Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2001, Page 1
15
Miðvikudagur 29. ágúst 2001
Teitur gefur
upp alla von
Teitur Þórðarson, þjálfari
norska liðsins Brann, segir í við-
tali við Verdens Gang að hann sé
búinn að gefa upp alla von um að
hampa norska meistaratitlinum í
ár. Sú von hafi endanlega slokkn-
að eftir 3-2 ósigur gegn Lyn um
síðustu helgi en i leiknum var
Brann komið 3-0 undir eftir
stundarfjóröung.
Teitur var afar vonsvikinn eft-
ir þann leik og sagði að þeir
hefðu dæmt sig úr leik sjálfir.
„Við höfum sýnt meiri stöðug-
leika en í fyrra en þessi hræði-
legi leikur eyðileggur mikið. Nú
verðum við að berjast um annað
sætið, sem gefur okkur rétt til að
keppa um sæti í meistaradeild-
inni.“ Hann telur að baráttan
um meistaratitilinn standi nú á
milli Rosenborg, Viking og Lille-
ström. -HI
Hafdís er
komin heim
Hafdís Hinriksdóttir, hand-
knattleikskona úr FH, sem hafði
hug á að leika í Noregi á næstu
leiktíð, er hætt við og er komin
heim. Hafdís hafði hug á að leika
með norska liðinu Træff en fann
sig ekki þar.
Hafdís mun leika með FH-ing-
um á opna Reykjavíkurmótinu
um næstu helgi og aUar líkur
eru á að hún leiki með liðinu í
vetur þó að það sé ekki frágeng-
ið ennþá. -HI
De Boer
kærir UEFA
Frank de Boer, leikmaður
Barcelona, hefur ákveðið að
kæra evrópsk'a knattspyrnusam-
bandið (UEFA) fyrir að hafa
klúðrað lyfjamáli hans. Leik-
maðurinn var dæmdur i árs
keppnisbann fyrir notkun stera-
lyfsins nandrolone en eftir frek-
ari prófanir var bannið stytt all-
verulega og getur hann byrjað að
spila þann 1. september. -ÓK
Helgi valinn sá
bestií ágúst
íþróttafréttamenn norska Dag-
blaðsins hafa valið Helga Sig-
urðsson, framherja Lyn, leik-
mann ágústmánaðar. Helgi fékk
6,33 í meðaleinkunn eins og mið-
vallarleikmaðurinn Örjan Berg
hjá Rosenborg en Helgi hefur oft-
ar fengið hærri einkunn en Örj-
an og er þvi á toppnum hjá blað-
inu. Eftir erflða endurkomu í
fyrsta leik í norska boltanum
hefur Helgi slegið í gegn og í
leikjunum gegn Stabæk á úti-
velli og Brann á heimavelli hef-
ur hann verið valinn maður
leiksins og fengið einkunnina 8
sem þýðir mjög góður á norska
kvarðanum. -GÞÖ
Blikastúlkurnar Margrét Akadóttir, Hjördis
Þorsteinsdóttir, Dúfa Ásbjörnsdóttir,
Sigrún Óttarsdóttir og Anna
Þorsteinsdóttir fagna hér
íslandsmeistaratitlinum í gær.
DV-myndir ÞÖK
m
mmSf'
sr'
Wtotá
- titillinn til Blikastúlkna
Breiðablik varð í gær ís-
landsmeistari í kvennaknatt-
spyrnu annað árið í röð og í
14. sinn frá upphafi. Jörundur Áki
Sveinsson þjálfari, sem hér til vinstri
fær faðmlag frá konu sinni, Herdísi
Sigursteinsdóttur, þegar titillinn var í
höfn, var ánægður með sínar stelpur í
sumar.
„Það er þungu fargi af mér létt og
hópnum öllum. Ég fann það fyrir leik-
inn að það var spenna í hópnum því
við vissum hvað var mikið húfi og
vildum klára þetta í þessum leik. Það
er búið að vera erfitt að berja i stelp-
urnar trúna og þetta stóð vissulega
tæpt í dag. Við erum með stóran hóp
því sem betur fer höfum við
nóg af ungum og upprenn-
andi leikmönnum í Kópavogi
sem hafa aldeilis staðið sig þegar við
höfum þurft á þeim á halda. Frammi-
staða þeirra gefur okkur góð fyrirheit
um framtíðina. Ef ég á að vera alveg
hreinskilinn þá er þessi uppskera í ár
og í fyrra ekki alveg það sem ég hafði
hugsað mér fyrir tveimur árum með
þennan mannskap. Ég hafði samt
alltaf trú á þessum stelpum, við höfum
góða leikmenn og þær hafa verið alveg
ótrúlegar í sumar,“ sagði Jörundur
Áki Sveinsson, þjálfari íslandsmeist-
ara Breiðabliks í kvennaknattspyrnu.
-ÓÓJ
Sterkt svissneskt lið
Friðrik Ingi Rúnarsson, lands-
liðsþjálfari i körfubolta, hefur kall-
að þá Guðlaug Eyjólfsson úr
Grindavík og Magnús Þór Gunn-
arsson úr Keflavík inn í landsliðs-
hópinn fyrir leikina gegn Sviss-
lendingum og írum i undankeppni
Evrópumóts landsliða í körfubolta.
Sigurður Þorvaldsson úr ÍR lék
gegn Finnum á laugardaginn og er
áfram í hópnum. Þessir leikmenn
koma í stað þeirra Fannars Ólafs-
sonar og Sævars Sigurmundssonar
sem farnir eru tO náms í Banda-
ríkjunum.
Leikurinn gegn Sviss verður í
Njarðvík í kvöld klukkan átta en
liðið leikur síðan gegn írum á
sama stað klukkan 16.30 á laugar-
dag. Það hefur verið lengi ofarlega
á óskalista landsliðsmannanna að
fá að spila landsleik í Njarðvík þar
sem mönnum þykir gott að spila.
Þrátt fyrir að möguleikar ís-
lenska liðsins til að komast áfram
séu úr sögunni er ljóst að íslenska
liðið getur haft áhrif á hvaða lið
fara upp úr riðlunum en Svisslend-
ingar, írar og Finnar berjast þar
um tvö laus sæti. Friðrik Ingi lítur
á þessa tvo leiki sem eftir er sem
alvöruleiki og þrátt fyrir að bæði
Svisslendingar og írar séu betur
mannaðir en þegar liðin léku í vor
ætli islensku strákamir sér sigur-
leik í þessari keppni. -ÓÓJ
iilllilil