Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Blaðsíða 12
12
Viðskipti__________
Umsjón: Vidskíptablaðiö
Tæplega 1,6 milljónir gesta í Smáralind frá opnun til ársloka:
20% umfram væntingar
Alls komu tæplega 1,6 milljónir
gesta i Smáralind á rúmlega tveggja
og hálfs mánaðar tímabili, þ.e. frá
opnun verslunarmiðstöðvarinnar
10. október sl. til ársloka 2001. Þessi
aðsókn er um 20% meiri en upphaf-
legar áætlanir stjórnenda verslun-
armiðstöðvarinnar gerðu ráð fyrir.
Þetta kom fram 1 Viðskiptablaðinu
er kom út í morgun.
í desember komu tæplega 600 þús-
und gestir í Smáralind, þar af komu
um 220 þúsund gestir síðustu vik-
una fyrir jól. Á Þorláksmessu komu
um 50 þúsund manns í verslunar-
miðstöðina og er það íjölmennasti
dagurinn frá opnunarhátíðinni í
október sl.
í fréttinni er vitnað í fréttatil-
kynningu frá Smáralind þar sem
segir að talning gesta sé fram-
kvæmd með fullkomnum hátækni-
búnaði viö alla 10 innganga sem
gestir verslunarmiðstöðvarinnar
fara um. Um er að ræða tækni sem
fyrirtækið Vaki DNG hefur þróað í
samvinnu við Smáralind og hefur
vakið athygli. Þessi talningaraðferð
þykir ein sú nákvæmasta sem not-
ast er við i heiminum i dag og mun
nákvæmari en þær talningaraðferð-
ir sem notaðar eru annars staðar
Smáralind
/ desember komu tæplega 600 þúsund gestir í Smáralind, þar af komu um 220 þúsund gestir síöustu vikuna fyrir jól.
hér á landi segir í tilkynningunni. I
desember var gengið frá tengingu
búnaðar sem telur alla bíla sem
leggja á bílastæðum við Smáralind.
Frá þeim tíma liggja fyrir nákvæm-
ar tölur um alla umferð í og við
Smáralind en þær gefa m.a. mikil-
vægar upplýsingar um meðalheim-
sóknartíma í húsið og meðalfjölda í
hverjum bíl.
Áætlaö er að heildarsalan í
Smáralind frá opnun 10. október sl.
og til ársloka hafi numið tæpum 3
milljörðum króna. Þessi sala er i
takt við áætlanir stjórnenda versl-
unarmiðstöðvarinnar sem gerðu
ráð fyrir að heildarsala í Smáralind
næmi um 10-12% af heildarársveltu
smásölumarkaðarins á höfuðborg-
arsvæðinu.
Hlutfall utan-
þingsviðskipta
með hluta-
Árið
bréf eykst
2001
dróst velta með
hlutabréf sam-
an um 31% að
markaðsvirði
en um 18% að
nafnvirði. Mis-
munurinn á
samdrætti í
markaðsvirði annars vegar og nafn-
virði hins vegar er tilkominn vegna
lækkandi hlutabréfaverðs á árinu 2001
að því er segir í Hálf fimm fréttum
Búnaðarbanka íslands, en á árinu
lækkaði vísitala Aðallista um tæp 10%.
Greiningadeild Búnaðarbankans
vekur sérstaka athygli á að á síðasta
ári var hlutfall utanþingsviðskipta
með hlutabréf að aukast en hlutfall ut-
anþingsviðskipta á síðasta ári nam
77% m.v. að árið 2000 var hlutfallið
72%. Aukið hlutfall utanþingsvið-
skipta þýðir í raun að veltan bak við
verðmyndun hlutabréfa á Verðbréfa-
þingi hefúr minnkað meira en veltutöl-
umar gefa til kynna.
Aukin bjartsýni á íslenskum hlutabréfamarkaði?
Stóru fyrirtækin
hækkuðu um 4% í gær
Svo virðist sem aukin bjartsýni í
upphafi árs hafi leitt til 1,67%
hækkunar Úrvalsvísitölunnar í
gær, en þetta kom fram í Viðskipta-
blaðinu í morgun. Stór fyrirtæki
eins og Bakkavör Group, Baugur,
Pharmaco og Össur hækkuðu öll í
kringum 4%. Töluverð viðskipti
voru á bak við hækkanirnar og
voru viðskipti með bréf Bakkavarar
til að mynda 4,3 milljarðar. Úrvals-
vísitalan hækkaði um 1,67% og er
núna 1.177 stig.
í blaðinu er rætt viö Rósu Guð-
mundsdóttur hjá greiningardeild
Kaupþings sem sagöist telja að
hækkunina mætti skýra með nýju
ári. Hún sagði að markaðurinn
hefði hækkað töluvert mikið frá 30.
des. „Það er almenn bjartsýni sem
skýrir þessa hækkun. Fólk virðist
vera orðið almennt bjartsýnna en á
haustmánuðum og hafa meiri trú á
hlutabréfamarkaðnum. Þaö hafa
líka komið fram jákvæðar fréttir af
íslenskum fyrirtækjum undanfarið
og fólk er aðeins farið að haga kaup-
um sínum í takt við þær.“
í samtali við einn miðlara kom
fram að hann taldi að það væri eitt-
hvað að gerast á bak við tjöldin hjá
Pharmaco og það hefði skýrt þessa
hækkun. Hann sagði að hækkunin
hefði verið undarleg þvi allt í einu
hefði komið til mikill kaupáhugi á
bréfum félagsins. Hann bjóst jafnvel
við frétt frá félaginu innan skamms.
Varðandi Baug taldi hann að félagið
ætti hækkunina inni því að í dag er
markaðsverðmæti Baugs 17,6 millj-
arðar og þar af er eign félagsins í
Arcadia 15 milljarðar þannig að
Baugur á íslandi og í Bandaríkjun-
um er því aðeins metinn á 2,6 mlllj-
arða sem er augljóslega vanmat.
Hann taldi jafnvel að bankamir, og
þá aöallega Kaupþing, stæðu að ein-
hverju leyti á bak við þessar hækk-
anir og að þetta gæti verið jafnvel
einhver „veltubókarglýja“. Hann
taldi þá vera að reyna að skapa
stemningu á markaðnum til að aðr-
ir fjárfestar héldu síðan áfram að
draga vagninn. Hann benti á að ís-
landsbanki og Kaupþing væru með
um 50% af veltunni í dag.
Dreifðari eignar-
aðild að Bakkavör
il finmtegJiaic,
Vinnínsarnir verða sendir í pósti næstu
Þökkum Þátítökuna. Tísri oö Halldóra
Vinningshafar í Krakkaklúbbi DV SHREK
Margrét Sœmundsdóttir nr. 17006
Ásdís Gunnarsdóttir nr. 18573
Sólberg V. Einarsson nr. 17189
Bjarghildur V. nr.17190
Suðrún A. Sigurðardóttir nr. 18530
Hókon F. Kristjónsson nr. 17646
Haraldur J. Haraldsson nr. 11764
Alexander F. Jensson nr. 17848
Eydís Ý. Jónsdóttir nr. 16382
Björgvin M. Guðjónsson nr. 8991
- tæp 21% í eigu útlendinga
Hlutaíjárútboðið sem Bakkavör
hélt í kjölfar kaupanna á Katsouris
Fresh Food Ltd. hefur leitt til mun
dreifðari eignaraðildar félagsins. Fyr-
ir útboðið áttu 10 stærstu eigendum-
ir 73% hlutafjár en eftir útboðið er
hlutafiáreign 10 stærstu komin niður
í 61%. Eftir sem áður er eignarhalds-
félag þeirra bræðra, Bakkabræður
S.a.r.l, stærsti eigandinn en eftir út-
boðið er eign þeirra um 29% en var
41,5% fyrir útboðið. Eftir útboðið eiga
40 stærstu eigendumir um 89% og er
21% hlutafiár i eigu útlendinga.
Opnar gáttir semja við IntraLearn
Opnar gáttir ehf. hafa gert samn-
ing við IntraLearn inc. Samningur-
inn gerir Opnum gáttum kleift að
bjóða fullnaðarlausn í vefbundnu
námi, Online Leaming, en í því felst
miðlæg vistun á námslausnum, að-
gangur að miðlægum hugbúnaði til
námsefnisgerðar, stýring á fram-
boði sem og mæling á stöðuupplýs-
ingum um námsframvindu og
námsárangri hvers nemanda, s.s.
hve lengi hann var við nám og hvað
hann gerði í náminu. Innan kerfis-
ins er einnig „e-Commerce“ sem
gerir einstaklingum mögulegt að
kaupa og selja námsefni á sameigin-
legu markaðstorgi.
í frétt frá Opnum gáttum kemur
fram að viðskiptavinir fyrirtækis-
ins kaupa aögang að kerfinu gagn-
vart fiölda notenda/nemenda í
áskriftarformi. Þannig geta þeir
fullnýtt sér alla möguleikana sem
vefbundið nám býður upp á án þess
að fiárfesta í sérstökum hugbúnaði
eða vélbúnaði. Þar sem allt er vistað
á miðlægum miðlara, „server", hafa
allir nettengdir einstaklingar mögu-
leika á að tengjast kerfmu og full-
nýta sér möguleikana sem þar bjóð-
ast. Meðal þeirra möguleika sem
viðskiptavinir hafa aðgang að eru:
ftarlegar aðgangsstýringar fyrir
hvern einstakling, spjallþræðir,
rauntímaspjall, glósur, sameiginleg
gagnageymsla verkefna fyrir hóp-
vinnu, geymsla og stýrð miðlun á
öllu gagnvirku efni, skráning á
notkun gagna, sala á námsefni, póst-
hólf og dagbók, svo nokkuð sé nefnt,
en þá er ekki allt talið.
Miðlægi hugbúnaðurinn til náms-
efnisgerðar er algjörlega samhæfður
viö „Office" forritin frá Microsoft
þannig að þeir sem kunna að nota
„Word, Excel og PowerPoint" geta
búið til námsefni og vistað það á
IntraLearn.
MIDVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
I>V
Ætti að styrkja
krónuna
Frumvarp um heimild til að skrá
hlutafé íslenskra hlutafélaga í erlendum
gjaldmiðli ætti, að öðru óbreyttu, að
styrkja krónuna vegna aukinnar eftir-
spumar eftir henni, að því er fram kem-
ur í Viðskiptablaðinu i morgun.
Fnimvarpið er nú til vinnslu í við-
skiptaráðuneytinu og er búist við þvi að
það verði lagt fram nú á vorþingi. Fram
kemur í Markaðsyfirliti íslandsbanka,
sem kom út i gær, að ef frumvarpið nær
ffarn að ganga á þingi megi ætla að
áhrif slíkrar heimildar á gengi krón-
unnar gætu orðið nokkur. Segir í Við-
skiptablaðinu að skipta megi þessum
áhrifum í tvennt.
í fyrsta lagi muni gjaldeyrisstaða
bankanna skekkjast þegar umskráning
á sér stað. Gjaldeyriseignin hækkar og
kallar það á leiðréttingu: draga verður
úr eignastöðunni eða auka skuldastöð-
una. Samkvæmt lauslegri áætlun Grein-
ingar ÍSB er eign bankanna í þeim fyr-
irtækjum sem líklega myndu óska eftir
skráningu í erlendri mynt á árinu (Öss-
ur, Marel, Delta, Pharmaco, SÍF og
Bakkavör) tæplega 7 milljarðar króna.
Skráningin ætti að auka eftirspum eftir
krónum um þessa fiárhæð á árinu.
Áhrifin verða svo meiri eftir því sem
fleiri fyrirtæki bætast við.
I öðru lagi muni skráning bréfanna í
erlendri mynt færa lífeyrissjóðina nær
þakinu í löglegri gjaldeyrisáhættu. Eign
lífeyrissjóðanna í ofangreindum fyrir-
tækjum er ríflega 6 milljarðar króna í
dag. Þetta gerir það að verkum að sjóð-
imir fara með minna af fiármagni út á
næstu árum. í ljósi þess hversu langt
flestir sjóðimir em frá mörkunum má
telja ólíklegt að þetta hafi einhver áhrif
á gengisþróunina á árinu.
HeimUd til skráningar verðbréfa í er-
lendri mynt gæti fiármagnað ríflega
fimmtung af þeim viðskiptahalla sem
spáð er á árinu (29 milljarðar króna).
Innflæði fjármagns vegna þessa gæti
orðið um 1 ma.kr. á mánuði að meðal-
tali, að því tilskildu að lögin öðlist gildi
í júní. Þetta ætti að efla krónuna að
verðgildi.
HEILDARVIÐSKIPTI 2.741 m.kr.
- Hlutabréf 662 m.kr.
- Spariskírteini 579 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
Baugur 145 m.kr.
íslandsbanki 96 m.kr.
C Kaupþing 88 m.kr.
MESTA HÆKKUN
OBaugur 4,8%
oBakkavör 4,1%
0 Össur 4,0%
MESTA LÆKKUN
Oisl. hugbúnaðarsjóöurinn 5,7%
O Flugleiðir 3,4%
©Opin kerfi 3,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.177 stig
- Breyting O +1,67%
Nýr forstjóri íslands-
síma tekinn til starfa
Óskar Magnússon, fyrrverandi
stjórnarformaður eignarhaldsfélags-
ins Þyrpingar, tók formlega við
starfi forstjóra Íslandssíma af Ey-
þóri Arnalds nú um áramótin. Ósk-
ar hefur þarft verk að vinna við að
ná upp gengi Íslandssíma sem lækk-
aði mikið á árinu sem leið. Forstjór-
inn fyrrverandi er aftur á móti kom-
inn á fullt í borgarstjómarslaginn
og hefur nafn hans verið orðað við
sæti borgarstjóraefnis Sjálfstæðis-
flokksins þó að ljóst sé að þar verði
á brattann að sækja fyrir forstjór-
ann fyrrverandi.
CENGiÐ ClHlg1 09. 01. 2002 kl. 9.15
KAUP SALA
Hloollar 101,770 102,290
FHrðPund 146,450 147,200
1*1 Kan. dollar 63,810 64,200
SS Donsk kr. 12,1950 12,2620
BSNorsk kr 11,4030 11,4650
SSsænsk kr. 9,7860 9,8400
: E3 Sviss. franki 61,3600 61,7000
: yon 0,7689 0,7735
| gECU 90,6869 91,2318
SDR 127,8800 128,6500