (sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 5,55, 8, 10,10 Nýi stíllinn keis- arans (Sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 3,50 Save the Last Dance Sýnd kl.: 8, 10,15 102 Dalmatíuhundar Sýnd kl.: 3,50 Laugarásbíó Blow (Sjá Háskólabló) Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30 Enema at the Gates Enemy at the Gates er stríðsdramatík I A-klassa. Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30 The Wedding Planner Þaö er sama hvaö hún dansar, alltaf er rassgatiö á Jennifer Lopez jafn viðbjóös- lega stórt og ógeðslegt. Sýnd ki.: 5,50, 8, 10,15 Regnboginn Dýflissur og drekar Eitthvað segir mér aö nærsýni og svitafýla liggi I loftinu. Sýnd kl.: 6, 8, 10 Cherry Falls Sýnd kl.: 6, 8, 10 Men of Honor ★★ „Men of Honor er að sumu leyti ágæt spennumynd meö kjarn- yrtum texta,“ HK Sýnd kl.: 10 Malena ★★★ „Malena er samt gef- andi kvikmynd, fallega kvikmynduð og tónlist Ennio Morricone svíkur engan," HK Sýnd kl.: 6, 8 Crouching Tiger Hidden Dragon ★★★★ „Eitt atriði gæti veriö samsuða úr Svanavatninu, ET, tölvuleiknum Street Fighter og Mary Poppins. Og gengur þetta upp? Alveg hreint glymrandi," GSE Sýnd kl.: 8, 10,30 Pokemon 3 (Sjá Bíóhöll) Sýnd kl.: 5,30, 8, 10,30 Stjörnubíó Crimson Rlver Loksins, loksins kemur framhaldið af Crimson Tide. Sýnd kl.: 5,45, 8, 10,10 Dracula 2000 „Handritshöf- undi og leik- stjóra hefur tek- ist að gera þessa ódauö- legu mýtu um b I ó ö s u g u - greifann ótrú- lega óáhuga- verða, Þeir reyna ekki einu sinni að bjarga sér með húmor heldur líta leiðind- in grafalvarlegum augum. Þaö var algjör óþarfi aö vekja upp vampýruna fyrir þetta bitlausa dót,“ SG Sýnd k!.: 6, 8, 10 ntensi i bloöi ...og billykill er lífshættuleg blanda UMI tzROAH RÁÐ vuvU’ lllllít Ifókus Vikan 11.maí til 22. ma Stór breyting verður á skemmtistaðamenningu landsmanna í kvöld þegar ofurklúbburinn Cream tekur sér bólfestu á Thomsen í Hafnarstrætinu. Cream er kominn til að vera í sumar og verður annan hvern föstudag í hverjum mánuði fram í september. Plötusnúðarnir í kvöld verða þeir Paul Bleasdale og Jon Carbon sem hafa um langt skeið verið innanbúðar- menn á klúbbnum í London. í forvitniskasti hringdi Fókus til Englands og spjallaði við Gill Nightíngale í höfuðstöðvum Cream. Afturhvarf til upprunans

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.