Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Blaðsíða 1
15 Sheringham tryggði sigur Tottenham Tottenham vann nauman sigur á Bolton, 3-2, á White Hart Lane í gærkvöldi eftir að hafa verið marki undir í leikhléi. Bolton tók forystuna snemma leiks þegar Michael Ricketts skor- aði eftir að hafa leikið laglega á Ledley King. Leikmenn Tottenham sóttu heldur meira eftir þetta en tókst þó ekki að minnka muninn fyrr en í seinni hálfleik þegar Les Ferdinand var kominn inn á. Hann lagði upp mark fyrir Gustavo Poyet snemma í seinni hálfleik og skoraði svo sjálfur með skalla skömmu síð- ar. Rod Wallace jafnaði fyrir Bolton um miðjan hálfleikinn en Teddy Sheringham tryggði Tottenham sig- urinn með skallamarki fimm mínút- um fyrir leikslok. -HI Freyr ráðinn landsliðþjálfari Freyr Sverrisson hefur verið ráðinn til tveggja ára í nýtt starf landsliðsþjálfara karla sem hef- ur það verkefni að fylgjast með og þjálfa leikmenn á aldrinum 14-15 ára. Freyr mun einnig sjá um árlegan knattspyrnuskóla og úrtökumót KSÍ. Markmiðið með þessu starfl er að byrja fyrr að fylgjast með og kortleggja unga knattspyrnumenn. Freyr hefur starfað fyrir Njarðvíkinga siðustu 10 árin, síðasta sem yfirþjálfari yngri flokka. Hann hefur þjálfað í 20 ár en lék með meistaraflokki Kefl- víkinga á árunum 1981-1994. -HI Teddy Sheringham tryggöi sínum mönnum sigur á Bolton í gærkvöldi. Reuters legan styrk íþróttasamband fatlaðra fékk um helgina styrk að upphæð þrjár mifljónir króna frá Rúm- fatalagemum en fyrirtækið er stærsti styrktaraðili sambands- ins fyrir Ólympíuleika fatlaðra sem fram fara í Aþenu 2004. Þetta er stærsti styrkur til íþrótta fatlaðra sem afhentur hefur verið. Sambandið mun einnig gefa út jólageisladisk til fjáröflunar fyr- ir sambandið, sem bera mun nafnið „Jólin eru að koma“. Á disknum er að flnna bæði gömul og ný jólalög. -HI Liverpool fékk tvenn verðlaun mánaðarins Phil Thompson, sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra Liverpool, var í gær útnefndur framkvæmdastjóri nóvembermánaðar. Thompson stýrði liði sínu á toppi deildarinnar í nýliðnum mánuði. Hann tileinkaði þessi verðlaun strax Gerard Houllier, framkvæmdastjóra Liverpool sem er að jafna sig eft- ir hjartaaðgerð. Þá var Danny Murphy útnefndur besti leikmaður mánaðar- ins en hann lék sinn fyrsta landsleik í mánuðinum. -HI Þriðjudagur 3. des. 2001 dvsport@dv. 178 dagar til Nú eru 178 dagar til HM í knattspyrnu sem fram fer í Japan og Suður-Kóreu og um helgina voru liöin 32 dregin f riöla. Hér sjást lukkudýr keppninnar aö þessu sinni, Nik (til vinstri), Ato (í miöju) og Kaz leika sér í fótboltaspili en drátturinn fór fram í Pusan í Suöur-Kóreu. Reuters Eiður hjá Chelsea næstu árin - sjá viðtal DV-Sport við einn heitasta framherjann 1 enska boltanum 16-17 Bronsverðlaun hjá Birni Björn Þorleifsson, Tae Kwon Do maður úr Björk í Hafnarfirði, vann tii bronsverðlauna á gríðarlega sterku alþjóðlegu móti í Stuttgart i Þýskalandi um helgina. Þetta er íjórða alþjóðlega mótið sem Bjöm tekur þátt í á árinu og það langsterkasta en hin þrjú mótin hefur hann unnið. Björn þurfti reyndar að hætta keppni eftir þrjá bardaga vegna meiðsla en hann vann þá afla. Björn tekur í janúar þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer í Danmörku. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.