Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2002, Side 28
*
Opel Zafira
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í sfma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJALST, O H A Ð DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 2002
Læknafélagiö:
Varaði við skerð-
ingu á þjónustu
í umsögn um nýlegt frumvarp heO-
brigöisráðherra, sem nú er orðið að
lögum, um stýringu í heilbrigðiskerf-
inu varaði Læknafélag íslands mjög
skýrt við því að allar aðgerðir tÓ þess
að minnka þjónustu við almenning
myndu ýta undir kröfu um tvöfalt heil-
brigðiskerfi. Það virðist vera leið sem
enginn vill fara.
Þetta segir Sigurbjörn Sveinsson,
formaður Læknafélags íslands, m.a.
um þá þróun sem orðið hefur í íslensku
heilbrigðiskerfi undanfarin misseri.
Þar er einkum um að ræða stórfelldar
hækkanir á kostnaðarhlutdeild sjúk-
linga vegna læknisverka og jafnframt
hækkun á hlut sjúklinganna í lyfja-
verði.
Sigurbjörn segir enn fremur i viðtali
við DV í dag að kostnaðarhlutdeild
sjúklings megi aldrei vera þannig að
ekki séu uppfýllt lagaákvæði um að all-
ir eigi að eiga jafnan kost á bestu heil-
brigðisþjónustu sem er til boða í þjóð-
félaginu. -JSS
Sjá nánar fréttaviðtal á bls. 6.
Vatnsmagnið
Kaupþing eykur umsvif erlendis:
Kaupir eitt kunnasta
verðbréfafyrirtæki Svía
- Bönnier verður hluthafi í Kaupþingi
Kaupþing hef-
ur gert samninga
um að kaupa
sænska verð-
bréfafyrirtækið
Aragon og mun
Kaupþing taka
yfir starfsemi
sænska fyrirtæk-
isins í áfongum.
Þetta kemur
fram á viðskipta-
vefnum Dagens Industry í morgun.
Legið hefur fyrir að hjá sænska
fyrirtækinu væru breytingar í
vændum en þar starfa nú um 120
manns.
Ekki fékkst staðfest í morgun
hvert kaupverðið er en samkvæmt
heimildum DV mun Kaupþing
greiða a.m.k. hluta kaupverðsins
með eigin hlutabréfum. Þetta þýöir
að nokkur af þekktustu og öflug-
ustu fyrirtækjasamsteypum Sví-
þjóðar verða hluthafar í Kaup-
þingi, þar á meðal Bönnier, sem er
ein þekktasta fjölmiðla- og útgáfu-
keðja Evrópu. Bönnier á 16% hlut
Úr höfuðstöðvum Kaupþings
í Aragon. Þá er þriðja stærsta
tryggingafélag Svíþjóðar, LF,
stærsti hluthafi Aragon.
Aragon er meðal þekktustu fjár-
málafyrirtækja Svíþjóðar og hefrn-
sérhæft sig I verðbréfaþjónustu og
eignastýringu. Fyrirtækiö er með-
al stærstu fyrirtækja á sænsku
kauphöllinni með um 3% af heild-
arveltu hlutabréfa, eftir því sem
heimiidir DV herma. Um 70 millj-
arðar króna eru í eignastýringu
hjá Aragon en eigið fé félagsins er
um 2 milljarðar króna.
Gengi hlutabréfa í Kaupþingi
var í gær skráð 12,60 og hækkaði
um 0,8%. -BG
Sigurður
Einarsson.
Mengunarvaldar kærðir dv-mynd sigurður
Nokkuö af dauöum fugli liggur nú í fjörum á Seyöisfiröi og grútarmengun er i
fjörunni. Vilmundur Þorgrímsson á Seyöisfiröi hefur kært þetta til lögreglu en
hann telur aö aö minnsta kosti hluti af skýringunni sé sá aö ýmsum kemísk-
um efnum sé veitt frá verksmiöju SR-Mjöls í bænum í sjó fram. Máliö er í
rannsókn.
Hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september sl. hafa víða áhrif:
Hrun í vatnsútflutningi
- framkvæmdastjórinn hættur - algjör viðsnúningur
Hláupið í Jökulsá á Fjöllum, sem
hófst í gærmorgun, náði hámarki um
klukkan átta í gærkvöld við Gríms-
staði á Fjölium. Hlaupið var ekki í
flokki þeirra alira stærstu í Jökulsá
og varð hámarksrennsli árinnar um
480 rúmmetrar á sekúndu þegar mest
var, en það er um fjórfalt rennsli
hennar áður en hlaupið hófst.
Hlaupsins varð fyrst vart í gær-
morgun gegnum sjáifvirkt viðvörun-
arkerfi. Viðkomandi aðilar, s.s. vega-
gerðarmenn og starfsmenn almanna-
varna, voru í viðbragðsstöðu en ekki
kom til þess að hlaupið í ánni ylli
skemmdum að þessu sinni. Lögreglu-
menn á Húsavík fylgdust með fram-
vindu mála I gær en þegar ljóst var að
hlaupið hafði náð hámarki við Gríms-
staði á Fjöllum þótti ekki ástæða til að
hafa menn á verði við brúna yfir ána
við Ásbyrgi þegar hiaupið fór þar í
gegn í nótt. -gk
Ráðhúseinvígið:
Jafntefli
Hannes Hlífar Stefánsson fór vel af
stað í fyrstu skákinni í sex skáka ein-
vígi hans og Nigels Shorts sem hófst í
Ráðhúsi Reykjavtkur í gær. Hannes
hafði svart og átti ekki í miklum erfið-
leikum með að jafna taflið. Þegar upp
var staðið mátti Short, sem eitt sinn
tefldi við Kasparov um heimsmeist-
aratitilinn, þakka fyrir jafnteflið því
að mati sérfræðinga sást Hannesi yfir
öfiugt framhald i síðari hluta skákar-
innar. Önnur umferð verður tefld í
dag. - Sjá skákskýringu Sævars
Bjarnasonar á bls. 27. -HK
Þórsbrunnur hf., sem m.a. hefur
framleitt kolsýrt vatn undir nafninu
Thorspring og selt á markað í
Bandaríkjunum, á nú í miklum fjár-
hagslegum erfiðleikum sem ekki sér
fyrir endann á. Allar áætlanir um
sölu vatns í Bandaríkjunum hafa
gjörsamlega brugðist frá því að
hryðjuverkin í Bandaríkjunum áttu
sér stað 11. september sl. Mikið
hafði verið lagt undir að koma dýru
vatni á markað þar í landi.
DV fékk staðfest hjá fyrirtækinu í
morgun að Þórir Kjartansson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, hefði
látið af störfum. Ingvar Guðmunds-
son hefur tekið viö starfl hans en
ekki náðist í hann. Of snemmt er að
segja til um hvort félagið verður
lagt niður en samkvæmt heimildum
DV verður hluthafafundur haldinn í
næstu viku þar sem hluthöfum
verður kynnt staðan og ákvarðanir
teknar um framhaldið. Hluthafar
munu áhugasamir um að bjarga fyr-
irtækinu fyrir hom og halda þannig
lífl í vörumerkinu. Staðan er hins
vegar mjög erflð.
Þórsbrunnur var stofnaður árið
1990 og voru helstu hluthafar þá
Hof, Orkuveita Reykjavíkur og Víf-
ilfell. í dag munu hluthafar fyrir-
mætt hverju áfallinu afööru.
tækisins vera tæplega 30 og eru
stærstir í þeirra hópi Kaupþing og
Vífilfell með milli 20% og 30% hlut.
Einnig á Orkuveita Reykjavíkur um
17% hlut og sem fleiri fjárfesta má
nefna Háuhlíð, Nýsköpunarsjóð,
Fjárfestingafélagið Straum, Ingi-
björgu S. Pálmadóttur, Lilju S.
Pálmadóttur og Uppsprettu. Um 35
manns störfuðu ekki alls fyrir löngu
hjá fyrirtækinu, þar af tíu í Banda-
ríkjunum og einn í Asíu. Til stóð að
hefja útflutning til Japans og Ástral-
lu á árinu í fyrra.
Mikil bjartsýni rikti um innrás
fyrirtækisins á Bandarikjamarkað í
fyrrasumar og sagði Þórir Kjartans-
son framkvæmdastjóri þá í samtali
við DV að fyrirtækið seldi hálfan
lítra á dollar eða á annað hundrað
krónur. Jafnframt gat framkvæmda-
stjórinn þess að Þórsbrunnur hygð-
ist tvöfalda sölu sína á árinu 2001.
Viðsnúningurinn á Bandaríkja-
markaði er enn eitt áfallið sem
vatnsútflutningur verður fyrir. Sem
dæmi varð gríðarlegt tap á Aqua-
vatnsútflutningi KEA fyrir
nokkrum árum. Bent hefur verið á
að vatnsútflutningur sé óhagkvæm-
ur að óbreyttu en gæði íslenska
vatnsins eru óumdeild sem og
gnægð þess. -BÞ
A
Islandsbanki:
Ótímabær
bjartsýni
Forstöðumaður Þjóðhagsspár
treystir sér ekki til að meta líkurn-
ar á hvort hin rauðu strik kjara-
samninganna 1 vor muni halda. ís-
landsbanki gaf hins vegar út
skýrslu í gær og kemst bankinn að
þeirri niðurstöðu að verðbólga
hjaðni hraðar en fyrri spár gáfu til
kynna. Bankinn spáir 3,5% verð-
bólgu yfir þetta ár og að því gefnu
eru kjarasamningar ekki í hættu. I
fyrri spá hafði íslandsbanki spáð
4,2% verðbólgu yfir árið.
Katrín Ólafsdóttir, forstöðumaður
Þjóðhagsspár, segist hvorki vera
sammála íslandsbanka né ósam-
mála. Næstu mánuðir muni leiða
þetta í ljós og hún telji ekki tíma-
bært að spá fyrir um framvinduna
fyrr en í næstu greiningu Þjóðhags-
stofnunar, þ.e.a.s. í lok janúar. Hún
segir þó nokkra liði hafa hækkað
undanfarið og tengist sumt aðgerð-
um ríkisstjómarinnar, s.s. hækkun
á lyfja- og lækniskostnaði.
Islandsbanki segir helstu ástæður
fyrir minnkandi verðbólgu vera
hækkun á gengi krónunnar undan-
farið. Hún hafi hækkað talsvert að
verögildi á síðustu vikum og vænt-
ingar snúist með þeim hætti að ekki
sé hægt að útiloka frekari gengis-
hækkun í bráð. -BÞ
Tveir ungir menn með nælonsokka á höfði:
Hrintu stúlku og rændu peningum
„Þeir ruddust inn rétt fyrir lokun
og öskruöu að þetta væri rán. Þeir
fóru báðir inn fyrir afgreiðsluborðið
og skipuðu annarri afgreiðslu-
stúlkunni að opna peningakassann
og athenda peninga. Þeir hrintu
stúlkunni svo frá og gripu þá pen-
inga sem voru í kassanum," sagði
Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi
Subway-staðanna, í samtali við DV.
Tvær 18 ára skólastúlkur, sem af-
greiða á veitingastaðnum Subway á
mótum Suðurlandsbrautar og Faxa-
fens, urðu fyrir þvi rétt fyrir klukk-
an tíu í gærkvöldi að tveir menn með
nælonsokka á höfðinu komu inn á
ógnandi hátt. „Þær brugðust rétt við
Enn eitt ránið
„Þeir öskruöu aö þetta væri rán“.
og streittust ekki á móti enda er okk-
ur meira umhugað um öryggi starfs-
fólks en peninga," sagði Skúli. Um 50
þúsund krónur voru í kassanum.
Miklir peningar eru sjaldnast í kass-
anum enda leggur starfsfólk peninga
reglulega í rauf sem liggur að pen-
ingakassa sem „ekki er hægt að
opna“.
Lögreglan í Reykjavik gerði ráð-
stafanir i nótt til að hafa uppi á ræn-
ingjunum. Var rætt við ýmsa aðila
sem hugsanlega gætu gefið upplýs-
ingar um hverjir þarna voru á ferð.
Nokkuð nákvæmar lýsingar liggja
fyrir á ræningjunum tveimur sem
taldir eru i yngra lagi.
Skúli sagði að upptökuvélar væru
ekki á öllum Subway-stöðunum, þar
á meðal ekki á framangreindum stað.
„En það verður breyting á því núna,
við munum setja slíkan búnað á alla
Subwayu-staðina níu. Ótt
Utiljós
Rafkaup
Ármúla 24 • S. 585 2800
Rafnort
totlm oitikl'JÍIIn
fyrir fagmenn
og fyrirtæki,
heimili og
sköia, fyrir röð
og regtu, mig
og þlg.
nýbýlðuegi 14 • slml 554 4443 • if.ís/rafport
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i