Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2002, Side 4
20
MIÐVIKUDAGUR 24. APRÍL 2002 JLlV
Fornbílaklúbbur íslands -
25 ára metnaðarfullt félag
Þann 19. maí næstkomandi veröa
25 ár liðin frá þvi Fornbílaklúbbur ís-
lands var stofnaður á íjölmennum
fúndi í Templarahöllinni. Fyrsta
verkefni klúbbsins var hópakstur 17.
júní 1977 í Reykjavík sem lauk með
sýningu við Austurbæjarskólann.
Þessi fyrsta ferð tókst með ágætum
og vakti geysimikla athygh sem varð
til þess að stappa stálinu í áhuga-
menn um gamla bíla og hvatti þá til
að snúa bökum saman í hagsmuna-
baráttu sinni.
Helstu verkefni klúbbsins
Fornbílaklúbburinn skipuleggur
nú um 15 ferðir á hverju sumri, bæði
skemmri og lengri. Meðal fastra
ferða má nefna vorferð rnn Suðumes,
þjóðhátíðarakstur í Reykjavík, fom-
bíladag í Árbæjarsafni, langferðir,
helgarferðir og hótelferðir, auk
haustferðar á Þingvöll eða í Heið-
mörk. Fyrsta verulega langferðin
sem klúbburinn efndi til var hring-
ferð í tilefni af tiu ára afmæli klúbbs-
ins árið 1987. Þessi afmælishringferð
var endurtekin árið 1997. Þá hefur
tvisvar verið efnt til utanlandsferða á
vegum klúbbsins. Farið var til Norð-
urlandanna árið 1992 og til Færeyja
árið 1996, en klúbburinn hefur sterk
vináttutengsl við fombílaklúbbinn í
Færeyjum, Föroya Ellis Akfor. Til að
forða fjölmörgum fombilum frá eyði-
leggingu reisti Fombílaklúbburinn
þijár geymslur á Esjumelum, sam-
tals um 1200 fermetra að stærð, og
em þær fullnýttar yfir vetrarmánuð-
ina. Hafa tekjur af þeim ásamt félags-
giöldum staðið undir öllum fram-
kvæmdum og arðsaukningu klúbbs-
ins á liðnum áratug.
Fornbílasafn í Elliöaárdal
Fyrir nokkrum árum tók stjóm
klúbbsins þá ákvörðun að leita eftir
því við borgarstjórann í Reykjavík
Á myndinni má sjá Mercedes-Benz, árgerð 1956, Buick 1949, Chrysler 1941 og
Mercury 1954.
Á þessari mynd eru tveir Chevrolet-bílar, árgerðir 1937 og 1958.
ára fresti í tilefni af afmæli bílsins á
íslandi. Sú fyrsta var haldin í Laug-
ardalshöllinni í júní 1979. Síðan var
sýning í tengslum við Auto 84 og svo
árin 1989, 1994 og 1999 í Laugardals-
höllinni. í maí 1997 var haldin sér-
stök afmælissýning í Perlunni í til-
efni af 20 ára afmæli klúbbsins og um
næstu hvítasunnuhelgi verður hald-
in vegleg aönælissýning í tilefiii af 25
ára afinæli klúbbsins. Eins og áður
hefur komið fram vinnur klúbburinn
nú að imdirbúningi bílasaftis sem
rísa mun í Elliðaárdalnum árið 2003.
Hér eru svo tveir af eldri gerðinni, Ford 1930 og Buick 1932.
að borgaryfirvöld létu klúbbnum í té
lóð undir nýtt félagsheimili og bíla-
safn sem áætlað er að verði um 1000
fermetrar að stærð. Eftir ströng
fundahöld og langa meðgöngu hefur
klúbburinn nú fengið lóð í Elliðaár-
dal, þar sem á næsta ári mun rísa
myndarlegt hús, hannað af Agli Guð-
mundssyni arkitekt. Þar til nýja hús-
ið verður opnar verður fundarað-
staða klúbbsins í Húnabúð, Skeif-
unni 11, þar sem opið er öll miðviku-
dagskvöld frá kl. 20 til 23.30.
Sýningar á gömlum bílum
Einn þáttur í starfi Fombíla-
klúbbsins, sem hvað mesta athygli
hefur vakið, em sýningar á bílum og
ýmsu sem tilheyrir sögu bílsins á Is-
landi. Glæsilegustu sýningar klúbbs-
ins em þær sem haldnar em á fimm
Hér sjást Benz 1959, Chevrolet 1954 o.fl. góðir.
m ii Dekk
vddu aðeins það besta
Höldur • Akureyri
Bílaþjónustan • Húsavík
Smur og Dekk • Höfn Hornafirði
IB Innflutningsmiðlun • Selfossi
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns • Reykjavík
Nesdekk • Seltjarnarnesi
Dekk og smur • Stykkishólmi
Léttitækni • Blönduósi
UmboOsaOilar:
vagnhöfdá 23
www.benni.is
Þessir eru lýsandi fyrir bílana sem
komu um eða upp úr seinna stríði.
Þetta eru Chevrolet 1947, Ford 1946
og Studebaker 1941.
Þar verða i framtíðinni til sýnis fom-
bílar og munir og minjar sem tengj-
ast sögu bílsins á íslandi.
Þjónusta viö félagsmenn
Á liðnum ámm hefur stjóm
klúbbsins unnið ötullega að hags-
munamálum fombílaeigenda og hef-
ur á þeim vettvangi náðst ótrúlegur
árangur. Má þar nefna að öll opinber
gjöld hafa fengist afhumin af fombíl-
um, tryggingar verið stórlækkaðar,
vmdanþágur fengnar frá reglum um
búnað vegna skoðimar, leyfi fengið
til að nota gamlar númeraplötur og
innflutningsgjöld lagfærð. Stjóm
Fombílaklúbbsins starfar nú með
Bílgreinasambandinu og forsetaemb-
ættinu að uppgerð fyrsta forsetabíls
lýðveldisins, sem er Packard, árgerð
1942, og er ætlunin að hann verði tek-
inn i notkun á ný sem hátíðabifreið
forsetans á næstu misserum.
Eins og gefúr að skilja er jafnan
mikil þörf á varahlutum í fombíla,
hvort sem verið er að gera þá upp
eða laga. Oft getur verið erfitt að ná í
slíka varahluti og þvi hóf klúbburinn
þegar á fyrsta ári að afla varahluta
sem bílafýrirtæki tóku úr sölu. Hefúr
því verki verið haldið sleitulaust
áfram og á klúbburinn nú talsverðan
varahlutalager. Mikið starf hefur
verið unnið við öflun hlutanna,
flokkun þeirra og frágang. Félagar
geta síðan keypt varahlutina við
vægu verð\ m.a. á árlegum vara-
hlutamarkaði sem haldinn er i bíla-
geymslum klúbbsins á Esjumelum.
Nú hefúr klúbburinn fengið heimild
til að framleiða svonefndar Steðja-
plötur á fombíla, 25 ára og eldri.
Tæki til númeraframleiðslu vom á
sínum tíma keypt af Steðja hf. og eft-
ir að leyfi fékkst fyrir fombíla að
bera þessar plötur hófst framleiðsla
þeirra í byijun þessa árs.
Varöveisla sögulegra heimilda
Einn mikilvægur þáttur í starfi
Fombílaklúbbsins er söfnun á upp-
lýsingum og minjum um samgöngu-
sögu þjóðarinnar og ber þar hæst
söftiun á gömlum ljósmyndum af bíl-
um á íslandi. Var þar lengst af for-
göngumaður Bjami Einarsson frá
Túni, en hann var allra manna
ötulastur við söftiun gamalla bíla-
mynda. Er safnið nú orðið mikið að
vöxtum og ómetanleg heimild. Hefúr
mikið starf verið unnið við mynd-
skráningu, skannanir og frágang. Þá
hafa stækkaöar myndir úr safninu
prýtt veggi á sýningum klúbbsins og
víðar. Klúbburinn á einnig allgott
safn af bílabókum, handbókum, blöð-
um, bæklingum og kvikmyndum.
Óhætt er að fúllyrða að ótrúlega
mikið starf hefur verið unnið þann
aldarfjórðung sem Fombílaklúbbur
íslands hefur starfað og hafa þar
margir unnið óeigingjamt starf. Hef-
ur klúbbnum tekist að breyta áliti ís-
lensku þjóðarinnar á fombílum frá
því að vera taldir ómerkilegt skran í
það að vera gersemar sem jafnvel
hæfa þjóðhöfðingja. Með þessari við-
horfsbreytingu var fombilamennsk-
an viðurkennd sem áhugavert menn-
ingarstarf og ómissandi þáttur í ís-
lensku þjóðlífi.
Þeim sem vilja kynna sér starfsemi
Fombílaklúbbsins nánar er bent á að
skoða heimasíðuna fombill.is, en þar
em upplýsingar um alla starfsemi
klúbbsins, dagskrá ársins og myndir
úr félagsstarfmu. -ÖS
Úr Snæfellsnessferð sumarið 2001.