Dagblaðið Vísir - DV - 15.10.2001, Síða 6
20
MÁNUDAGUR 15. OKTÓBER 2001
Sport
- þegar Keflavík vann íslandsmeis
íslands- og bikarmeistarar KR töp-
uöu fyrsta leik sínum í 1. deild
kvenna þegar liðið sótti Keflavík
heim á laugardag. Keflavík sigraði
með 16 stiga mun, 81-65, og var sig-
urinn nokkuð sannfærandi.
KR, sem vann allt siðasta vetur
sem hægt var að vinna, virkaði ekki
nálægt eins sterkt og á síðasta tíma-
bili enda liðið búið að missa nokkra
góða leikmenn. Hæðin er sama og
engin og er Helga Þorvaldsdóttir
hæst í liðinu. Hún mátti sín lítils
gegn Erlu Þorsteinsdóttur í liði
Keflavíkur og átti Erla stórleik og
skoraði 30 stig og tók 17 fráköst.
KR meö átta stiga forskot
Keflavík byrjaði leikinn af krafti
og skoraði sex fyrstu stigin. KR-
stelpur náðu þó að átta sig á hlutun-
um og fóru að bíta frá sér. Eftir
fyrsta leikhluta hafði KR átta stiga
forskot, 13-21, og leikmenn Keflavík-
ur virtust ráðlausir. Anna María
Sveinsdóttir, þjálfari Keflavíkur, las
vel yfir sínum stelpum áður en ann-
ar leikhluti hófst og krafðist þess að
sínir leikmenn léku betri vörn og
gekk það eftir. Annar leikhluti var
allur Keflavíkur og þegar hann var
allur var Keflavík komið níu stigum
yfir, 41-32.
Seinni hálfleikur einkenndist af
því að liðin skiptust á að skora. KR
náði ekkert að minnka muninn enda
Erla og Birna Valgarðsdóttir í mikl-
um ham. Keflavík notaði varamenn
sína í lokin enda öruggur sigur í
höfn. Keflavík var spáð sigri fyrir
tímabilið og Ijóst að liðið verður
sterkt í vetur. Birna og Erla voru í
algjörum sérflokki og bæði skoruðu
og fráköstuðu grimmt.
Hjá KR var Gréta Grétarsdóttir
best en aðrir leikmenn liðsins voru
að leika undir getu. Hildur Sigurðar-
dóttir átti ágætis spretti en ljóst að
liðiö er of lágvaxið til að blanda sér
í baráttu um titia eins og staðan er í
dag.
Stig Keflavikur: Erla Þorsteinsdóttir
30 (17 fráköst), Birna Valgarðsdóttir 26 (13
fráköst), Kristín Blöndal 11, Gréta Guð-
brandsdóttir 8, Guðrún Guðmundsdóttir
4, Theódóra Káradóttir 2.
Stig KR: Gréta María Grétarsdóttir 24
(7 stolnir), Hildur Sigurðardóttir 17 (10
fráköst), Helga Þorvaldsdóttir 11, Kristin
Jónsdóttir 9, Hafdís Gunnarsdóttir 4.
-Ben
IR-ingar slökktu á Perunni
ÍR er komið í 16-liða úrslit SS-bikars karla í
handknattleik eftir 9-36 sigur á Akureyrarlið-
inu Perunni. ÍR-ingar mæta b-liði Eyjamanna í
næstu umferð.
Það var ijóst strax í upphitun að iR-ingar
myndu ekki eiga í miklum vandræðum með
Peruna sem byggð var upp af lyftingamönnum,
fyrrum ungliðum hinna Akureyrarliðanna auk
nokkurra ágætra manna sem vart hafa snert
handbolta í fleiri ár.
Þrátt fyrir að Perumenn hafi skorað fyrsta
mark leiksins var staðan í leikhléi 4-19 gestun-
um í vil og nú reið á fyrir heimamenn að skora
fleiri mörk í síðari hálfleik en í þeim fyrri og
undir tryggri stjóm fyrirliða síns, Torfa Ólafs-
sonar kraftakarís, með ágætri markvörslu Jóns
Jakobsonar lögreglumanns og með stuðningi
Sigfúsar Karlssonar, kynnisins góðkunna, hafð-
ist það og var eitt sirkusmark haft með til að
skreyta.
Sturla Ásgeirsson og Tryggvi Haraldsson
fóru mikinn i hraðaupphlaupum lR en þar á
bæ komust allir á blað nema markverðimir og
þjálfarinn Júlíus Jónasson. Peran tók lífinu létt
í leiknum og ÍR-ingar tóku vel í það. Heima-
menn nýttu leikhléin sín til fullnustu til að
styrkja liðsandann og söngluðu og trölluðu og
gestirnir voru svo vinsamlegir að nýta eitt leik-
hlé í það að klappa fyrir áhorfendum í KA-
heimilinu.
Mörk Perunnar: Torfl Ólafsson 2, Birkir
Baldursson 2, Tómas Jóhannesson 1, Guðmund-
ur Pálsson 1, Hlynur Már Erlingsson 1, Ámi
Kári Torfason 1.
Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 7, Tryggvi
Haraldsson 6, Erlendur Stefánsson 4, Bjarni
Fritzson 4, Ragnar Helgason 3, Brynjar Stein-
arsson 3, Fannar Þorbjörnsson 2, Einar Hólm-
geirsson 2, Kári Guðmundsson 2, Kristinn
Björgúlfsson 2, Andri Úlfarsson 1. -ÓK
Horkuleikur
Breiöablik-Tindastóll 72-79
0-1, 8-3, 17-9, 22-11, (26-17), 31-22,
31-32, (38-35), 40-35, 47-39, 47-45,
57-47, (59-52), 65-58, 65-69, 70-69,
70-79, 72-79.
Stig Breióabliks: Ken Richards 22,
Pálmi Sigurgeirsson 18, Mirko Viri-
jevic 12, Þórólfur Þorsteinsson 6, Þór-
arinn Andrésson 6, Ómar Sævarsson
4, Ingvi Jökulsson 4.
Stig Tindastóls: Kristinn Friðriks-
son 25, Bryan Lucas 23, Friðrik
Hreinsson 9, Helgi Margeirsson 8,
Michail Andropov 8, Valur Ingi-
mundarson 4, Axel Kárason 2.
Fráköst: Breiðablik 39 (16 í sókn, 23
í vörn, Ómar 11), Tindastóll 27 (7 í
sókn, 20 í vörn, Lucas 13)
Stoósendingar: Breiðablik 16 (Pálmi
8), Tindastóll 10 (Helgi 3)
Stolnir boltar: Breiðablik 11 (Pálmi,
Loftur 4), Tindastóll 8 (Lucas 2)
Tapaöir boltar:
Varin skot: Breiðablik 2 (Richards,
Pálmi), TindastóU 5 (Lucas, Antropv)
3ja stiga: Breiðablik 26/9, Tindastóll
14/5.
Víti: Breiðablik 9/5, Tindastóll 26/15.
Dómarar (1-10): Einar
Skarphéðinsson og Kristinn
Óskarsson, 8.
Gceói leiks (1-10): 6.
Áhorfendur: 220.
Maöur leiksins
^mt7t^-^sson'Tindastóii
Það var hörkuleikur þegar nýliðar
Breiðabliks tóku á móti Tindastóli á
fóstudagskvöld í Smáranum og fór
svo að gestirnir sigruðu naumlega í
lokin, 72-79, þar sem Blikar voru
sterkari aðilinn nánast allan leik-
inn. Það var framlag Kristins Frið-
rikssonar í liði Tindastóls sem skildi
liðin að í endann en hann bæði sá
um að koma sínum mönnum inn í
leikinn og komast yfir þegar
skammt var til leiksloka.
Blikar voru mun sterkari í fyrsta
leikhluta og voru að spila vel. Egg-
ert Garðarsson, þjálfari Breiðabliks,
skipti byrjunarliöinu útaf í öðrum
leikhluta og komust Stólarnir yfir
32-31 með því að gera 11 stig í röð.
Blikar náðu undirtökunum aftur í
byrjun seinni hálfleiks og voru sjö
stigum yfir þegar rúmar fimm mín-
útur voru eftir af leiknum. Þá tók
Kristinn sig til og gerði hverja körf-
una á eftir annarri og nokkurt ráð-
leysi var komið í leik Breiöabliks.
Þaö sem eftir lifði leiks gerðu Stól-
amir 27 stig gegn aðeins sjö heima-
manna og innbyrtu því fínan sigur í
erfiðum leik.
Kristinn var besti maður Tinda-
stóls í seinni hálfleik en Bryan
Lucas í þeim fyrri. Hjá Blikum voru
Pálmi Sigurgeirsson, Ken Richards
^MÚ'koVirijevicbe^.y^Bem
Grindavíkurstúlkur unnu sinn fyrsta sigur í 19 mánuði:
Leikhléiö
- sem aldrei átti að leyfast stöðvaði besta áhlaup
Stúdína sem töpuðu óvænt í Grindavík, 61-72
Grindavíkurstúlkur unnu lang-
þráðan en jafnframt nokkuð óvæntan
sigur á Stúdínum, 72-61, í fyrsta leik
liðanna í 1. deild kvenna í körfubolta
í Grindavík á laugardaginn. Þetta var
fyrsti deildarsigur Grindavíkurliðsins
í 19 mánuði eða síðan þær unnu KFÍ
á ísafirði 11. mars 2000.
Grindavík byrjaði leikinn mun bet-
ur og leiddi 26-19 eftir fyrsta leikhluta
og 41-33 í hálfleik en Stúdínur áttu
sitt besta áhlaup í lok þriðja leikhluta.
Þá skoruðu þær 11 stig gegn 2 og
minnkuðu muninn í fimm stig, 51-46,
þegar 1 og hálf mínúta var eftir af
fjórðungnum.
Þá bað Unndór Sigurðsson, þjálfari
Grindavíkurliðsins, um leikhlé og
fékk það þrátt fyrir að hafa fjórum
minútum áður tekið annað leikhlé og
var því í raun búinn með sinn kvóta.
Þrátt fyrir athugasemdir við þetta
ólqglega leikhlé í upphafi þess levfðu
dðiVfa'rarnir. I.eifur Garðarssðn' og -
Jón Halldór Eðvaldsson, Unndóri að
taka það til enda og Grindavík hóf síð-
an leik eins og ekkert hefði í skorist.
Samkvæmt reglum má lið aðeins
taka eitt leikhlé í hverjum af fyrstu
þremur leikhlutunum og þarna hefði
Unndór Sigurðsson átt að fá tækni-
villu, ÍS tvö vítaskot og boltann, þeg-
ar aðeins 5 stigum munaði á liðunum.
í stað þess fékk Unndór tækifæri til
að stilla upp í góða sókn sem endaði
með þriggja stiga körfu frá Jessicu
Gaspar og munurinn fór upp í átta
stig og hélst á þeim nótunum út leik-
inn. Það er skrítið að jafnreyndir
dómarar geri sig seka um slík mistök
og reyna síðan að fela mistökin í stað
þess að leiðrétta þau.
Jessica Gaspar átti frábæran leik
fyrir Grindavík, leiddi sitt lið og náði
auk þess þrefaldri tvennu og er ljóst
að barátta og grimd hennar reynist
Stefánsdóttur sem lék vel í þessum
leik auk þess sem Sólveig Gunnlaugs-
dóttir var sterk í fjórða leikhlutanum
þegar hún geröi sjö af síðustu 12 stig-
um liðsins. Liðið er líka til alls líklegt
í deildinni í vetur.
Stúdínur áttu í basli í þessum leik
en þær léku án Stellu Rúnar Krist-
jánsdóttur sem skoraði 18 stig þegar
ÍS vann Grindavík í úrslitaleik
Reykjavíkurmóstsins á dögunum.
Svana Bjarnadóttir og Alda Leif Jóns-
dóttir voru bestu menn liðsins.
Stig Grindavíkur: Jessica Gaspar 29 (17
fráköst, 5 í sókn, 10 stolnir, 6 stoðs., hitti 10
af 20 skotum), Sólveig Gunnlaugsdóttir 12
(hitti 5 af 8 skotum), Jovana Stefánsdóttir
10 (8 fráköst), Sandra Guðlaugsdóttir 7, Sig-
ríður Anna Ólafsdóttir 6, Ólöf Helga Páls-
dóttir 5, Petrúnella Skúladóttir 3.
Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 20 (5
stoðsendingar, 5 fráköst), Svana Bjarnadótt-
ir 16 (14 fráköst, 7 i sókn, 3 varin skot), Haf-
dís Helgadóttir.U, Lovisa Guðmundsdótþf
arin skot),. Þón