Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Side 20
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2001
Upplýsingaöldin til þriðja heimsins:
PlayStation 2 netvæöir fátæka
- heimilistölvur ekki inni í myndinni
Ibúar þriöja heimsins hafa dregist langt aftur úr í tölvuvæöingu vegna fjárskorts, ástand sem margir telja aö veröi
aö bæta svo almenningur í þessum löndum geti m.a. fengiö fræöslu í gegnum Netiö.
hægum og nettengdum PlayStation
2 tölvum inn í skóla, sjúkrahús,
heilsugæslustöðvar og heimili þá
hafi íbúar þriðja heimsins aðgang
að upplýsingum um eyðni, hreint
vatn og margt fleira. Gage tekur
fram að tölvurnar yrðu að ráða við
hljóð og myndir þar sem ólæsi er
algengt í fátækari löndum heims-
ins. Helstu vandamálin við áætlun-
ina er netsamband og orka fyrir
tölvumar. Gage segir að gervi-
hnattasamband sé ofarlega á lista
og rætt verði Globalstar, fyrirtæki
sem rekur símaþjónustu um gervi-
hnetti. Einnig er verið að athuga
fleiri möguleika.
Margir hefðu talið að PC tölvur
yrðu notaðar en Gage telur það
falla um sjálft sig. PC tölvur eru of
bilunargjarnar að hans mati og of
miklir fjármunir og tími færu í að
viðhalda tölvunum. Gage segir
meira að segja að ef Playstation
áætlunin fellur þá verði leitað
allra annarra ráða áður en heimil-
istölvur verði notaðar. Tillögurnar
verða kynntar á G8 fundinum,
fundi átta helstu iðnríkja heims-
ins, í Genóva, Italíu, seinna í þess-
um mánuði.
PlayStation 2 styður
einnig Linux hugbún-
að. Linux hugbúnaður
er stöðugt að sækja á í
heiminum í dag og er
það ekki sist vegna
þess hversu vandaður
hugbúnaðurinn er orð-
inn, auk þess sem
hann er algeriega
ókeypis.
Nefnd á veg-
um Alþjóða
efnahagsráðsins
sem sett var á
laggirnar til að
koma með til-
lögur um hvern-
ig eigi að koma þriðja heims lönd-
um inn í upplýsingaöldina hefur
nú skilað af sér tillögum. Hug-
myndin sem nefndin kom upp með
er að nýta þær leikjatölvur sem til
eru markaðnum til að nettengja
íbúa fátæku landa þessa heims.
Helst er talað um að nota
PlayStation 2 tölvuna vegna þess
hversu ódýr hún er miöað við hin-
ar öflugu leikjatölvunar sem á leið-
inni eru, eins og Xboxið frá
Microsoft. PlayStation 2 styður
einnig Linux hugbúnað. Linux
hugbúnaöur er stöðugt aö sækja á
í heiminum í dag og er það ekki
síst vegna þess hversu vandaður
hugbúnaðurinn er orðinn, auk
þess sem hann er algerlega ókeyp-
is. Til viðbótar er auðvelt að tengja
harðan disk við leikjatölvuna.
John Gage, stjómandi rann-
sókna hjá tölvufyrirtækinu Sun
Microsystems, er einn aðalhvata-
maðurinn að stofnun nefndarinn-
ar. Aö hans mati þarf samræmt
átak stórfyrirtækja innan hugbún-
aðargeirans og stjómvalda rikari
landa heimsins til að netvæðing
jq þriðja heimsins gangi upp. Gage
segir aö með því að koma hand-
Gróður ekki koltvísýringsgráðugur
Vísindaaka-
demía Bret-
lands, The Royal
Society, birti ný-
lega niðurstöður
skýrslu þar sem
varað er við því að taka gróður inn
í myndina þegar hugað er að
minnkun koltvísýrings í andrúms-
loftinu. Eina færa leiðin sé beinn
niðurskurður á útblæstri.
Þegar Kyoto-sáttmálinn var gerð-
ur sendu nokkrar þjóðir inn þá til-
lögu að nota mætti gróðursæld sem
frádrátt á útblástur gróðurhúsaloft-
tegunda. Prófessor David Read, sem
stjórnaði gerð skýrslunnar, segir að
þótt koltvísýringsneysla gróðurs
geti hjálpað til styttri tíma þá séu
langtímaáhrif hverfandi. Read segir
magnið af koltvísýringsútblæstri
vegna brennslu á jarðeldsneyti sé
það mikið að eins og ástandið sé í
dag þá nái gróður bara að nota 40 %
af útblæstrinum. Það mun minnka
með auknum útblæstri. Read varar
einnig við því að ræktun meira
lands skili meiri eyðingu koltvísýr-
ings. Til þess þurfi köfnunarefnisá-
Eins og staöan er í dag nær gróöur
aöeins aö eyöa um 40 % prósent-
um af þeim koltvísýringi sem mann-
kyniö lætur frá sér.
burð sem gæti valdið því að gróður-
inn framleiddi aðrar gróðurhúsa-
lofttegundir, s.s. metangas og nit-
uroxíð. Read segir að eina færa
langtímaleiðin í vörnum gegn gróð-
urhúsaáhrifum sé niðurskurður út-
blásturs lofttegunda sem valda
breytingum á andrúmsloftinu.
Starfskona fyrirtækisins Matsushita Electric Industrial sýnir höggþétta far-
tölvu. Ekki er um venjulega fartölvu aö ræöa heldur handhæga og færanlega
heimilistölvu. Hún hefur hlotiö nafniö Panasonic Pronote AirFG. Skjárinn er
á stærö viö stílabók og er i þráölausu sambandi viö vinnsluboxiö sem virk-
ar í allt aö 50 metra fjarlægö. Tölvan kemur á markaö seinna á þessu ári.
Anarchy Online er ævintýrahlutverkaleikur þar sem galdrar eru jafn góö og gild vopn og hvaö annaö.
Netleikurinn Anarchy Online kominn út:
Fjögur ár í spilun
Anarchy On-
line er gríðar-
lega stór
multiplayer-
hlutverkaleikur
sem spilast á
Netinu og marg-
ir hafa beðið eftir með mikilli eftir-
væntingu. Leikurinn gerist í fram-
tíðarlandinu Rubi-Ka og er áhersla
lögð á góðan söguþráö og veitir leik-
urinn spilurum meira frelsi en áður
hefur þekkst í hefðbundnum hlut-
verkaleikjum. Hér tekur þú þátt í
bardögum i framtíðinni og sekkur
inn i netheim sem sagður er upp-
fullur af smáatriðum og góðri graf-
ik.
Þúsundir leikmanna geta spilað á
sama tíma í Anarchy Online, ferð-
ast um einir með sjálfum sér eða í
hópum, og skapa leikinn og at-
burðarásina á eigin spýtur. Leik-
menn rekast á dýr, skrímsli, sjó,
skóga, eyðimerkur, stórborgir og
minni þorp sem hægt er að rann-
saka og verða hluti af. Umhverfiö
breytist í sífellu og skiptir frá nótt
yfir í dag, frá sólskini yfir i regn, að
hættulegum sandstormum og hvirf-
ilvindum.
Allir karakterar í leikn-
um eru öðruvísi þar
sem leikurinn býður
upp á endalausa
möguíeika í sköpun
þeirra. Hægt er að
ráða hörundslit og
fítumagni, einnig er
hægt að velja um hell-
ing af mismunandi
fatnaði og húðflúr.
Allir karakterar í leiknum eru
öðruvísi þar sem leikurinn býður
upp á endalausa möguleika í sköp-
un þeirra. Hægt er að ráða hörund-
slit og fitumagni, einnig er hægt að
velja um helling af mismunandi
fatnaði og húðflúr. Leikurinn er
einnig ótrúlega stór og tekur það
fleiri klukkutíma í rauntíma að fara
frá einum enda Rubi-Ka til annars.
Mikilvægast þó í Anarchy Online er
þjóðfélagið sem skapast. Allir leik-
menn hitta fólk alls staðar frá heim-
inum og geta haft samskipti við það
með texta, spjalli eða með því að
sýna svipbrigði og hreyfingar. Þeir
sem ætla sér að spila Anarchy On-
line verða að vera viðbúnir að gefa
sig í leikinn því leikurinn býður
upp söguþráð sem endist i næstum
fjögur ár. Funcom-fyrirtækið hefur
síðan starfsfólk í að fylgjast með at-
burðarásinni og tryggja þaö að i
leiknum sé alltaf spenna og stöðug
þróun.
---—»
'iul yu-
Jaj lúí