Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Blaðsíða 9
9
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
3>V Norðurland
Samfylkingin á Akureyri:
Bæjarlögmaður Akureyri:
Flokksmenn raði
sjálfir uppröðun
- skoðanakönnun póstsend - fyrirkomulagið fjölgar flokksmönnum
Jón Ingi Ásgeir Oktavía
Cæsarsson. Magnússon. Jóhannesdóttir.
Samfylkingin hefur ákveðið að
efna til skoðanakönnunar meðal
flokksmanna um hvernig skipa beri
efstu sæti listans fyrir bæjarstjórn-
arkosningarnar á Akureyri í vor.
Flokkurinn er sá eini i bænum sem
viðhafa mun þetta fyrirkomulag, að
því er næst verður komist. Ákvörð-
unin var tekin i samráði við Stólpa,
félag ungra jafnaðarmanna á Norð-
austurlandi.
Félögum í Samfylkingarfélaginu
og Stólpa hafa verið sendir kjörseðl-
ar og verða svör að hafa borist fyrir
fóstudaginn 18. janúar. Einnig
munu þeir sem ganga í Samfylking-
arfélagið eða Stólpa áður en skila-
fresturinn rennur út fá afhent kjör-
gögn. Rúmlega 300 manns
eru skráðir í Samfylkinguna
en Jón Ingi Cæsarsson, for-
maður Samfylkingarfé-
lagsins á Akureyri, segir i
samtali við DV að fjölgun í
flokknum hafi þegar orðið
frá því að fyrirkomulagið
spurðist út. „Þetta er
akkúrat það sem ýtir við þvi
fólki,“ segir Jón Ingi.
Hermann Tómasson upp-
stillingarnefndarmaður segir að
könnunin hafl verið póstsend í
fyrradag og séu 18 nöfn á listanum.
Um ástæður þessarar tilhögunar
segir Hermann: „Þetta er svona
millileið. Við- viljum heyra í öllu
flokksfólki vegna þess að þetta er
nýtt framboð. Það er eðlilegt að við
viljum vita hvernig menn eru
stemmdir."
Ásgeir Magnússon, formaður bæj-
arráðs og núverandi leiðtogi sam-
einaðs Akureyrarlista, er með-
al þeirra sem sækjast eftir for-
ystustörfum í Samfylkingunni.
Ásamt Ásgeiri má finna nöfn
Oktavíu Jóhannesdóttur bæj-
arfulltrúa, Sigrúnar Stefáns-
dóttur, formanns Jafnréttis-
nefndar, og Jóns Inga Cæsars-
sonar, svo dæmi séu tekin.
Vinstri grænir höfnuðu
samstarfi við Samfylkinguna
og því munu fjögur tU fimm öfl
berjast um sæti 11 bæjarfulltrúa á
Akureyri. Sjálfstæðisflokkur, Fram-
sóknarflokkur, Samfylkingin,
Vinstri grænir og að líkindum sér-
framboð Odds Helga Halldórssonar,
Listi fólksins. -BÞ
Nýtt starf hjá Akureyrarbæ:
Um 50 sóttu um
Rétt tæplega 50 umsóknir bárust
Akureyrarbæ um stöðu verkefnis-
stjóra kynningar- og upplýsinga-
mála bæjarins en umsóknarfrestur
rann út fyrir skömmu.
Um er að ræða nýtt starf hjá bæn-
um og í hópi hinna fjölmörgu um-
sækjenda er talsvert um fjölmiðla-
menn. Kristján Þór Júlíusson bæj-
arstjóri segi að ákvörðun um hver
hreppi nýja starfið verði tekin fyrir
vikulok. -gk
Vilja fleiri
umsóknir
Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa
framlengt umsóknarfrest um stöðu
bæjarlögmanns til 14. janúar, en Há-
kon Stefánsson bæjarlögmaður hef-
ur sagt stöðunni lausri.
Umsóknarfrestur um stöðuna
rann út fyrir skömmu og bárust
þrjár umsóknir um hana. Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri segir að
menn hafi viljað freista þess að hafa
úr „meiru úrvali umsækjenda" að
velja þegar tekin verður ákvörðun
um hver verði næsti lögmaður bæj-
arins. -gk
Akureyri:
Engin ákvörðun
um Dalsbraut
Kristján Þór Júliusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, segir að engin
ákvörðun hafi verið tekin um það að
hefla framkvæmdir við Dalsbraut
sem tengja á Þingvallastræti og
Borgarbraut. Umhverfisráð bæjarins
ályktaði um málið og i framhaldi af
því sendi bæjarstjórnin bókun um-
hverflsráðsins til framkvæmdaráðs.
Umhverfisráðið beindi þeim til-
mælum til framkvæmdaráðs að
framkvæmdir við Dalsbraut milli
Borgarbrautar og Þingvallastrætis
yrðu settar á framkvæmdaáætlun
2002 en samkvæmt drögum aö
þriggja ára áætlun er gert ráð fyrir
framkvæmdum við Dalsbraut árin
2003 og 2004. Að sögn Kristjáns Þórs
bæjarstjóra liggur framkvæmda-
áætlun bæjarins ekki fyrir og hefur
ekki til þessa a.m.k. verið gert ráð
fyrir að framkvæmdir við Dalsbraut
heQist á árinu. -gk
Við Akureyrarhöfn
Ryökláfurinn Omnya. Bölvaldur sem ekki tekst aö losna viö.
Akureyri:
Omnya er fljót-
andi flak
- segir Siglingastofnun
„Sérfræðingar skoðuðu Omnya
fyrir áramótin og kváðu eftir það
upp þann dóm að skipið væri fljót-
andi flak. Þetta þýðir með öðrum
orðum að ekki verði gert við skipið
heldur sé ekki annar möguleiki í
stöðunni en sá að klippa skipið nið-
ur i brotajárn," sagði Hörður Blön-
dal, hafnarstjóri á Akureyri, í sam-
tali við DV.
Enn virðist fjarri að ryðkláfurinn
Omnya, sem hefur verið bundinn
við bryggju á Akureyri sl. fimm ár
eða svo, fari á brott. Hafnaryfirvöld
hafa reynt ýmsar leiðir í þeim til-
gangi, svo sem að svipta rússneska
eigendur skipsins yfirráðarétti sín-
um yfir skipinu. Þær hafa enn ekki
borið árangur en leiða í þeim til-
gangi er áfram leitað, svo sem
þeirra að bjóða skipið upp, en eig-
endurnir hafa ekki greitt af því
hafnargjöld síðan í september.
Hörður Blöndal segir mat þeirra
manna sem best til þekkja vera að
Omnya verði ekki rifin niður hér á
landi.
Tækjabúnaður islenskra vél-
smiðja ráði tæpast við verkefnið. Þá
séu kröfur um meðferð brotajáms
og spiRiefna hérlendis strangar og
kostnaður við fórgun þeirra hér-
lendis meiri en í sumum öðrum
löndum. -sbs
Fro/iskunámskdð
¥tf§ur haldiÖ 14. \múm 2002.
InnrHun Hl 11. janúar.
NámskeiS fyrir byrjendur og lengra komna.
Námskeið fyrir börn.
Taltímar, einkakennsla.
Kennum í fyrirtækjum.
Upplýsingar í símum
552 3870 og 562 3820.
Alliance Francaise
Hringbraut 121 /JL-HúsiÖ. • Símar: 552 3870 og 562 3820. • Fax; 562 3820.
Netfang: af@ismennt.is. • Veffang; http//af.ismennt.is. • Opið 13.30-19.00
<B
c
'<ö
'>»
'0X1
3
<C
'<C
E
</>
Mundu
afsláttinn
þegar þú staðgreiðir eða borgar með korti
p°rsche qh ~ -«™bmhhi
EUROCARD
Masten
vÍSA
H wom M
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍf.ÍS 550 5000