Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2002, Síða 4
Fabrizio Meoni varði titil sinn frá því í fyrra í flokki mótorhjóla. • • Reuter Hiroshi Masuoka frá Japan sigraði í Dakarrallinu á Mitsubishi. Hér er hann á innfelldu myndinni ásamt félaga sínum en stærri myndin var tekin þegar Kenjiro Shinozuka lenti í mjög brattri sandbrekku og mátti þar litlu muna. Reuter Oruggt hjá Mitsubishi og KTM í Dakarrallinu - Mitsubishi í átta efstu sætunum í bílaflokki og KTM í ellefu efstu sætunum í mótorhjólaflokki Það var með öryggi sem að Mitsu- bishi lauk Dakarrallinu á sunnudag- inn þegar Hiroshi Masuoka og Jutta Kleinschmidt óku samhliða yfir endalínuna á ströndinni í Dakar. Ma- suoka var að keppa i sínu 15. Dakar- ralli og var þetta því langþráður sig- ur fyrir hann, en Kleinschmidt vann keppnina í fyrra. Sigurinn er sá sjö- undi fyrir Mitsuhishi sem er nýtt met í bílaflokki. Mitsubishi átti alla ökumennina á verðlaunapalli því að Kenjiro Shinozuka náði þriðja sæt- inu fyrir japanska framleiðandann. Lokaleggur rallsins er eftir strönd- inni í Dakar og er aðeins um 30 km. Þessa sérleið unnu Nissan-bílar De Mevius og Carlos Souza, sem áður keppti í mótorhjólaflokki. Nissan var eina liðið sem veitti Mitsubishi ein- hverja samkeppni og lengi vel voru þessir ökumenn í toppbaráttunni, eða þangað til þeir fengu á sig refs- ingu sem gerði út um sigurvonir þeirra. Aðalkeppinautur Mitsubishi frá þvi i fyrra, Jean Louis Schlesser, datt fljótlega úr keppni i Marokkó eft- ir að kviknaði i bO hans og hann brann til ösku, en Schlesser og að- stoðarökumaður hans rétt náðu að sleppa út úr bílnum. Það var svo Toyota Land Cruiser 100 bill XXX sem vann ílokk óbreyttra fram- leiðslubíla. Algjörir yfirburðir KTM eftir aö BMW hætti keppni Sigur KTM í mótorhjólaflokki var jafn afgerandi og sigur Mitsubishi í bílaflokki. Fabrizio Meoni varði titil sinn frá því í fyrra og að þessu sinni voru það aðeins hans eigin liðsfélag- ar sem gátu ógnað honum, en hann var lengi vel í baráttur við Suður- Afríkubúann Alfie Cox sem varð annar. Meoni naut þess að vera á nýju, tveggja strokka hjóli frá KTM sem hafði mun meiri hámarkshraða og eftir langa sérleið í seinni hluta keppninnar náði hann afgerandi for- ystu sem enginn náði að ógna. Juan Roma á KTM ógnaði honum einnig eða alveg þangað tii hann féU úr keppni þegar hann villtist illa á fjórt- ándu sérleið og fékk vægt taugaáfail. Þriðji í keppninni varð svo Richard Sainct á KTM sem áður keppti fyrir BMW og vann keppnina árið 1999 og 2000. -NG 1. deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi: í vandræðum gegn Njarðvík 1. DEILD KVENNA Keflavik 12 9 3 832-741 18 Grindavík 12 8 4 814-789 16 KR 13 8 5 879-736 16 Is 10 7 3 694-549 14 Njarðvík 13 3 10 766-947 6 KFÍ 12 1 11 643-866 2 Stigahæstar: Bima Valgarðsdóttir, Keilavík . 21,8 Jessica Gaspar, Grindavík .... 21,6 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík . . .20,0 Kathryn Otwell, KFÍ.............20,0 Alda Leif Jónsdóttir, ÍS .......17,9 Hildur Sigurðardóttir, KR.......16,3 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS .... 15,4 Gréta María Grétarsdóttir, KR . 12,9 Helga Þorvaldsdóttir, KR .......12,7 Stúdínur eygja enn toppsætið í 1. deild kvenna eftir 63-50 sigur á Njarðvík í Kennaraháskólanum í gær. Liðið er nú fjórum stigum á eft- ir toppliði Keflavíkur en á tvo leiki inni. Þessi tvö lið mætast einmitt í Kennaraháskólanum á fimmtudag- inn. Þrátt fyrir að vera með tvöfalt fleiri stig lentu Stúdínur í miklum vandræðum með baráttuglatt Njarð- víkurlið í gær. ÍS hafði unnið fyrstu leikhluta hinna tveggja leikjanna samtals 47-10 en eftir fyrstu tíu mín- útur leiksins í gær leiddu gestirnir úr Njarövík, 8-11, og ÍS hafði aðeins hitt úr 2 af 20 skotum sínum. Stúdinur náðu sér aðeins á strik í öðrum leikhluta og höfðu yfir 25-16 í háifleik og munaði þar mestu um 18 sóknarfráköst enda var skotnýting liðsins í fyrri hálfleiknum aðeins 20% (9 af 46). Með þessu voru þó þær njarðvísku ekki bugaðar þvi þær unnu þriðja leikhlutann 14-21 og mtnnkuðu mun- inn í tvö stig, 39-37, fyrir lokafjórð- unginn. Þar sigldu Stúdínur fram úr, einkum fyrir góðan leik Öldu Leifar Jónsdóttur sem skoraði 12 stig í síð- asta leikhlutanum, einu minna en allt Njarðvíkurliðið. Alda Leif var eins og oft áður allt í öllu hjá ÍS en Lovísa Guðmunds- dóttir átti einnig góðan leik þótt henni hafi eins og félögum hennar i liðinu gengið illa að finna körfuna. Þá vakti góð innkoma Steinunnar Dúu Jónsdóttur athygli en hún gerði sjö stig á aðeins níu mínútum. Það er ljóst að Njarðvíkurliðiö hef- ur fengið góða andlitslyftingu með tilkomu Einars Árna Jóhannssonar í þjálfarasætið, baráttan og leikgleðin er enn þá aðall liðsins en allt annað skipulag og meiri yfirvegun gerir leik liðsins mun markvissari. ÍS átti í miklum vandræðum með þær Helgu Jónasdóttur og Guðrúnu Ósk Karlsdóttur sem voru sterkar undir körfunni bæði í vöm og sókn. Þá átti Eva Stefánsdóttir góðan leik. Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 20 (11 frá- köst, 8 stoðsendingar, 5 stolnir), Lovísa Guömundsdóttir 12 (17 ffáköst, 6 stoðsend- ingar), Hafdís Elín Helgadóttir 8 (12 frá- köst, 5 varin skot), Stella Rún Kristjáns- dóttir 8 (4 stoðs.), Steinunn Dúa Jónsdótt- ir 7 (á 9 mín., hitti úr 3 af 4 skotum), Cecil- ia Larsson 4, Þónmn Bjamadóttir 2, Jó- fríður Halldórsdóttir 2. Stig Njarðvíkur: Guðrún Ósk Karls- dóttir 14 (12 tráköst), Eva Stefánsdóttir 12 (19 mín.), Helga Jónasdóttir 10 (12 fráköst, 5 varin skot), Auður Jónsdóttir 7 (6 stoðs.), Pálína Gunnarsdóttir 3 (10 frá- köst), Díana Jónsdóttir 2 (4 stoðs., 4 stoln- ir), Sæunn Sæmundsdóttir 2. -ÓÓJ Urslitm í Dakar Lokaúrslit í bílaflokki 1. Hiroshi Masuoka .46:11,30 2. Jutta Kleinschmidt . .. . .46:33,31 3. Kenjiro Shinozuka .46:46,45 4. Jean-Pierre Fontenay . . .47:49,00 5. Carlos Sousa 51:32,27 6. Saeed al Hajri .54:36,21 7. Luc Alphand .56:51,32 8. Klever Kloberg .58:32,39 9. Jean-Jacques Ratet, Toyota 61:59,33 10. D. Thierry, Nissan .... 65:07,05 Keppendur 8 efstu sæta voru á Mitsubishi-bifreið. Úrslit í mótorhjólaflokki 1. Fabrizio Meoni 48:00,59 2. Alfie Cox 48:48,51 3. Richard Sainct 49:21,24 4. Carlo De Gavardo 50:53,45 5. Isidre Esteve Pujol .... 50:55,33 6. Giovani Sala 52:03,46 7. Jordi Arcarons 52:48,16 8. Eric Bernard 53:15,31 9. Pal Anders Ullevalseter 54:12,21 10. Paulo Manuel Marques 56:16,37 Allir ofangreindir keppendur voru á KTM-hjólum Haukastúlkur í undanúrslit Haukastúlkur tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta með 74-57 sigri á sam- eiginlegu liði ÍR og Breiðabliks á sunnudaginn. Haukastúlkur höfðu yflr, 19-15, eftir fyrsta leikhluta og leiddu 36-25 í hálfleik. Stefanía Jónsdóttir átti góðan leik fyrir Haukaliðið, skoraði 25 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 7 fráköst. Haukar fara til Njarðvíkur í undan- úrslitunum þann 23. janúar næst- komandi. Stig Hauka: Stefanía Jónsdóttir 25, Hrafnhildur Kristjánsdóttir 14. Hafdís Hafberg 14, Bima Eiríksdóttir 9, Rann- veig Þorvaldsdóttir 5, Hanna Hálfdánar- dóttir 2, Bára Sigurjónsdóttir 2, Hjaltey Sigiu-ðardóttir 2, Helena Sverrisdóttir 1. Stig ÍR/Breiðabliks: Gunnur Bjarna- dóttir 13, Sigríður Antonsdóttir 9, Kristrún Siguijónsdóttir 9, Halla Jóhann- esdóttir 7, Heiðrún Hauksdóttir 6, Rakel Viggósdóttir 5, Ragnhildur Guðmunds- dóttir 4, Lára Rúnarsdóttir 3, Agnes Hauksdóttir 1. -ÖÓJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.