Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001
DV
Chandra Levy
Lærlingurínn átti í ástarsambandi
viö þingmann.
Uppnám vegna
horfins lærlings
Þingmaður Demókrataílokksins í
Bandaríkjanum er flæktur í rann-
sókn á hvarfi lærlings hans. Þing-
maöurinn Gary Condit, 53 ára gam-
all giftur maður með tvö börn, hef-
ur játað að hafa átt í ástarsambandi
við hina 24 ára gömlu Chöndru
Levy. Hún hvarf þann 30. apríl síð-
astliðinn. Condit segist engan þátt
eiga í hvarfi lærlingsins og lögregl-
an segir hann ekki vera grunaðan.
Málið er enn þá meðhöndlað opin-
berlega sem mannshvarf en margt
bendir til þess að glæpur hafi verið
framinn. Litlar líkur eru taldar á
því að Levy hafl framið sjálfsmorð
og í ferðatösku hennar var einungis
pakkað niður til hálfs. Foreldrar
hennar hafa krafist þess að Condit
þingmaður taki lygamælingapróf.
Hann hefur veitt fulla samvinnu við
rannsókn lögreglunnar á málinu.
Kóngafólki boðið
aftur til Belgrad
Útlægum krónprinsi Júgóslavíu
hefur verið boðið að snúa aftur með
íjölskyldu sína í konungshöllina i
Belgrad. Fyrir 60 árum var faðir
hans gerður brottrækur úr opin-
beru aðsetri sínu í borginni. Eignir
kóngafólksins í Serbíu og Svart-
fjallalandi voru gerðar upptækar
þegar kommúnistar komust til
valda. Að sögn breska blaðsins The
Times hitti Alexander Karadjor-
djevic krónprins Zoran Djindjic, for-
sætisráðherra Serbíu, og var hon-
um boðið að koma aftur. Hann mun
vera að gera sig tilbúinn fyrir end-
urkomu. Karadjordjevic var fæddur
i Lundúnum 1945 og er sonur Péturs
annars, síöasta konungs Júgóslavíu.
Hann starfar nú sem viðskiptamað-
ur í Lundúnum.
Augusto Pinochet
Viröist ætla aö sleppa
sökum aldurs.
Óeirðir í Chile
Lögregla í Chile beitti vatns-
þrýstibyssum og táragasi gegn
hundruðum mótmælenda í miðborg
Santiago, höfuðborg Chile, í gær.
Fólkið var að mótmæla ákvörðun
áfrýjunarréttar frá því í gærmorgun
um að Augusto Pinochet, fyrrver-
andi einræðisherra Chile, sé óhæfur
til að svara til saka.
Pinochet er ákærður fyrir morð
og pyntingar á andstæðingum sín-
um á meðan hann var við völd í
Chile. Lögfræðingar og læknar Pin-
ochet telja hann hins vegar þjást af
elliglöpum.
Taldi ekki fram
fjáröflunarfé
Michael Portillo, eitt af fimm leið-
togaefnum íhaldsflokksins breska,
neitar öllum ásökunum um að hafa
svikið undan skatti. Ásakanirnar
koma sama dag og fyrsta umferð í
vali íhaldsflokksins á leiðtogaefni
fer fram.
Breska dagblaðið The Guardian
heldur því fram í dag að Portillo
hafi ekki tilkynnt breska þinginu
um meira en 20.000 pund (tæpar
þrjár milljónir króna) sem hann
safnaði fyrir flokk sinn með ræðu-
höldum á samkomum. Blaðið held-
ur því fram að peningana hefði átt
að tilkynna til þingsins.
Portillo þvertekur fyrir það að
hafa gert neitt rangt. Það sé viðtek-
in venja að þingmenn íhaldsflokks-
ins safni peningum með þessum
hætti. Hann segir enn fremur að hér
sé líklega um ófrægingarherferð að
ræða frá blaðinu sem styður Verka-
mannaflokk Tony Blair.
Michael Portillo
Segir fullkomlega eölilegt aö gefa
ekki upp fjáröflunarupphæöir til
þingsins.
Þingmenn íhaldsflokksins kjósa í
fyrstu umferð um leiðtogaefni
flokksins í dag. Breskir stjórnmála-
skýrendur segja að Portillo komi til
með að tapa einhverjum atkvæðum.
Aðstoðarmenn hans eru hins vegar
taldir reyna að snúa þessu Portillo
í hag og segja að Verkamannaflokk-
urinn hræðist Ihaldsflokkinn undir
stjórn Portillos.
Einn frambjóðandi af fimm í leið-
togakjöri íhaldsflokksins dettur út í
fyrstu umferð. A.m.k þrjár umferð-
ir þarf til að útiloka alla nema tvo.
Almennir flokksmenn, sem telja
um 300.000, kjósa um tvö seinustu
leiðtogaefnin.
Michael Portillo og Kenneth
Clarke eru af mörgum taldir sigur-
stranglegastir í forkosningunum og
Iain Duncan Smith kemur stutt á
eftir.
Bæði er það skoðun stjómmála-
skýrenda og enskra veðbanka.
Líftækni í landbúnaði mótmælt
Þessar tvær taílensku bóndakonur sitja fyrir utan ráðstefnu um líftækni í mat og uppskeru sem haldin er í Bangkok á
vegum OECD. Taílenskir bændur eru ósáttir viö erföabreytta matarframleiðslu. Þeir segja þaö uppfinningu ríkra þjóöa
sem komi niöur á fátækari þjóöum heimsins.
Einingarsamtök Afríku
verða Afríkusambandið
Fyrrverandi utanríkisráðherra
Fílabeinstrandar, Amara Essy, var í
gær kosinn ritari Einingarsamtaka
Afríku á fyrsta degi þriggja daga
ráðstefnu samtakanna í höfuðborg
Zimbabwe, Lusaka.
Þetta er seinasta ráðstefna hinna
38 ára gömlu samtaka í þessari
mynd. Undir stjóm Muammar
Gaddafi, einræðisherra Líbýu, hef-
ur verið ákveöið að breyta hlut-
verki Einingarsamtaka Afríku úr
eiginlegu samráðsvettvangi Afríku-
ríkja yfir í eiginlegt stjórnmála- og
efnahagsbandalag á borð við Evr-
ópusambandið. Líbía hefur þegar
lagt fram eina milljón dollara til
fjármögnunar uppbyggingu slíks
bandalags.
Amara Essy mun leiða samtökin í
gegnum þær breytingar. Nýju
bandalagi er ætlað ýta undir aukna
Amara Essy
Kjörinn til aö leiöa Einingarsamtökin
yfir í Afríkusambandiö.
efnahagslega þróunarvinnu og vel-
megun og samvinnu á meðal þjóða
Afríku.
Kofi Annan, aðalritari Samein-
uðu þjóðanna, ávarpaði ráðstefnuna
í gær. Hann hvatti leiðtoga Afríku-
ríkja til að binda enda á deilur sin-
ar og koma einingu á í heimsálf-
unni. Hann sagði að flest stríð í Afr-
íku mætti rekja til leiðtoga sem
vildu eða gætu ekki sett þarfir fólks-
ins í fyrirrúm.
Á ráðstefnunni verður helsta mál-
ið að skipuleggja stofnun Afríku-
sambandsins. Talið er að höfuð-
stöðvarnar verði í höfuðborg Eþíóp-
iu, Addis Ababa, þar sem samtökin
voru upphaflega stofnuð. Einnig
sendi ráðstefnan frá sér yfirlýsingu
í gær þar sem hún gagnrýnir af-
skipti Breta af landtökumálunum í
Zimbabwe.
Estrada mætir fyrir rétt
Joseph Estrada,
fyrrverandi forseti
Filippseyja, mætir
fyrir rétt í dag
vegna ásakana um
að hafa dregið sér
fé í forsetatíð sinni.
Lög leyfa að hann
verði tekinn af lífi
fyrir glæp sinn.
Hermannaveiki á Spáni
53 hafa greinst með hermanna-
veiki í borginni Murciu á Spáni. 100
til viðbótar eru grunaðir um að
vera haldnir veikinni, sem getur
verið banvæn. Loftræstikerfi eru
grunuð um að hafa dreift veikinni.
Ofbeldi í Úsbekistan
Margar konur í fyrrum sovétlýð-
veldinu Úsbekistan eru barðar og
þeim nauðgað af eiginmönnum sín-
um. Oft leiðir þetta konurnar út i
sjálfsmorð. Mannréttindasamtökin
Human Rights Watch fóru um land-
ið síðasta ár og tóku viðtöl.
Leitar bandamanna
Ivica Racan, forætisráðherra
Króatíu, kallaði í gær eftir nýjum
bandamönnum til að forða ríkis-
stjórn landsins frá fafli. 4 ráðherrar
sögðu af sér um helgina eftir að rík-
isstjórnin ákvað að framselja tvo
meinta stríðsglæpamenn til Haag.
Mikii fíkniefnaneysla
Samkvæmt könnun breska rikis-
ins neytti þriðjungur fólks á aldrin-
um 16 til 24 ólöglegra lyfla síðastlið-
ið ár. Kannabis var vinsælast.
Vill enga dauðarefsingu
Vladimir Pútín,
forseti Rússlands,
sagðist í gær ætla
að viðhalda banni á
dauðarefsingar.
Bannið var sett á
fyrir 5 árum til að
mæta kröfum ESB
á Rússa svo að þeir
gætu tekið þátt í fundum Evrópu-
ráðsins. 80 prósent Rússa vilja af-
nema bannið.
Uppþot á Jamaíku
Yfirvöld í karabisku eynni Jama-
íku báðu í gær um aðstoð erlendra
ríkja til að koma böndum á óeirðir i
landinu, sem hafa orðið 20 manns
að bana síðustu 3 daga.
Harrison með heilaæxli
Bítillinn George
Harrison hefur
greinst með heila-
æxli. Hann hefur
undanfarið leitað
sér meðferðar á
krabbameinshæli í
Sviss. Harrison lék
á gítar með Bítlun-
um og þekktur sem þögli Bítillinn.
Hundur sækir messur
Portúgalskur hundur vekur
mikla athygli fyrir guðrækni sína.
Hann hefur sótt messu á hverjum
sunnudegi síðustu 3 ár. Hundurinn
lætur 26 kílómetra leiö ekki aftra
sér, er alltaf mættur á réttum tíma.
Friðlaust í Bradford
Óeirðir héldu áfram í borginni
Bradford í gærkvöldi, þriðja kvöldið
í röð. 10 manns voru handteknir í
gærkvöldi. Talað er um að týnd
kynslóð afkomenda innflytjenda
standi i óeirðunum, auk hvítra þjóð-
ernissinna.
I