Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.2001, Síða 3
16
17
Eiður Smári Guðjohnsen er ánægður með lífið hjá Chelsea
Kjörísbikarmeistarar Grindavíkur:
Eiöur Smári Guðjohnsen
hefur heldur betur átt góöa
viku meö Chelsea. Hann byrj- ^H||
4®> aöi á að skora tvö mörk
* * f jfei* 9e9n Leeds í deildarbikar-
keppninni og skoraöi
síöan eitt mark og
lagöi annaö upp í 3-0
few. sigri gegn Manchest-
er United á Old Traf-
ford. Reuters
Yngsta
meistaralið
sögunnar?
Chelsea
- segir Eiður og
telur að Chelsea
verði ekki auðunnir
á þessu tímabili
verður líka að benda á að leikjaálag-
ið er mikið. Stundum eru jafnvel
2-3 leikir á viku þannig að það er
ekki hægt að búast við að spila þá
alla.“
Viö Hasselbaink náöum
strax vel saman
Eiður og Hasselbaink hafa náð
mjög vel saman í framlínu Chelsea.
„Við erum frekar ólíkir leikmenn.
Hann er fljótari og fer þetta meira á
kraftinum meðan ég vil frekar fá
boltann í fæturna. En okkur fannst
það nánast um leið og við hittumst
fyrst hjá Chelsea og spiluðum fyrst
saman að við ættum vel saman. Við
fundum allaf hvor annan mjög vel
og annar vissi alltaf hvar hinn var.
Við erum einnig mjög góðir félagar
utan vallar og erum alltaf herbergis-
félagar á útileikjum þannig að
kannski hjálpar það eitthvað."
Nú tók Claudio Ranieri vió af
Gianluca Vialli siðasta vetur.
Hvaóa áhrif teluröu aö þau skipti
hafi haft á lióið og þína mögu-
leika?.
„Það er erfitt að segja til um
áhrifin á mína möguleika því ég var
svo stuttan tíma hjá Vialli. Ég er þó
viss um að ég hefði einhvern tím-
ann fengið tækifæri hjá Vialli. En
Ranieri kom inn og vildi skoða alla
leikmenn þannig að ég fékk
snemma tækifæri hjá honum. Ég
datt reyndar siðan úr hópnum í
nokkrum leikjum en náði svo að
komast aftur inn. Mér gekk vel í
heildina á mínu fyrsta tímabili hjá
Chelsea og skoraði í raun mikið
miðað við í hve fá skipti ég var í
byrjunarliðinu. Það má reyndar
benda á að það bjuggust ekki marg-
ir við miklu af mér því Hasselbaink
kom til félagsins á sama tíma á 15
milljónir punda og mesta athyglin
beindist því að honum.“
Ranieri hugsar um öll
smáatriöi
Eiöur segir Ranieri mjög vand-
virkan framkvæmdastjóra sem
hugsi um öll smáatriði. „ítalir virð-
ast almennt kunna skil á öllu sem
tengist knattspyrnu, t.d. mataræði.
Þá er ég ekki bara að tala um hvað
eigi að borða heldur hvenær á að
borða fyrir leiki. Sem dæmi má
ekki drekka mjólk á ákveðnum tím-
um dags! Það er allt mjög fagmann-
legt í kringum hann og maðurinn
horfir á og hugsar um fótbolta allan
sólarhringinn."
Nú hefur þú veriö meira í sviðs-
Ijósinu upp á síðkastið sem gerir
það m.a. að verkum aö gula press-
an í Englandi bendlar þig við hin
og þessi lið, m.a. Inter og
Barcelona. Hvernig horfa þessar
pœlingar við þér?
„Ég kippi mér mjög lítið upp við
þetta. Ég verð í Chelsea næstu árin,
ég held ég geti alveg fullyrt það, og
það er alveg sama hvað blöðin hér
segja. Það má ekki taka of mikið
mark á því sem skrifað er hér í
sunnudagsblöðunum. Mér líður
mjög vel hérna, ekki hvað síst eftir
svona viku þar sem mér hefur geng-
ið mjög vel persónulega. Ég hef ekki
heyrt neitt um áhuga annarra liða á
mér.“
Þaö er erfitt aö brjóta okkur
niður
Hvaða möguleika sérðu að
Chelsea hafi i vetur í baráttunni
um enska meistaratitilinn?
„Það voru nú allir búnir að af-
skrifa okkur fyrir viku. Síðan vinn-
um við tvo leiki og þá tala allir um
að við höfum spilað eins og lið sem
ætti að geta verið í baráttu um titil-
inn. Það er hins vegar alveg ljóst að
við verðum að fylgja þessum tveim-
ur leikjum eftir. Það er leikur strax
á miðvikudaginn á móti Charlton
og til þess að úrslit laugardagsins
geti talist frábær verðum við að
vinna leikinn. En við höfum sýnt að
það er mjög erfitt að vinna okkur.
Við höfum kannski ekki náð að
vinna þá leiki sem við ættum að
vinna á pappírunum en það er mjög
erfitt að brjóta okkur niður,“ segir
Eiður Smári Guðjohnsen að lokum.
By Smári
.W Cuðjnhnsen
hefur lieldur
betur slegið í
gegn með liöi sínu,
Chelsea, í vetur.
Hann hefur yfirleitt átt
góða leiki þegar hann hef-
ur fengið tækifæri til að
~ spreyta sig og hafa margir
stuðningsmenn liðsins ekki skilið
af hverju hann færi ekki fleiri tæki-
færi. Um síðustu helgi bætti hann
svo enn einni skrautfjöðrinni í hatt-
inn þegar hann skoraði eitt mark og
lagði upp annað í 3-0 sigri á
Manchester United á Old Trafford.
Eiður segir um markið. „Það er
auðvitað sérstakt að skora á móti
stórliði á borð við Manchester
United. Það er reyndar alltaf frábær
tilfinning að skora en hún er óneit-
anlega dálítið sérstök á Old Traf-
ford. Leikurinn var erfiður en við
lögðum upp með að pressa þá fram-
arlega og það tókst mjög vel. Við
vorum alltaf hættulegir fram á við.“
Þér hefur gengió vel i vetur þeg-
ar þú hefur fengið tœkifœri.
„Já, ég hef náð að skora dálítið og
hef oftast náð að eiga góða leiki þeg-
ar ég hef verið í byrjunarliðinu.
Auðvitaö vill maður alltaf fleiri
tækifæri, það er ekkert öðruvísi
með mig en aðra að ég vil alltaf
spila. Samkeppnin er mikil í liðinu
en ég verð bara að halda áfram á
þessari braut þannig að það verði
erfiðara að taka mig úr liðinu. Það
Eiður
Smári með
Chelsea:
Grindavíkurstúlkur fagna sigrinum í Kjörísbikarnum um helgina en
liöiö er ótrúlega ungt með meöalaldur upp á 18,1 ár.
Jovana Lilja Stefánsdóttir (16 ára).
Leikmenn sem komu inn á í úrslita-
leiknum: Erna Rún Magnúsdóttir (16
ára), Petrúnella Skúladóttir (16 ára),
Sandra Dögg Guðlaugsdóttir (24 ára),
Rut Ragnarsdóttir (16 ára). Leikmenn
sem voru í hópnum en komu ekki inn
á: Gigja Eyjólfsdótitr (15 ára), Elva Rut
Sigmarsdóttir (15 ára).
Þó að við hjá DV-Sport eigum
það ekki staðfest þá er nánast ör-
uggt að hér sé komið yngsta
meistaralið í boltaíþrótt hér á
landi frá upphafi enda eru átta
leikmenn ekki gengnir upp í
meistaraflokk enn þá.
Næst þeim kemur örugglega lið
KR sem varö deildarbikarmeist-
ari í vor. Það tefldi fram ungu liði
í úrslitleiknum og var sextán
manna hópur liðsins í úrslita-
leiknum 19,4 ára að meðaltali en
12 þeirra voru ekki komnir á tví-
tugsaldurinn. -ÓÓJ
Grindavíkurstúlkur urðu um
helgina Kjörísbikarmeistarar
kvenna í körfubolta eftir að hafa
unnið öruggan sigur á Keflavík.
Stelpurnar eru mjög ungar, sjö
af 11 eru ekki komnar á bílprófs-
aldurinn, tvær eru enn í grunn-
skóla og fyrirliði liðsins er aðeins
tvítug. Þegar DV-Sport reiknaði
út meðalaldur liðsins kom í ljós
að þær ellefu sem skipuðu hópinn
í úrslitaleiknum voru að meðal-
tali 18,1 árs.
Bandaríski leikmaðurinn
Jessica Gaspar er elsti leikmaður
liðsins og önnur tveggja sem ekki
er fædd á níunda áratugnum.
Eiður Smári hefur nú leikið
51. leik með Chelsea og skorað í
þeim 21 mark. Eiður hefur þar af
gert 12 mörk i 39 deildarleikjum
en 9 mörk í 12 bikar- og
Evrópuleikjum. Eiður hefur
reyndar aðeins byrjað í 23 af
þessum 51 leik sem hann hefur
spilað fyrir Chelsea.
í ár hefur Eiður skorað 2 mörk
í niu deildarleikjum en alls átta
mörk í 14 leikjum í öllum
keppnum.
Eiður skoraði á sínum tíma 26
mörk í 73 leikjum með Bolton í
öllum keppnum og hefur þvi alls
skorað 47 mörk í 124 leikjum í
enska boltanum frá því að hann
fór þangað sumarið 1998. -ÓÓJ
Leikmenn og aldur
Grindavikurliðsins:
Byrjunarliðió: Jessica Gapsar (25
ára), Sigríður Anna Ólafsdóttir (20 ára
fyrirliöi), Sólveig Gunnlaugsdóttir (20
ára), Ólöf Helga Pálsdóttir (16 ára) og
Hér fagna Hasselbaink og Eiöur Smári sigrinum í deildarbikarleiknum gegn
Leeds ásamt Frank Lampard. Eiöur segir aö hann og Hasselbaink hafi strax náö
mjög vel saman. Reuters
Urvalsdeildarlið KR í körfubolta
eiri rendur,
ærri siérair 1
Sá ótrúlegi atburður átti
sér stað á heimsbikarmóti í
sundi í 25 metra laug sem
lauk í Kína í gær að tvær
stúlkur bættu heimsmet í
sama sundinu. Og það sem
meira var, þær syntu á ná-
kvæmlega sama tímanum.
Þetta gerðist í keppni í 50
m bringusundi en kin-
versku stúlkumar Lou
Xujuan og Li Wei syntu báð-
ar á tímanum, 30,56 sekúnd-
um, og urðu jafnar í fyrsta
sæti. Þær munu því deila
þessu heimsmeti með sér.
Gamla metið átti Penny
Heyns frá Suður-Afríku,
30,60 sekúndur, en það var
sett fyrir tveimur árum.
Kínverska stúlkan Chen
Hua setti heimsmet í 800 m
skriðsundi á þessu sama
móti á sunnudag eins og
greint var frá í blaðinu í
gær. Ekki voru fleiri heims-
met slegin á mótinu en góð-
ur árangur náðist þó í mörg-
um greinum. Kínverjar
unnu til langflestra verð-
launa á mótinu. -HI
tapað öllum þremur leikjum í nýju búnin;
KR-ingar töpuðu á sunnu-
dagskvöld sínum þriðja leik í
röð í deild og Kjörísbikar í
karlakörfunni eftir að Vestur-
bæjarliðið hafði unnið ellefu
fyrstu leiki timabilsins, fyrstu
sjö deildarleikina (besta byij-
un félagsins í úrvalsdeild) og
síðan alla fjóra í Kjörísbikarn-
um. KR hefur verið í toppsæt-
inu í nánast allan vetur en með
tapinu fyrir Keflavík datt liðið
niður í þriðja sætið en Kefla-
vík, Njarðvik og KR eru öll
með 14 stig.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálf-
ari KR-liðsins, og lærisveinar
hans leita eflaust þessa dag-
anna lausna til að enda þessa
taphrinu en DV-Sport hefur
fundið út hver ástæðan er.
KR-ingar vígðu nefnilega
nýja búninga í undanúrslitum
Kjörísbikarsins gegn Njarðvik
sem var fyrsti tapleikur vetrar-
ins og til viðbótar hafa bæst
við tvö töp gegn Hamri og
Keflavík. Nýi búningurinn
státar af tveim fleiri röndum
en sá gamli, ellefu á móti niu.
KR-ingar töpuðu fjórum
fyrstu leikjunum í fyrra en
unnu síðan síðustu 18 og von-
andi þeirra vegna ætla þeir
ekki að snúa við þróuninni frá
því í fyrra.
Hér á myndunum sést Helgi
Már Magnússon, leikmaður
KR, í baráttunni í leikjum í
vetur, til hægri i gamla bún-
ingnum gegn ÍR og til vinstri í
þeim nýja gegn Hamri. -ÓÓJ
Lou Xujuan, til vinstri, og Li Wei eiga nú saman heimsmetiö í 50 metra bringusundi í 25 metra laug
Myndir Reuters
4~
ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2001