Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.2002, Blaðsíða 2
16
FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002
FÖSTUDAGUR 22. MARS 2002
17
Sport
Sport
Guöjón Þóröarson á hér aö því er viröist skemmtileg oröaskipti viö Gerard Houllier, framkvæmdastjóra Liverpool.
Fróölegt verður aö fylgjast meö hvernig glímu Guöjón við The Sentinel mun enda.
Viðbrögð blendin við banni Guðjóns Þórðarsonar á The Sentinel:
Árangur skiptir nú
enn meira máli
Skiptar skoðanir eru uppi um
hvort ákvörðun Guðjóns Þórðarson-
ar, framkvæmdastjóra Stoke, um að
hætta að tala við The Sentinel og
banna leikmönnum sínum að veita
blaðinu viðtöl sé réttmæt. Gamlir
leikmenn hafa margir hverjir sagt
þessa ákvörðun ranga og blaðið sjálft
fer mikinn í skrifum um þessa
ákvörðun og gengur jafnvel svo langt
að segja að þetta sé móðgun við blað-
ið. En ef marka má vefkannanir virð-
ast flestir vera þeirrar skoðunar að
þessi ákvörðun sé rétt.
Einn stuðningsmaður segir m.a.:
„Það hefur stefnt í þetta bann í
nokkra mánuði. Það umtal sem son-
ur framkvæmdastjórans hefur fengið
í bréfum í Sentinel eru langt yfir
strikið. Stjórinn hefur komið okkur í
umspil tvisvar í röð og er á góðri leið
með að gera það aftur. Hann hefur
þurft að glíma við mikil meiðsl og
ýmis önnur vandamál og er að minu
mati að vinna mjög gott starf.“ Ann-
ar stuðningsmaður lét þau orð falla
að hann styddi Guðjón í hverju sem
hann gerði á meðan hann kæmi lið-
inu upp í 1. deild.
Gamlir leikmenn Stoke eru þó
margir hverjir á öndverðum meiði.
Einn þeirra er Dennis Herod, sem lék
með liðinu á 5. og 6. áratugnum.
„Þegar maður er í sviðsljósinu hjá
knattspyrnufélagi verður maður að
sætta sig við að fá góða og slæma um-
fjöllun. Slæmt gengi virðist öllum
öðrum að kenna en honum og leik-
mönnum hans. Að mínu mati eru
fréttirnar í The Sentinel sanngjarnar
og hlutlausar. Hvað lesendabréfin
varðar verður Guðjón að muna að
stuðningsmennirnir borga launin
hans og eiga rétt á aö segja sínar
skoðanir. Ég sé ekki hvaða gagn það
gerir að tala ekki við einhvern
ákveðinn fjölmiðil."
„Sýnir vanhæfni"
Það má segja að þetta sé kjarninn
í þeim skrifum sem viðhöfð eru í The
Sentinel um þetta mál og telur blaðið
sig ekki eiga þetta skilið frá Guðjóni
Þórðarsyni eins og fram kemur í við-
tali DV-Sport í gær við Alex Martin,
íþróttaritstjóra The Sentinel. Jafnvel
hefur verið gengið svo langt að segja
að þetta sýni vanhæfni hans til að
takast á viö jafn erfitt og álagsmikið
starf og að stýra knattspyrnuliði.
Flestir sem stýra knattspyrnuliði í
enska boltanum hafa eflaust ein-
hvern tímann lent i því að vera ósátt-
ir við umfjöllun fjölmiöla. Matt Busy,
fyrrum framkvæmdastjóri Manchest-
er United, fékk einu sinni þessi ráð
þegar hann íhugaði að meina blaða-
manni aðgang að Old Trafford í kjöl-
far skrifa hans: „Ef þú reiðist yfír því
sem blöðin skrifa, hættu þá að lesa
þau og haltu þínu striki. Og þú skalt
aldrei lenda i deilum við menn sem
kaupa blek í lítravís." Nokkur dæmi
eru um að lið hafi slitið sambandi við
fjölmiöla en aldrei hefur viðkomandi
lið borið neitt úr býtum fyrir vikið tU
lengri tíma litið.
Ýmsir erfiöleikar
Ekki er ofsögum sagt að gustað
hafi um Guðjón Þórðarson frá því
hann tók viö Stoke. Þetta tímabil hef-
ur verið sérstaklega viðburðaríkt.
Hann þurfti að selja tvo af bestu leik-
mönnum liðsins, markaskorarann
Peter Thorne og miðvailarleikmann-
inn Graham Kavanagh (sem lenti
reyndar saman við Guðjón áður en
hann var seldur). Meiðsli hafa sett
mikinn svip á leiktíðina og nægir þar
að nefna íslendingana Rikharð Daöa-
son, Brynjar Björn Gunnarsson og
nú síðast Pétur Marteinsson.
Margir hafa gagnrýnt hann tölu-
vert og á stundum óverðskuldað, sér-
staklega yfir þvi að sonur hans,
Bjami, sé fastamaður í liðinu en
hann hefur leikið vel á tímabilinu.
Þetta varð reyndar til þess að Guðjón
setti hann á sölulista. Þetta hefur því
ekki verið auðvelt líf hjá Guðjóni en
árangurinn hefur þó verið þokkaleg-
ur og verður að teljast afar liklegt að
liðið komist a.m.k. í umspil um sæti í
1. deild, jafnvel annað af tveimur
efstu sætunum.
Hvort sem þessi ákvörðun er rétt
eða ekki má ljóst vera að hún getur
komið Guðjóni Þórðarsyni í mjög erf-
iða stöðu. Það virðist alveg ljóst að ef
honum tekst ekki að koma liðinu í 1.
deild eru dagar hans sem knatt-
spyrnustjóra hjá Stoke taldir, því ef
stjórnin lætur hann ekki fara munu
stuðningsmenn liðsins og fjölmiðlar
örugglega krefjast þess harðlega. Og
þá verður þessi ákvörðum um að
setja The Sentinel í bann óspart not-
uð gegn honum. Ef hins vegar honum
tekst ætlunarverk sitt munu þessir
sömu stuðningsmenn örugglega
hampa honum en hvaða áhrif það
mun hafa á samskipti Stoke og
Sentinel er ómögulegt að segja. En
miðað við þá reynslu sem aðrir fram-
kvæmdastjórar hafa gengið í gegnum
eru líkurnar á að Guðjóni verði eitt-
hvað ágengt með þessu útspili ekki
honum í hag. -HI
KR.
Spá Péturs: 3-1 fyrir Njarðvík.
Eggert: „Þetta verður svakaleg
rimma og ég held að þetta einvígi fari í
oddaleik þar sem verður mjög tæpt á
því hvort liðið fer áfram. Það eru mikl-
ar værtngar á milli þessarra tveggja
liða og bæði lið eru farin að gefa út yf-
irlýsingar vel fyrir leikina. Menn eru að
segja að það andi þama köldu á milli
leikmanna og ef marka má það hvernig
síðasti leikur endaði er öruggt að þetta
verður mjög líílegt einvígi. Að mínu
mati mun Keflavík-Grindavíkur-serían
líða nokkuð fyrir það hversu mikla at-
hygli þessir leikir eiga eftir að draga að
sér.
Stóru menn KR-liðsins eru í raun í
eðli sinu leikmenn sem vilja spila fyrir
utan því Keith Vassell, Helgi Már Magn-
ússon og Magni Hafsteinsson vilja allir
vera fyrir utan að skjóta á meðan Frið-
rik Stefánsson, Páli Kristinsson og Hall-
dór Karlsson eru allir inni í teig að
djöflast allan timann. KR-ingar eru hins
vegar með fleiri vængleikmenn og úr
þeim stöðum þurfa þeir að fá mikið í
þessu einvígi ef vel á að fara fyrir þá.
Ég tel að ef KR-ingar ná að stöðva
stóru menn Njarðvíkur þá eigi þeir að
hafa þetta en ef ekki vinnur Njarðvík.
Ég er samt meira á því að Njarðvík
hafi þetta og ég held að i löngu einvígi
eigi það eftir að há KR að þeir eru með
léttari menn undir körfunni sem þurfa
að hafa meira fyrir hlutunum. Það að
lenda mikið undir og koma til baka eins
og Njarðvíkingar hafa gert í síðustu
tveimur leikjum gegn KR sýnir líka
styrk liðsins og þá sérstaklega að þeir
gera það bæði í bikarúrslitaleik og á
heimavelli KR-inga.
Ég hef sagt í gamni að Breiðablik og
Njarðvík hafi verið að spila tii úrslita
um íslandsmeistaratitilinn og það lið
sem myndi vinna það einvígi myndi
vinna titilinn og ég hef trú á að Njarð-
vík fari alla leið,“ sagði Eggert um ein-
vígi Njarðvíkur og KR.
Spá Eggerts: 3-2 fyrir Njaróvík.
-ÓÓJ
Þjálfararnir Ingi Þór Steinþórsson hjá KR (til vinstri) og Friðrik Ragnarsson hjá Njarövík verða í eldlínunni í einvígi liðanna í
undanúrslitum Epsondeildar karla í körfubolta. Fyrsti leikur liðanna fer fram á laugardaginn. DV-myndir Hari
| EPSON
OEILOIIM
Undanúrslit Epsondeildar karla i
körfubolta heijast á morgun þar sem
mun fara fram sannkölluð
körfuboltaveisla á Suðurnesjunum.
Deildarmeistarar Keflavíkur taka þá á
móti Grindavík klukkan 16.00 í Kefla-
vík en á undan þeim leik fer fram ann-
ar leikur Keflavikur og KR í undanúr-
slitum kvenna. Á sama tíma og hann
fer fram verður hinn leikur undanúr-
slita kvenna þegar Grindavík tekur á
móti IS. íslands- og bikarmeistarar
Njarðvikur taka á móti KR klukkan sjö
í hinum leik undanúrslita karla.
Undanúrslitaliðin fjögur í ár eru
einmit þau fjögur lið sem oftast hafa
komist svona langt í sögu keppninnar.
Njarðvík er komið í undanúrslitin í 18.
sinn, Keflavíkingar eru þar í 16. sinn,
KR-ingar hafa 12 sinnum komist i
þennan hóp og Grindavíkingar eru að
ná því í 10. sinn. Ekkert annað lið en
þessi fjögur hefur orðið meistari frá því
á árinu 1988 er Haukar unnu titilinn.
Njarðvík og KR hafa mæst fjórum
sinnum í vetur en aldrei þó í sama hús-
inu. Hvorugt liðið hefur náð að vinna
heimaleik í þessum fjórum leikjum,
Njarðvik vann deildarleik liðanna,
102-106, í KR-húsinu, KR vann deildar-
leik liðanna í Njarðvik, 77-81, og Njarð-
víkingar unnu síðan undanúrslitaleik
liðanna í Kjörísbikamum sem fram fór
í Smáranum, 56-55, sem og bikarúr-
slitaleik liðanna í Höllinni, 79-86.
Keflavik og Grindavik skiptu á milli
sín sigrunum í deildinni, Keflavík
vann, 96-85, í Keflavík og Grindavík
vann, 105-96, í Grindavík. Damon
Johnson, leikmaður Keflavíkur, skor-
aði 88 stig í þessum tveimur leikjum, 51
í Grindavík og 38 í Keflavík. Damon
hitti úr 33 af 55 skotum sínum og gerði
8 þriggja stiga körfur úr 13 skotum.
Njarðvik og KR mætast nú í undanúr-
slitum úrslitakeppninnar þriöja árið í
röð en í fyrri tvö skiptin hefur sigur-
vegari einvígisins farið alla leið og
fagnað Islandsmeistaratitlinum. KR
vann 3-2 fyrir tveimur áram og vann
síðan Grindavík 3-1 í úrslitum og
Njarðvík vann einvígið 3-0 í fyrra og
vann titilinn eftir 3-1 sigur á Tindastól.
Ólafur Jón Ormsson, fyrirliði KR,
mætir nú Njarðvík fimmta árið í röð í
úrslitakeppninni en hann hefur aðeins
einu sinni komist áfram, þegar hann
fagnaði sigri með KR vorið 2000. Ólafur
datt út úr átta liða úrslitum gegn Njarð-
vík með KFÍ 1998 og siðan út úr undan-
úrslitum með KFl ári síðar. Vorið 2000
komst hann i gegnum Njarðvik í
undanúrslitum með félögum sínum í
KR en í fyrra datt hann út með KR gegn
Njarðvík í undanúrslitunum.
Þeir Keith Vassell, KR, og Brenton
Birmingham, Njaróvik, hafa jafnan
verið í sviðsljósinu í leikjum KR og
Njarðvík síðustu árin. Vassell hefur
aús leikið 24 leiki gegn Njarðvík og
hefur KR inmið 10 þeirra en Brenton
hefur leikið 21 leik gegn KR með
Njarðvik (12) og Grindavík (9) og hefur
11 sinnum verið í sigurliöi.
Vassell er með 21,8 stig og 11,6 fráköst
að meöaltali í þessum leikjum en
Brenton hefur skorað 27,4 stig, tekið 7,3
fráköst og gefið 5,4 stoðsendingar að
meðaltali í sínum leikjum.
Báðir hafa þeir nýtt yfir helming
skota sinna, Vassell er meö 50,3%
skotnýtingu en Brenton er með 52,1%
skotnýtingu. Vassell hefur náð tvennu
(yfir 10 í stigum og fráköstum) í síðustu
sjö leikjum liðanna þar sem hann er
með 23,9 stig og 13,7 fráköst að
meöaltali. -ÓÓJ
Undanúrslit Epsondeildar karla í
körfubolta hefjast á morgun þegar deild-
armeistarar Keflavíkur taka á móti
Grindavíkingum og KR-ingar mæta til
Njarðvíkur.
Báðar viðureignir gefa góð fyrirheit
um æsispennandi og skemmtilega leiki
og DV-Sport fékk þá Pétur Ingvarsson,
þjálfara Hamars, og Eggert Garðarsson,
þjálfara Breiðabliks, til að spá í spilin
og segja til um hvaða tvö lið muni kom-
ast í lokaslaginn.
Pétur Ingvarsson er á því að þetta séu
mjög svipuð lið sem mætist í
undanúrslitunum í ár og að þau hafi
svipaða leikmenn i öllum stöðum. Hann
er þó á því að vagga körfunnar sé enn
þá á Suðurnesjum og það verði Suður-
nesjalið sem spila um titilinn að þessu
sinni en leikirnir ættu þó að verða mik-
il skemmtun.
Eggerti Garðarssyni líst líka vel á
undanúrslitin og hýst við hörkuleikjum.
„Þetta eru ijögur sterkustu liðin í dag,
þau eru öll með sigurhefðir og sætta sig
við ekkert annað en sigur og ég á von á
skemmtilegum og spennandi leikjum."
En hvað segja þeir félagar um hvort
einvígið fyrir sig.
Keflavík - Grindavík
Pétur: „Þessi tvö lið leggja höfuð-
áherslu á sóknarleikinn en hæði þessi
lið eru ótrúlega góð í vöm líka. Það er
hlutur sem er oft vanmetinn hjá þeim
og sérstaklega hjá Keflvíkingunum.
Grindavik er að mínu mati með betri
mannskap en það sem skiptir mestu
máli í þessu er að Keflvíkingarnir eru
með Damon. Það verður mjög erfitt fyr-
ir Grindavík að finna vamarmann að
gæta hans án þess að það opnist fyrir
góða skotmenn liðsins. Keflvíkingar eru
búnir að vinna deildarmeistaratitilinn
og eru til alls líklegir. Ég hugsa samt að
þetta fari í fimm leiki og það verði
heimaliðin sem eiga eftir að vinna sína
leiki í þessu einvigi en útisigur er að
mínu mati jafnframt ávísun á sigur í
einvíginu," sagði Pétur.
Spá Péturs: 3-2 fyrir Keflavík.
Eggert: „Ég spái því að Keflavík fari
áfram, annaðhvort 3-1 eða 3-2. Ég býst
við að það verði tekin hátt í 50 til 70
þriggja stiga skot í hverjum leik enda
lifa þau bæði og deyja á þriggja stiga
línunni. Ég held að heimavöllur Kefla-
vikur reynist of sterkur fyrir Grind-
viktnga. Nái Grindvíkingar aftur á
móti aö stela fyrsta leiknum þá getur
allt gerst. Ég set stórt spurningar-
merki við hvernig Grindvíkingar ætla
að stoppa Damon en ef þeir ná að
hemja hann þá eiga þeir mun hetri
möguleika á að komast áfrarn," sagði
Eggert.
Spá Eggerts: 3-1 fyrir Keflavik.
Njarðvík - KR
Pétur: Ef ég mætti ráöa þá hefði ég
viljað sjá þessi lið spila úrslitaleikinn
um íslandsmeistaratitilinn. Þetta eru
tvö bestu liðin í dag og eru þau bæði
jafngóð í vörn og sókn. Þetta verður
því hörkueinvígi. KR-ingar töpuðu
ósanngjarnt síðasta leik liðanna i
deildinni og það getur hjálpað þeim til
að mæta grimmari til leiks en ég held
að Njarðvík vinni þetta einvígi 3-1 og
að þeir eigi því eftir að vinna einn leik
i KR-húsinu.
Njarðvík hefur ekki verið sannfær-
andi undanfarið miðað við mannskap
en ég hef trú á að þetta sé að smella
saman hjá þeim. Ef þeir taka sig allir
saman þá geta þeir unnið öll hin liðin
í þessum undanúrslitum iéttilega,"
sagði Pétur um leiki Njarðvíkur og
Dómarar mannlegir eins og annaö fólk
Umræða um dómgæslu í handboltanum hefur farið nokk-
uð hátt að undanfórnu. Þjálfarar nokkurra liða hafa kastað
fram þeirri gagnrýni að íslands- og bikarmeistarar Hauka
njóti sérstakrar vemdar dómara sem hafi komið þeim í þá
stöðu sem þeir eru í núna: sjálfan toppinn.
Það sem málið snýst að miklu leyti um er að nokkrir þjálf-
arar í deildinni eru famir að beina að Viggó Sigurðssyni,
þjálfara Hauka, þeim sálfræðihemaði sem hann sjálfur hef-
ur stundað gagnvart dómurum með því að agnúast oft og
iðulega út í störf þeirra þegar lið hans nær ekki sigri, þá
sjaldan sem það gerist. Talað hefur verið um að Viggó hafi
dómara í vasanum og lið hans og hann sjálfur komist upp
með ýmislegt sem öðram sé ekki leyfilegt, og að Haukarnir
beinlinis hagnist á þessu stigalega séð. Ekki benda þessi við-
horf til mikils álits á dómurum okkar. Halda menn að dóm-
arar séu virkilega hræddir við Viggó og þori ekki annað en
að dæma liði hans í vil?
Mér finnst öll þessi umræða hljóma meira en lítið undar-
lega og reyndar nokkuð bamalega og eru þó hér á ferð full-
orðnir menn en ekki böm í sandkassa. Hvað Hauka sjálfa
varðar þá eru þeir einfaldlega besta handknattleikslið lands-
ins og það er langt síðan maður hefur séð álíka sterkt lið hér
á landi. Hins vegar hefur sálfræðihernaður Viggós verið
þreytandi og óþarfur því lið hans hefur ekkert þurft á hon-
um að halda.
Umræðan um dómaramálin er að mínu mati
komin út í tóma vitleysu og nánast persónu-
lega óvild þar sem stór orð eru látin flakka
í hita andartaksins og á slíku græðir eng-
inn, - og allra síst íþróttin sjálf. Vonandi
láta menn af þessu þreytandi tuði og
nöldri, hvort heldur er inni á vellinum
eða á síðum dagblaðanna og einbeiti sér
þess í stað að raunveruleikanum eins og
hann er og skoði stöðu síns liðs út frá því
sjálfú og temji sér sjálfsgagnrýni og hætti ^
að kenna öðrum um ef lið viðkomandi
skíttapar úrslitaleik í beinni útsendingu!
Hvers vegna fá dómarar i körfuknattleik yfirleitt ^«1 v
hærri einkunnir á síðum DV en handboltadómarar? Skyldi
það vera vegna þess að þeir séu hæfari og betur menntaðir
eða skyldi þetta álit tengjast á einhvem hátt reglum þessara
Svanur Már Snorrason
tveggja íþróttagreina? Jú, þar liggur hundurinn grafinn.
Staðreyndin er sú að reglur körfuboltans em miklu skýrari
en reglur handboltans og því er starfsumhverfi körfubolta-
dómara mun betra.
Handboltadómarar þurfa oft að leggja mat sitt á
ákveðnar aðstæður þar sem ýmsir möguleik-
ar koma til greina því að reglumar era bæði
gráar og loðnar; - og það sem eitt dómar-
arapar dæmir gott og gilt, dæmir annað
par með ólíkum hætti; bæði pörin geta
talist hafa rétt fyrir sér en einnig rangt! í
sliku umhverfi hlýtur að vera mjög erfitt
að starfa og það gefur sífellt tilefni til
gagnrýni fyrir slæma dómgæslu; - túlkun
manna er alltaf misjöfh þegar hlutimir eru
ekki alveg á hreinu og því miður er sú raun-
in með margar handboltareglur. Þannig er enda-
laust hægt að væla og veina yfir dómgæslu og
kenna henni um slæmt gengi síns liðs.
Fyrir barðinu á svona viðhorfum verða einnig þjálfarar,
leikmenn, aðstandendur og/eða stuöningsmenn. Dómarinn
þro
verður þó alltaf blórabögguUinn á meðan ekki er gerð brag-
arbót á hinum gráu svæðum reglnanna.
íslenskir dómarar eru bara venjulegir menn sem vinna
sitt starf undir erfiðum kringumstæðum eftir bestu getu og
samvisku en fá yfirleitt lítið annað en skít og skammir fyr-
ir. Oft veltir maður þvi fyrir sér hvað það er sem fær þá til
að halda áfram leik eftir leik undir slíkum kringumstæðum.
Ef komið væri fram við leikmenn á svipaðan hátt vegna mis-
notaðra skota, slæmrar ákvörðunartöku eða lélegs varnar-
leiks, er ég hræddur um að afreksmönnum myndi fækka í
íþróttinni. Njóti menn ekki sannmælis í starfi eða fái að
læra með eðlilegum hætti af mistökum sínum verður lítið
um framfarir. Mín skoðun er sú að íslenskir dómarar séu al-
mennt ekki hlutdrægir og fásinna sé að halda því fram að
einhver lið græði umfram önnur á dómgæslu. Slíkt hef ég
ekki séð þó að sjálfsögðu eigi dómarapör sína slæmu daga og
geti þá orðið fyrir því að gera mörg mistök. Auðvitað getur
þeim skjátlast í viðhorfum og verkum því að þeir eru mann-
legir eins og annað fólk sem lætur til sin taka í okkar fjöl-
breytta þjóðlífsmunstri. -SMS
Suðurnesjaslagur
- báðir spekingar DV-Sport á því að Keflavík og Njarðvík komist í lokaúrslitin í ár
l.DEILD KViNNA
S
Staöan í deildinni:
Haukar 15 13
Stjaman 16 10
ÍBV 15 11
Valur 15 7
Víkingur 15 6
Grótta/KR 15 5
FH 15 5
Fram 15 4
KA/Þór 15 3
0 2 390-286 26
3 3 378-325 23
0 4 335-285 22
2 6 329-316 16
1 8 286-299 13
1 9 321-335 11
1 9 314-340 11
0 11 316-385 8
0 12 294-392 6
Ragnheiður
Stephensen
úr Stjörn-
unni skoraði
123 mörk í
16 leikjum
deildar-
keppninnar í
vetur eða 7,7
að meðaltali
íleik.
Markahæstar:
Ragnheiður Stephensen, Stj. . 123/45
Hrafnhildur Skúladóttir, Val . 102/28
Ásdís Sigurðardóttir, KA/Þór . 91/15
Ana Perez, ÍBV..................91/22
Amela Hegic, Gróttu/KR.........74/21
Dröfn Sæmundsdóttir, FH .... 72/6
Drífa Skúladóttir, Val..........72/17
Ágústa Edda Bjömsdóttir, Gr./KR 66/1
Inga Fríða Tryggvad., Haukum . 66/24
Elsa Birgisdóttir, KA/Þór......64/27
Ragnhildur Guðmundsdóttir, FH 64/13
Nína K. Bjömsdóttir, Haukum .. 62/15
Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum . 61/5
Harpa Melsted, Haukum ..........61/15
Guðmunda Ósk Kristjánsd., Vík. 60/20
Flest varin skot:
Jelena Jovanovic, Stjömunni 284/33
Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV . . 257/16
Helga Torfadóttir, Víkingi . . . 229/17
Jolanta Slapikiene, FH .........214/13
Jenný Ásmundsd., Haukum . 211/10
Flest fiskuð víti:
Ásdís Sigurðardóttir, KA/Þór ... 30
Brynja Steinsen, Haukum............25
Harpa Melsted, Haukum...............23
Inga Fríða Tryggvad., Haukum .... 23
Sigrún Gilsdóttir, FH ..............21
Ebba S. Brynjarsdóttir, KA/Þór ... 21
Síóasta umferðin fer fram
um helgina og þá mætast:
Grótta/KR-Haukar lau. 23. mars 14.45
FH-Fram .......lau. 23. mars 14.45
Valur-ÍBV .....lau. 23. mars 14.45
Víkingur-KA/Þór lau. 23. mars 14.45
Aldrei spurning
- þegar ÍBV lagði KA/Þór
ÍBV tók á móti KA/Þór í Essodeild
kvenna en leikurinn var báðum liðum
nokkuð mikilvægur, Eyjastúlkur eiga
enn möguleika á að næla sér í annað
sæti deildarinnar með því að vinna þá
leiki sem liðið á eftir og norðanstúlk-
ur eiga enn fræðilegan möguleika á
því að komast í úrslit en sá möguleiki
fjarlægðist nokkuð eftir leikinn í gær-
kvöldi. ÍBV vanni leikinn nokkuð ör-
ugglega, 25-18, eftir að hafa verið
fimm mörkum yfir í hálfleik, 15-10.
Eyjaliðið þurfti ekki að sýna neinn ^
glansleik í gærkvöldi. Mótspyman
var ekki mikO þó að liðin hafi skipst
á að skora á upphafsmínútunum. Það
vakti hins vegar nokkra athygli með
hversu stuttum fyrirvara liðin fengu
að vita um leikinn, Eyjamenn fengu
að vita um leiktímann sl. þriðjudag
sem gaf þeim heilan einn dag til að
auglýsa leikinn.
Hjá gestunum var Ásdis Sigurðar-
dóttir allt í öllu og myndi liklega vel
sóma sér í hvaða liði sem er í deild-
inni. Þá átti Inga Sigurðardóttir
einnig ágæta spretti og Selma
Malmquist átti fína innkomu í mark-
ið. -JGI
ÍBV-KA/Þór25-18
1-0, 6-4, 11-8, (15-10), 15-11, 22-14, 23-17,
25-18.
ÍBV:
Mörk/viti (skot/viti): Ingibjörg Jónsdótt-
ir 7 (7), Theodora Visokaite 7/1 (13/1), Ana
Pérez 7/1 (14/2), Bjarný Þorvarðardóttir 2
(2), Isabel Ortiz 2 (5), Þórsteina Sigur-
björnsdóttir (2), Aníta Ýr Eyþórsdóttir (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 3 (Ingibjörg
2, Bjarný).
Vitanýting: Skorað úr 2 af 3.
Fiskuð viti: Ana, Aníta, Theodora.
Varin skot/viti (skot/viti á sig): Vigdís
Sigurðardóttir 23/1 (41/4, hélt 17, 56%).
Brottvisanir: 0 mínútur.
KA/Þór:
Mörk/viti (skot/víti): Ásdís Sigurðardótt-
ir 9 (15), Inga Dís Sigurðardóttir 6/3 (12/4),
Martha Hermannsdóttir 2 (7), Ása Maren
Gunnarsdóttir 1 (1), Katrín Andrésdóttir
(2), Elísabet Einarsdóttir (2), Sandra Jó-
hannesdóttir (1).
Mörk úr hraðaupphlaupum: 0.
Vitanýting: Skorað úr 3 af 4.
Fiskuó viti: Ásdís 2, Katrín, Martha.
Varin skot/viti (skot/viti á sig). Sigur-
björg Hjartardóttir 9 (31/1, hélt 3, 29),
Seima Malmquist 8/1 (11/2, hélt 4, 73%).
Brottvisanir: 0 mínútur.
Dómarar (1-10): Guðmundur
Erlendsson og Vilbcrg Sverrisson (5).
Gœði leiks (1-10): 6. Áhorfendur: 110.
Maöur leiksins:
Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV
l m n i*-
®TOYOTA
Hótel Saga - Sunnusalur
Laugardaginn 23.mars
Húsið opnar klukkan 19:00
Þrírétta máltíð, fordrykkur, uppboð,
happadrætti og óvæntar uppákomur.
Veislustjóri er
Haukur Holm
Ræðumaður kvöidsins er
EGILL HeLGASON (Silfur Egiis)
I
Einungis 25 miðar eftir sem fást hjá Lúðvfki í sfma
892-0083
ALLIR SEM EINNU
m ^LEJKMENNKR
I