Dagblaðið Vísir - DV - 07.02.2002, Síða 2
20
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002
FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002
21
Sport
Sport
Körfuboltaunnendur fá ósk slna
um draumaleik uppfyllta í Höllinni
um helgina þegar bikarúrslitaleikur
karla milli KR og Njarðvíkur fer fram
á laugardaginn klukkan 17.00.
Tvö allra bestu lið landsins og þau
sigursælustu í bikarsögunni mætast
þá í úrslitaleik en liðin eru sem
stendur í öðru og þriðja sæti úrvals-
deildarinnar þar sem munar aðeins
einum sigurleik á liðunum.
Njarðvíkingar eru núverandi ís-
lands- og Kjörísbikarmeistarar en
KR-ingar unnu íslandsmeistaratitil-
inn árið á undan og síðustu fimm
tímabil hefur annaðhvort þessara liða
tekið að minnsta kosti einn stóran tit-
il.
Undanfarið ár hafa leikir þessara
tveggja liða staðið upp úr sem bestu
leikir tímabilsins og auk frábærra til-
þrifa hefur spennan ekki verið síðra
aðdráttarafl en aðeins hefur munað
15 stigum samtals á liðunum í síðustu
fimm leikjum.
Auk karlaleiksins mætast sömu lið
í kvennaflokki sem gerir daginn enn
merkilegri fyrir körfuboltann en slikt
hefur aðeins gerst einu sinni áður.
DV-Sport mun fjalla ítarlega um
leikina tvo í dag og á morgun og hér
í opnunni má finna viðtöl við nokkra
leikmenn liðanna en á morgun má
flnna itarlegan samanburð á liðunum
sem og viðtöl við þjálfarana. -ÓÓJ
Nóg aö gera
- hjá Keith Vassell sem þjálfar kvennalið KR og spilar með karlaliðinu
Það er í nógu að snúast hjá Keith
Vassell þessa dagana en hann á tvo
bikarúrlitaleiki fyrir höndum, fyrst
sem þjálfari kvennaliðs KR og síðan
sem leikmaður karlaliðsins. Hann
er þó hvergi banginn og ætlar sér að
vinna báða leikina.
„Ég geri auðvitað mitt besta á
báðum vígstöðvum. Það fer þó meiri
tími í það hjá mér að hugsa um
kvennaleikinn og síðan mun ég gera
allt sem í mínu valdi stendur til að
vinna karlaleikinn.
Njarðvík hefur styrkst gríðarlega
með því að fá Ebony Dickinson til
liðs við sig. Hún kemur með fleiri
vopn í sóknina og það er nákvæm-
lega sem liðið þurfti. Njarðvík er
hávaxið lið og ég þykist vita að
Njarðvík spili svæðisvörn allan
leikinn. Ef við hittum illa utan af
velli gæti þetta orðið langur leikur
hjá okkur.
Ég er viss um að það er ekki van-
mat hjá mínum stelpum þrátt fyrir
að við eigum að teljast sterkari aðil-
inn í leiknum. Stelpurnar eru þó
fullar sjálfstrausts eftir gott gengi
að undanfornu og er ég mjög sáttur
við hvenig liðið hefur verið að
leika. Það er samt alltaf hættulegt
þegar einn leikur ræður úrslitum
eins og í bikarnum og því verðum
við að vera á tánum allan tímann, “
sagði Vassell um kvennaleikinn.
Erum meö hæfileikaríkari
leikmenn
Vassell er bjartsýnn á sigur í
karlaleiknum og segir að KR sé með
hæfileikaríkari leikmenn en Njarð-
vík.
„Síðast þegar við fórum í úrslita-
leikinn töpuðum við eftir að hafa
haft leikinn í okkar höndum. Við
ætlum að vinna þennan og ég er
viss um að þetta verður frábær leik-
ur. Litlu hlutirnir koma til með að
ráða miklu og menn verða að vera
tilbúnir að berjast um hvern einasta
lausa bolta. Ég er á því að við séum
með hæfileikaríkari leikmenn og
meiri breidd. Þeir þurfa að hafa
áhyggjur af mörgum leikmönnum í
okkar liði. Við þurfum að stoppa
Brenton og passa að Teitur komist
ekki gang.
Á móti kemur að leikmenn Njarð-
víkur þekkja hver annan mjög vel
og byrjunarliðið hefur spilað mikið
saman á meðan við notum bekkinn
mikið.“
-Ben
Kvennalið Njarövíkur hefur komið mörgum á óvart með góöri
frammistöðu í bikarkeppninni í vetur og urðu fyrstu nýiiðar í kvennaflokki
til að komast í Höllina. Hér til vinstri sjást þau Auður Jónsdóttir fyrirliði,
Einar Árni Jóhannsson þjálfari og Ebony Dickinson, erlendur leikmaður
liösins, meö fangið fullt af bikurum en það kemurí Ijós á laugardaginn
hvort þau verða jafn fengsæl í Höllinni. DV-mynd Hari
Spila fótbrotinn
Körfuknattleikslið KR varð fyrir
miklu áfalli í fyrradag þegar besti leik-
maður liðsins, Jón Amór Stefánsson,
meiddist illa á ökkla og er óvíst hvem-
ig ástandi hann verður í á laugardag-
inn þegar KR leikur gegn Njarðvik í
bikarúrslitaleik KKÍ og Doritos. Jón
Arnór segir sjálfur að hann verði með,
sama hvernig staðan verði og einhver
meiðsli muni ekki koma í veg fyrir aö
hann spili sinn fyrsta bikarúrslitaleik i
meistaraflokki.
„Ég verð hjá sjúkraþjálfara fram að
leik en eins og staðan er núna þá get ég
stigið í löppina en er alveg frá æfmg-
um. Ég myndi spila þennan leik fót-
brotinn og því eru þessi meiðsli ekki
að stoppa mig frá því að spila bikarúr-
slitaleikinn."
Þá er ljóst að Ólafur Ormsson verð-
ur ekki orðinn klár fyrir leikinn á
laugardaginn og verður ekki í leik-
mannahópi liðsins. Það er ljóst að nóg
verður að gera hjá Keith Vassell þenn-
an dag en hann er bæði að spila sjálfur
og að þjálfa kvennaliö KR sem mætir
Njarðvík fyrr um daginn.
Ingi hefur áhyggjur af Vassell
DV-Sport spurði Inga Þór Steinþórs-
son, þjálfara karlaliðsins, hvort ekki
væri slæmt að lykilmaður liðsins gæti
ekki einbeitt sér eingöngu að karla-
leiknum. „Það að Vassell er að þjálfa
kvennaliðið á undan breytir undirbún-
ingi okkar töluvert. Þeir sem hafa
þjálfað vita að það tekur mikla orku
frá manni en ég vona að hann nái að
skipta úr þjálfarahlutverkinu yfir í
leikmannahlutverkið því við þurfum
svo sannarlega á honum að halda. Ég
get ekki neitað því að ég hef áhyggjur
af þessu þar sem hann þarf að einbeita
sér að báðum leikjunum og það gæti
tekið frá honum á báðum vígstöðvum,"
sagði Ingi.
-Ben
Herbert
Arnarson leikur sinn fyrsta bikarúrslitaleik
tlokki og bæði hafa þau
fagnað bikarnum, Framar-
ar unnu KR 1982 og ÍR
vann Hamar í fyrra.
KR-konur œttu aó vera i
lykilstödu eftir að hafa
slegið Stúdínur út í undan-
úrslitunum. Það liö sem
hefur slegið út ÍS í bikar-
keppninni hefur unnið
bikarinn síðustu fjögur ár
og alls i tólf skipti á síö-
ustu 18 árum. Tvö þeirra
sex ára sem þetta hefur
ekki ræst fóru Stúdínur
alla leið sjálfar og unnu
bikarinn.
Keith Vassell verður um
helgina áttundi maðurinn
til að koma að báöum bik-
arúrslitaleikjunum. Keith
þjálfar kvennalið KR og er
fyrirliði karlaliðsins. Sig-
uröur Ingimundarson er
sá eini sem hefur náð þess-
um árangri í tvígang en
hann kom að öllum fjórum
bikarsigrum Keflavíkur
1993 og 1994. Alls hafa þjálf-
arar kvennaliðs níu sinn-
um leikið karlaleikinn
strax á eftir og hafa þeir í
öll níu skiptin stjórnað
kvennaliðinu til sigurs en
aðeins flórum sinnum
fagnað titlum sjálfir.
-ÓÓJ
Herbert Arnarson er einn af níu
leikmönnum í sögunni sem náð
hafa að spila 100 landsleiki fyrir
Islands hönd og er hann jafnframt
núverandi fyrirliði landsliðsins.
Þrátt fyrir langan og góðan feril er
Herbert nú kominn í aðstöðu sem
hann hefur aldrei komist í fyrr
áður að mæta sem leikmaður i
Höllina á bikarúrslitadegi.
„Þetta verður fyrsti bikarúr-
slitaleikurinn minn á íslandi en ég
spilaði bikarúrslitaleik í Hollandi
fyrir tveimur árum þar sem ég var
i tapliði. Það er ekki hægt að kom-
ast lengra en í bikarúrslitaleik og
bikarinn bíður þarna á borðinu
eftir því að annaðhvort liðið gripi
hann. Þetta er fimmta tímabilið
mitt á Islandi og mínum liðum
hefur alltaf gengið illa í bikarnum
og ég held að fyrir þetta tímabil
hafi átta liða úrslit verið það
lengsta sem ég hafði komist,“
sagði Herbert sem hefur þó oft sótt
bikarúrslitaleikinn.
„Það er fullt af leikmönnum
sem komast aldrei í þennan leik.
Þaö er líka erfitt að koma alltaf í
Höllina sem áhorfandi en ekki
sem þátttakandi og þvi hlakka ég
alveg gífurlega til að spila þennan
leik og ég veit að þetta verður
körfuboltaveisla," segir Herbert
sem hefur verið að fmna sig betur
og betur í KR-liðinu og skoraði
16,3 stig að meðaltali og hitti úr
50% þriggja stiga skotum sínum í
deildarleikjum janúar-mánaðar.
Passa upp á spennustigið
„Njarðvík er fyrir framan okkur
hvað varðar reynslu og undirbún-
ing og hvers er að vænta í svona
leik og ég tel að við þurfum aðal-
lega að passa það að spennustig
okkar verði ekki of hátt i leiknum.
Ég hef ekki trú á öðru en að menn
verði tilbúnir í leikinn en við þurf-
um að finna rétt spennustig og ég
hef miklu meiri áhyggjur af því að
það fara upp fyrir allt saman en að
það verði of lítið.
Við verðum síðan að eiga mjög
góðan leik þvi þetta eru bæði mjög
sterk lið. Við verðum að hægja á
Njarðvikingunum og við verðum
að frákasta vel í þessum leik,“ seg-
ir Herbert þegar hann var spurður
út í komandi bikarúrslitaleik gegn
Njarðvík.
-ÓÓJ
Erlendir leikmenn eru í fyrsta sinn fyrirliðar
bikarúrslitaliðanna og hér sjást þeir gantast meö
bikarinn á blaðamannafundi. Keith Vassell hjá KR
er hér til vinstri og Brenton Briminhham úr
Njarðvík er til hægri. DV-mynd Hari
urinn Guðni Guðnason
skoraði 37 stig.
Heather Corby setti þrjú
bikarúrslitaleiksmet í
kvennaflokki með KR í
fyrra. Corby skoraöi 35
stig, tók 17 fráköst og
varöi 6 skot en allt eru
þetta bikarúrslitaleiksmet.
Leikmenn KR eiga nú fjög-
ur stærstu metin því 10
stoðsendingar Limor
Mizrachi frá 1999 eru
einnig met.
Guöbjörg Noröfjörö er
reyndasti ieikmaður
kvennaleiksins hvað varð-
ar fjölda spilaðra bikarúr-
slitaleikja en Guðbjörg
mun spila sinn níunda
bikarúrslitaleik á ferlin-
um, lék þrisvar með Hauk-
um (1988, 1990 og 1992) og
hefur fyrir þennan leik
spilað fimm bikarúrslita-
leiki með KR.
Njaróvikurstúlkur eru
fyrstu nýliðarnir í sögu
efstu deildar kvenna til að
komast í bikarúrslitaleik
en aðeins tvö félög hafa
náð þeim árangri i karla-
ingar þá tvisvar sinnum bikarmeistarar
á átta mánuöum, unnu ÍS, 71-68, í sept-
ember og Val, 86-81, i apríl.
Rögnvaldur Hreiöarsson og Rúnar
Gíslason munu dæma kvennaleikinn
sem hefst klukkan 15.00 í Laugardalshöll-
inni á laugardaginn. Eftirlitsmaður verð-
ur Erlingur Snœr Erlingsson. Dómarar
karlaleiksins verða þeir Leifur Garðars-
son og Kristinn Óskarsson en eftirlits-
maður veröur Bergur Steingrimsson.
Karlaleikurinn hefst klukkan 17.00.
KR setur met bœöi í karla- og kvenna-
tlokki og ekkert félag hefur leikið tleiri
bikarúrslitaleiki en karlaliðið er að spila
Þaö er óhœtt
aó segja að fé-
lögin hafi byrj-
aö bikarúrslita-
leikjasögu sína
á ólíkan hátt.
KR-ingar unnu fimm
fyrstu bikarúrslitaleiki
sína en Njarðvíkingar
unnu ekki fyrsta bikarúr-
slitaleik sinn fyrr en í
fimmta leik og eftir 11 ára
bið. Njarðvík iék fyrsta
bikarúrslitaleikinn gegn
Ármanni 1976 en vann
ekki bikarinn fyrr en 1987
þegar liðið vann Vai i úr-
slitaleik.
KR og Njarövík hafa
tvisvar sinnum leikið til
úrslita i bikarkeppni karla
og aðeins munaði þremur
stigum samtals á liðunum
í þessum tveimur leikjum.
KR vann leik liðanna 1977,
61-59, en Njarðvík vann
leik liðanna 1988,104-103, í
ótrúlegum leik þegar tveir
leikmenn liðanna skoruðu
yfir 37 stig. Njarðvíkingur-
inn Valur Ingimundarson
setti bikarúrslitaleiksmet
með 45 stigum og KR-ing-
sinn sextánda leik og konurnar eru
komnar í fjórtánda sinn í úrslitin en kon-
urnar bæta þar með met sitt og Keflavik-
ur sem félögin settu er þau mættust í
fyrra í sínum þrettánda bikarúrslitaleik.
Þaö er einnig Ijóst að annaðhvort karla-
lið KR eöa Njarövíkur eignar sér óvin-
sælt met í leiknum á laugardag því bæði
félögin hafa tapað sex bikarúrslitaleikj-
um sem er það mesta í sögu keppninnar.
Liðin er jafnframt tvö sigursælustu félög
i sögu bikarkeppninnar, KR hefur niu
sinnum unnið bikarinn og Njarðvíkingar
hafa orðið sex sinnum bikarmeistarar á
síðustu fimmtán árum.
-ÓÓJ
Það getur
allt gerst
- segir Ebony Dickinson
Njarðvíkingar ákváðu að fá sér erlendan
leikmann fyrir bikarúrslitaleik kvenna og sú
sem varð fyrir valinu er enginn önnur en
Ebony Dickinson sem lék fyrir tveimur árum
meö KFÍ við góðan orðstír. Það var Brenton
Birmingham sem hafði samband við Dickin-
son og viðraði þá hugmynd við hana að koma
og spila bikarúrslitaleikinn og ákvað hún að
skella sér þrátt fyrir að aðeins um einn leik sé
aö ræða.
Ætlaöi alltaf aö koma aftur til íslands
„Ég var búin að ákveða að koma til íslands
í heimsókn og hitta Brenton sem ég þekki frá
því að ég spilaði í háskóla og síðan langaði mig
að heimsækja vini mína á ísafirði. Þegar
Brenton hafði samband við mig varð ég áhuga-
söm og eftir smá-umhugsunarfrest sló ég til.
Ég lít á þetta sem gott tækifæri fyrir mig og vil
hjálpa félaginu að vinna bikarinn. Ég fer síðan
aftur heim á sunnudaginn."
En hvemig metur Dickinson möguleika liðs-
ins gegn sterku liði KR og hvernig hefur geng-
ið að aðlagast liðinu á stuttum tíma.
„Mér hefur gengið mjög vel að aðlagast lið-
inu og stelpunum og má segja að það hafi tek-
ist mun betur en ég reiknaði með á svona
stuttum tíma. Mér líður vel í Njarðvík eins og
ég gerði hjá KFÍ á sínum tíma en Njarðvikur-
liðiö býr yfir meiri reynslu en KFÍ á sínum
tíma.
Mikiö umstang í kringum leikinn
Ég geri mér fulla grein fyrir að KR er með
gríðarlega sterkt lið sem hefur mikla hefð á bak
við sig. Þrátt fyrir það tel ég að við eigum mögu-
leika í úrslitaleiknum því kosturinn við körfu-
bolta er sá að það getur allt gerst.
Ég er fyrst núna að gera mér grein fyrir
hversu stór leikur bikarúrslitaleikurinn er hér á
landi og maður finnur fyrir spennunni í bæjarfé-
laginu og stemningunni. Ég er farin að hlakka
mikið til og þetta verður bæði skemmtun og mik-
il reynsla íyrir mig og hinar stelpumar í liðinu,"
sagði Ebony Dickinson við DV-Sport.
-Ben
Bikarúrslit 2002
Þetta verður aóeins í annað sinn frá
upphafi bikakeppninnar að sömu lið eig-
ast við í karla- og kvennaílokki en Njarð-
vík og KR munu mætast í tvígang i Höll-
inni um helgina. Keflavík og KR náðu
þessum árangri 1997 og höfðu þá Keflvík-
ingar betur i báðum leikjum, unnu 66-63
eftir framlengdan kvennaleik og 77-66 í
karlaleiknum.
Njarövik gœti oröiö fjórða félagið til að
vinna tvöfaldan sigur í karla- og kvenna-
flokki en þeim árangri hafa
KR, ÍS og Keflavik náð en
Keflvikingar hafa þrisvar
sinnum unnið tvöfalt, 1993,
1994 og 1997.
Bikarúrslitaleikurinn í ár verður sá tí-
undi í röðinni sem er spilaður á þessum
tíma en veturinn 1992 til 1993 var bikar-
úrslitaleikurinn færður frá lokum ís-
landsmótsins og spilaður þess í stað 6.
febrúar.
Fyrstu fjögur ár bikarkeppninnar fór
bikarkeppnin fram á hausti áöur en ís-
landsmótið hófst en tímabilið 1973 til 1974
var hún færð aftur fyrir mót og urðu KR-
ikur
Lofar veislu
í Höllinni
- liðið sem langar meira í bikarinn
mun vinna, segir Brenton
Brenton Birmingham hefur
tvisvar farið í úrslit í bikar og
unnið í bæði skiptin, fyrst með
Grindavík og síðan með Njarðvik.
Hann er fullur tilhlökkunar og segir
að fólk megi búast við hörkuleik.
„Ég býst við að þetta verði harður
leikur þar sem það verður tekið vel
á því. Við ætlum að reyna að spila
okkar leik og keyra upp hraðann.
Það er okkar markmið að reyna að
stjóma hraðanum og finna taktinn
okkar. Við höfum verið svona upp
og ofan i vetur. Það hafa komið
leikir sem við höfum spilað
virkilega vel en síðan hafa einnig
komið leikir þar sem við höfum
verið langt frá því að vera
sannfærandi."
Spennustigið hefur mikiö aö
segja
Hvernig leik má fólk búast viö,
verður þetta leikur þar sem er mikið
skorað eóa verður lítið skor eins í
undanúrslitum Kjörísbikarsins á
milli þessara liðafyrr í vetur?
„Það er erfitt að segja og ég held
að það velti mikið á því hvernig
spennustig leikmanna verður í
leiknum. Ef menn koma rólegir til
leiks þá verður væntanlega mikið
skorað, en ef leikmenn verða
taugaóstyrkir þá má reikna með
lágu skori. Annars mun barátta og
vilji leikmanna ráða mestu um
úrslitin og ég tel að það lið sem
langar meira í bikarinn fari með
sigur af hólmi."
Nú er gamall vinur þinn staddur
hér á landi, sem einnig er
atvinnumaður, og menn hafa verió
að velta fyrir sér hvort hann sé að
fara að leika meó liðinu þar sem
Njarðvík hefur sótt um leikheimild
fyrir hann. Verður hann meó á
laugardaginn?
„Þetta er bara félagi minn sem
spilaði með mér í háskóla á sínum
tíma og hefur verið að leika um
allan heim. Hann er hér í heimsókn
hjá mér og er væntanlega á leiðinni
til írans á mánudaginn. Ég held að
ég geti fullyrt það að hann er ekki
að fara að leika með okkur á
laugardaginn.“
Höfum meiri hæö
Hvernig metur þú KR-liðið,
veikleika og styrkleika?
„KR hefur mikla og góða breidd.
Það þýðir ekkert að ætla að stoppa
einhvern einn heldur eru margir
sem geta tekið yfir í sókninni.
Menn eins og Jón Amór, Vassell,
Herbert, Helgi og Magni geta allir
átt stórleik og þvi þurfum við að
hafa gætur á mörgum mönnum.
Það sem við höfum kannski fram
yfir KR er meiri hæð en ég geri mér
fulla grein fyrir að allir eru ekki
sammála mér í því. Reyndar eru
fáir veikleikar hjá KR og því ætlum
við bara að einbeita okkur að spila
eins vel og við getum.“
-Ben