Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Blaðsíða 10
10
-T
Utlönd
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
I>V
Peter og Joanna
Peter er enn ófundinn og er
talinn látinn.
Handtekinn
vegna manns-
hvarfs
Ástralska lögreglan handtók raann
í morgun vegna hugsanlegs morös á
Peter Falconio, 28 ára Englendingi
sem var á ferðalagi um Ástralíu með
unnustu sinni, Joanna Lees.
Lögreglan handtók manninn
skammt fyrir utan Sydney. Það er
um 1600 kílómetra frá staðnum þar
sem atburðurinn átti sér stað í
óbyggöum norðurhluta Ástralíu fyr-
ir tíu dögum. Lögregla hefur enn
ekki beint tengt manninn við hvarf
Falconio. Bíll mannsins og maður-
inn sjálfur svara hins vegar til lýs-
ingar lögreglunnar í Alice Springs, í
norðurhluta Ástralíu. Verið er að
yfirheyra manninn.
Ferðamenn í
hryðjuverkaárás
Skæruliðar tamíla á Sri Lanka
eru taldir hafa staðið á bak við árás
á eina alþjóðlega flugvöll Sri Lanka
í gær. Þrír hermenn og níu skæru-
liðar létu líftð í árásinni, auk þess
sem 13 flugvélar skemmdust. Þetta
eru fyrstu alvarlegu átökin á eyj-
unni í nokkurn tíma. Talið er að
skæruliðar hafi misst þolinmæðina
í samningaviðræðum við yfirvöld á
Sri Lanka.
Nokkuð af ferðamönnum var statt
á flugvellinum og áttu þeir fótum
fjör að launa, sumir þurftu að henda
sér í skurði til að forðast sprengju-
vörpur og byssukúlur. Flugvélar
voru einnig í lendingu á meðan
sprengjum rigndi yfir völlinn. Eng-
in ferðamaður særðist.
Gao Zhan
Dæmd í fangelsi vegna kínversks
ríkisborgararéttar.
Fangelsi vegna
njósna
DómstóU í Kína dæmdi í morgun
Gao Zhan, prófessor við bandarísk-
an háskóla, tU tíu ára fangelsisvist-
ar fyrir njósnir fyrir Taívan. Sönn-
unargögnin eru sögð úrklippur úr
bókum og blöðum sem eru ríkis-
leyndarmál í Kína.
Zhan hefur búið í Bandaríkjun-
um síðustu 12 ár og á eiginmann og
son með bandarískan ríkisborgara
rétt. Hún fær fangelsi ólíkt Li Sha-
omin sem einnig var dæmdur fyrir
njósnir. Shaomin er hins vegar
bandarískur rikisborgari var því
gerður brottrækur úr Kína.
Vopnahlé rofið
í Makedóníu
Átján daga vopnahlé í Makedóniu
er í mikiUi hættu eftir að átök
brutust aftur út í landinu í gær,
annan daginn í röð. 12 ára stúlka
lést í sprengjuvörpuárás í bænum
Tetovo. Makedóníumenn hótuðu
skæruliðum Albana í gær að hyrfu
þeir ekki frá þeim svæðum sem þeir
hernámu áður en vopnahléið 5. júlí
hófst, væri allsherjarárás make-
dónska hersins yfirvofandi. Skæru-
liðarnir sýndu ekki á sér fararsnið í
gær og hemámu þeir meöal annars
fótboltaleikvang Tetovo.
Að sögn lögregluforingja í bæn-
um voru hermenn Makedóníu 50
metra undan og skiptust fylkingarn-
ar á skothríð. „í dag höfum við
raunverulegt stríð í Tetovo," hefur
Reuter-fréttastofan eftir íbúa i bæn-
um. Að minnsta kosti 24 óbreyttir
borgarar og 5 makedónskir her-
menn slösuðust í gær.
Vestrænir erindrekar segja átök-
in minnka verulega vonir um að
stríðandi fylkingar náist aö samn-
Boris Trajkovski
Forseta Makedóníu viröist ekki vera
aö takast hiö öröuga verkefni aö
sameina þjóöarbrotin tvö í landinu.
ingaborðinu. Phillip Reeker, tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, fordæmdi vopnaskakið í
gær og sagði allt brot á vopnahléinu
vera óásættanlegt. „Það er engin
hemaðarleg lausn á vanda
Makedóníu," sagði hann.
Átökin eru á sama tíma og sendi-
menn Bandaríkjanna og Evrópu-
sambandsins búa sig undir að hitta
Boris Trajkovski forseta í dag. Von-
ast þeir til þess að hleypa nýju lífi í
friðarviðræðurnar sem hafa látið
standa á sér upp á síðkastið, þrátt
fyrir tiltölulega viðvarandi vopna-
hlé.
Albanar berjast fyrir auknum
réttindum í Makedóníu. Þeir vilja
að albanska verði viðurkennd sem
opinbert tungumál á eftir
makedónsku, en það geta ekki allir
Makedóníumenn sætt sig við.
Tetovo er óopinber höfuðborg al-
banska minnihlutans í landinu, sem
er um þriðjungur íbúanna.
Katherine Graham kvödd
Ben Bradlee, varaforseti Washington Post, strýkur í burtu tár viö jaröarför fyrrverandi yfirmanns síns og eiganda
Washington Post, Katherine Graham. Viö vinstri hliö Bradlees stendur eiginkona hans, Sally Quinn. Til hægri stendur
Alexandra Schlesinger, eiginkona Arthurs Schlesingers. Graham lést af áverkum sínum eftir að hafa dottiö á gang-
stétt.
Skotbardagi á milli
Palestínumanna
Skotbardagi hófst í morgun milli
palestínskrar lögreglu og palest-
inskra byssumanna í borginni
Gaza. Skotbardaginn hófst eftir að
allt að 1000 manns höfðu safnast
saman fyrir framan hús Moussa
Arafat, yfirmanns hemjósna í Gaza.
Fólkiö er talið vera stuðningsfólk
hinnar svokölluðu Almennu and-
spyrnuhreyfingu. Þrír meðlimir
hreyfingarinnar voru særðir af
palestínskum lögreglumönnum á
sunnudaginn. Samkvæmt yfirlýs-
ingu frá hreyfingunni voru menn-
irnir að koma úr hernaðarlegum
leiðangri gegn landnemabyggð ísra-
ela þegar lögregla skaut á þá.
Talsmenn lögreglunnar segja lög-
reglumennina hafa talið mennina
vera útsendara ísraela eftir að hafa
fengið veður af ferðum slíkra. Tals-
menn félaga hinna særðu segja hins
Heitt í kolunum
Palestínskir unglingar taka þátt í
sumarþúöum hjá Fatahsamtökunum
á Vesturbakkanum.
vegar að lögreglan hafi vitað hverj-
ir mennirnir voru en samt skotið á
þá. Palestínsk yfirvöld eru undir
miklum þrýstingi frá ísraelskum
stjórnvöldum um að taka hart á
hryðjuverkastarfsemi á yfirráða-
svæði sínu. Það ýtir undir ásakanir
líkum þeim sem áttu sér stað í
morgun.
ísraelsher felldi tvo Palestínu-
menn í gær. Einn var 15 ára ung-
lingur og hinn var grunaður um að-
ild að sprengjutilræði sem upp
komst áður en af þvi varð.
Javier Solana, yfirmaður utanrík-
ismála hjá Evrópusambandinu, er
nú komin til Líbanon. Hann ítrek-
aði tillögu Evrópusambandsins um
nauðsyn á hlutlausum eftirlitsaðila
á mörkum ísrael og heimastjómar-
svæðis Palestínumanna. ísrael
leggst enn eindregiö gegn slíku.
Arafat fær stuöning
Yasser Arafat,
leiðtogi Palestínu-
manna, fékk 450
milljóna króna fjár-
stuðning frá Sádi-
aröbum í gær, auk
pólitískrar stuðn-
ingsyfirlýsingar.
Arafat ræddi við
konung og krónprins landsins um
hvernig sameina mætti Araba gegn
ágangi ísraelsmanna.
Köttur í örbylgjuofni
Bresk kona játaði fyrir rétti í gær
að hafa hitað kött sinn í örbylgju-
ofni í ölæði og reiðikasti. Konan
missti stjórn á sér þegar fló af kett-
inum beit hana.
Olíuboranir við Færeyjar
Færeyskt olíuævintýri virðist á
næsta leiti eftir aö olíufyrirtækin
British Petrolium og Shell hófu oliu-
leit suðaustur af eyjunum í fyrrinótt.
Kinaforseta mótmæit
Jiang Zemin Kínaforseti heim-
sótti Möltu í gær. Útlægir meðlimir
hinnar bönnuðu Falun Gong-hreyf-
ingar mótmæltu forsetanum og
voru sex þeirra handteknir af lög-
reglu.
Kók neitar ákæru
Gosdrykkjaverksmiðja Coca-Cola-
fyrirtækisins í Kólumbíu neitar
bandarískri ákæru um að hún hafi
látið ólöglegar hersveitir myrða
verkalýðsfélaga í landinu.
Móðgar Indverja
Flokkur þjóðern-
issinnaðra hindúa í
Indlandi skírði
hvolp eftir George
W. Bush Banda-
ríkjaforseta i lit-
ríkri athöfn í gær.
Gjömingnum var
ætlað að mótmæla
nafngift gælukattar Bush, en hann
heitir India.
Krafist afsagnar yfir G8
Stjórnarandstaðan í Ítalíu krefst
afsagnar innanríkisráðherra lands-
ins í kjölfar þess að mótmælandinn
Carlo Guiliani var drepinn af lög-
reglu fyrir utan G8-fundinn í Genúa
á helginni. Hugsanlegt er að lög-
reglumaðurinn sem drap Guiliani
verði kærður fyrir morð.
Fordæmir stofnfrumufikt
Jóhannes Páll
páfi annar fordæm-
ir tilraunir banda-
rískra vísinda-
manna með stofn-
frumur úr fóstur-
vísum. Hann varaði
Bush Bandaríkja-
forseta við hinu illa
í tilraununum.
Sprengt á Korsíku
14 lögreglumenn slösuðust lítil-
lega þegar sprengja sprakk á lög-
reglustöö í þorpi á frönsku Miðjarð-
arhafseyjunni Korsíku i gær. Vopn-
um búnir aðskilnaðarsinnar heimta
sjálfstæði eyjunnar frá Frökkum.
Hamborgarar og Netið
MacDonalds veitingastaður í ísra-
el býður upp á 20 nettengdar tölvur
fyrir viðskiptavini sína. Þetta er
fyrsti nethamborgarastaöurinn í
heiminum.