Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2001, Side 4
36
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2001
DV
notaðíE
bílab
Komdu með bílinn þinn
og við auglýsum hann frítt
á netinu á benni.is
Suzuki Grand Vitara, árg. 1998, ek.68
þús. km, gullsanseraður, 5 d., 5 g.,
samlitur, abs, loftp., allt rafdr.
Verð 1.520.000
BÍLL VIKUNNAR
Porsche 928 s4, árg. 1987,8 cyl., 320
hö., ek. 100 þús.km, ssk., leður, sóll., allt
rafdr. Einstakur sþortbíll í toppstandi
Verð 1.690.000, ath. skipti.
) Coroila XLi sedan, special series,
árg. 1996, ek.99 þús.km, 5 g., álf.,
vindskeið, dráttarkúla.
Verð 760.000, gott eintak.
Daewoo Musso Grand-luxe TDI 02/99,
35“ breyttur, ek 32 þús.,km, 5 g„
kastaragrind, tengdamömmubox, litað gler,
dráttarkúla, sóllúga, o.fl o.fl
Glæsilegur bfli. Verð 2.800.000, áhv.2 milij.
Ath skiþti á ódýrari.
VW bjalla, árg.1971, fjólublár, spoilerkit,
cd, álf. o.fl. Mikið yfirfarinn, í góðu standi.
Verð 250.000.
Subaru Legacy stw 2,0, árg. 1998.
ek.61 þús. km, álf., cd, dráttarkúla, vindskeið.
Verð 1.450.000, áhv.960.000.
Honda cbr 900rr, árg. 1999,
ek.12 þús. km. Hrikaleg græja.
Verð 1.070.000, ath. ýmis skipti.
vss ^
h
Dodge Caravan, árg. 1997, ek. 80 þús.
5 d., grænblár, ssk., fjarst. samlæsingar, litað
gler, loftkæling, o.fl.
"““ViB
BÍLASALAN
SKEIFAN
• BILDSHOFÐA 10-
S: 577 2800 / 587 1000
www.benni.is
Breyttur opnunartimi: Virka daga. 10-19 • Laugardaga 11-17
Akureyri: Bilasalan Ós - Hjalteyrargötu 10 - Sími 462 1430
Bílar
TechArt sérhæfir sig í að
gera gott enn þá betra
TechArt er fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í að breyta Porsche-sportbíl-
um í hálfgerða kappakstursbila og
er stærsta og þekktasta fyrirtækið í
breytingum á þessum gerðum bíla.
DV-bílar heimsóttu það í höfuð-
stöðvum þess í nágrenni Stuttgart i
Þýskalandi, en þar er breytt um 300
Porsche-bílum á hverju ári. Hægt er
að gera óskalista en flestar breyting-
arnar eru svokallaðar pakkabreyt-
ingar og er þá nánast öllu breytt,
jafnt að innan sem utan.
Eiga metið á Niirburgring
Tæknimenn TechArt hafa náð
langt í breytingum sínum á
Porsche-bílum og á 911-bíU frá þeim
metið á Niirburgring Nordschleife-
kappakstursbrautinni þegar hann
fór hana á 7.43 minútum. Sá bUl er
alveg hrikalega öUugur, 620 hestöU,
og þótt togið í grunnbílnum hafi
þótt yUrdrifið fyrir bættu þeir rúm-
um 200 Newtonmetrum við það, upp
i 825 Nm. DV-bílar fengu einn bíl að
láni frá þeim, reyndar ekki þennan
en þokkalega sveran bU samt,
Porsche 996 Widebody. Sá bíU hafði
fengið aUsherjar breytingapakka og
nánast ekkert atriði látið óhreyft.
Yflrbyggingin var nánast öll gjör-
breytt, hafði fengið nýjan fram- og
afturenda, með stærri loftinntökum
og vindskeiðum. Búið var að
stækka hliðarsvuntur og loftinntök
fyrir vélina á hliðum bílsins og það-
an kemur því nafnið, Widebody. All-
ar þessar breytingar miðuðu að því
að fá meiri vindpressu á bUinn á
miklum hraða, auk þess að kæla
betur vinnsluhluti eins og bremsur
og vél. BUlinn var á sverari dekkj-
um og með enn öUugri bremsur.
Einnig var búið að endurhanna
fjöðrunarkerfið og lækka hann um
20 mm og auka aU vélarinnar um
10%, úr 300 í 330 hestöU. Girkassinn
var svokallaður „Shortshift" frá
Porsche, með styttri hreyfingum á
milli gíra. Loks hafði bíllinn fengið
aUsherjar yfirhalningu á innrétt-
ingu sem var öU úr klæðskera-
sniðnu leðri, rauðu og svörtu, og
hljómtæki er samsvöruðu bílnum.
Athygli vakti hversu vel var frá
þeim gengið og nánast engu fórnað
af því litla plássi sem er til ráðstöf-
unar í þessum bílum.
Á200 +
DV-bUar höfðu þennan bíl til ráð-
stöfunar í einn sólarhring og er
óhætt að segja að sá tfmi var nýttur
tU hins ýtrasta. Nálægt Stuttgart er
einn best hraðbrautarkaUi landsins
á Autobahn A81, með löngum og
beinum köUum. Þar settum við bíi-
inn í 276 km hraða með tvo i bílnum
og átti hann þá enn eitthvað eftir.
Þeir sem hafa ekið yfir 200 km
hraða vita hvað hver kUómetri í
hraðaaukningu skiptir miklu máli
eftir það. Allt umhverfi rennur sam-
an í einn punkt fyrir framan bUiim
og vindhljóð nánast yfirgnæfir hljóð
frá vél á 8000 snúningum. Það er
eins og sumir bUar léttist aUir og
maður fær það á tilfinninguna að
maður þurU bara að toga í stýrið tU
að þeir taki Uugið, en ekki þessi
bUl. Vindpressan gjörsamlega límdi
bUinn við malbikið og það var eins
og risahönd héldi segli undir bíln-
um. Við fundum líka auðan sveita-
veg nálægt Boxberg-tilraunabraut-
inni, sem viö ætluðum að heim-
sækja, en hún var lokuð vegna próf-
ana Opel á Signum, bUnum sem tek-
ur við af Omega. Þar slökktum við á
spólvörninni og leyfðum bílnum að
yfirstýra gegnum beygjurnar, en á
Porsche er nánast hægt að stjórna
með bensíngjöfinni og ef það var
einhvern tímann auðvelt var það á
þessum bil. Eini gaUinn við bilinn
var hversu miklu bensíni hann
eyddi sem var svo sem fyrirsjáan-
legt. Eftir um 500 km akstur stóð
bensínreikningurinn í 14.000 krón-
um en við hugguðum okkur við að
það var hverrar krónu virði.
-NG
Breytingar TechArt
LOFTFLÆÐIPAKKI
Framstuðari með stærri loftinntökum
Afturstuðari
Vindskeið
Hliðarsvuntur
Loftinntök á afturbretti
Loftúttök á frambretti
Sport-pústkerfi
Sport-lofthreinsikerfi
Stærri blöndungar
UNDIRVAGN
Sportfjöðrun, 20 mm lægri
Auka-jafnvægisstöng
Stærri bremsur/rauð dæluhús
Dekk framan: 225/40 ZR 18
Dekkaftan: 285/30 ZR 18
INNREITING
Álpedalar
Gírstöng úr áli
Állína i innréttingu, mælaborði
Tvílit leðurinnrétting rautt/svart
Recaro-sportstólar
Nokia-símkerfi
Gervihnattaleiðsögukerfi
Verð: 8.100.000 án tolla og vsk.
o Aöalstöövar TechArt eru í
þessu húsnæöi en þar fer öll
breytingavinna þeirra fram. Allar
mælingar og prófanir fara svo
fram í ööru sérhæföu húsnæöi
skammt frá.
© Porsche-sportbíll á Dynobekk
sem mælir hestöfl vélarinnar til
afturhjólanna.
© Vélin í 996-bílnum var 30 hest-
öflum kraftmeiri en frá verksmiöju
sem var ekki mikil breyting, aö
sögn TechArt-manna.
© Vindskeiöin er sérhönnuö af
TechArt til aö mæta öörum breyt-
ingum á yfirbyggingu bílsins.
@ TechArt Widebody stendur fyrir
breiöari yfirbyggingu með stærri
loftinntökum.