Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Side 24
28
MIÐVIKUDAGUR 9. JANÚAR 2002
Tilvera E>V
Bókaspjall
Spjallfundur um bækur ársins
2001 verður í Sögufélagshúsinu í
Fischersundi í kvöld og hefst kl.
20.30. Þar hafa stutta framsögu
þau Þröstur Helgason, ritstjóri
Lesbókar Morgunblaðsins, og
Brynhildur Þórarinsdóttir,
ritstjóri tmm. Að öðru leyti
verða umræður með frjálslegu
sniði. Það er Félag íslenskra
fræða sem stendur að fundinum.
BRENNA
■ ÞRETTANDABRENNA I
FOSSVOGSDAL Þrettándabrenna
veröur á íþróttasvæöi HK í Fagra-
lundi í Fossvogsdal í kvöld. Farin
véröur blysför frá vallarhúsinu í
Fagralundi aö brennunni og hefst
gangan kl. 18.00. Glæsileg
flugeldasýning. Blys fást í Fagralundi
Krár
j bUNDÍÍRFRETtlR A GAUKNUM
Pétur og félagar í hljómsveitinni
Dúndurfréttum spila á Gauki á
Stöng í kvöld. Þar fá fyrrverandi
stórhljómsveitirnar Pink Floyd og
Led Zeppelin sanngiarna meðferð.
■ BÚGALÚ Á VÍDALÍN
Fönkhljómsveitin Búgalú leikur á
VTdalín í kvöld. í henni eru: Steinar
Siguröarson, saxófónn, Þorgrímur
Jónsson, kontrabassj, Eric Qvlck,
trommur, og Ásgeir Ásgeirsson,
gítar. Sérstakur gestur verður
trompetleikarinn Snorri Siguröarson.
Leikhús______________________
■ CYRANO Astar- og hetjusaga frá
sautjándu öld þar sem rómantíkin,
húmorinn og snilldin fá aö njóta sín.
Aðalhlutverk leikur Sefán Karl
Stefánsson. Sýning í kvöld, kl. 20, á
stóra sviði Þjóöleikhússins.
Fundir og fyrirlestrar
■ BLÍNDUR ER BÓKLÁUS MAÐUR
TC-deildin Melkorka heldur opinn
fund í kvöld kl. 20 í Menningar-
miöstööinni Geröubergi. Stef hans
er: Blindur er bóklaus maöur.
■ TENGSL EFNAí JARÐVEGI OG
HEILSU Kristín Vala Ragnarsdóttir,
prófessor í jarðvegsfræöum við
Háskólann í Bristol, UK. heldur
erindi sem hún nefnir: Tengsl efna í
jarövegi og heilsu búfjár og manna
á morgun, fimmtudaginn 10. janúar,
kl. 12.30 í bókasafni Keldna.
Sýningar
■ ÞÓRÐUR HALL í
HALLGRIMSKIRKJU Svnine með
verkum Þórðar Hall
myndlistarmanns stendur yfir í
Hallgrímskirkju og er opin alla daga
frá 9-17. Aögangur er ópkeypis.
■ EYÞÓR í GALLERÍ GEYSI Evbór
Árnason sýnir Ijósmyndir í Gallerí
Geysl. Sýningin heitir Mynd í myrkri.
■ STILLIMYNDIR í PÝRINU
Sígurdís Harpa Arnardóttir sýnir
verk sem hún kallar Stillimyndir í
versluninni Dýrinu. Það er þrívítt verk
sem byggist á stuttum frásögnum.
■ SKÚLPTÚRAR Í GALLERÍ
SÆVARS KARLS Helga Kristrún
Hjálmarsdóttir sýnir tíu
veggskúlptúra, aö mestu úr ryðfriu
stáli og kítti, í Galleríl Sævars Karls.
■ LANPAFUNDIR OG RAGNARÖK
Sýningin Landafundir og ragnarök
stendur yfir í Þjóömenningarhúsinu
við Hverfisgötu.
■ EINVÍGI ALDARINNAR Nú
stendur yfir sýning í Ráöhúsi
Reykjavíkur þar sem minnst er 30
ára afmælis skákeinvígis þeirra
Fischers og Spasskís. Hún nefnist
Einvígi aldarinnar.
Eldarnir magnast á ný
- segir Ármann Ingi Sigurðsson sem staddur er í Sydney
„Kjarreldarnir hér í grennd við
Sydney minnkuðu í rigningunni
síðustu daga en eru að aukast aft-
ur,“ sagði Ármann Ingi Sigurðsson,
tæknimaður og skáti frá Selfossi
sem staddur var í Sydney í gær-
morgun (að okkar tíma). Þá var
kvöld hjá honum enda 11 stunda
tímamunur. Hann sagði hafa verið
30 stiga lofthita þann daginn og úr-
komulaust og kvaðst hafa farið i
siglingu út á höfnina. Þaðan hefði
sést reykur eða mistur í vestri, sem
stafaði frá eldunum miklu. „Það
rigndi 50 mm uppi I Bláu fjöllum á
sunnudag, þar sem eldarnir voru
skæðir, en vindurinn fór líka í 75 m
á klukkustund. Nú er spáð aðeins
kólnandi, svona 20-25 stiga hita, en
engri rigningu svo það er búist við
að eldarnir nái sér á strik aftur.
Þetta er auðvitað rosalegt ástand og
heilu partarnir af þjóðgörðunum
eru horfnir. Það eru komnir
slökkviliðsmenn alls staðar að og
búið að handtaka marga vegna
gruns um íkveikju Þetta eru allt
niður í 6-7 ára börn og það er mik-
ið deilt um það í blöðunum hvort
eigi að draga þau fyrir dóm eins og
fullorðna. Eins hefur fundist mikið
af handsmíðuðum sprengjum en
lögreglan hefur ekki viljað gefa upp
hvemig þær eru, af ótta við að fleiri
fari út í framleiðsluna."
Skátinn og tæknimaöurinn
„Þetta er auövitaö rosalegt ástand og stórir partar af þjóðgörðunum eru horfnir, “ segir Ármann Ingi sem staddur er í
Sydney í Ástralíu.
Bíógagnrýni
Sam-bíóin/Háskólabíó - K-Pax ★ ★"i
frá Evrópu, og margir undruðust
hina miklu þátttöku okkar íslend-
inga,“ sagði Ármann Ingi. En hvað
skyldi svo hafa drifið á dagana?
„Þetta gekk allt mjög vel. Fyrstu
fjórir dagarnir fóru í verkefni sem
hver og einn valdi sér. Sumir stund-
uðu köfun, aðrir siglingar eða hesta-
ferðir. Ég fór i skógargöngu sem var
mikil þrekraun vegna þess hversu
hitinn var mikill. Hann fór ekki nið-
ur fyrir 28-9 stig á nóttunni og við
sváfum yfirleitt úti, ofan á svefn-
pokunum." Ármann Ingi sagði
heimamenn hafa haft miklar
áhyggjur af Evrópubúunum á mót-
inu vegna hinna óvenjulegu hita.
„Yflrleitt koma svona heitir dagar
bara einn og einn í einu á þessum
árstíma en nú er þetta ástand búið
að vara í tvær vikur,“ sagði hann.
Tæpa tvo sólarhringa á leið-
inni
Síðari vikuna á skátamótinu
sagði Ármann Ingi hafa verið án
allra átaka. Fólk hefði mátt gera það
sem það vildi - eða gera ekki neitt -
og tímanum hefði verið eytt í
skemmtigörðum, á mörkuðum eða
við siglingar og sund. En var það
nógu skátalegt? „Já, svo telst vera
hér þótt okkur hefði ekki fundist
það á íslandi. Vinsælast hjá okkar
hópi var að fara á ströndina. Þang-
að voru rútuferðir fjórum sinnum á
dag og þar var vindur sem gerði líf-
ið bærilegra."
íslenski hópurinn lagði upp í
langferðina á jóladagsmorgun frá
Keflavík. Að sögn Ármanns Inga
liðu 46 stundir þar til lent var I Bris-
bane og viðkomustaðimir voru
Kaupmannahöfn, London og Kuala
Lumpur í Malasíu. „Við vorum 26
tíma á flugi, hitt fór í bið og við vor-
um satt að segja búin að fá alveg
nóg,“ sagði hann. Nú styttist í að
hann haldi aftur heim á leið. „Við
leggjum af stað þann 11. janúar og
áætlum að lenda í Keflavík á mánu-
dagsmorgun, þann 14. Viðkomustað-
irnir verða einum færri en á útleið-
inni en flugið frá Kuala Lumpur til
London tekur 14 tíma. Það verður
gott að koma heim í svalann."
Gun.
Kjarreldarnir
Vindurinn fór í 75 m á klukkustund í Bláu fjöllum á sunnudag og þrátt fyr-
ir væna regnskvettu náöu eldarnir sér aftur á strik.
Svitnaði þar sem hann stóð
Ármann Ingi er á ferðalagi í
Sydney og er búinn að vera á skáta-
móti síðustu tvær vikurnar, nærri
borginni Brisbane, ásamt niu öðr-
um íslendingum. Þar var 35-40 stiga
hiti en enginn eldur. Tjaldbúðirnar
voru inni í skógi og hitinn mikill að
sögn Ármanns Inga. „Þar var engin
hreyfmg á loftinu og maður svitnaði
undir sjálfum sér þótt maður stæði
kyrr,“ sagði hann. Mótið var svo-
kallað Rowermót, ætlað 18-26 ára
skátum. „Þar voru 500 manns alls
staðar að úr veröldinni, flestir þó
Hver er Prot?
Hiimar
Kartsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Þaö verður örugglega langt þar til
fæst fullnægjandi svar við því hvort
við séum ein í heiminum. Meðan
svo er þá njótum við vafans og gef-
um ímyndunaraflinum lausan
tauminn. Þar sem líkindin eru með
því að við séum ekki einu lifandi
verurnar í þeirri gríðarlega stóru
veröld þar sem sólkerfi okkar er
eins og lítið sandkorn þá er erfitt að
afsanna það þegar einhver segir að
hann sé frá plánetunni K-Pax og
sýnir fram á kunnáttu og visku sem
enginn jarðarbúi ræður yfir. Það er
nú samt svo að þegar sá einstakling-
ur getur ekki sannað áþreifanlega
að hann sé geimvera (hann lítur jú
út fyrir að vera mennskur) þá er
hann álitinn geðveikur og settur á
hæli. Þetta eru örlög Prots, hetjunn-
ar okkar í K-Pax, sem segist í fullri
alvöru koma frá K-Pax, plánetu í
þúsund ljósára fjarlægð, þegar lög-
reglan yfirheyrir hann í upphafi
myndarinnar.
í K-Pax sem verður að teljast
mjög svo mannleg vísindaskáldsaga
er verið að velta upp þeirri spurn-
ingu hvað við gerum við mann sem
heldur því blákalt fram að hann sé
ekki maður heldur kjósi að samlag-
ast mannkyninu með því að koma
ans hefur einu sinni verið sáð er
erfitt að eyða þeim. Það á því ekki
að koma neinum á óvart að við
erum með mörg spurningarmerki í
huga þegar skiljum við Prot í lokin.
Er Prot maður eða geimvera. Sú
spurning er jafn áleitin i byrjun og
í lokin þó fundist hafi mennskt nafn
á hann.
Breski leikstjórinn Ian Softley
(Wings of the Dove) nálgast við-
fangsefni sitt með næmleika og hef-
ur tvo frábæra leikara, Kevin
Spacey og Jeff Bridges til að túlka
aðalpersónurnar tvær, sem þeir
gera báðir með miklum glans.
Helsti ókostur myndarinnar er að
hún „toppar" of snemma, eins og
sagt er á íþróttamáli. Myndin hefur
mjög góðan og spennandi stíganda
sem nær hápunkti í 4. júlí veislu
heima hjá Mark. Eftir það fer að
draga af henni og þó að ýmislegt sé
gefið í skyn eftir það, þá nær hún
aldrei tindinum aftur.
Leikstjóri: lan Softley. Handrit: Charles
Leavitt. Kvikmyndataka: John
Mathieson. Tónlist: Edward Shearmur.
Aöalhlutverk: Kevin Spacey, Jeff Bridges,
Mary McCormack og Alfre Woodard.
Prot og Dr. Mark Powell
Kevin Sþacey og Jeff Bridges /'
smum.
fram í mannsmynd svo hann veki
ekki óþarfa athygli. Það verk að
greina „manninn" Prot (Kevin
Spacey) fær sálfræðingurinn Mark
PoweÚ (Jeff Bridges). Að sjálfsögðu
er hann viss um að Prot er maður
og hans sálgreining og lækning
gengur út á það. Powell gerir sér
samt grein fyrir því að Prot er ein-
stakt dæmi um geðsjúkling, ef hann
þá er það. Prot fær aðra sjúklinga til
að breyta hegðun sinni, hann reikn-
ar út stöðu stjörnukerfa sem engum
á að vera fært að gera á jafn skömm-
um tíma auk þess sem meðöl sem
hann tekur hafa engin áhrif á lík-
amsstarfsemi hans.
Mynd eins og K-Pax verður aldrei
vel heppnuð ef á að fara að gefa af-
dráttarlaus svör. Þegar kornum ef-