Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2001, Page 5
Ifókus
1 í f í x
miiJL.X....IIP
F F T T R V T N N
JH
Vikan 15. iúní til 21. iúní
■ PAPAR Á KAFFI REYKJAVÍK Stuökallarnir í
Pöpum missa sig endanlega í glefiilátum á Kaffi
Reykjavík meö tilheyrandi ánægju áheyrenda.
■ RÚNAR ÞÓR Á SKÚLA FÓGETA Rúnar Þór
mætir með gítarinn og sína rámu rödd og heldur
uppi almennri gleði á Skúla fógeta.
■ SIXTIES Á PLAYERS Sixties sérhæfir sig
ekki í ellibelgjatónlist heldur almennu stuöi á
Players.
■ SPILAFÍKLAR Á CELTIC CROSS Hljómsveitin
Spilafiklarnir heiðra keltneskar þrælarætur sín-
ar á Celtic Cross.
■ STUÐ Á NIKKABAR Trúbadorinn Kolbeinn
Þorsteinsson sér um almenna hamingju á
Nikkabar.
■ SUMARGLEÐI PARTY ZONE Fjórða árið í röð
heldur Party Zone sinn árlega sumarfagnaö á
einu mesta djammkvöldi ársins. Sérstakur sum-
arþáttur verður um kvöldið á Rás 2 þar sem
plötusnúðarnir Andrés og Pétur munu spila
helstu sumarsmelli þáttarins fráuþphafi. Að
þættinum loknum flyst gleðin yfir á Vegamót þar
sem Andrés og co. munu halda uppi sum-
arpartýi, auk þess sem annað partý veröur á
Thomsen.
■ SÁLIN Á CAUKNUM Það er hvorki bilbug né
uppgjafarhug að finna á drengjunum í Sálinni
hans Jóns míns þar sem þeir rokka feitt fyrir
sveitta kroppa á Gauk á Stöng.
Böl 1
■ HARMONIKKUBALL í ÁSGARÐI Félagar úr
Harmonikkufélagi Reykjavíkur skemmta á
harmonikkuballi í Ásgaröi, Glæsibæ, ásamt
söngkonunni Ragnheiöi Hauksdóttur. Allir vel-
komnir.
■ LÝÐVELDISDANSLEIKUR í KJALLARANUM
Magga Stina og Hringir spila á þrusu lýöveldis-
dansleik í Þjóðleikhúskjallaranum.
D jass
■ JAZZ Á JÓMFRÚNNI Á þriðju tónleikum sum-
artónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu kemur fram tríð söngkonunnar
Kristjönu Stefánsdóttur. Með Kristjönu leika
Agnar Már Magnússon á píanó og Gunnar
Hrafnsson á kontrabassa. Tónleikarnir hefjast
kl. 16 og standa til kl. 18.Tónleikarnir fara fram
utandyra á Jómfrútorginu ef veður leyfir en ann-
ars inni á Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis.
•Klassik
■ TÓNLEIKAR í LANGHOLTSKIRKJU Crown
College kórinn frá Minneapolis, heldur tönleika í
Langholtskirkju kl. 17.00. Kórinn er þekktur fyr-
ir vandaðan flutning á tónlist frá ólíkum tímabil-
um og fer árlega í tónleikaferðir um Bandaríkin,
kemur fram í sjónvarpi og útvarpi og á vegum
skólans. Stjórnandi kórsins er David W. Donel-
son. Á efnisskrá kórsins eru m.a. verk eftir Knut
Nystedt og Rakhmaninov, útsetningar á
negrasálmum og mótettan Lobet den Herrn, alle
Heiden eftir J.S. Bach. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
•Sveitin
■ BUnERCUP í BREIÐINNI Buttercup slær
hvergi af við að kynda undir stuðinu í Breiðinni,
Akranesi.
■ FJÖR Á ODD-VITANUM Hljómsveit Geirmund-
ar Valtýssonar sér um almenna gleði og gaman
á Odd-Vitanum, Akureyri.
■ GREIFARNIR Á EGILSSTÖÐUM Virkjun eður
ei. Greifarnir framieiða nógu rafmagnað and-
rúmsloft á Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum, til að
knýja eitt skitiö álver.
■ HÁTÍÐARDISKÓ Á ORMINUM Ormurinn, Eg
ilsstöðum, er með þjóöhátíöardiskó í fullum
botni, þ.e. Rammsteinstund, milli kl. 23 og 24.
■ LAND OG SYNIR í SJALLANUM Hvergi sleg-
ið af í botnlausu, bullandi bööulsfjöri í Sjallan-
um, Akureyri, með félagana í Landi og sonum
við kætikatlana.
■ SKUGGABALDUR Á FLÚÐUM Diskórokktekið
Skuggabaldur ber út fagnaðarorð partibibliunn-
ar á Útlaganum, Flúðum.
■ SPÚTNIK Á SAUÐÁRKRÓKI 17. júní-þynnku
framleiðslukvöld undir stjórn stuðboltanna i
Spútnik á úrvalsstaönum C’est la vie, Sauðár-
króki.
■ STUÐMENN í HÓTEL SELFOSSI Handknatt-
leiksdeild Umf. Selfoss stendur fyrir stórdans-
leik i Hótel Selfoss. Það eru engir aðrir en Stuö-
menn sem sjá um að stuðið dali ekki. Þess má
geta að þetta er í fyrsta sinn sem þessi frábæ-
ar hljómsveit sækir sunnlendinga heim í langan
tíma. Forsala fer fram í Shellskálanum á Sel-
fossi og verslunum 10-11. Sætaferðir verða
farnar af öllu Suðurlandi og Reykjavík. Miðaverð
er 2000 kr. i forsölu og 2200 kr. á staönum.
Þess má geta að dansleikurinn er til styrktar
deildarinnar.
■ SÆLUSVEITIN í POLLINUM Gleðigrúppan
Sælusveitln sér um fjörið á Viö Pollinn, Akureyri.
■ SÓLDÖGG Á ENNEINUM Rokkhundarnir í Sól-
dögg breiða út poppfrelsis boðskapinn á Nl-
Bar, Reykjanesbæ.
■ SÓLON í ÚTHLÍD Það er djamm og aftur gam-
an í Úthlíö, Biskupstungum, með hljómsveitina
Sólon í broddi partifylkingarinnar.
■ ÍRAFÁR Á SUÐUREYRI Blíndandi fegurö Vest-
fjarða myndar veglegan bakgrunn fyrir sætu
söngkonuna og félaga hennar í írafár þegar þau
hleyþa öllu i bál og brand í félagsheimilinu á
Suðureyri.
•Leikhús
■ MEÐ VÍFIÐ í LÚKUNUM Leikritið Með vífiö í
lúkunum eftir Ray Cooneyverður sýnt í kvöld
klukkan 20 á Stóra sviöi Borgarleikhússins.
Leikstjóri er Þór Túlíníus og þýðandi Árni Ibsen.
Örfá sæti laus.
■ PÍKUSÖGUR Píkusögur eftir Eve Ensler verð-
ur sýnt í kvöld klukkan 19 á Þriöju hæö Borgar-
leikhússins. Leikstjóri er Slgrún Edda Björns-
dóttir en leikkonur eru þær Halldóra Geirharös-
déttir, Sóley Elíasdóttir og Jóhanna Vigdís Arn-
ardóttir. Nokkur sæti eru laus.
■ SYNGJANDI í RIGNINGUNNI Leikritiö Syngj-
andi i rigningunni eftir Comden, Green, Brown
og Fred verður sýnt klukkan 20 í kvöld á Stóra
sviöi Þjóðleikhússins. Uppselt.
■ PÍKUSÓGUR Píkusögur eftir Eve Ensler verð-
ur sýnt aftur í kvöld klukkan 22 á Þriðju hæö
Borgarleikhússins. Nokkur sæti eru laus.
•Kabarett
■ DJASS í JAPIS í dag kl. 14.00 leika þeir Ósk-
ar Guðjónsson saxófónleikari og Eyþór Gunnars-
son pianóleikari saman nokkur af ástsælustu
Iðgum Jóns Múla Árnasonar í Japis á Laugavegi
13 og eru allir velkomnir.
■ HUÓÐVERK í NÝLISTASAFNINU í dag koma
fram Siguröur og Amar Guöjónssynir,
Vitascope, Club Bevil.
■ TÓNLEIKAR í ÁRBÆJARSAFNI Fyrstu tón
leikar sumarsins í Árbæjarsafni. Að þessusinni
eru þaö ungt og efnilegt tónlistarfólk, þau Elfa
Rún Kristinsdóttir, Ingrid Karlsdóttir, Helga
Þóra Björnsdóttir og Árni Björn Árnason sem
ætla að gleöja gesti með tónlist en þau spila á
fiðlur og píanó. Tónleikarnir verða í húsinu Lækj-
argötu 4 og hefjast klukkan 14. Einnig verður
fjölbreytt dagskrá fyrir börn, farið verður í leiki og
föndrað ÍKornhúsi. Við Árbæ verður teymt undir
börnum.
•Opnanir
■ SÝNING í LAUGARNESI Nemendur í Listahá-
skóla íslands opna í dag sýningu í aðstööu sinni
í Laugarnesi kl. 15. Nánari upplýsingar fást á
staðnum.
■ AUSTFIRSKU MEISTARARNIR AÐ
SKRIÐUKLAUSTRI í dag er opnunardagur stórr-
ar myndlistarsýningar aðSkrlöuklaustri í Fljóts-
dal sem ber heitiö Austfirsku meistararnir.
Sautján verk eru á sýningunni sem eiga þaö
sammerkt að vera eftir myndlistarmenn sem eru
fæddir eða aldir upp á Austurlandi. Markmiðið er
að gefa áhugasömum færi á að skoða nokkur
myndverk eftir hluta af þeim listamönnum sem
fjórðungurinn hefur alið. Sýningin er tekin sam-
an af Listasafni (slands og eru öll verkin i eigu
safnsins. Á sýningunni eru verk eftir: Jóhannes
S. Kjarval, Svavar Guönason, FinnJónsson, Jón
Þorlelfsson, Nínu Tryggvadóttur, Gunnlaug
Scheving,lngiberg Magnússon, Elias B. Hall-
dórsson, Tryggva Ólafsson, Höskuld Björnsson
og Dunganon. Sýningin Austfirsku meistararnir
er oþin alla daga vikunnar til 13. ágúst á sama
tima og hús skáldsins, frá kl. 11 til 17.
■ DJÁSN OG DÝRÐLEG SJÓL í HANDVERKI
OG HÓNNUN Djásn og dýrðleg sjöl er heiti sýn-
ingar sem verður opnuð í Handverki og hönnun,
Aðalstræti 12, 2. hæð, í dag klukkan 16. Þar
sýna 30 aöilar fjölbreytta skartgripa- og textíl-
hönnun. Sýningin er opin alla daga nema mánu-
daga frá 12-17 og stendur til 8. júlí.
■ ÓLÓF BJÓRK í GALLERÍ KLAUSTRI í dag er
opnunardagur sýningar Ólafar Bjarkar Braga-
dóttur í Gallerí Klaustri að Skriðuklaustri i
Fljótsdal. Á sýningunni eru Ijósmyndir í lit, tekn-
ar á flóamarkaðnum í Montpellier ÍSuður-Frakk-
landi. Ólöf Björk útskrifaðist með DNSEP-gráðu
frá École des Beaux Arts í Montpellier voriö
2000. Hún hefur tekið þátt i samsýningum og
haldiö einkasýningar hér á landi og í Frakklandi.
Hún starfar nú sem myndlistarkennari við
Menntaskólann á Egilsstöðum. Sýning Ólafar
Bjarkar er opin alla daga vikunnar frá 16. júní til
1. júlí á sama tíma og hús skáldsins, frá kl. 11
til 17.
■ ÞORRI HRINGSSON í GALLERÍ SÓLVA
HELGA I dag opnar Þorri Hringsson listmálari
sýningu á vatnslitamyndum í Gallerí Sölva
Helgasyni að Lónkoti í Skagafiröi. Vatnslita-
myndirnar eru unnar á árunum 1999-2001 og
eru allar af viðfangsefnum úr nágrenni vinnu-
stofu hans að Haga i Aðaldal. Þorri Hringsson er
fæddurí Reykjavík árið 1966 og hefur haldið 15
einkasýningar og tekið þátt í 25 samsýningum
frá árinu 1987, nú síðast með Gullþenslinum að
Kjarvalsstöðum. Hann er deildarstjóri málara-
deildar Myndlistaskólans í Reykjavík og í stjórn
skólans, ásamt því að skrifa umvin og veitinga-
hús í tímaritið Gestgjafann. Sýningin í Gallerí
Sölva Helgasyni stendur til 30. júní og er opin á
sama tíma og Ferðaþjónustan í Lónkoti.
■ ÞRJÁR STÓLLUR í SAFNAHÚSINU Á SAUÐ-
ÁRKRÓKI í dag klukkan 16 opna þrjár mynd-
listakonur sýningu i Safnahúsinu á Sauöárkróki.
Sýninguna nefna þær 3jár stöllur. Þetta eru þær
Anna S. Hróömarsdóttir, Bryndís Siemsen og
Dósla - Hjördís Bergsdóttir. Allar hafa þær
stundað myndlistarnám og lokiö prófum frá
myndlistarskólum, tvær frá MHl og ein frá Mynd-
listaskóla Akureyrar. Þær stöllur eiga að baki
bæöi einkasýningar og samsýningar. Á sýning-
unni eru verk unnin í leir, olíu á striga, hveraleir-
lit, vatnslit, gifs, blýant og pappír. Verkin eru
flest unnin á siðasta ári og þessu. Sýningin er
opin alla daga vikunnar frá 14-18 og henni lýkur
sunnudaginn 24. júní.
■ DAUÐINN í FRUMSKÓGINUM í INNSÝNI
Ragna Hermannsdóttir myndlistarmaður opnar í
dag sýningu á bókverki sínu, „Dauöinn í frum-
skóginum” í glugganum Innsýni að Skólavörðu-
stíg 22c. Ragna er fædd 1924 og byrjaði að fást
við myndlist árið 1980. Hún lærði á íslandi, i
Bandarikjunum og Hollandi og hefur aðallega
fengist við grafik. Hún hefur mikið unnið með
bókina sem miðil og unnið þá með offsett og
silkiprentun. Nú er tölvan tekin við og eru flest
ný verk hennar unnin með tölvu og prentara.
Verkið „Dauðinn í frumskóginum" er hugleiðing
um genabreytingar og græögi. Viðfangsefni sem
á erindi við alla, sett fram í myndum og texta, að
því er fram kemur í fréttatiIkynningu. Sýningin
stendur fram í miðjan júlí. Verkið er hægt að
lesa og njóta þess á öllum tímum sólarhringsins
í gegnum glerið.
Síöustu forvöð
■ HRAFNKELL SIGURÐSSON í 18 í dag lýkur
sýningu Hrafnkels Sigurðssonar á verkum hans
í i8. Hrafnkell hefur vakið athygli á undanförnum
árum fyrir verk sín, m.a. hvernig hann hefur end-
urskoðað landslagsheföina í íslenskri myndlist,
t.d. í Ijósmyndum af snjóruðningi I bæjarum-
hverfi. Nýjustu verk Hrafnkels eru Ijósmyndir af
tjöldum í íslensku vetrarumhverfi og eru það
þau verk sem sýnd eru nú. i8 hefur kynnt verk
hans á listakauþstefnum víöa 1 Evrópu og hafa
þau ætíð vakið mikla athygli. Þetta er önnur sýn-
ing Hrafnkels í i8 en sú fyrri var 1996.
•Fundir
■ ÞJÓÐHÁTÍÐARMÁLÞING: ÞJÓÐHÁTÍÐ
HVERRA 1 tilefni þjóðhátíöardagsins 17. júní
boðar ReykjavíkurAkademían til málþings um
sjálfsmynd og þjóðemisvltund íslendinga og
„nýbúa” í húsakynnum ReykjavíkurAkademiunn-
ar í JL-húsinu aö Hringbraut 121 og er öllum
opið. Þingið hefst kl. 10.00, hlé verður gert kl.
12.00-12.30 og þingi verður slitið kl. 13.30.
Málþinginu er ætlað að skapa umræðu og um-
hugsun um hvar við stöndum sem „íslendingar"
á þessum sögulega degi nýrrar aldar og hvort og
þá hvernig sjálfsmynd íslenskrar þjóðar endur-
speglar fjölmenningarlegan veruleika. Samhliða
málþinginu mun næsti nágranni akademíunnar,
Myndlistaskólinn í Reykjavík, opna fjölþjóðlega
myndlistasýningu með Ijósmyndum af verkum
nemenda sinna. Tæplega 30 börn frá 6 ára aldri
eru nemendur á sumarnámskeiðum skólans
sem nú standa yfir. Börnin vinna þessa dagana
aö ýmsum verkefnum sem tengjast hugtökunum
jörð/bústaður og hafa beint eða óbeint með
þema þjóðhátíðarmálþingsins að gera. Börnin
koma frá Albaníu, Chile, Filippseyjum, Græn-
höfðaeyjum, íslandi og Póllandi en hafa verið bú-
sett á Islandi um lengri eða skemmri tíma. Verk
þeirra munu verða sýnd í húsakynnum Mynd-
listaskólans og ReykjavíkurAkademíunnar á
meðan málþingið fer fram.
♦
Stendur þú
fyrir einhverjuf
Sendu upplýsingar í
je-mail fpkus@fpkus.is/fax 550 5020
MAYBELLI N E
NEW YORK
SUMARLITIR 2001*
KANNSKI ER ÞAÐ MAYBELLINE
Útsölustaðir Maybelline eru:
Reykjavík og nágrenni:
Lyfja Lágmúla
Lyfja Laugavegi
Lyfja Smáratorgi
Lyfja Garðatorgi
Apótekið Spönginni
Apótekið Suðurströnd
Apótekið Nýkaupum
Apótekið Iðufelli
Apótekið Mosfellsbæ
Landið:
Hagkaup Akureyri
Úrval Hrísalundi Akureyri
Úrval Húsavík
KÁ Selfossi
ísafjarðar apótek
Samkaup Njarðvík
Vöruval Vestmannaeyjum
Lyf & heilsa Austurstræti
Lyf & heilsa Kringlunni
Lyf & heilsa Mjódd
Lyf & heilsa Melhaga
Fjarðarkaup
Hagkaup Skeifunni
Hagkaup Smáratorgi
Hagkaup Spönginni
•Sumarlitir 2001 eru ekki fáanlegir
á öllum útsölustööum.
Andlit Maybelline 2001 er Chloé Ophelia Gorbulev/. Hún er föröuö m.a. meö Lolita Pink
og Light Lilac augnskuggum, Full N'Soft maskara og Moisture Whip varalit nr. 188/205
úr sumarstandi Maybelline 2001.