Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2002, Blaðsíða 22
u
... Á Ham-bíómyndina
Þeim fjölgar stöðugt góðum heimildar-
myndum sem detta inn á borð landsmanna
og á dögunum bættist sú síðasta í hópinn.
Kvikmyndin um Ham er hin ágætasta
skemmtun og ætti að henta flestum. Það er
auðvitað hálfgert möst að sjá hvernig málin
gengu fyrir sig hjá einni merkustu rokksveit
okkar ágætu þjóðar. Hið óvænta kombakk í
vor er líka besti bónus sem nokkur sveit gat
fengið. Skyldumynd.
... Á ÚTSÖLUR
Ef þú átt einhverjar krónur 1' vasanum
eftir jólageðveikina hlýtur þetta að teljast
rétti tíminn til að eyða þeim. Þó geðveikin á
stærstu útsölunum slái jafnvel jólaösina
sjálfa út er afslátturinn í sumum tilvikum
slíkur að fólk getur varla sleppt þessu. Frétt-
ir um allt að 90% afslátt í Hagkaupi hljóta
að ýta við fólki. Alla vega til að kíkja inn ...
... Á Cyrano í Þjóðleikhúsinu
Stefán Karl Stefánsson þykir fara á kost-
um í þessu merka stykki og ekki hefur verið
kastað til höndunum við uppsetninguna að
þessu sinni. Tvímælalaust ein af bestu leik-
sýningum síðari ára. Ef þú ert þessi týpa sem
aldrei fer í leikhús ætti þetta líklegast að
vera undantekningin.
... á Tapas-barinn
Já, hver hefði trúað því að hægt væri að
anda að sér ekta spænsku andrúmslofti um
miðjan vetur í henni Reykjavík? Það er nú
einfaldlega málið á Tapas-barnum sem er til
húsa í Hlaðvarpanum. Maturinn er góður og
stemningin tilvalin til að hita upp fyrir sól-
arlandaferðirnar í sumar.
Fyrsti þátturinn í þáttaröðinni Fyrirgefðu leit dagsins Ijós annan í
jólum, á hátíð árs og friðar, enda viðeigandi að frumsýna slíkan þátt
á þeim tíma. Þar voru tvær sögur leiddar til lykta og sátt fundin. En
af nógu er að taka í litia samfélaginu íslandi og á sunnudaginn verð-
ur þáttur númer tvö á dagskrá Skjás eins og eins og venjulega er
Fókus með smjörþefinn af honum.
fillir sattir eftir
Það voru tvö
ólík en þó nokk-
uð tengd mál í
gangi í fyrsta
þætti Fyrirgefðu
sem sýndur var á
Skjá einum að
kvöldi annars
dags jóla. Þau
voru ólík að því
leytinu til að
annað hafði varað
stutt og orsakir
kulda í samskipt-
um léttvægar
miðað við orsakir
hins málsins,
sem einnig hafði
grasserað í
áraraðir. Þó
tengdust þessar
sögur á þeim
nótum að báðar
áttu sér stað á
æskuárum.
Bætt samskipti
Félagamir Danni og Aron, 14 ára, úr Hafnarfirði, hafa verið
vinir í langan tíma en fyrri part vetrar slettist upp á vinskap-
inn og þeir hættu að talast við. Danna leið illa yfir þessu og
baðst afsökunar í Fyrirgefðu. Eftir áreiðanlegum heimildum eru
þeir félagar nú perluvinir á ný. Hin sagan sem sögð er, eins og
áður sagði, er mun alvarlegri og langvinnaji en saga Danna og
Arons. Hún fjallaði um þau Sædísi og Arna í Grundarfirði.
Sædís hafði gerst sek um að leggja Árna í allsvakalegt einelti á
bamaskólaárun-
um og samvisk-
an hafði verið að
naga hana um
þónokkurt
skeið. Hún baðst
því fyrirgefning-
ar með milli-
göngu Felix
Bergssonar, um-
sjónarmanns
Fyrirgefðu. Árni
tók fyrirgefning-
unni með bros á
vör.
Þegar slegið
var á þráðinn til
þeirra fyrir vest-
an lá vel á þeim
báðum. Sædís
taldi þau vera
sátt eftir fund-
inn í Fyrirgefðu.
„Við erum
reyndar ekki
búin að hittast
mikið yfir hátíð-
irnar sökum
annríkis. Eg
held hins vegar
að við séum bæði
mjög sátt og hef alla
trú á að við munum
eiga betri samskipti
í framtíðinni." Það
lá einnig vel á Árna
og hann er sáttur.
„Það var virkilega
skemmtilegt að taka
þátt í þessu og sam-
skipti okkar Sædís-
ar búin að vera j;óð
eftir það.“ Árni
bætir síðan við að
hann sé mjög
ánægður með að
hafa slegið til og
tekið þátt og mælir
eindregið með því
við annað fólk að það
geri hreint fyrir sín-
um dyrum.
Verslunarstjóri
STELUR STRÆTÓ
I næsta þætti,
sem sýndur verður á
sunnudagskvöldið, verða tvær nýjar sögur í boði fyrir áhorfend-
ur Skjás eins og gerast þær báðar á Akureyri. I annarri gerir
Óðinn, verslunarstjóri Bónus-verslunarinnar í bæjarfélaginu,
hreint fyrir sínum dyrum og biðst afsökunar á því að hafa stolið
einu stykki strætó, með leiðindaafleiðingum fyrir aðra mann-
eskju. I hinni sögunni kemur síðan presturinn á Akureyri
óvænt fram. Hann hefur gamlar syndir sem hann þarf að gera
upp. Að auki eiga svo áhorfendur Fyrirgefðu von á óvæntri fyr-
irgefningu og því
vænlegra að fylgjast
með.
Aðstandendur
þáttarins segjast
vilja þakka þeim
hugrekkið sem tóku
fyrstu skrefin í þætt-
inum. Að sögn
þeirra hafa íslend-
ingar tekið við sér
eftir fyrsta þáttinn
og nú streymi inn
sögur. Þeir sem hafa
eitthvað óhreint í
pokahorninu gagn-
vart öðrum einstak-
lingum geta sent
inn sfna sögu á fyr-
irgefdu@sl.is eða
hringt f síma 511
4030.
fyrsta þátt
Árnitók sáttahönd Sædísar fsfðasta þætti og segir lífið betra á eftir.
Óðinn, verslunarstjóri Bónuss á Akureyri, gerðist fullkærulaus og vitl biðjast
afsökunar.
erjir \erða hvar?
*
*
Brúðkaupoc Hverfisbar-
INN
„A föstudagskvöldið fer ég í
brúðkaupsveislu hjá vinum
mínum þeim Jóni Agli og
Heiðrúnu en ég er víst
skemmtanastjóri í veislunni
og ætla að sjá um ýmsa leiki
og annað sprell. Á laugardag-
inn fer ég að æfa í Planet City
og skelli mér lfklega í Vestur-
bæjarlaugina á eftir. Um
kvöldið kíki ég eitthvert út
ásamt vinkonum mfnum og
er Hverfisbarinn ofarlega á
lista. A sunnudaginn ætla ég
að hvíla mig, hlaða batteríin
og borða góðan mat. Ekki er
ólíklegt að ég kíki á Salatbar
Eika sem er alveg frábær."
Unnur Pálmarsdóttir líkams'
ræktarþjálfari
BÍÓ OC KÖRFUBOLTI
„A föstudagskvöldið
langar mig í bíó að sjá
„Lord of the Rings“, ef
það verður þá ekki upp-
selt eins og verið hefur
yfir hátíðarnar. Á laugar-
dagsmorguninn fer ég
svo á æfingu og aðra um
kvöldið. .Það er leikur^ á
sunnudaginn á móti ÍR
svo maður verður bara
rólegur. Eftir leikinn för-
um við strákarnir í liðinu
og fáum okkur pitsu. Þar
sem það er svo skóli dag-
inn eftir þá býst ég við að
fara bara snemma í bólið
á sunnudagskvöldið."
Jón Amór Stefánsson,
körfuboltakappi í KR
Flytur í borgina
„Eg er að flytja frá Ak-
ureyri til Reykjavíkur um
helgina. Ég býst því við
að nota helgina til þess að
koma mér almennilega
fyrir í nýju íbúðinni sem
er í Sundunum. Þetta er
leiguíbúð og það gleymd-
ist að þrífa hana áður en
ég fékk hana afhenta
þannig að ég verð að byrja
á því að taka hana í gegn.
Annars langar mig til að
kíkja eitthvert út um
helgina og ætla að reyna
að fara í bíó á einhverja
góða mynd.“
Amar Grant, einka-
þjálfari hjá Fitness Sport
(www.fitnesssport. is)
f ó k u s
22
4. janúar 2002