Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.2001, Qupperneq 3
lb
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 200DI
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2000
17
Sport
Ísland-Pólland 1-1
Árni Gautur Arason, markvörður Það reyndi í raun aldrei á hann í leiknum fyrir utan sjálfsmarkið og ber /j%, hann vissa sök á því marki. Virtist stundum frosinn í línunni en gerði engin f önnur stór mistök og greip á stundum vel inn í.
Birkir Kristinsson, markvörður Var traustur og tók flest úthlaup ágætlega. Einu sinni reyndi á hann á milli hsffi1 stanganna og þá varði hann vel. Æ
Auðun Helgason, bakvörður Einn slakasti leikur hans í langan tíma. Virkaði ekki nógu traustur í vörn- » inni og lítið kom út úr honum sóknarlega. Átti það lika til að tapa boltanum gj* á slæmum stööum. Aukaspyrnur og löng innköst tókust þó stundum vel og Sjffi ein aukaspyma hans skapaði gott færi.
Eyjólfur Sverrisson, miövöröur Firnasterkur í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hann vann mörg ná- vígi í teignum og var oftar en ekki réttur maður á réttum stað. Átti einnig stór- 9J an þátt í jöfnunarmarkinu þegar hann vann návígi í teignum af miklu harðfylgi Fp og kom þannig boltanum á Marel sem átti stoðsendinguna á Andra.
Hermann Hreiðarsson, miðvörður Skoraði afar slysalegt sjálfsmark snemma í leiknum og virtist eiga dálítið BBS erfltt með að fmna sig eftir það. Honum óx hins vegar verulega ásmegin í Æ seinni hálfleik og átti þá m.a. nokkra góða spretti upp völlinn. f
Arnar Þór Viðarsson, markvörður Það hefði mátt koma meira út úr Arnari. Hann var þó þokkalega virkur /ftfc sóknarlega en var stundum í vandræðum í vörninni. Geröi þó engin stór j mistök.
Heiðar Helguson, kantmaður Hreiöar spilaði sem hægri kantmaður sem er kannski ekki hans staða. Hann kann greinilega betur við sig í framlínunni en átti þó tvö ágætis færi /Ejr sitt í hvoruni hálfleiknum. Hann skilaði þó hlutverki sínu í vörninni ágæt- lega.
Helgi Kolviðsson, miðjumaður Átti einkar rólegan fyrri hálfleik og féll nokkurn veginn í skuggann af Pétri 4% og Arnari Grétarssyni, samherjum sínum á miðjunni. Gerði þó fá mistök en var ekki mikið áberandi í leik íslenska liðsins.
Jóhannes K. Guðjónsson, miðjumaður Þessi ungi kappi hefur þroskast gífurlega í leik sínum og á hann svo sannarlega sæti sitt í landsliðinu skilið. Hann lék síðari hálfleikinn og var gífurlega öruggur 2® í sinum aðgerðum, sem og mjög óhræddur við að skjóta á markið. Vr
Pétur Marteinsson, miðjumaður Pétur barðist eins og ljón allan leikinn í nýrri stöðu hjá landsliðinu. Hann - hélt lífi í íslenska liðinu og var duglegur að drífa sina menn áfram. Pétur er (E máttarstólpi í íslenska liðinu og virðist skipta litlu hvaða stöðu hann leik- ur.
Arnar Grétarsson, miðjumaður Arnar lék frábæriega fyrri hálfleik þar sem hann stjómaði flestum .pfc aðgeröum liðsins. í þeim síðari bar minna á honum en hann var samt íQ| traustur í sinni stöðu á miðjunni við hlið Péturs. Líklega einn besti landsleikur Arnars í langan tíma.
Tryggvi Guðmundsson, kantmaður Tryggvi náði sér ekki á strik að þessi sinni og var tekin út af á 60. mínútu. BH Hann átti þó ágætis rispur upp vinstri kantinn i fyrri hálfleik en þær voru allt of fáar og þess á milli sást hann ekki.
Andri Sigþórsson, framherji Andri var einn í fremstu víglínu og var oft á tíðum einmana. Hann var að paea vanda mjög duglegur en langt frá því að eiga sinn besta leik. Hann gerði þó Æ jöfnunarmarkið og það skipti sköpum. Framherjar eiga að skora og það pl gerði hann að þessu sinni.
Birkir Kristinsson (48., Ámi Gautur Arason), Jóhann B. ”**“ ***“*—**““ Guðmundsson (76., Heiðar Helguson), Jóhannes Karl Guðjónsson (46., Helgi Kolviðsson), Marel Baldvinsson (60., Tryggvi Guðmundsson), Ólafur Stígsson (87., Auðun Helgason) Marel Baldvinsson átti góða innkomu í sínum fyrsta landsleik og lofar góðu. Han gaf sendinguna á Andra sem gaf af sér markið. Jóhannes B. Guðmundsson náði ekki að setja mark sitt á leikinn enda fékk hann skamman tíma inn á vellinum. Ólafur Stígsson lék i nokkrar mínútur og náöi hann að stöðva tvær sóknarlotur Pólverjanna ágætlega. -Ben/esá/HI
Hálfleikur: 0-1. Leikstadur: Laugardalsvöllur. Áhorfendur: 4345.
Dómari: Mario Van Der Ende (3). Gceói leiks: 3.
Gul spjöld: Pétur, Heiðar (íslandi) - Bak, Zewlakow (Póllandi)
Skot: 9-10 (Jóhannes Karl 4, Heiðar 2, Amar G., 2, Andri) Skot á mark: 5-5 (Jóhannes 2, Heið-
ar, Amar G., Andri) Varin: 3-3 (Ámi, 33%, Birkir, 100%).
Aukaspyrnur fengnar: 27 (Pétur 5, Heiðar 4, Hermann 4, Eyjólfur 3, Auðun 2, Andri
2, Marel 2, Arnar Þór, Amar G., Helgi, Tryggvi, Jóhannes Karl) Aukaspyrnur gefnar:
21 (Pétur 4, Eyjólfur 3, Marel 3, Auðun 2, Amar G., 2, Hermann 2, Jóhannes Karl 2,
Heiðar, Andri, Jóhann B.) Horn: 3-3. Rangstöður: 2-7. (Tryggvi, Andri)
Mörkin: 0-1 Hermann Hreiðarsson, sjálfsmark (16., Arkadiusz Bak gaf langa send-
ingu frá miðju vallarins sem var ætluð framhetja Pólverja en Hermann kom inn í send-
inguna og ætlaði að skalla aftur á Áma Gaut, markvörð, sem var kominn langt frá
markinu og fór boltinn yfir Árna og í markið), 1-1 Andri Sigþórsson (85., Eyjólfur
kemur boltanum til Marels þrátt fyrir að hafa tvo Pólverja í sér og rennir Marel
boltanum til Andra sem afgreiðir knöttinn örugglega í markið.)
Maður leiksins: Pétur Marteinsson, íslandi
DV-mynd Hilmar Þór
Eyjólfur Sverrisson er hér f
hörkubaráttu í vítateig Pól-
verja rétt áður en honum
tekst að koma boltanum frá
sér en í kjölfarið skoraði
Andri Sigþórsson jöfnunar-
mark ístends.
Á efri myndinni til hægri er
fram hjá Jerzy Dudek, mark-
verði Pólverja, en sá síðar-
nefndi átti mjög góðan leik.
Til vinstri má sjá skrautlega
íslenska áhorfendur á leikn-
um.
Pétur Marteinsson er svo í
eldlínunni á myndinni til
hægri en hann átti góðan
leik í gær.
Islenska landsliðið náði að knýja fram jafntefli gegn Pólverjum á Laugardalsvelli í gær:
Það leit ekki vel út fyrir íslenska
landsliðið í knattspymu lengi vel í
veðurbliðunni í Laugardalnum í gær.
Það var undir gegn Pólverjum eftir af-
ar klaufalegt sjálfsmark og stefndi í
að leikurinn myndi tapast á ódýru
marki, rétt eins og í Varsjá í síðasta
leik liðanna. Andri Sigþórsson kom
þó liðinu til bjargar og skoraði jöfn-
unarmarkið skömmu fyrir leikslok.
Lið Pólverja er gífurlega sterkt og
sást það vel á leik þeirra í gær. í lið-
inu eru margir menn sem voru
grimmir í vörninni og klárir að skapa
sér færi. Enda réðu þeir lögum og
lofum í fyrri hálfleik þrátt fyrir
fáeinar tilraunir íslenska liðsins.
Andri átti eitt besta færi fyrri hálf-
leiks þegar hann skallaði rétt fram
hjá markinu eftir sendingu Eyjólfs
Sverrissonar.
Tveimur mínútum síðar kom svo
sjálfsmarkið sem var ekki síður sök
Árna Gauts í markinu en Hermanns
Hreiðarssonar sem er skráður fyrir
markinu. Úthlaup hans var síður en
svo skynsamlegt þó svo að skalli Her-
manns væri ekki af bestu gerðinni.
Heiðar Helguson komst í frábært
færi á 22. mínútu eftir gott samspil
við Andra en markvörður Pólverja,
Jerzy Dudek, varði stórkostlega. Var
hann með betri mönnum síns liðs.
Besta færi Pólverja til að auka mun-
inn kom skömmu fyrir leikhlé þegar
Amar Þór Viðarsson þurfti að bjarga
á marklínu. Pólverjar tóku horn og
eftir mikið basl í þvögunni á miðjum
teig spýttist boltinn í átt að markinu
en Arnar Þór kom í veg fyrir aðrar
ófarir. Það virtist sem reyndar hefði
verið brotið á Árna Gaut en Mario
van der Ende, dómari leiksins, dæmdi
ekkert.
Fyrsti stundaríjórðungur síðari
hálfleiks einkenndist af mikill óreiðu
í leik beggja liða enda mikið af vara-
mönnum komið inn á völlinn. Nokk-
uð dró úr leik Pólverja og íslendingar
gengu á lagið. Pétur Marteinsson átti
góðan skalla að marki eftir auka-
spyrnu Auðuns Helgasonar og Her-
mann Hreiðarsson missti naumlega af
góðri sendingu inn á teig gestanna.
En ekkert virtist ganga, Jerzy
Dudek var feiknasterkur í marki Pól-
lands sem fyrr, og strákarnir voru
farnir að missa móðinn. En enn var
barátta í liðinu. Eyjólfur Sverrisson
fékk boltann inn á teig eftir mistök
Kaluzny Radoslaw og kom honum
áfram þrátt fyrir vera grýtt í jörðina
af Pólverjanum. Eitthvað sem verð-
skuldaði víti og brottvikningu Rados-
law. En van der Ende lét flautuna
vera og upp úr þessari sókn kom
mark íslands.
Islenska liðið var öðruvísi skipu-
lagt en venjan hefur verið hjá Atla
landsliðsþjálfara og kom sú breyting
ekki illa út í fyrstu tilraun. Ætla má
að Atli bryddi upp á svipuðu leikkerfi
gegn Tékkum sem leika ekki ósvipaða
knattspyrnu og Pólverjar.
Hafa verður í huga að í íslenska lið-
ið vantaði marga lykilmenn og eru úr-
slit leiksins því mjög ásættanleg, enda
lið Póllands sterkt. Innkoma nýju
leikmannanna, sérstaklega Jóhannes-
ar Karls, var mjög jákvæð og svo var
gott að sjá að baráttugleði íslenska
landsliðsins er enn mikil þrátt fyrir
misjafnt gengi að undanfórnu.
-esá
Sport
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari um leikinn gegn Póllandi:
Gífurlegur karakter
„Þetta var mikil barátta og menn
lögðu sig alla í þennan leik. Það eru
margir strákar frá sem hafa verið að
spila með þessum hóp en þeir sem
komu í staðinn lögðu sig 100% fram.
Þetta lið er i toppklassa og þeir verða
sennilega fyrstir til að tryggja sig í
næstu heimsmeistarakeppni," sagði
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari eftir
leikinn.
- Það hlýtur að hafa verið slæmt að
fá á sig þetta slysalega mark.
„Já, heldur betur. Við erum hins
vegar frægir fyrir að gefa svona mörk.
En þetta getur alltaf komið fyrir, sér-
staklega í vindinum sem var í fyrri
hálfleik og stóð á okkar mark. Þegar
svona gerist þá þýðir ekki að leggja ár-
ar í bát. Við héldum áfram að bæta við
og spiluðum fyrri hálfleikinn af krafti.
Menn börðust eins og Ijón og þjöppuðu
sér saman og áttum skilið að jafna. Við
vitum að þessi karaktermörk eru nán-
ast óendanleg og við getum endalaust
bætt við okkur, sérstaklega á síðustu
mínútunum. Við eigum að hafa og
munum verða með sterkari karakter
en flest önnur lið.“
- Þið voruð undir töluverðri pressu
í lok fyrri hálfleiks.
„Vindurinn hafði þar nokkur áhrif
en hann var meiri í fyrri hálfleik en
þeim seinni. Þeir voru að skrúfa auka-
spyrnur og homspymur mjög vel inn á
teiginn og þar er mjög erfitt að reikna
slíka bolta út. Menn voru svo farnir að
bíða eftir að flautað væri til leikhlés og
þá gerist þetta. Við komumst þó hjá
því að fá á okkur mark á þessum kafla
og það skipti miklu máli þegar út í
seinni hálfleikinn var komið. Þá vor-
um við ákveðnir í að bæta við og vor-
um vissir um að með eðlilegri heppni
gætum við jafnað eða jafnvel unnið.“
- Hvernig fannst þér innkoma nýju
mannanna?
„Frábær. Þeir lögðu sig alla í leik-
inn. Jóhannes Karl var mjög sterkur
og Marel setti mikla pressu á varnar-
menn þeirra og lagði upp mark. Ólafur
Stígsson og Jóhann B. stóðu sig einnig
mjög vel.“
- Býstu við að halda sama leikkerf-
inu gegn Tékkum?
„Mjög líklega. Grunnurinn í þessu
kerfl er í raun 4-4-2 og svo er þetta
visst tilbrigði. Við lékum þetta svona
þar sem Pólverjarnir eru með mjög
stóra og líkamlega sterka framlínu-
menn. Miðjan var djúp og við notuðum
Pétur Marteinsson sem hindrun fyrir
framan vörnina og það kom mjög vel
út. Um leið og miðjumaður stingur sér
fram erum við í raun komnir með 4-4-
2 og getum stokkið í það kerfi líka.“
r Hvaða vonir gerirðu þér um
Tékkaleikinn að loknum þessum leik?
„Við eigum mikið inni. Við lékum
mjög illa á móti Tékkum í vetur en það
er mikil stígandi I liðinu og við sýnum
það á móti toppklassaliði í Evrópu þeg-
ar vantar 6-7 fastamenn i liðið. Þetta
ber vott um bjarta framtíð og þessir
ungu strákar munu koma sterkir inn
fyrir undankeppni næsta stórmóts.
Tékkaleikurinn verður ofboðslegur
leikur, ég finn það á mér. Reyndar
verða allir þrír leikirnir sem við eig-
um eftir rosalegir. Okkar styrkur ligg-
ur í gifurlegum karakter og við verð-
um að spila mjög agað og vera þolin-
móðir. Ef við höfum yfirburði á þess-
um draumasviðum þá getum við náð
langt.“ -HI
Hvaö var sagt eftir leikinn?
Markið óheppni
„Er svona þokkalega sáttur við
jafnteflið þar sem ég hefði viljað
vinna þennan leik. Við náðum smá-
pressu á þá í restina og hefði verið
gaman að skora eitt í viðbót. Miðað
við hvernig þessi leikur var þá er
jafntefli kannski sanngjörn úrslit.
Þetta mark sem við fáum á okkur er
bara óheppni og ekkert við því að
gera. Það hefur verið grýla að skora
gegn Póllandi og því ágætt að setja á
þá núna. Líka mikilvægt fyrir okk-
ur að ná að jafna og sýna það að við
getum snúið svona leikjum við.
Þessi leikur hjá mér er öfugt við
það sem ég hef verið að gera úti þar
sem ég hef verið að leika vel en ekki
fundiö markið en núna var ég ekki
að spila neinn toppleik en skora. Ég
var að spá í að biðja um skiptingu
um tíma þar sem ég var kominn
með blöðrur, en ég var í nýjum
skóm, en sem betur fer gerði ég það
ekki,“ sagði Andri Sigþórsson.
Ólafur Stígsson
„Þetta var mjög gaman. Ég bjóst
alveg eins við því að fá að koma inn
á fyrst maður var valinn á annað
borð. Ég átti kannski ekki von á því
að spila sem hægri bakvörður en ég
hef spilað þar svo sem áður og þekki
það vel.
Ef það gengur vel áfram hjá
manni þá er aldrei að vita nema
maður fái fleiri tækifæri.“
Hemann Hreiðarsson
Það er ágætt að taka þetta út í
vináttuleik. Ég varð að fara í bolt-
ann því annars hefði hann dottið
fyrir aftan mig. Svona gerist þetta
bara og maður verður að hrinda
þessu frá sér. Pólska liðið hefur
verið að gera ágæta hluti að undan-
fornu og þeir fá nánast bara eitt gott
færi í leiknum. Vonandi erum við
að ná góðum stöðugleika. Við átt-
um góðan leik á móti Búlgaríu og
misstum það í jafntefli. Þannig að
við erum búnir að eiga tvo flna leiki
gegn sterkum þjóðum. Það er ljóst
að við þurfum níu stig i þeim þrem-
ur leikjum sem við eigum eftir.
Jerzen Engel, þjálfari
Póllands
Þetta var kannski ekki toppleikur
hjá hvorugu liðinu. Báðir þjálfarar
fengu gott tækifæri til að skoða
unga og efnilega leikmenn í sínum
liðum. Ég gat ekki komið með alla
mína bestu leikmenn þar sem mikið
er um meiðsli I okkar herbúðum.
Ég tel að þjálfari íslenska liðsins
sé að gera flna fína hluti með liðið.
Maður sér framfarir hjá liðinu á
hverju ári. íslenska liðið á enn þá
möguleika að komast á HM og það
er eitthvað sem er nýtt fyrir ísland.
Það eru margir mjög svo efnileg-
ir íslenskir leikmenn í liðinu.
Eyjólfur Sverrisson er mjög góður
leikmaður. Síðan vantaöi í liðið
leikmenn eins og Eið Guðjohnsen.
Þá er Jóhannes Karl Guðjónsson
góður leikmaður. Það er mjög gott
að þjálfarinn er að gefa mörgum
ungu strákum tækifæri með lands-
liðinu því þeir lofa mjög góðu. -Ben
Birkir Kristinsson
fagnaði 37 ára afmæli
sinu í gær og kom inn
á fyrir Árna Gaut Ara-
son á 48. mínútu leiks-
ins. Hann fékk einkar
góðar viðtökur áhorf-
enda og tóku sumir til
við að syngja afmælis-
sönginn, honum til
heiðurs.
Bland i poka
Mark Andra Sigþórssonar í gær
var það fyrsta sem islenska landsliö-
ið skorar gegn því pólska í landsleik
en leikurinn í gær var sá fjórði í röð-
inni. Fyrir mark Andra var marka-
talan úr þessum leikjum 5-0 Pólverj-
um í hag.
Pólskir áhorfendur voru gífurlega
áberandi á áhorfendapöllunum á
Laugardalsvelli í gær. Mættu íslensk-
ir áhorfendur taka sér þá til fyrir-
myndar en þrátt fyrir að vera mun
færri gáfu þeir íslenskum áhorfend-
um ekkert eftir þegar kom að að sýna
sínu liði stuðning í verki.
íslenska landsliðið á nú fram undan
lokasprettinn i undankeppni heims-
meistaramótsins sem fer fram í Jap-
an og Suður-Kóreu á næsta ári. Þann
1. september veröur tekið á móti
Tékkum í Laugardalnum en svo verð-
ur haldið utan til Norður-írlands
nokkrum dögum síðar til að keppa
við heimamenn þar. Þátttöku íslands
í undankeppninni lýkur svo i Dan-
mörku, laugardaginn 6. október.
Hrefna Jóhannes-
dóttir, leikmaður KR í
Símadeild kvenna,
fékk tvo bolta í ein-
kunnagjöf DV-Sports
fyrir sitt framlag í leik
KR og FH á mánudags-
kvöld síðastliðið en
hennar nafn kom ekki
fram. Beðist er vel-
virðingar á þeim mistökum. -esá
i
I
1
1
*
I
i
«
I
I
\
i
|