Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.2003, Blaðsíða 4
4
_ ______________________________________________ FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 2003
Viðskipti_____________________________________________________ dv
Lífeyrissjóður verzlunarmana - séreignardeild:
Langtímafjárfestingarstefna höfð að leiðarljósi
„Séreignardeild Lífeyrissjóðs
verzlunarmanna býður upp á
eina ávöxtunarlarleið en hún er
sú að séreignardeildin er ávöxt-
uð samhliða öðrum eignum
sjóðsins sem nú eru 102 milljarð-
ar. Lífeyrissjóður verzlunar-
manna er langtímafjárfestir og
er það sjónarmið lagt til grund-
vallar við fjárfestingar og eigna-
stýringu á veröbréfasafni sjóðs-
ins. Eignirnar eru ávaxtaðar
með tilliti til þeirra kjara sem
best eru boðin á hverjum tíma,
að teknu tilliti til varúðarsjónar-
miða, áhættu og verðtryggðra
langtímaskuldbindinga sjóðs-
ins,“ segir Þór Egilsson hjá Líf-
eyrissjóði verslunarmanna.
Hann segir að með hækkandi
hlutfalli innlendra og erlendra
hlutabréfa í verðbréfasafni
sjóðsins mirni verða vart meiri
sveiílna í ávöxtun sjóðsins á
komandi árum. Til lengri tíma
litið muni hærra hlutfall hluta-
bréfa skila sjóðnum betri rauná-
vöxtun en ef eingöngu hefði ver-
ið fjárfest í skuldabréfum.
„Skuldabréfasafn sjóðsins er
að stærstum hluta til skuldabréf
til langs tíma með ábyrgð ríkis-
sjóðs og banka. Þannig hefur líf-
eyrissjóðurinn tryggt sér örugga
vexti af skuldabréfasafninu til
langs tíma. Meðalraunávöxtun
sjóðsins undanfarin 5 ár er 3,2%.
Avöxtun sjóðsins á árinu 2002
var -0,8%,“ segir Þór.
Vægi innlendra og erlendra
hlutabréfa í eignasafni sjóðsins
er 29% og hlutur skuldabréfa
71%.
„Af ofangreindu má ráða að
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
er álitlegur kostur sem vörslu-
aðili séreignarsparnaðar þar
sem langtímaíjárfestingarstefna
er höfð að leiðarljósi við ávöxt-
un á 102 milljarða eignasafni og
rekstrarkostnaður er með því
lægsta sem gerist eða aðeins
0,08% af eignum."
í Séreignalífeyrissjóðnum eru fjölbreyttar fjárfestingarleiðir:
Séreignalífeyrissjóður Búnaðarbankans er öflugur
lífeyrissjóður sem hentar þeim sem hafa frjálst
val um aðild að lífeyrissjóði. Sjóðurinn hentar
einnig þeim sem vilja leggja fyrir í viðbótar-
lífeyrissparnað.
1. Séreignabók ber hæstu verðtryggðu vexti bankans hverju sinni, nú 6%.
Séreignabókin tryggir þér örugga ávöxtun og þú losnar við sveiflur
verðbréfamarkaðarins.
2. Ávöxtunarleiðir 1, 2 og 3, aldurstengd verðbréfasöfn þar sem hægt er að velja
um áhættu og vænta ávöxtun sem hentar mismunandi aldri.
Kostir þess að greiða 10% lágmarksiðgjatd í Séreignalífeyrissjóðinn:
» Góð ávöxtun miðað við sambærilega sjóði samkeppnisaðila.
• Sameinar kosti samtryggingar- og séreignarsjóða.
• Hæsta hlutfall séreignar af öllum lífeyrissjóðum. Öll séreign erfist.
• Sveigjanlegir útborgunarmöguleikar.
• Ávallt hægt að sjá hreyfingar og stöðu í Heimilisbanka Búnaðarbankans
á Netinu.
Þeir sem eiga séreignaspamað hjá öðrum vörsluaðila geta fært hann til Búnaðar-
bankans og greiðir bankinn allan kostnað við flutninginn sem viðkomandi þyrfti
annars að greiða.
$)búnaðarbankinn
Nánari upplýsingar í síma 525-6060 og í útibúum Búnaðarbankans um land allt.
www.bi.is/lifeyrissjodur
Sameinaði lífeyrissjóðurinn:
Hægt aö velja milli
tíu ávöxtunarleiða
„Sameinaði lífeyrissjóðurinn er
góður kostur fyrir séreignarsparn-
að þar sem hægt er að velja á milli
10 ávöxtunarleiða. Nýta má fleiri
en eina ávöxtunarleið samtímis og
búa þannig til verðbréfasafn sem
hentar þörfum hvers og eins. Auk
þess er hægt að skipta um ávöxtun-
arleiðir hvenær sem er, án kostn-
aðar. Vegna mikilla lækkana á
hlutabréfamörkuðum erlendis síð-
ustu ár hafa margir rétthafar
ákveðið að setja sparnað sinn í
verðtryggðar ávöxtunarleiðir. Þar
sem séreignarspamaður er lang-
timaspamaður ráðleggjum við
þeim sem yngri eru að fjárfesta
hluta af sparnaðinum í hlutabréf-
um. í sögulegu samhengi hafa
margir hlutabréfasjóðir gefið betri
ávöxtun yfir
lengri tíma en
innlend skulda-
bréf. Fyrir þá sem
vilja jafiia ávöxt-
un og forðast
sveiflur í ávöxtun,
á#- r niælum við með
—---------—* innlendum
skuldabréfum,"
segir Jón Ingi
Jón Ingi
Árnason.
Amason hjá Sameinaða lífeyris-
sjóðnum.
Hann segir sérstöðu Sameinaða
lífeyrissjóðsins liggja á ýmsum
sviðum:
Góð ávöxtun
Ávöxtunarleið 2, sem er innlend-
ur skuldabréfasjóður hefur gefíð
góða ávöxtun síðustu ár og er hag-
stæð leið fyrir þá sem vilja taka
litla sem enga áhættu með séreign-
arspamað sinn.
Fjölbreyttar ávöxtunarleiöir
Sameinaði lífeyrissjóðurinn býð-
ur 10 ávöxtunarleiðir, fjölbreytta
hlutabréfasjóði auk innlendra
skuldabréfa. Fjárfestingaleiöir 3-8
eru ávaxtaðar hjá einum af stærstu
sjóðafyrirtækjum heims, Janus og
Vanguard í samstarfi við Virðingu
hf.
Yfirlit um innborganir og ávöxt-
un eru send út 2-3 á ári. Allar
ávöxtunarleiðir eru gerðar upp dag-
lega þannig að viðskiptavinir okkar
geta hvenær sem er fengið að vita
hvemig ávöxtun fjármuna þeirra
er háttað.
Sameinaði lífeyrissjóðurinn er
með lægsta umsýslugjaldið (0,1-
0,2%) af þeim vörsluaðilum sem
bjóða hlutabréfa- og skuldabréfa-
leiðir, en fjármálafyrirtæki eru
með allt að 3%. Ólíkt því sem
tíðkast hjá mörgum fjármálafyrir-
tækjum er enginn munur á kaup-
og sölugengi á verðbréfum hjá okk-
ur sem þýðir að lífeyrissjóðurinn
tekur ekki þóknun fyrir að selja
viðskiptavinum sínum verðbréfin.
Virkt innheimtuferli
Verði vanskil á séreignarspam-
aði sjóðfélaga annast starfsmenn
sjóðsins innheimtu hans ásamt því
að innheimta dráttarvexti sem
leggjast óskiptir inn á reikning
rétthafa sparnaðarins.
-Traustur banki
-hlh