Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Síða 1
15
Winnie að koma
sér í leikform
Klæöist Winnie leikmannabúningi
KR á ný á næstunni?
Sögusagnir um það að David
Winnie, þjálfari KR, myndi taka fram
skóna og spila með liðinu það sem eft-
ir er leiktíðar fengu byr undir báða
vængi í gær þegar kappinn spilaði
með Fjölni, venslafélagi KR, í leik
gegn Sindra. Þetta kemur fram á kr-
ingar.is í gær.
Meiðsli hrjá KR-vörnina þessa dag-
ana og eins hefur árangur liðsins ekki
verið eins og vonir stóðu til. Það er því
von manna í vesturbænum að Winnie
hleypi nýju lífi í íslandsmeistarana í
komandi botnbaráttu. -ÓK
Fedioukine
hættur hjá
Frömurum
Rússinn,
Anatoli Fedi-
oukine, sem
þjálfað hefur
lið Framara í
handboltan-
um síðustu
tvö keppnis-
tímabil, er
hættur störf-
um hjá félag-
inu og mun halda af landi brott eft-
ir helgina. Ástæðan fyrir brott-
hvarfl hans mun ekki alveg á
hreinu, en haft var eftir honum í
fréttum á einni sjónvarpsstöðinni
í gærkvöld að hann teldi að brotn-
ir hefðu verið á sér samningar. Að
sögn Hermanns Bjömssonar, for-
manns handknattleiksdeildar
Fram, er það ekki rétt. „Málið
snýst fyrst og fremst um það að
gerður var þriggja ára samningur
við Fedioukine fyrir síðasta
keppnistímabil, þannig að hann á
enn þá eftir tvö ár af samningnum.
Við hittumst í vor áður en hann
fór heim í frí til Rússiands og
óskaði hann þá eftir því að stytta
samninginn um eitt ár.“
Óformlegt samkomulag
„Ég var tilbúinn til þess að
semja við hann um það gegn því
að hann tæki þá einnig að sér
þjálfun kvennaflokksins. Þetta var
aðeins óformlegt samkomulag og
með það fór hann út. Síðan kemur
hann aftur til landsins um síðustu
mánaðamót og tekur þá strax tii
starfa við þjálfun karlaflokksins
en kannast þá ekkert við að hafa
samið um þjálfun kvennaflokks-
ins. Þá var honum gerð grein fyrir
því að svona gangi málin ekki fyr-
ir sig og að skoða þurfi málið upp
á nýtt þar sem forsendur væru
breyttar. Við hittumst síðan á
fostudaginn og þá setur hann mér
afarkosti sem hann vildi fá svör
við á mánudaginn. Ég gerði honun
grein fyrir því að þriggja ára
samningurinn væri enn í gildi og
hann gæti ekki vinsað úr honum
það sem honum hentaði. Ég tél að
við höfum staðið við okkar hluta
af gildandi samningi sem er klár-
lega til tveggja ára til viðbótar.
Þannig standa málin í dag,” sagði
Hermann.
Hefur komið illa aftan aö
okkur
Spurður um framhaldið sagðist
Hermann ekki sjá annað i stöð-
unni en að Fedioukine fari frá fé-
laginu. „Hann hefur komið illa aft-
an að okkur og við sitjum uppi
þjálfaralausir, bæði hjá karla- og
kvennaflokki. Við erum þegar
farnir að leita fyrir okkur með
nýja þjálfara og vonandi kemst
það á hreint um helgina. Við héld-
um fund með leikmönnunum í
gær og þeir standa allir sem einn
með okkur í þessari baráttu,”
sagði Hermann.
Ekki náðist í Anatoli Fedi-
oukine í gærkvöld til að heyra
hans hlið á málinu. -ek