Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Blaðsíða 1
21
1. deildin í handbolta
verður Esso-deildin
1. deildarkeppni karla og kvenna
í handbolta hefur loksins fengið
styrktaraðila, um mánuði eftir að
deildarkeppnin hófst. Eru
þetta mikil gleðitíðindi
fyrir HSÍ og handbolt-
ann í heild sinni.
Landsliðið líka
styrkt
Ásamt að styrkja deild-
arkeppnina verður Esso
einnig aðalstyrktaraðili karlalands-
liðsins en Flugleiðir hafa gegnt því
hlutverki í áraraðir.
1. deildir karla og kvenna heita
því Esso-deildirnar það sem af lifir
tímabili en viljayfirlýsing liggur þó
fyrir um áframhaldandi samstarf.
Auk þess mun Esso styðja
sjónvarpsútsendingar
RÚV af leikjum lands-
liðsins og deildarinnar
sem og þáttinn Hand-
boltakvöld sem sýndur
er að jafnaði í lok
hverrar umferðar.
HSÍ boðar í dag til blaða-
mannafundar ásamt Esso þar sem
nánar verður greint frá umræddum
samningi.
-esá
Auðunn Jónsson á HM:
Stefni á góð-
an árangur
Auðunn Jónsson verður meðal þátt-
takenda á heimsmeistaramótinu í
kraftlyftingum sem fram fer í Finn-
landi um næstu helgi.
Auðunn keppir þar í 125 kg flokki
og á góða möguleika á að vinna til
verðlauna á mótinu: „Ég hef æft mjög
vel fyrir þetta mót og í raun undirbú-
ið mig fyrir það í eitt ár. Ég var mik-
ill klaufi að falla úr keppni á síðasta
heimsmeistaramóti og það voru mikil
vonbrigði að ferðast yfir hálfan hnött-
inn til að falla úr keppni. Nú er ég í
mjög góðu formi og stefni á að vinna
til verðlauna. Ég verð á heimavelli að
nokkru leyti því á þessum sama stað í
Finnlandi varð ég Évrópumeistari fyr-
ir nokkrum árum,“ sagði Auðunn
Jónsson í samtali við DV-Sport í gær.
Besti árangur Auðuns á aiþjóðlegu
móti er eitt tonn samanlagt. Þá lyfti
hann 242,5 kg í bekkpressu, 390 kg í
hnébeygju og 367,5 kg í réttstöðulyftu.
-SK
Kjartan þjálf-
ar Keflavík
Kjartan Másson hefur tekið við
þjálfun úrvalsdeildarliðs Keflavíkur í
knattspymu af Gústaf Adolf Bjöms-
syni sem hætti störfum á dögunum og
þjálfar nú kvennalið Hauka í hand-
bolta. Kjartan er vel kunnugur knatt-
spyrnumálum í Keflavík en hann hef-
ur stjórnað liðinu á sex öðrum tíma-
bilum, fyrst árið 1987 þegar hann
þjálfaði liðið á meðan það skipti um
erlenda þjálfara. Kjartan þjálfaði
einnig Keflavíkurliðið 1991 tO 1993 og
kom liðinu upp í efstu deild.
Guðjón er
jákvæður
Guðjón Þórðarson, knattspyrnu-
stjóri Stoke, er bjartsýnn á það að
leikmenn hans muni verða fljótir að
ná sér eftir 6-1 tapið gegn Wigan í
fyrradag og koma sér aftur á beinu
brautina í átt að 1. deild. Guðjón boð-
aði til funda með leikmönnum í gær-
morgun til að ræða málin, að því er
fram kemur á heimasíðu Stoke. „Þetta
var jákvæður fundur og gerði öllum
gott,“ segir Guðjón á heimasíðunni.
„Það var ekki farið i það að leita að
blórabögglum eða einhverjum sem
tapið væri að kenna, það þurfti að
ræða það sem fór úrskeiðis og hvern-
ig við gætum tryggt að þetta. kæmi
ekki fyrir aftur.“
Leikjum fjölgaði
Leikjum á vegum Knattspyrnu-
sambands fslands fjölgaöi um 460 á
milli áranna 2000 og 2001 að því er
fram kemur á heimasíðu KSf. Fyrra
árið voru leiknir 3753 leikir á veg-
um KSÍ en á liðnu tímabili alls 4213.
Aukningin kemur fram í öllum
mótaflokkum, það er deildakeppn-
um, yngri flokkum, bikarkeppni,
Evrópukeppnum og landsleikjum.
-ÓK/ÓÓJ
Ahangandi rúmenska knattspyrnulandsliðsins þerrar tárin með fána landsins eftir að Ijóst var aö Rúmenar þyrftu aö
iáta Slóvenum eftir sæti sitt en þeir héldu jöfnu í Búkarest í gær. Reuters
Birgir Leifur í
ágætri stöðu
Birgir Leifur Hafþórsson,
kylfingur af Akranesi, er í
ágætri stöðu eftir fyrsta hring af
sex á lokamóti forkeppni evr-
ópsku mótaraðarinnar í golfi
sem fram fer á Spáni.
Birgir er í 23. til 37. sæti á
tveimur höggum undir pari.
Aðra sögu er að segja af Björg-
vini Sigurbergssyni en hann lék
fyrsta hring á þremur yfir pari í
gær og er í 120.-134. sæti.
Keppni verður framhaldið í
dag en eftir fjóra hringi verður
skorið niður við sæti 75 eða þar
um bil og þeir sem eftir verða
leika tvo hringi til og eru þá
komnir inn á áksorendamótaröð-
ina.
Fyrsti hóp-
ur Stefáns
Stefán Arnarson, nýráðinn
landsliðsþjálfari kvenna í hand-
knattleik, hefur valið 21 leik-
mann í fyrstu æfingabúðirnar
undir hans stjórn á Laugarvatni
um helgina. Æfmgabúðirnar eru
undirbúningur fyrir æfingaleiki
sem landsliðið spilar við Belga
og Hollendinga ytra um aðra
helgi. Enginn leikmaður er frá
íslandsmeisturum Hauka í hópn-
um þar sem þær verða í Grikk-
landi um helgina að keppa á
sterku fjögurra liða móti.
Æfingahópurinn
Markmenn: Berglind Hansdóttir,
Val, Helga Torfadóttir, Víkingi, og
Þóra Hlíf Jónsdóttir, Gróttu-KR
Vinstra horn: Dagný Skúladóttir,
ÍBV, Elfa Björk Hreggviösdóttir, Val,
og Guöbjörg Guömannsdóttir, Vik-
ingi
Útileikmenn: Ágústa Edda Björns-
dóttir, Gróttu-KR, Drífa Skúladóttir,
Val, Dröfn Sæmundsdóttir, FH, Guö-
munda Ósk Kristjánsdóttir, Víkingi,
Hafdís Hinriksdóttir, FH, Heiða Val-
geirsdóttir, Gróttu-KR, Helga Birna
Brynjólfsdóttir, Vikingi, Hrafnhildur
Skúladóttir, Val, og Jóna Margrét
Ragnarsdóttir, Stjörnunni.
Línumenn: Eivor Pála Blöndal, Val,
Hafrún Kristjánsdóttir, Val, og Sig-
rún Gilsdóttir, FH.
Hægra hom: Ásdís Sigurðardóttir,
KA, Guörún Drífa Hólmgeirsdóttir,
Víkingi, og Harpa Vífilsdóttir, FH.
Léttir sigrar í ^
bikarkeppni KKÍ
Eins og við var að búast voru
úrslit leikja í 32-liða úrslitum
bikarkeppni KKl í gær eftir bók-
inni. Þór frá Þorlákshöfn vann
Reyni frá Hellissandi, 100-49,
Selfoss vann b-lið Keflavikur,
109-67, og Tindastóll vann Smára
frá Varmahlíð, 128-55. Að lokum
vann Fjölnir lið Grundarfjarðar,
130-68. í kvöld fara fram fimm
leikir í bikarkeppninni og þar er
fyrstan að telja stórleik umferð-
arinnar þegar Njarðvík tekur á
móti Grindavík í Ljónagryfjunni
i Njarðvík. Þá leika Þór
Ak.-Skallagrímur, Höttur-KR,
Haukar-ÍV og Snæfell-Stjarnan.
-ÓK/ÓÓJ