Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Side 12
+T Einstaklingar á íslandi þurfa eins og annað fólk sem byggir þessa jörð að þola óstöðvandi yfirgang ókomins tíma. Þetta veldur ófáu maga- sárinu enda nóg af rugli sem liggur á landanum bæði úr fortíð og nú- tíð. í góðmennsku sinni keypti Fókus kristalskúiu og gerðist framtíðar- rýnir með heill og heilsu samlanda sinna í huga. Völvuspa í fokus fyrir 2002 PÓLITÍK . Davíð Oddsson íhugar eigin dauð- leika. I kjölfarið gerir hann samning við Kára Stefánsson um að koma upp lager af litlum klónuðum davíðum þar sem hann treystir engum betur en sjálfum sér til að stýra þjóðarskút- unni í gegnum þann öldudal sem efnahagsmál eru. Það er því bjart fram undan hér á landi um ókomna tíð og aldrei heyrist barlómur framar úr stjórnarráðinu. Arni Johnsen var kannski bugaður í fyrra en sigraður skal hann aldrei kallast. Eftir langa legu undir feldi, meðan þjóðin gleym- ir fyrri afbrotum, snýr Árni fílefldur til baka í landsmálapólitíkina snemma árs með nýtt stjórnmálaafl. Flokkur Áma berst fyrir pappírslausum viðskiptum hjá hinu opinbera. Mál númer tvö eru jarðgöng til Eyja og stjórnarskrárlegt bann við samkynhneigð. Flokkurinn leggst af vegna síðasta baráttumálsins eins og seinna kemur í ljós. Lúðvík Bergvinsson er orðaður við flokkinn um tíma en þorir ekki í slaginn þegar upp er staðið. Baráttan um borgina er í algleymingi. Árni Sigfússon er flúinn út á land og sjálfstæð- ismenn treysta illa núverandi kandídötum. Bjöm Bjamason liggur undir feldi í jan- úar en tilkynnir loks um framboð sitt gegn Ingu Jónu Þórðardóttur. Allt fer í háa- loft en málin eru sjötluð af manni sem allir voru búnir að gleyma. Markús Om Antonsson boðar stríðandi fylkingar á fund í Utvarpshúsinu og allir ganga sáttir út. Björn leiðir flokkinn í borginni en Inga Jóna verður forstjóri Tæknivals. R-lisnnn heldur sig við sömu menn fyrir utan Steinunni Valdfsi Óskarsdóttur sem verður frá að hverfa eftir að upp kemst að karlmenn dönsuðu á súlu í veislu á heimili hennar. Ólafur F. Magnússon er fenginn í hennar stað en það reynist vart heilladrjúgt. Íþróttir Atli Eðvaldsson fellur á lyfjaprófi og er dæmdur t landsliðsþjálfúnarbann. I ljós kemur að hann hefur í laumi reykt kannabisefni til að vinna gegn áhrifum gláku sem hann hefur þjáðst af síðan hann tók við landsliðinu. Þar þykjast menn líka sjá skýringuna fyrir því hversu illa Atli las leik andstæðinganna. Svo vitnað sé í kvenskörunginn Jóhönnu Sigurðardóttur þá kemur allra tfmi einhvern tímann. Þetta á við um hrakfallabálkana Kristin Björns- son og Jón Arnar Magnússon sem vinna glæsta sigra hvor á sínu sviði. Engar byltur og bull hjá þessum köppum í ár. Stoke City er á uppleið og sökum ótrúlegra yfirburða í 2. deild eru þeir hækkaðir f tign og settir beint í úrvalsdeildina ensku. Hvaðan þeir falla með skömm á fyrri hluta keppnis- tímabilsins, enda utandeildar. Liðið er selt færeyskum olíufurst- um og Guðjón er aftur gerður að landsliðsþjálfara. Litlar fréttir eru af innlendum deildum í boltaíþróttum. Gengi KR batnar lítið og fjárhagsstaðan versnar. I lok ársins er tilkynnt að nafn félagsins hafi verið selt og Vesturbæjarstórveldið muni í framtfð- inni keppa undir merkjum Gróttu. Óvildarmenn KR kaupa nafnið og á lokahófi knattspyrnumanna er niðurlægingin kórónuð þegar tilkynnt er að KR muni keppa í utandeildinni 2003. Menning Menning verður með miklum blóma þetta árið. Jón Viðar tekur aftur að sér leiklistargagnrýni í sjónvarpi og leikur greinin á reiðiskjálfi. Fólk flykkist þó í leikhúsin þannig að enginn getur kvartað. 2002 verða stærstu bókajólin til þessa og kætast útgefendur en tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna koma á óvart. Barna- og unglingabækur eru mjög áberandi og hljóta tvær þeirra óvænt tilnefningu. Mamma þín! eftir Erp Eyvindarson er fersk og beitt og Valgeir Magnússon, Valli sport, þykir hafa tekið stórstígum framförum með bókinni Glens, grín og getnaðarvarnir. I flokki fræðirita er Guðni Ágústsson líklegur kandídat til verðlauna með bókina Islenska sauðkindin fyrr og nú. Sinfóníuhljómsveit Islands á ágætis ár. Ríkisstyrkir sveitarinnar eru skornir niður svo um munar og fyr- ir vikið neyðast meðlimir til að fara að harka lítillega. Fræg verður för Sinfó um helstu borgir Evrópu þar sem leikið var á hverju götuhorni fyrir klink. Kvikmyndagerð stendur og í ágætis blóma. Baltasar Kormákur heldur áfram að tryggja sér sess sem einn af spútnikunum í Evrópu en vinnur sér reyndar ekki inn mörg stig þegar hann lýsir því yfir í Cann- es að hann sé á góðri leið með að verða „Bigger than Jesus“. Friðrik Þór Friðriksson uppljóstrar um áform sín að kvikmynda líf Bjarkar Guðmundsdóttur en Ágúst Guðmundsson ákveður að setjast í helgan stein. Hrafn Gunnlaugsson er óvenju rólegur og móðgar fáa, margir telja hann luma á stórum plönum. Samlífi Ríkisstjórn og þingi verður boðið á árshátíð Samtakanna ‘78. Þar kemur þingheimur og ráðherrar allir út úr skápnum, enda vitað að innra með öllum okkar er að finna kúgaðan samkynhneiging. I kjölfarið eru sett lög í landinu þar sem gagnkynhneigð er útskúfuð og þeir sem hana stunda ofsóttir. Kári Stefánsson er feng- inn til að redda nýliðun þjóðarinnar. Friðrik Weisshappel missir alveg af þessum fréttum enda upptekinn við að endurhanna nýju íbúðina sína. Fyrir mistök fylgir hann samt straumnum þegar hann dettur í skota- pilsinu sfnu á uppistandandi hamarsskaft og smellhittir þetta líka. Kynsjúkdómar grassera sem aldrei fyrr í íslensku þjóðfélagi bæði fyrir og eftir kynhneigðar-pólskipti. Landlæknir og aðstoðarmenn hans vinna hins vegar stórvirki í læknisfræði þar sem þeir komast að því að greddulyfið Spánska flugan drepur alla kynlöngun í dauðadrukknu helgarkynsvallsliðinu lfkt og am- fetamínskyld íyf draga úr einkennum hjá ofvirkum krökkum. Húð- og kynsjúkdómadeildin í Þverholtinu er nánast verkefnalaus og kynsjúkdómalæknar neyðaast til að næla sér í aukapening með því að vinna á dekkjaverkstæðum þegar fyrsti frosta- og snjóakaflinn ríður yfir næsta vetur. ÁSTIN Amor skýtur örvum í landann eins og fyrr á árinu 2002. Séð og heyrt færir okkur fregnir af heitustu pörunum og flest gefast þau nú upp í kjölfarið. Allt er í góðu hjá Guðlaugi Þór og Ágústu Johnson en þau minna áfram reglulega á sig í blöðunum. Fjölnir Þorgeirsson upplýsir um bónorð kryddpíu nokkurrar til sín. Þar er þó ekki á ferðinni Mel B heldur barnakryddið Emma Bunton. Fjölnir ber sig vel þegar hann tilkynnir að hann ætli sér að vera áfram með Lindu en fóma heimsfraegðinni - aftur. Það sannast vel að ástin spyr hvorki um aldur né stöðu þegar Dalla Olafsdóttir Grímssonar leiðir þekkt- an frjálshyggjumann um götur Reykjavíkur í júnímánuði. Pétur Blöndal er orðinn þreyttur á tjúttinu á Astró á fleiri stöðum og vill binda sig. Samlíf þeirra stendur í nokkurn tíma en Séð og heyrt opinberar lok sambandsins og lýsa lögfræðingar beggja því yfir að „ósættanlegur ágreiningur" hafi gengið af sambandinu dauðu. Lítið heyrist aftur á móti af brúðkaupi föður Dóllu og má telja að íslenskunám Dorritar gangi ekki sem skyldi. Annað óvænt par skýtur upp kollinum þegar þau Andrea Róbertsdóttir og Valur úr Buttercup fara að sjást saman. Haft er eftir vinum að þau hafi aldrei verið eins hamingjusöm og lífið leiki við þau. Þetta er staðfest þegar Valur er spottaður í skartgripabúðum í leit að trúlofunarhring. Valur fer á hnén eft- ir tónleika Buttercup 17. júní og brúðkaup er planað á gamlársdag. Rósa Guðmundsdóttir, oft kennd við Spotlight, á þó útspil ársins þegar hún opinberar þá upp- götvun sfna að hún sé gagnkynhneigð eftir allt saman. Þetta kemur auð- vitað eins og þruma úr heiðskíru lofti þar sem Rósa hefur lengi verið ein þekktasta lesbía landsins. Rósa nær sér auðvitað í mann og sá er henni vel að skapi; útvarpsmógúllinn Svali á FM957. Yfirlýsing Svala um langar legust- undir f rúminu gera ekkert annað en auka á umtal um samband þeirra. Þjóðlíf Bandaríski herinn heldur sínu stri- ki og vel það. Þrátt fyrir áköf mót- mæli Steingríms J og félaga er keyrð í gegnum þingið samþykkt um fjölgun hermanna á herstöð- inni um helming. Hryðju- verkaógnin utan úr heimi liggur á mönnum en þegar samtök Osama bin Laden eru upprætt um mitt ár verða lítil not af auka her- mönnunum. Samningurinn gildir þó til þriggja ára og því verður að finna not fyrir þessa menn. Olafur Ragnar Grímsson, forseti vor, er skjótur að koma með lausn á málinu því hann lýsir því yfir að forsetaembættið geti vel ráðið nokkra af hermönnunum sem lífverði. Það sé jú ekkert grfn lengur að vera varnarlaus að afhenda börn- um hvatningarverðlaun og opna ný bókasöfn. VlÐSKIPTI Vegna of mikils álags leggur Kári Stefánsson petríðiskálina og smásjána á hilluna og snýr sér að ræktun skoskra orma enda alltaf verið áhugasamur um tvíkynja dýr. Framhaldið í kúlunni er óljóst og slitrótt. Af þvf sem þó sést má ráða að nýjar uppgötvanir á þessu ísviði leiða Kára á ný inn á gráa markaðinn og virðist sem Kári geti ekki flúið þau örlög sín að stofna stórfyrirtæki í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur. Yfirtaka stoðtækjafyrirtækisins Össurar á erótíska hjálpartækjamarkaðnum hérlendis er dæmd ógild af Samkeppnisstofnun þar sem fyrirtækið hefur með því ráðandi stöðu yfir öllu sem kalla má gervilimir. Austfirðingar og þingmenn þeirra kýla f gegn virkjanir og álver á Austurlandi. Framkvæmdir hefjast strax en hryðjuverkahópur náttúruvemdarsinna undir forystu Hjörleifs Guttormsonar sprengir lands- hlutann í loft upp með kjarnorkusprengjum keyptum af Osama og félögum. Hópurinn, sem gengur und- ir nafninu Blóm eða bombur, útskýrir gjörðir sínar í bréfi til fjölmiðla. Þar segir að ef þeir fái ekki að njóta náttúrunnar og þess sem hún hafi að bjóða skuli enginn þess verða aðnjótandi. Olíufélögin eru fundin sek um verðsamráð og almerna fyrirlitningu gagnvart grandalausum almenningi enda hluti af átta lima fyrirbæri en pöpullinn ekki. Þau em dæmd í himinháar fjársektir og fara á haus- inn. Baugur kaupir dótið fyrir slikk og stefnir allt í þacð að Samkeppnistoíhun sé alltaf að eiga við færri og færri fyrirtæki til að rannsaka. Tryggingafélögin sleppa í gegnum rannsókn Samkeppnistofnunar en sög- ur ganga um að þungavinnupappírstætarar hafi verið æettir í gang um leið og olíufélögin fóru í stóru rann- sóknina. Þórarinn V. Þórarinsson er rólegur framan af ári, enda þarf maðurinn ekki að kvarta undan peninga- leysi. Honum leiðist þó aðgerðaleysið til lengdar og sekkur á framkvæmdastjórastöðuna hjá Stöð 1 þegar hún býðst. Þórarinn sér leik á borði þegar hann horfir til kvenhyllinnar sem kollegar hans á SkjáEinum hafa notið eftir stofnun þeirrar stöðvar. Þórarinn mat stöðuna rangt. Djammið Djammið er ekki svipur hjá sjón eftir bann við gagnkynhneigð og tilkomu Spánsku flugunnar. Landinn veltist um blindfullur og uppdópaður sem fyrr um miðbæinn. Hins vegar er klæðaburður áberandi breytt- ur. Helmingur kvenna gengur enn um í þokkalega sexí kjólum meðan hinn helmingurinn er í snjáðum gallabuxum, hvftum stuttermabol og leðurvesti. Helmingur karlmanna er líka í þokkalega sexí kjólum og hinn helmingur- inn í þröngum glansandi bolum og leður- buxum, með eða án rasskinnahlífar. Slagsmál heyra sögunni til nema hvað einstaka sinnum má sjá alvöru steralessur takast á um einhverja dísina eða lemjandi erlenda túrista fyrir þá sök að þeir eru af úr- kynjuðum gagnkynhneigðum kynstofni. Þessi staðreynd, plús hryðjuverkastarfsemi náttúru- verndarsinna, gengur af ferðamannaiðnaði dauðum þar sem íslensk náttúra er dauð, hvort sem það er líkamlegt eða annars konar. Aldrei þessu vant lognast nokkrir skemmtistaðir í Reykja- vík út af og aðrir fylla skörð þeirra. Þar ber hæst fjárhagslega örðuleika skemmti- og veitingastaðarins Kaupfélagsins. Frikki átti náttúrlega að geta sagt sjálfum sér að þetta nafn er aðeins til ólukku. Hann hefði eins geta kallað staðinn SIS eða Utvegsbankann. Trúmál Átök taka sig upp að nýju á milli þjóðkirkjunnar og Tryggingastofnunar. Deilurnar enda með því að Tryggingastofnun segir sig úr þjóðkirkjunni og stofnar eigin söfnuð í Danmörku. Þetta eru raunar einu deilurnar í trúarlífi Frónbúa þar sem öll kristin bókstafstrúarfélög landsins eru annaðhvort flúin land eða hafa hlýtt lögum landsins og gerst samkynhneigð og þ.a.l. dregið aðeins úr trúarofsanum sem fer ekki vel með hinsegin kynlífi. Tónlist Þrátt fyrir að íslendingar hafi fallið úr júróvisjónkeppninni í fyrra er engin lognmolla í gangi í íslensku tónlistarlífi. Þar ber að nefna áframhaldandi upprisur hljómsveita sem í enda ársins verða orðnar fleiri en ungliðasveitir innan popp-, lopahúfu-, raf-, og-hvað-það-nú-heitir-allt-geirans. Sérstaka athygli og undr- un vekur endurkoma nokkurra sveita í upprunalegri mynd hvar sumir hljómsveitarmeðlima hafa verið látnir um nokkurn tíma. Islenskir tónlistarmenn finna einnig lykilinn að velgengni erlendis. Málið er að leggja alla orku í að semja eitt gott lag sem nær smávinsældum og því fylgir svo tragískur dauði eins hljómsveitarmeðlimsins. Flestar grúppur gerast gungur hinar mestu og halda sig við örfrægðina á íslandi en nokkrar láta slag stan- da. Af virðingu við þá einstaklinga sem láta lífið í frægðarkapphlaupinu verða nöfn þeirra og hljómsveita þeirra ekki gefin upp. Kiddi í Hljómalind vinnur stóra pottinn í Víkingalottóinu. I kjölfarið kaupir hann Skífuna, hendir út glanspoppinu og þessum þyrni í augum jaðartónlistarfólks er breytt í himnaríki fyrir fólk sem hlustar á „undarlega" tónlist og er með lopahúfur, illa snyrt líkamshár og í druslulegum fötum. Fjölmiðlar Utvarpsmarkaðurinn tekur stórstígum breytingum á árinu. Gamlar raddir kveðja og nýjar koma í staðinn. Stjáni stuð fær enn stærra hlutverk á Radíó- X og bolar í raun dagskrárstjóranum Þossa út. Ekki svo að skilja að Þossi hætti alveg en Stjáni hirðir af honum Prime-tímann á daginn. Stjáni hefúr enda slegið eftirminnilega í gegn á stöðirjni urn helgar. Á FM957 vekur óvænt endurkoma Rúnars Róbertssonar mesta eftirtekt en hann er kall- aður til eftir að Kalli Lú er kosinn burt af hlustendum stöðvarinnar. Bylgj- an breytist ekki frekar en fyrri daginn en Rás 2 er í varnar- hug og gefur heilmikið í á árinu. Oli Palli leiðir uppreisn- ina sem miðar að mörgu leyti að því að fá Gest Einar Jónasson aftur. Það hefst fyrir rest en Axel Axelsson er sendur norður í staðinn. SkjárEinn þarf ekki að hafa miklar áhyggjur af samkeppni frá Stöð I og heldur enn stöðu sinni sem ferskasta stöðin á markaðinum. Nýir þættir fara að sjálfsögðu í loftið og þer þar helst að nefna þátt Kolbrúnar Halldórsdóttur um siðspillingu í Reykjavfk. f ó k u s 4.janúar2002 4.janúar 2002 f ó k u s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.