Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Síða 24
28
Tilvera
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
DV
lí f iö
í- F i I I! V I M N U
Kvöldganga um
Viðey
Gengið verður um norðurströnd
Viðeyjar í kvöld og komið á
þann stað sem hefur að geyma
áletraðan stein frá 19. öld. Hluti
af listaverki hins spænsk-
bandaríska listamanns Richard
Serra verður skoðaður á
leiðinni. Farið verður með
Viðeyjarferjunni kl. 19.30 og
tekur gangan um tvo tíma.
KLASSÍK
■ SÖNGUR OG PÍANÓLEIKUR í
SIGURJONSSAFNI Þær Svava
Kristín Ingólfsdóttir mezzósópran
og Iwona Osp Jagla píanóleikari
koma fram á þriðjudagstónleikum í
Listasafni Sigurjóns Olafssonar í
kvöld. Þær flytja Ijóðaflokkinn
Frauenliebe und Leben eftir Robert
Schumann og verk eftir tónskáldin
Alessandro Parisotti, Jórunni Viðar,
Gösta Nystroem, Ture Rangström og
Jean Sibelius. Einnig flytja þær
óperuaríur eftir Camille Saint-Saens
og Georges Bizet. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30
Göngur
IKVOLDGANGA UM
ELLHOAARPAL Göngu- og
fræösluferö veröur um Elliöaárdalinn
í kvöld á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur. Leiðsögumenn verða
Helgi M. Siguröarson,
sagnfræðingur og ritstjóri bókarinnar
Elliðaárdalur - land og saga, Einar
Gunnlaugsson jarðfræðingur og
Krlstinn H. Þorsteinsson
garöyrkjustjóri. Allir eru þeir
gjörkunnugir dalnum, sögu hans og
náttúru. Gangan hefst kl. 19.30 við
gömlu rafstöðina í Elliðaárdal og
þaöan verður gengið sem leið liggur
upp í Árbæjarsafn.
Rokk
■ ULPA, FLUGA OG PIKTA A
GAUKNUM Eðalrokk veröur í kvöld á
Gaukl á Stöng. Þar koma fram
hljómsveitirnar Úlpa, Fluga og
Plkta. Úlpu þarf vart aö kynna. Hún
hefur nú þegar skapað sér nafn
sem ein helsta rokkhljómsveit
landsins. Fluga er enginn
nýgræðingur i bransanum heldur.
Þeir Gústi og Pétur voru kjarninn í
„Pornopopp". Þeir félagar eru nú að
skríða út úr hýði þar sem þeir hafa
verið við æfingar. Dikta er
ungliöasveitin þetta kvöldið. Hún tók
þátt í síðustu Mísíktilraunum og
gekk vel.
Sýninjgar
■ MARGAR SYNINGAR I
ARBÆJARSAFNI I Arbæjarsafni
standa yfir nokkrar sýningar. í
Lækjargötu 4 er sýningin Saga
Reykjavíkur - frá býli tll borgar. í
Kjöthúsi er sýningin Saga
bygglngartækninnar. í Líkn er
sýnignin Mlnningar úr húsi. Sýningin
í Suðurgötu 7 ber yfirskriftina Til
feguröarauka. Sýnlng á útsaumi og
hannyröum og í Efstabæ má sjá
hvernig tvær flölskyldur komu sér
fyrir í húsinu um 1930.
■ PAUL-ARMANP í UOSAKLIFI
Sýning franska mynlistarmannsins
Paul-Armand Gette, „Mind the
vocano! - What volcano?", stendur
yfir í Ljósaklifl, vestast í Hafnarfirði.
■ STIAN RÖNNING í GALLERÍ
GEYSI Stian Rönning hinn norski
sýnir í Gallerí Geysl við Ingólfstorg.
Sýningin hefur yfirskriftina Sérö Þú
þaö sem Ég sé? Þar eru Ijósmyndir
sem tekna/ eru á Taílandi, í Laos,
Noregi og íslandi.
■ ÞÓRÐUR Á MOKKA Þórður
Ingvarsson sýnir tölvugrafíkmyndir á
Mokkakaffi um þessar mundir.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Bíógagnrýni
an—niiiiiiiiniMiiii>iiii|iiiiiiii iiiiiiini in n 'i mm . ,
Sam-bíöin/Laugarásbíó/Háskólabíó - Skrekkur: ★ ★ ★
Götudans í Reykjavík:
Nýtt verk á tveggja
vikna fresti
Skemmtilegur Skrekkur *=s
Langaöi aö dansa meira
ívar Örn Sverrisson, leiklistar- og
listdansnemi, segir að tilgangurinn
hjá hópnum sé að geta dansað
meira og skemmt fólki um leið.
menningarsjóður fyrir ungt fólk.
Hitt húsið sér um ráðgjöf varðandi
sjóðinn og við fengum aðstoð hjá
því.“
Á fund meö borgarstjóra
„Þaö skipti miklu máli fyrir okk-
ur að geta borgað öllum í hópnum
laun en styrkurinn frá Ungu fólki í
Evrópu nægði ekki til þess. Við fór-
um því á fund hjá borgarstjóra sem
tók vel í málið og vísaði því á Hitt
húsið og þannig gekk dæmið upp.“
Strákamir í hópnum hafa allir
áhuga á dansi en eru með mismun-
andi bakgrunn. „Þrir okkar eru úr
Listdansskólanum, þrír leggja stund
á samkvæmisdans, einn er jassball-
ettdansari en við fundum þann síð-
asta á götunni - hann er götustrák-
ur.“
Nóg að gera
Að sögn ívars er nóg að gera hjá
þeim. „Við komum fram með nýtt
verk á tveggja vikna fresti og tökum
ekkert gjald fyrir sýningarnar.“
Strákarnir í götudanshópnum eru
þegar búnir að sýna þrjú verk og
ætla að frumsýna það fjórða á Ing-
ólfstorgi klukkan 13.00 og 18.00 i
dag. -Kip
í sumar hafa átta ungir menn á
aldrinum sautján til tuttugu og
fimm ára unnið fyrir sér með því
að skemmta Reykvíkingum með
götudansi. Strákarnir í hópnum
heita Ásgeir Magnússon, Hannes
Þórður Þorvaldsson, Bjartmar
Þórðarson, Hákon Atli Halldórs-
son, Gunnar Hrafn Gunnarsson,
ívar Örn Sverrisson, Hannes Þór
Egilsson, Ronald Rodriguez Leona.
Ungt fólk í Evrópu
ívar Örn Sverrisson, leiklistar- og
listdansnemi, sem er i forsvari fyrir
hópinn, segir að hann hafi byrjað að
dansa samhliða námi 1 leiklist. „Ég
fékk strax mikinn áhuga á dansi og
mig langaði til að dansa meira. Hug-
myndin á bak við götudansinn varð
til í Listdansskólanum. Mig langaði
að búa til eitthvað pródégt þannig
að við gætum dansað meira. Ég fékk
félaga mína úr skólanum með í
þetta og við byrjuðum á að sækja
um styrk í sjóð sem heitir Ungt fólk
í Evrópu sem er stór evrópskur
Götudansarar
Strákarnir í hópnum hafa allir áhuga á dansi en eru meö mismunandi bakgrunn. Þrír eru í Listdansskólanum,
þrír leggja stund á samkvæmisdans, einn er jassballettdansari og einn er götustrákur.
Skrekkur og félagi hans
Tveir góöir saman sem lofa að bjarga fallegri stúlku úr klónum
á eldspúandi dreka.
Einu sinni var stór, grænn og ljót-
ur tröllkarl sem hét Skrekkur. Allir
voru óskaplega hræddir við hann af
því hann var svo stór og ljótur og
hann bjó aleinn og einmana úti í
mýri. Skrekkur var náttúrlega ekk-
ert vondur heldur ágætisstrákur og
listakokkur í þokkabót en það
komst aldrei neinn að því vegna
þess að allir voru að flýta sér svo
mikið í burtu frá honum. Þangað til
dag einn þegar Skrekkur hittir hinn
málglaða asna Asna sem er á flótta
undan hermönnum Farquaad lá-
varðar. Lávarður þessi er pínulítill
fýlupúki sem vill reka allar ævin-
týralegar persónur úr skóginum
sínum vegna þess að þær fara í
taugarnar á honum - flytja persón-
ur sem allir kannast við, eins og
Úlfinn, Öskubusku, Gosa, dvergana
sjö með Mjallhvíti í kistunni o.fl., í
mýrina til Skrekks, honum til mik-
ils ama. Til að losna við „ævintýra-
hyskið" af landareign sinni lofar
Skrekkur lávarðinum að ná í Fíónu
prinsessu fyrir hann, gullfallega
stúlku sem er í haldi hjá eldspúandi
dreka. Skrekkur fer létt með verk-
efnið, ásamt sjálfskipuðum besta
vini sínum, Asnanum, því Skrekkur
er bæði hugdjarfur og hugmynda-
ríkur þótt hann sé grænn og eyrun
á honum í laginu eins og lítil
trompet. Það sem enginn reiknaði
meö (nema náttúrlega við áhorfend-
ur) er að tröllið og prinsessan verða
soldið skotin hvort í öðru þrátt fyr-
ir útlitsmuninn og hvað er þá til
bragðs að taka? Fallegar prinsessur
geta ekki elskað ljót tröll eða hvað?
Ævintýrið um Skrekk vekur upp
minningar um ýmis önnur ævin-
týri, kvikmyndir og sögur. Sagan
um Fríðu og dýrið kemur vissulega
upp í hugann, þótt allur texti, per-
sónusköpun og svo maður tali nú
ekki um endinn, sé af allt öðru tagi.
Einnig dettur manni í hug leikgerð-
in af bamabókinni vinsælu Skila-
boðaskjóðunni eftir Þorvald Þor-
steinsson. Hún gerist í ævintýra-
skóginum eins og Skrekkur og not-
ar persónur úr þekktum ævintýrum
sem aukapersónur og kómískt punt.
Mest á Skrekkur þó sameiginlegt
með kvikmyndinni The Princess
Bride (1987), ævintýrakvikmynd
sem jafnframt því að vera góð sem
slík gerði nett grín að tegund sinni
(hér eru lika fjölmörg skot á vel-
þekktar Disneymyndir en öll fyrir
ofan beltisstað). Skrekkur er ein af
þessum örfáu bamamyndum sem
fullorðnir hafa líka gaman af. Allur
texti hefur tvöfalda meiningu
þannig að yngri og eldri áhorfendur
hlæja (jafnmikið) en að mismun-
andi hlutum.
Skrekkur er tölvuteiknuð eins og
t.d. Toy Story-myndirnar tvær en
fer langt fram úr þeim í tækni.
Persónurnar í Skrekk eru kannski
ekki raunverulegar (enda hvað væri
skemmtilegt við það?) en svo lifandi
og hver andlitsdráttur svo listileg-
ur, hver hreyfing svo ekta að það út
af fyrir sig er ævintýralegt. En ef
tæknin væri það eina sem gerði
myndina athyglisverða hefði hún
ekki haldið manni jafnhugfóngnum
og hún gerði. Sagan er einfaldlega
skemmtileg og afskaplega vel skrif-
uð. Handritshöfundarnir, Ted
Elliott og Terry Rossio, passa að
handritið höfði til allra aldurshópa
og aðrir handritshöfundar barna-
mynda ættu að geta lært sitthvað
um húmor af að horfa á Skrekk -
hér er nefnilega ýmislegt annað á
borð boriö en prump, kúkur og piss
(þótt það sé vissulega með líka).
Ég verð að játa að ég valdi, í sam-
ráði við ungan fórunaut minn, að
sjá myndina með ensku tali og tal-
setningin er frábær. Mike Myers
talar fyrir Skrekk og gefur honum
léttan skoskan hreim sem fer prýði-
lega við útlitið og leikur hann
hreint og beint og án tilgerðar.
Cameron Diaz leikur prinsessuna
Fíónu, er fín blanda af ofurróman-
tískri stúlku og töffara og alls ekki
öll þar sem hún er séð. John Lith-
gow leikur lávarðinn fúla og gerir
hann snobbaðan og heimskan og
afar hlægilegan. En stjömuna fær
Eddie Murphy sem leikur hinn
kjaftaglaða Asna og er svoooo fynd-
inn. Ég vona að íslenska talsetning-
in sé jafnskemmtileg.
Sem sagt: Alvöru fjölskyldumynd,
meira að segja getur unglingurinn
farið með. Góða skemmtun!
Raddir: Mike Myers, Eddie Murphy,
Cameron Diaz, John Lithgow o.fl. Leik-
stjórar: Andrew Adamson og Vicky Jen-
son. Handrit: Ted Elliott og Terry Rossio,
eftir bók William Steig Tónlist: Harry
Gregson-Williams, John Powell.