Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Síða 1
15 Stoke City missti af gullnu tækifæri - átti möguleika á að komast á toppinn en tapaði fyrir Wigan íslendingaliöið Stoke missti í gærkvöldi af tækifærinu til að kom- ast í efsta sæti 2. deildar í fyrsta sinn í tæp þrjú ár þegar liðið stein- lá fyrir Wigan, 6-1. Þetta var fyrsta tap Stoke í 11 leikjum í deildinni. Wigan komst yfir á fjórðu minútu leiksins en Stoke jafnaði mínútu síðar þegar Vanduerzen skoraði eft- ir fyrirgjöf frá Bjarna Guðjónssyni. Wigan bætti síðan við tveimur mörkum í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik komu svo þrjú til viðbótar sem innsigluðu stórsigur Wigan. Bjami var eini íslendingurinn sem kom við sögu á vellinum en hann lék allan leikinn fyrir Stoke. Brynjar Gunnarsson var ekki i leikmannahópi Stoke þar sem konan hans var á íæðingardeildinni að fæða bam. Liðið er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig, tveimur stigum á eftir Brighton sem er efst og stigi á eftir Brentford sem á auk þess leik til góða. Þá var einn leikur í 1. deildinni í gærkvöldi. Bumley bar sigurorð af Watford, 1-0, og var sigurmarkið skorað strax á annarri minútu. Heiðar Helguson iék cillan leikinn með Watford og krækti sér í gult spjald í lokin fyrir mótmæli. -HI mm Étti um a Gustavo Kuerten og af! hans að dama er hann ekki s ur við sjalfan sia. Re Stigahæsti tennisspilarínn úr ieik Króatinn Goran Ivanisevic var í essinu sínu á stórmóti tennismanna í Sydney í Ástralíu í gær. Þessa dagana stendur þar yfir svokallaö tennismeistaramót þar sem saman eru komnir allir bestu tennismenn heimsins í dag. Ivanisevic lagöi í gær stigahæsta spilarann á heimslistanum, Brasilíumanninn Gustavo Kuerten, nokkuö örugglega í í fjórum settum, 6-2,6-7, 7-2 og 6-4. Þessi ósigur gæti haft þaö í för meö sér aö Kuerten missti efsta sætiö á stigalistanum. Möguleikar Bandaríkjamannsins Andre Agassi til að fara á toppinn hafa aukist til muna en hann sýndi styrk sinn í fyrrinótt þegar hann sigraöi Ástralann Patrick Rafter í tveimur settum, 6-2 og 6-4. Þaö kæmi engum á óvart þótt Agassi myndi fara alla leiö á mótinu í Sydney enda í feiknagóöu formi um þessar mundir. Átta bestu tennismennirnir taka þátt í mótinu í Sydney og nemur verölaunaféö fyrir sigur í mótinu um 350 milljónum króna. Mynd Reuter Chelsea skuldar 15 milljarða króna - Bayern Miinchen gengur allt í haginn Koma er á daginn sem margir hluthafar enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea óttuðust, að fjárhagsstaða liðsins yrði ekki falleg þegar reikning- ar fyrir síðasta fjárhagsár yrðu lagðir fram. Liðið skuldar um 15 millj- arða íslenskra króna og má rekja þessa slæmu stöðu til ýmissa þátta. Peningar sem áttu að koma inn fyrir þátttöku í Evrópukeppni félagsliða brugðust gersamlega og ekki batnaði ástandið í þeim efnum á dögunum þegar félagið var slegið út úr UEFA-bikamum fyrir ísraelsku liði. Á sama tíma og staða Chelsea er slæm var í vikunni tilkynnt um góða stöðu hjá þýska liðinu Bayern Múnchen. Tölur fyrir síðasta fjárhagsár sýna hagnað í kringum tíu milljarða króna. Þessu stórveldi gekk allt í haginn á síðasta keppnisári og langmestu tekjurnar komu frá þátttöku liðsins í meistaradeild Evrópu sem liðið sigraði að lokum í. -JKS Bjarni Guðjónsson lagði upp mark Stoke í leiknum gegn Wigan en það dugði skammt því Stoke tapaði stórt, 6-1. DV-mynd Sentinel Haukur Ingi kemur heim I vikunni - helmingslíkur á að hann fari til Groningen Haukur Ingi Guðnason, sem hefur verið á reynslutíma hjá hol- lenska liðinu Groningen að und- anförnu, er væntanlegur heim í vikunni. Haukur Ingi hefur stað- ið sig ágætlega hjá Groningen og leikið æfingaleiki. Vera Hauks Inga í Hollandi hefur vakið nokkra athygli og hefur hún feng- ið töluvert rými á heimasiðu fé- lagsins. Samkvæmt heimildum blaðsins eru taldar helmingslíkur á því að Haukur Ingi gangi til liðs við Groningen. Ef svo væri hins veg- ar að Haukur Ingi myndi leika hérlendis á næsta tíma- bili er ekki víst að verði áfram í herbúðum Keflvíkinga sem hafa skorið á marga út- gjaldaliði vegna bágrar fjár- hagsstöðu. Haukur Ingi -JKS Guðnason. Kristinn ekki með Val á næsta tímabili - samningar við útlendingana ekki framlengdir Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Vals í gær eru litlar líkur taldar á því að Kristinn Lárusson leiki með félaginu í 1. deild á næsta tímabili. Kristinn heldur senn til náms erlendis og kemur ekki til baka fyrr en i júní. Ef þetta yrði niðurstaðan verða Valsmenn, sem féllu úr úrvalsdeildinni í haust, fyrir mikilli blóðtöku enda Kristinn einn lykilmanna liðs- ins. Ljóst er nú þegar að nokkrir Valsmenn, sem reynt hafa fyrir sér annars staðar, eru á leið í heimahagann á ný. Þetta eru þeir Jó- hann Hreiðarsson, Dal- vik, Ágúst Guðmunds- son, ÍR, og Benedikt Hinriksson, Stjörnunni. Samningar við útlendingana, sem léku með liðinu á síðasta tímabili, verða ekki endurnýjað- ir. Hér er um um þá Fikret Al- omerovic, Besim Haxhiajdini og Zoran Stosic að ræða. Guöni Rúnar til reynslu hjá Brentford Valsmaðurinn Guðni Rúnar Helgason er á leið til enska úrvals- deildarliðsins Brent- ford til reynslu og er reiknað með að hann verði að minnsta kosti um vikutíma hjá félaginu. Tveir íslend- ingar eru nú þegar á mála hjá Brentford, þeir Ólafur Gottskálks- son og ívar Ingimars- son. -JKS Kristinn Lárusson á leið í nám erlendis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.