Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2001, Síða 4
- í opna flokknum
1. Magnús Lárusson .............77
2. Brynjar Hlíðberg ............62
3. Bogi G. Árnason .............47
4. Ragnar Vilhjálmsson .........39
5. Guðmundur Sigurðsson ........35
5. Siguröur Gylfason ...........35
7. Péturína L. Jakobsdóttir ....32
8. Þórarinn Karlssson ..........31
9. Jón Tryggvi Arason ..........30
10. Svava Halldórsdóttir .......29
11. Andri Thór Birgirsson ......25
12. Birgir Árnason .............22
13. Jón Þór Sigurðarson ........19
14. Eva A. Sigurðardóttir ......15
15. Arnar Helgi Hlynsson .......13
Urslit
Staðan
- eftir Qóra keppn-
isdaga, 14 umferöir
1. Steinar Freyr Gislason .....233
2. Magnús Lárusson ............202
3. Brynjar Hlíöberg ...........200
4. Bogi G. Árnason ............184
5. Ragnar Vilhjálmsson ........122
6. Þórarinn Karlsson ..........105
7. Guðmundur Sigurðsson........103
8. Jón Tryggvi Arason .........100
9. Svava Halldórsdóttir ........97
- 10. Péturína L. Jakobsdóttir .... 96
11. Eva A. Sigurðardóttir ........91
Það er erfitt að vera fremstur með keppinautana á hælunum en það fær sigurvegari keppninnar, Magnús Lárusson, að reyna hér. DV-myndir JAK
Hörkukeppni
- Qórði keppnisdagur íslandsmeistaramótsins í körtuakstri
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2001
Magnús Lárusson og Péturína L. Jakobsdóttir, sigurvegarar keppninnar,
voru að vonum ánægð með árangur sinn. DV-mynd JAK
Péturína L. Jakobsdóttir er frá Skagaströnd og eina æfingaaðstaöa hennar
í þar er niðri á bryggju. Þrátt fyrir þessa lélegu aðstööu hefur henni gengið
vel í kartinu og nýtur hún stuðnings sveitunga sinna. DV-mynd JAK
íslandsmeistaramótinu í körtu-
akstri var fram haldið á laugardags-
kvöldið og þá voru að vanda eknar
fjórar umferðir íslandsmeistara-
mótsins.
Keppnin var mjög hörð og spenn-
andi enda gekk mikið á í brautinni.
Fyrir þessa keppni var Steinar Freyr
Gíslason með afgerandi forystu í
stigakeppni íslandsmeistaramótsins.
Munaði 106 stigum á Steinari Frey
og Magnúsi Lárussyni sem var næst-
ur honum að stigum.
Brotinn bíll og brotin bein
Steinar Freyr var í miklum
keppnisham í fyrstu umferð dagsins
og ók hann á tvo keppendur. Annar
þeirra kastaðist út úr brautinni og
varð að hætta keppninni. Fyrir þetta
hlaut Steinar Freyr 10 sek. refsingu
sem minnkaði verulega sigurmögu-
leika hans. Stuttu síðar, í sömu um-
ferð, ekur Steinar Freyr fyrir annan
keppanda, þeir rekast saman svo að
bíU Steinars Freyrs snýst fram fyrir
hinn keppandann sem ekur yfir
Steinar Frey og skilur körtuna hans
eftir óökufæra og Steinar Frey með
brotin bein.
Steinar Freyr varð því að hætta
keppni og náði hann einungis tveim-
ur stigum þennan keppnisdag.
Erfitt á toppnum
Magnús Haukur Lárusson naut
góðs af hrakförum Steinars Más og
sigraði hann að þessu sinni. Tókst
honum að minnka stigamuninn nið-
ur í 31 stig og hleypa með því spennu
aftur í íslandsmeistaramótið.
„Þetta var svolítið erfið keppni,
erfitt að vera alltaf fremstur, en samt
góð og skemmtileg," sagði Magnús.
„Það má segja að ég hafi grætt svolít-
ið á óheppni annarra keppenda eins
og t.d. Steinars en hann hefur verið
mjög sigursæll í keppnum sumars-
ins.
Steinar stakk okkur af í síðustu
keppni þvi þá áttum við í dálitlu
brasi, ég, Brynjar og Bogi. Þá feng-
um við fá stig en núna eru möguleik-
arnir meiri á að ná titlinum."
Lurkum lamin
Péturína Laufey Jakobsdóttir náði
bestum árangri stúlknanna í kartinu
en hún sigraði í kvennaflokki.
„Keppnin í dag var mjög góð en þetta
er þriðja keppnin í röð sem búlinn
klikkar í þriðju umferð og ég dett
út,“ sagði Péturína eftir keppnina.
„í fyrstu tveimur umferðunum
var ég fyrst í kvennaflokknum og í
þriðja sæti opna flokksins en svo bil-
aði bíllinn i þriðju umferð. Ég ætla
að vona að aút sé þegar þrennt er. í
go-kart-keppnum fmnst mér erfiðast
að halda haus því ég fæ svo í hálsinn
við aksturinn.
Ég hef tekið þátt í mörgum
íþróttagreinum en þetta er langerfið-
asta greinin sem ég hef tekið þátt í.
Það er ótrúlegt og fáir trúa því en
daginn eftir er maður allur lurkum
laminn og að drepast úr strengjum.
En ef maður sigrar er þetta hálf-
gerð sigurvíma svo að það er allt í
lagi,“ bætti Péturína við. Því má
bæta við að ekki er óalgengt að
körtuökumenn rifbeinsbrjóti sig við
aksturinn, álagið er svo mikið.
Æfir á bryggjunni
„Ég byrjaði að keppa í kartinu í
vor og er búin að taka þátt i öllum
keppnum sumarsins," sagði
Péturína. „Mér hefur gengið mjög
vel, er búin að vinna allar keppnim-
ar í sumar, nema þá fyrstu. Þá var ég
að keyra brautina í fyrsta skiptið og
kunni ekkert á bílinn.
Ég var búin að æfa mig aðeins að
keyra bílinn á bryggjunni heima á
Skagaströnd, í flotbúning. Nei, smá
spaug.
Allir á Skagaströnd eru mjög
áhugasamir um kartið og fylgjast
með Mótorsportþáttunum á Stöð 2.
Það hafa allir mjög gaman af þessu
og styðja mig svo að ég fæ að vera i
friði á bryggjunni. Einu skiptin sem
ég kem hingað er til aö keppa og hef-
ur mér gengið mjög vel miðað við
það,“ sagði Péturína kampakát með
sigurinn. -JAK
mm
rm,
■0'
Guðberciur Reynisson var sö Keppa
i kartinu f iyrsta sinn og lenti i
ýmsum hremrmngum. Hér m
tionurn hjalpfið á tætur eftir að hafa
lcnt f arekstfi og veltu á fyrsta hring
sinumf keppninni. ÐV-mynd JAK