Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Page 7
7
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
I>V Fréttir
Annir á hundahóteli eftir áramót og þrettánda:
Tugur óskilahunda
eftir flugeldaregn
Um tíu óskilahundar voru fluttir
á hundahótelið á Leirum um ára-
mót og þrettándann. Þeir höfðu
flæmst frá eigendum sínum í flug-
eldaregninu sem dunið hefur yfir
höfuðborgarsvæðið undanfarna
daga. Lögreglan tók þá og flutti ým-
ist til hundaeftirlitsmanna eða beint
á hundahótelið. Eigendur hafa vitj-
að allra hundanna nema eins sem
hefur verið á Leirum frá því um
áramót.
Jón Þórarinn Magnússon, hunda-
eftirlitsmaður í Reykjavík, sagði við
DV að óvenjurólegt hefði verið hjá
sér kringum áramót og þrettánda.
Komið hefði verið til þeirra með 2-3
hunda sem hefðu hlaupist frá eig-
endum sínu af ótta við flugelda-
hvellina. Tveir þeirra hefðu verið
sóttir strax en sá þriðji væri ósótiur
enn þrátt fyrir að hann hefði verið
auglýstur. Hann væri nú á hunda-
hótelinu á Leirum.
Jón Þórarinn sagði að ástæður
þess að fáir hundar týndust í ár
væru líklega þær að hundaeigendur
væru orðnir meðvitaðri og passa-
samari með dýrin sín heldur en
áður hefði verið. Undanfarin ára-
mót hefði verið „vitlaust að gera“
en nú hefði þetta nánast ekki verið
neitt.
„Það er ekki lengra síðan en í
hittifyrra að það voru um 4-5 útköll
á nóttunni og svo var verið að tína
upp hunda í tvo, þrjá daga eftir-
sprengikvöldin," sagði hundaeftir-
litsmaðurinn..
Hreiðar Karlsson, forstöðumaður
hundahótelsins á Leirum, sagði að
um 200 óskilahundar kæmu þangað
á ári hverju. Mest væri um þá þeg-
ar færi að vora. í 90 prósent tilvika
væru þeir sóttir. Ef reyndin væri
ekki sú væri reynt að koma þeim í
hendur góðs fólks. -JSS
Hver á hann?
Þessi hundur, sem er líklega um
ársgamall, er í óskilum á hundahót-
elinu á Leirum. Hreiðar Karlsson for-
stöðumaður heldur á seppa sem
bíður þess að verða sóttur.
Hafnarfjörður:
Fimm verk-
efni styrkt
Jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar hef-
ur samþykkt að styrkja fimm jafnrétt-
isverkefni um alls eina milljón króna.
Þetta er í annað sinn sem nefndin út-
hlutar slíkum styrkjum og fór úthlut-
unin að þessu sinni fram á fundi
hennar þann sjötta desember síðast-
liðinn.
Hæsta styrkinn hlaut Félag
ábyrgra feðra og var hann 350.000
krónur. Styrkinn mun félagið nota til
að halda málþing um stöðu föðurhlut-
verksins á íslandi í aldarbyrjun. Þá
hlaut hópur kvenna, sem kalla sig Of-
urkonumar, 250.000 króna styrk til að
setja upp leikrit í Hafnarfjarðarleik-
húsinu um stöðu íslenskra kvenna.
Rannsóknarstofa í kvennafræðum og
fleiri hlutu 200.000 króna styrk til að
koma á fót vefrænum kvennagagna-
banka. Einnig fengu þær Jóhanna
Magnúsdóttir stjórnmálafræðingur
og Sólbjörg Sólversdóttir hjúkrunar-
fræðingur 100.000 króna styrk hvor til
að skrifa bók um kvenréttindi og und-
irbúa jafnréttisnámskeið fyrir karl-
menn. -MA
Álfhólsvegur:
Lítil stúlka
varð fyrir bíl
Átta ára gömul stúlka varð fyrir
bíl á Álfhólsvegi i Kópavogi í
gærmorgun. Að sögn lögreglu fór
stúlkan yfir götuna á svokallaðri
þrengingu en ekki gangbraut.
Bílstjórinn sá stúlkuna ekki fyrr en
um seinan. Hún var ílutt með
sjúkrabifreið á Landspítalann en
meiðsl hennar voru ekki talin
alvarleg. -aþ
DV-MYNDIR GARÐAR HARÐARSON
Martröð ökumannsins
Það er martröð ökumanna að fá
fljúgandi hluti gegnum framrúðuna í
miklu roki. Þessi bíll stóð heima við
hús þegar bárujárnsplatan fór í
gegnum rúöuna. Ekki er Ijóst með
ábyrgðina á skemmdum á bílnum.
Stöövarf j örður:
Bárujárn
gegnum
framrúðuna
Félagar í björgunarsveitinni
Björgólfi á Stöðvarfirði stóðu í
ströngu á sunnudagskvöldið en
þeir voru kallaðir út í veðurofsan-
um klukkan 19.30. Járnplötur losn-
uðu af Borgargarði, sem er gamalt
hús í austurenda þorpsins, og fauk
jámið á bíl og skemmdi hann
verulega, að sögn Sveins Orra
Harðarsonar, formanns björgunar-
sveitarinnar.
Einnig fauk 40 feta gámur frá
bræðslunni og rak hann á land við
bæinn Óseyri við botn fjarðarins.
Annar 40 feta gámur fór af stað við
frystihús Samherja og hafnaði
hann á beituskúr og beygði ljósa-
staur. Skemmdir eru óverulegar á
skúrnum. Nýtt auglýsingaskilti
við veitingastaðinn Kútterinn
hvarf út í veður og vind og lausa-
munir fuku vítt og breitt. -GH
Héðan kom platan
Frá þessu yfirgefna húsi kom járn-
platan fljúgandi á bílinn. Húsið er í
eigu íbúðalánasjóðs.
s M
y* ' handverk ■ *•: SA!^ WKf ■
r- f' iiilíuM, * 4/ ■
Brúarskáli í Hrútafirði
Veitingamaðurinn látinn fjúka - eftir að hafa óhlýðnast kaupfélagsstjórninni.
Deilur í Hrútafirði:
Veitingamaður í
Brúarskála rekinn
- og kaupfélagsstjóri segir af sér
Væringar hafa verið undanfamar
vikur innan Kaupfélags Hrútfirðinga á
Borðeyri og hafa tekið óvenjulega
stefnu. Bjama Yngvasyni, sem séð hefúr
um rekstur veitingaskálans að Brú í
Hrútafirði, var snemma í sl. mánuði
sagt upp störfum en hann vék þó ekki
strax af velli. Þann 10. desember komu
stjóm kaupfélagsins og kaupfélagsstjór-
inn, Guðrún Jóhannsdóttir, svo á stað-
inn og sögðu Bjama að hafa sig á brott.
Hafði þetta í fór með sér nokkum æsing
í sveitinni og réttri viku síðar, 17. des-
ember, komu stjóm og fulltrúaráð kaup-
félagsins saman til fundar. Var hann
nokkuð átakamikill og bar þar hæst
kjarnyrta ræðu kaupfélagsstjórans sem
í lokin tilkynnti að hún hefði sagt upp
störfúm tíu dögum fyrr. Uppsögnin mun
vera ótengd máli veitingamannsins á
Brú.
Forsaga máls þessa er sú að 3. desem-
ber barst Bjama Yngvasyni bréf frá
stjóm kaupfélagsins og kaupfélagsstjóra
þar sem honum var sagt upp störfum
frá næstliðnum mánaðamótum. Hann
sagðist i DV hafa ákveðið að hafa sig
hægan fyrst um sinn en viku síðar var
honum gert að hafa sig á brott. „Mergur
málsins er sá að ég er rekinn fyrir
óhlýðni en fundin var upp sú tylli-
ástæða að það væri orðið meira af vatni
en disilolíu á tönkunum héma. Maður
sem hér fór um klagaði þetta til Olíufé-
lagsins en sjáifúr veit ég að þetta er
ósatt. Var sjálfur fáum dögum áður bú-
inn að keyra 300 km á olíu héðan og allt
gekk eins og í sögu,“ segir Bjami.
Hann viðurkennir að vissar væringar
hafi verið milli sin og yfirstjórnar kaup-
félagsins. Þannig hafi hann ekki fengið
í gegn ýmsar endurbætur á veitinga-
skálanum á Brú sem hann hafi beðið
um og talið nauðsynlegar. Þá hafi verið
fram hjá því horft að reksturinn sé
helsta og besta mjólkurkýr félagsins og
hafi á síðustu tveimur árum undir sinni
stjóm skilað góðum hagnaði.
„Ég held að það sé ekki vert að fara
með þetta mál í fjölmiðla en ég get þó
staðfest að veitingamanninum á Brú
var ekki sagt upp að ástæðulausu,"
sagði Jósep Rósinkransson, bóndi i
Fjarðarhomi og formaður kaupfélags-
stjómarinnar, þegar DV leitaði eftir þvi
í gær. Um fulltrúaráðsfúnd kaupfélags-
ins staðfesti Jósep að þar hefði hvesst
nokkuð ... en ekkert alvarlega," eins og
hann komst að orði. Guðrún Jóhanns-
dóttir kaupfélagsstjóri vildi ekkert tjá
sig um mál þetta þegar DV leitaði eftir
því í gær. -sbs
TILKYNNING
INSURANCE COMPANIES ACT 1982 (BRESK
LÖG UM TRYGGINGAFYRIRTÆKI, 1982)AEGON
INSURANCE COMPANY (U.K.) LIMITED
TILFÆRSLA ALMENNRA VIÐSKIPTA
1. TILKYNNT ER HÉR MEÐ að Aegon Insurance
Company (U.K.) Limited (áður þekkt undir nöfnunum
Coronet Insurance Company Limited, Triumph
Insurance Company Limited, og Ennia Insurance
Company (U.K.) Limited) (fyrirtækiskennitala: 866262)
hefur þann 27. nóvember 2001 sótt hjá Financial
Services Authority (breska fjármálafyrirtækjaeftirlitinu)
um samþykki þess samkvæmt viðauka 2C við Insurance
Companies Act 1982 til að færa til Guardian Assurance
plc (fyrirtækiskennitala: 00038921) öll réttindi og
skuldbindingar þess sem lúta að tryggingarskírteinum
sem gefin voru út fyrir 9. febrúar 1997, að undanteknum
þeim samningum sem mynda viðskipti sem
eftirlitsaðilar í Kanada og Bandaríkjunum hafa
heimilað.
2. Fram til 30. nóvember 2001 hafði Financial Services
Authority heimild til að beita viðeigandi valdi
fjármálaráðuneytisins samkvæmt Insurance Companies
Act 1982, samkvæmt II. hluta, Deregulation and
Contracting Out Act 1994, og Contracting Out
(Functions in Relation to Insurance) Order 1998. Frá 1.
desember 2001 hefur Financial Services Authority
heimild til að beita viðeigandi valdi samkvæmt viðauka
2C við Insurance Companies Act 1982 samkvæmt
Financial Services and Markets Act 2000 og
(Transitional Provisions and Savings) (Business
Transfers) Order 2001.
3. Eintök af greinargerð um fyrirhugaða færslu liggja
frammi á skrifstofu Pricewaterhouse Coopers ehf.,
Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík, mánudaga til föstudaga,
8.30 f.h. til 4.30 e.h. fram til 8. febrúar 2002.
4. Skrifleg umboð varðandi færsluna má senda til
Insurance Firms Division hjá Financial Services
Authority, 25 The North Colonnade, Canary Wharf,
London E14 5HS, fyrir 11. mars 2002. Financial
Services Authority tekur ekki ákvörðun um
færslubeiðnina fyrr en að athugun lokinni á slíkum
umboðum sem send eru í tæka tíð.