Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2001, Síða 28
ISSAN TERRANO II
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Fylkingum lýstur saman á aöalfundi Lyfjaverslunar íslands í dag:
Forstjórinn bjartsýnn
- stjómarformaður vonast eftir ró. Sturla ræðir starfslok tapi minnihlutinn
Aðalfundur
Lyfj a verslunar inn-
ar er haldinn í
dag. Þar lýstur
saman tveimur
fylkingum hlut-
hafa sem deila
hart um hluthafa.
Annars vegar þeir
sem stóðu að kaup-
um á Frumafli og
hins vegar þeir
sem eru kaupunum andvigir.
Minnihlutinn, þar sem Aðalsteinn
Karlsson, Margeir Pétursson og
Lárus Blöndal fara fyrir, telur
kaupin á Frumafli ólögleg eða í
versta falli siðlaus. Mjög mjótt er
á munum milli þeirra sem deila
en nái minnihlutum völdum mun
kaupunum á Frumafli verða rift.
Jóhann Óli Guðmundsson, sem
býr í London, hefur lýst því í fjöl-
miðlum að hann standi fast á því
að kaupin haldi.
„Ég er bjartsýnn á að þeir sem
nú skipa minnihluta stjórnar nái
meirihluta á aöalfundinum i dag,“
sagði Sturla Geirsson, forstjóri
Lyfjaverslunar Islands, i samtali
við DV í morgun.
Sú ákvörðun Sturlu að mót-
mæla harðlega þeirri ákvörðun
meirihluta stjórnarinnar aö
kaupa fyrirtækið Frumaíl af ein-
um stærsta hluthafa Lyfjaverslun-
arinnar, Jóhanni Óla Guðmunds-
syni, hefur vakið feiknarlega at-
hygli. Með afstöðu sinni, sem
fram kom í bréfi til stjórnarinnar,
hefur Sturla lagt starf sitt að veði.
Sturla segir að gangi hallarbylting
eftir verði fyrsta verk nýrrar
stjórnar að leita allra leiða til að
rifta hinum umdeildu kaupum.
Hann segir jafnframt að verði nú-
verandi minnihluti undir muni
starfslok sín efalítið komast á dag-
skrá.
„Ég mun þá ræða mín mál við
stjórnina," segir Sturla.
Grímur Sæmundsen, stjórnar-
formaður Lyfja-
verslunar íslands,
var síðdegis í gær
hinn rólegasti að
semja aðalfundar-
ræðuna. „Ég mun
gera hluthöfunum
grein fyrir málinu
sem alls ekki hefur
verið reifað með
eðlilegum hætti í
fjölmiðlum. Ég
vonast til að ró komist á eftir
fundinn en því er ekki að neita að
fjölmiðlafárið kemur illa við fyrir-
tækið,“ segir Grimur.
Hann ætlar að freista þess að
leiðrétta misskilning sem hann
segir uppi. Varðandi stöðu for-
stjórans sagði Grímur: „Ég skil
áhyggjur Sturlu en hef ekkert gef-
ið út sem gefur til kynna að hann
þurfi að óttast um starf sitt. Sturla
málar í bréfi sínu ástandið í allt of
dökkum litum. Hann tekur allt of
djúpt í árinni," segir Grímur. -rt
Grímur
Sæmundsen.
Sturla
Geirsson.
ÞRIÐJUDAGUR 10 JÚLÍ2001
Hafernir í Skötufiröi DV MYND GVA
Haförninn er tegund í hættu samkvæmt skilgreiningu Náttúrufræöistofnunar
ísiands. Einna helst er hægt aö rekast á haförn viö Breiöafjörð og á Vest-
fjörðum. Stofninn er lítill og telur aöeins um 250 fugla.
DV-MYND KARÓLÍNA
Meintir veiðiþjófar
Fjórir norskir loönubátar komnir til Seyöisfjaröar í gærkvöid.
Norsku loðnuskipin:
Skrifaði 80 í stað 800
Alfred Ökland, stýrimaður á
norska loðnuveiðiskipinu Magnar-
son, sagði í samtali við DV í gær aö
skipstjórinn á skipinu hafi gert mis-
tök við útfyllingu veiðiskýrslu og
skrifað 80 tonn í stað 800 tonna.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumað-
ur á ísafirði, mun í dag leggja fram
kæru á hendur skipstjóra skipsins
fyrir að hafa gefið upp margfalt
minni loðnuafla til Landhelgisgæsl-
unnar en skipið var með þegar það
var tekið og fært til hafnar á ísafirði
í fyrrakvöld. Aflanum var landað i
Bolungarvík í nótt og reyndist 750
tonn.
Þá mun sýslumaðurinn á Seyðis-
firði í dag taka skýrslur af skipstjór-
um þriggja loðnuveiðiskipa sem
færð voru þangað í gær fyrir sömu
sakir. Svo virðist sem Norðmenn-
irnir, sem eru orðnir kvótalitlir í
loðnu í lögsögu islands, hafi ætlað
að leika þann leik að veiða óheft en
segja að loðnuna hafi þeir fengið
handan miðlínunnar, í lögsögu
Grænlands. Skipin geta ekki siglt
fyrr en mál þeirra hafa verið til
lykta leidd en fastlega má reikna
með ákærum og í kjölfarið sektum
og upptöku veiðarfæra og aflaverð-
mætis. Norskir fjölmiðlar hafa fjall-
að nokkuð um málið, greint frá
staðreyndum þess og rætt við ís-
lenska og norska embættismenn.
-gk
Náttúruvernd segir Kárahnjúkavirkjun ekki umhverfisvæna:
Líftími skammur og
lónið fyllist af aur
- vel ásættanlegur líftími, segir forstjóri Landsvirkjunar
Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar, segir
umfjöllun Náttúrvemdar rík-
isins um mat á umhverfis-
áhrifum af byggingu álvers í
Reyðarfirði eðlilegan þátt í
heildarferlinu. Hann telur þó
að deila megi um hvort stofn-
unin fari ekki á köflum út
fyrir sitt starfssvið.
Náttúruvernd ríkisins
hafnar því í skýrslu sinni að
nýting vatnsorku frá Kárahnjúka-
virkjun fyrir álver í Reyðarfirði sé
umhverfisvæn af þeirri einu for-
sendu að betra sé að nota endur-
nýjanlega vatnsorku en jarðefna-
eldsneyti. Kárahnjúkavirkjun hafi
takmarkaðan lífaldur og eftir að-
eins 100 ár verði 25% af Hálslóni
fullt af jarðefnum og miðlunargeta
þess skert. Þá muni virkjunar-
framkvæmdir valda gríðarlegum
óafturkræfum skemmdum á nátt-
úrufari, landslagsheildum og víð-
emum.
Friðrik Sophusson segir að mið-
aö við afskriftir á
mannvirkjum og
tækjum á um 60 árum
þá sé 400 ára líftími
lónsins vel ásættan-
legur.
„Það er gert ráð
fyrir athugasemdum
varðandi þessar fram-
kvæmdir og málið er
allt í sínum eðlilega
farvegi," segir Friðrik
en telur samt aö stofnunin ætti
fremur að vega mikilvægi og áhrif
hvers þáttar fyrir sig en að snúast
gegn líkum framkvæmdum í heild
sinni. „Annars lenda þeir í þeirri
stöðu að vera alltaf á móti.“
Ámi Bragason, forstjóri Nátt-
úruvemdar ríkisins, vildi ekki tjá
sig um einstök efnisatriði skýrsl-
unnar, þar sem málið væri mikið
pólitískt hitamál.
Náttúruverndarálitið er eitt af
fjölmörgum sem lögð eru fyrir
skipulagsstjóra sem gefur út sinn
úrskurð. Sá úrskurður er síðan
kæranlegur til umhverfis-
ráðherra. Búist er við að
þær niðurstöður liggi fyrir í
haust. Friðrik segir að nú sé
unnið að undirbúningi
framkvæmda eins og lög
gera ráð fyrir. „Ég tel að í
annan tíma hafi ekki verið
betur staðið að mati á um-
hverfisáhrifum fram-
kvæmda. Þá vonast ég til að
sú vinna skili þeirri niður-
stöðu að hægt sé að byggja virkjun
á þessu svæði.“
Friðrik bindur vonir við að hægt
verði að hefja framkvæmdir við
virkjunina á næsta vori. Slíkt
verði að gerast ef virkjunin eigi að
fara að skila rafmagni á síöari
hluta ársins 2006. Enginn annar
sjáanlegur virkjunarkostur komi í
staðin fyrir Kárahnjúkavirkjun.
Kostur þessarar virkjunar sé m.a.
nálægðtn við Reyðarfjörð þar sem
orkan komi til með að verða nýtt.
Sjá fréttaljós á bls. 6
-HKr.
Friörik
Sophusson.
Árni
Bragason.
VBRÐÖR &OÐ\Ð
UPP Á RÓANDI?
Leiðbeinandi hjá Vinnuskólanum áhyggjufullur:
Sprautur og hasstól á Miklatúni
- óttast um hag fatlaðra unglinga sem vinna í garðinum
„Við byrjum hvem
dag á að hreinsa burt
alls konar áhöld sem
fíkniefnaneytendur
skilja hér eftir. Það
hefur varla liðið dag-
ur að við höfum ekki
fundið tól til
hassneyslu, álpappír
og í síðustu viku
fundum við sprautur
með öllu tilhe>Tandi
við Kjarvalsstaði," segir Dofri Öm Guð-
laugsson, leiðbeinandi hjá Vinnuskól-
anum í Reykjavík.
Dofri hefur umsjón með hópi fatlaðra
Hasstól á Miklatúni
Þetta „hasslón" fannst í gær.
unglinga sem vinna við garðyrkju á
Miklatúni i sumar. Hann segir leiðbein-
endur áhyggjufulla vegna ástandsins og
þau hafi ítrekaö haft samband viö lög-
reglu. „Lögreglan virðist heldur lítið
geta gert í málinu. Við höfum því grip-
ið til þeirra ráða að láta hópinn vinna á
öðmm svæðum í garðinum. Það liggur
í augum uppi að hér safnast krakkar
saman á hverju kvöldi og mér kæmi
ekki á óvart að rjóðrið væri dreifingar-
staður fyrir eiturlyf enda gott að dyljast
umferð þama,“ segir Dofri.
Hjá lögreglunni fengust þær upplýs-
ingar að tilvik sem þessi væm alltaf
skoðuð. „Við hvetjum fólk eindregið til
að hafa samband ef það finnur hluti á
víðavangi sem tengjast fikniefna-
neyslu,“ segir Ámi Vigfússon aðstoðar-
yfirlögregluþjónn. -aþ
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
á
i