Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Síða 12
12
____________ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001
Skoðun DV
Hvað er skemmtilegast á
leikjanámskeiðinu?
María Björk, 8 ára:
Aö vera úti.
Andrea, 8 ára:
Aö vera úti.
Jakob Ýmir, 7 ára:
Mér finnst skemmtilegast
aö vera inni.
Hringur, 6 ára:
Þaö er skemmtilegast aö vera úti.
Sunneva, 6 ára:
Aö búa til gogga.
Margrét Sól, 6 ára:
Vera úti.
Sorphreinsunar-
stöð í Helguvík
Frá Helguvík á Reykjanesskaga
„ 777 að komast í Helguvík þurfa sorphiröingabíiar varnarliösins aö aka 8 km
um Flugstöðvarveg, yfir Sandgerðis- og Garöveg í Helguvík. “
Nú hefur verið
ákveðið að reisa
nýja stöð við
Helguvík til forg-
unar á sorpi fyrir
byggöarlögin á
Suðurnesjura og
fyrir varnarliðið.
Tvær hugmyndir
voru í gangi, að
aka öllu sorpi til
Reykjavíkur eða
þá að reisa nýja stöð.
Öllu rusli frá Suðurnesjum, nema
frá varnarliðinu, hefur verið ekið til
Reykjavíkur því stöð sú er nú er not-
uð hefur verið meira bíluð en í
gangi. Hún var reist 1978 og greiddi
vamarliðið 60% af stofnkostnaði en
hefur ekki verið eignaraðili heldur
greitt brennslugjöld samkvæmt vigt.
Árið 1983 varð sprenging í stöð-
inni og brennsluofninn varð ónýtur.
Sagt var að gashylki hefði komið í
rusli frá varnarliðinu en -það var
ekki rétt. Varnarliðið greiddi aftur
háa upphæð til að endurnýja stöð-
ina. Þeir fjármunir og stofngjald eru
sagðir álíka og kostar að tvöfalda
Reykjanesbrautina, frá Hvassaleiti
að Fitjum. Og framlag varnarliðsins
tii nýju stöðvarinnar er sagt duga
til að tvöfalda brautina alla leið í
Mjódd. - Örlátir menn sem ráða
fjármálum flotans í Norfolk í Banda-
ríkjunum.
Sorpa getur tekið við þessu rusli
og þar nýtist það líka til framleiðslu
á gasi sem nota má á bíla. Varnar-
málaskrifstofa lét hafa eftir sér að
sorpi frá vamarliðinu yrði að eyða
á vamarsvæðinu því í því væru
matarleifar frá Bandaríkjunum og
fleiri löndum. Sannleikurinn er þó
Varnarliðið greiddi aftur
háa upphœð til að endur-
nýja stöðina. Þeir fjármun-
ir og stofngjald eru sagðir
álíka og kostar að tvöfalda
Reykjanesbrautina, frá
Hvassaleiti að Fitjum.
sá að allar matarleifar frá mötu-
neyti varnarliösins, klúbbunum og
skyndibitastöðum þess eru settar í
sérstakar hakkavélar og síðan dælt
út í holræsakerfi herstöðvarinnar.
Svo hefur verið sl. 14 ár. Áður fóru
þær til svínabúsins á Vatnsleysu-
strönd en fara nú í Stakksfjörðinn
við Fitjar.
Það er með eindæmum hvemig á
þessum málum hefur verið haldiö
og hvað vamarliöið veitir fé í. En
nú er sparnaður á döfinni í varnar-
liðsstöðinni í næstu samningum. En
fátt er svo með öllu illt að ei boði
gott. - Til að komast í Helguvík
þurfa sorphirðingabílar vamarliðs-
ins að aka 8 km um Flugstöðvarveg,
yfir Sandgerðis- og Garðveg í Helgu-
vík. Töluverð umferð varnarliðsbila
er frá hinum ýmsu deildum varnar-
liðsins. Ekki kemur til greina að
beina henni út af svæðinu.
Varnarliðið er tilneytt til að bjóða
út alla sorphirðu á vellinum til is-
lenskra aðOa og koma sér upp mót-
tökustaö á rusli frá smærri aðilum,
líkt og gerist i Reykjavík .Verktaki á
Suðumesjum sér um alla sorphiröu
sunnan Straumsvíkur og hefur stað-
ið sig vel. Hann gæti tekið að sér
sorphirðu fyrir varnarliðið væri
áhugi fyrir hendi þar á bæ. Ljóst er
þó að með útboði mun vamarliðið
spara stórfé við sorphirðu hjá sér.
Skarphéöinn
Etnarsson
skrifar:
Hér á Litla-Hrauni
„En hvemig eigum við að
hafa efni á þessum hlutum
sem eru okkur nauðsyn
þegar dagpeningar eru
2.300 kr. á viku? - Fáum
aðeins fimm daga greidda. “
Fangt á Litla-Hrauni
sendir þessar línur:_________________
Hér á Litla-Hrauni er nú þannig
háttað að fangar sem vilja fá vinnu
þurfa oft að bíða í marga mánuði eft-
ir því að fá hana og launin sem við
fangar hér fáum nægir varla fyrir öll-
um þeim nauðsynjum sem við þörfn-
umst tU að geta lifað sæmUegu lífi og
þrifalegu.
Úr því ég er kominn að hreinlæt-
inu finnst mér upplagt að segja frá
því að fangelsið á að skaffa föngum
nauðsynlegar hreinlætisvörur (vísa
líka til evrópskra fangelsisreglna þar
að lútandi). En hvernig eigum við að
hafa efni á þessum hlutum sem em
okkur nauðsyn þegar dagpeningar
eru 2.300 kr. á viku? - Fáum aðeins
fimm daga greidda.
Af þessum dagpeningum okkar er
dregið fyrir síma- og vídeókostnað.
Halda stjórnendur Litla-Hrauns að
við þurfum ekki líka að lifa um helg-
ar? Ég tek dæmi: Ef fangi reykir einn
pakka af sígarettum á dag, kostar það
hann u.þ.b. 2.800 krónur á viku; taki
ég svo simakostnað i dæmið, þá er
hann um 1000 kr. á viku. Fari fangi
til tannlæknis þá er dregið af honum
í kringum 500 eða 1000 kr. á viku, að
ógleymdum hreinlætisvörunum.
Kostnaður af þessu öllu getur orðið
um 5000 kr. á viku, svo dagpeningar
nægja engan veginn.
Og annað: Þegar fangar eru í
vinnu býðst aukavinna með þeirri
vinnu sem þeir stunda en með þeim
hætti að þeir eru að taka þá vinnu
sem aörir atvinnulausir fangar gætu
haft tekjur af. Mér finnst satt að segja
óskiljanlegt hvernig fangelsið mis-
munar föngum hér. Ég vænti úrbóta
á málum okkar.
Pólitískt uppistand
össur Skarphéðinsson, formaður Samfylking-
arinnar, setur fram athyglisverðar yfirlýsingar í
DV í gær. Tvennt vekur þó mesta athygli hjá for-
manninum og lýtur hvoru tveggja að hans eigin
flokki. í fyrsta lagi lýsir hann því yfir að hann
vilji fá svilkonu sína og samherja í pólitík, Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur borgarstjóra, í fram-
boð fyrir flokkinn við næstu alþingiskosningar. I
sjálfu sér kemur þessi yfirlýsing sem slík ekki á
óvart og myndi að öðru jöfnu vera til marks um
að Össur hafi játað sig sigraöan, að hann væri
að viðurkenna að hann hafi ekki náð því mark-
miði sem hann setti sér með Samfylkinguna.
Hann nái einfaldlega ekki að stýra henni til
flugs. Með því væri Össur einfaldlega að viður-
kenna ákveðnar staðreyndir - Samfylkingin
mælist fylgislitil í könnunum og er af einhverj-
um ástæðum ekki að gera sig á þann hátt sem
menn höfðu vonast eftir. Vissulega er enn tími
til stefnu og því væri það út af fyrir sig ekki
óeðlilegt þó Össur teldi heppilegra að bakka út
nú og gefa nýjum foringja tækifæri áður en of
stutt verður í næstu kosningar.
Ekki allt sem sýnist
En Össur er alls ekki að bjóðast til aö víkja
fyrir Ingibjörgu Sólrúnu, síður en svo. Hitt at-
hyglisverða atriðið sem hann segir í viðtalinu er
nefnilega að þrátt fyrir slakt fylgi hafi hann alls
ekki hugleitt að draga sig í hlé sem karlinn í
brúnni! Þannig er Össur að lýsa því yfir að Ingi-
björg Sólrún eigi aö yfirgefa skipstjórastólinn á
Reykjavíkurlistaskútunni, þar sem hún hefur
setið sem einn fengsælasti aflaskipstjóri á félags-
hyggjukantinum og notið virðingar og hylli, til
þess að gerast háseti á dekki hjá Össuri á Sam-
fylkingarskútunni þar sem trolliö er dregið
gauðrifið og í henglum upp eftir hvert skoðana-
kannahalið á fætur öðru. Enda er sjaldnast neitt
i fylgispokanum annað en lítils háttar skaufi.
Hugmyndin gengur sem sé út á að Ingibjörg Sól-
rún gerist pólitísk Florence Nightingale sem
gangi með lampann góða á milli særðra í Sam-
fylkingunni og afli þeim fylgis.
Djarft teflt
Garri verður að gera þá játningu að hann setti
hljóðan eftir lestur viðtalsins við Össur. Þetta er
trúlega eitthvert djarfasta útspil sem sést hefur
lengi í íslenskri pólitík og eitt andartak velti
Garri því fyrir sér hvort það gæti verið að það
væri svo djarft að það gengi upp. Aö fá sigursæl-
an herforingja til að kasta frá sér pólitískri
stöðu og beygja sig undir húsbóndavald einhvers
sem er að tapa
sinni eigin orr-
ustu! Gæti
þetta ekki geng-
ið upp með öf-
ugum formerkj-
um hjá Sjálf-
stæðismönnum
lika? Þeir
fengju þá Davíð
Oddsson til að
gerast háseti á
skútunni hjá
Ingu Jónu t
Reykjavík og
Inga Jóna segði
einfaldlega aö
hún hefði ekki
hugleitt að
hætta?!
En svo áttaði
Garri sig á þvi
sem hér var að gerast. Össur er annálaður
húmoristi og þetta var auðvitað bara djók! Aug-
ljóst er aö formaður Samfylkingarinnar er undir
verulegum áhrifum frá þeim Fóstbræðrum Jóni
Gnarr og Sigurjóni Kjartanssyni, húmorinn er
alla vega ekki ósvipaður - fáránleikinn er klædd-
ur í hversdagslegan búning og frá honum sagt
eins og um háalvöru væri að
ræða. Fínt uppistand, Össur! Garri
I Héraðsdómi
Fráleitur dómur fyrir hrottalega árás.
Einn smánardómur
Kristinn Sjgurösson skrifar:
Fjölskipaður dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur dæmdi nýlega karlmann
í 3 ára fangelsi fyrir nauðgun og
hrottalega líkamsárás. Mér finnst
þessi dómur til skammar fyrir Hér-
aðsdóm. Og eina milljón króna í
skaðabætur á fómarlambið að fá!.
Nauðgununni einni hefði átt að mæta
með 3 ára fangelsi. En til viðbótar
kemur svo hin hrottalega árás, sem
hjúkrunarfræðingur einn segir
dæmalausa hér. Tíu til fimmtán ára
dómur hefði verið við hæfi í þessu til-
viki. Þrjú ár og líklega lausn eftir
helming tímans (t.d. vegna góðrar
hegðunar) er fráleitur dómur. Dómar-
ar í Héraðsdómi eru, að mínu mati,
sekir um vanrækslu og um að halda
verndarhendi yfir illþýði.
Fréttir Stöðvar 2
Ragnheiöur skrifar:
Ég er ein af mörgum sem horfði
alltaf á fréttir Stöðvar 2, fannst þær
skemmtilegar og lifandi, og bera af
fréttum RÚV. Núna sé ég aldrei frétt-
imar vegna þess að ég er yfirleitt að
koma heim eftir vinnu eða að elda. Ég
á bágt með að trúa því að könnunin
sem Stöð 2 lét gera fyrir sig og fram
kom að flestir væru komnir heim á
þessum tíma og búnir að henda sér í
sófann til þess að horfa á ísland í dag
og fréttirnar sé rétt. Ef ég er svo hepp-
in að vera tilbúin um sjöleytið þá
stilli ég alltaf á RÚV vegna þess að
þar heyri ég og sé eitthvað af þeim
fréttum sem eru það kvöldið. Ég vona
því sannarlega að þetta verði skoðað,
því annars er áskriftin farin líka.
Samgöngur í lofti missa flugið
Betri vegir myndu bæta þaö upp.
Ekki meiri ríkisstyrk
A1yr£vini!£ skhf?r:
Ég tek undir með samgönguráð-
herra um að ekki veröi veitt frekari
fjármunum hins opinbera til reksturs
innanlandsflugs Flugfélagsins. Ég
skil vel sárindi Húsvíkinga og fleiri
sem verða af beinum flugsamgöngum
en þetta ætti að verða til þess aö vega-
framkvæmdum verði flýtt til Húsa-
víkur og til fleiri staða sem hafa við-
miðun við Húsavík. Með góðum vegi
og göngum undir Vaðlaheiði væri
leikur einn að sameina flug frá Húsa-
vík t.d. við flugið frá Akureyri. Við
núverandi ástand í samgöngum verð-
ur ekki búið mikið lengur en umfram
allt: ekki meiri rikisstyrk í flugið.
Eitt prósent ofstæki
Vilhjálmur Alffeösson skrifar:
Gyðingar og múslímar eru enn að
berjast og litlar líkur á því að sú bar-
átta sé í rénun. Ég er viss um að svo
sem 99% af þessu fólki þarna eystra
vilja halda friðinn og lifa saman i sátt
og samlyndi. En það er alltaf þetta eina
prósent sem annað hvort vill eða getur
það ekki. Það kom fram í alþjóðlegri
umræðu um erfðafræði fyrir þó nokkru
hvort deyða ætti ófætt barn vegna sýni-
legs ofstækiseðlis í fóstri. Auðvitað
vaknaði gífurleg siðgæðisumræða um
málið. - En ég spyr: Hverjum datt í hug
að fátækur sveitastrákur -frá Austur-
ríki myndi setja heiminn á hvolf og af-
leiðingamar yrðu svo hrikalegar?
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@ff.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.