Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003
M
agasm
„Ég er alltaf með
tár í augunum"
Spurning: Mig langar að
vita hvort eitthvað sé hægt
að gera því að ég er alltaf
með tár í augum, það er aðal-
lega þegar ég er úti þá felli ég
tár og sértaklega á hægra
auga. Þetta gerist líka þegar
ég er inni en ekki eins mikið.
Með von um jákvæð við-
brögð.
Svar:
Sennilegasta skýringin á
þessu er augnþurrkur (já,
augnþurrkur!). Erting í aug-
um vegna þurrks ræsir stóru
tárakirtlana fyrir ofan augun
og framkallað táraílóð. Ein-
kennin minnka ef fólk setur
gervitár í augun, sem fást í
apótekum án lyfseðils. Láttu
augnlækni líta á þig og at-
huga málið.
www.Doktor.is
„Ég er hrædd um
ab ver&a blind"
Spurning: Ég er alltaf með
þoku yfir auga mismunandi
mikla, en ég hef miklar
áhyggjur, ég er reyndar búin
að fara til augnlæluiis og hún
segir að það þurfi að skipta
um augnstein! (vinstra augað
sé ónýtt). Ég er hrædd um að
verð blind.... Hvað eru mikl-
ar likur á að svona aðgerð
heppnist? Er ég að taka
mikla áhættu með því að fara
í aðgerð?
Svar: Þessi aðgerð er sú al-
gengasta sem framkvæmd er
á landinu og ein sú örugg-
asta! Sjúklingar segja nær
undantekningarlaust eftir að-
gerðina að þetta sé miklu
minna mál en þeir töldu og
sögðust hreinlega sjá eftir að
hafa kviðið svona mikið fyrir
henni.
Þegar ský á augasteini hef-
ur náð ákveðinni stærð og
rýrt sjónina ákveðið mikið er
rétt að nema brott augastein-
inn og setja nýjan augastein í
staðinn.
Líkumar á því aö slík að-
gerð heppnist og að þú hljótir
bót á sjóninni eru yfir 95%.
Augað er deyft vel með drop-
um fyrir aðgerðina - í dag eru
ekki einu sinni notaðar
sprautur - og þú ferð heim
samdægurs. Með von um að
þessar upplýsingar rói þig, ef
þú vilt spyrja frekar, endilega
sendu aflur fyrirspum.
www.Doktor.is
„Ég er hrædd um
Spurning: Ég á 6 ára dótt-
ur sem mér finnst vera með
svo hraðan púls eða ca. 100
slög á mínútu (skv. sjálfvirk-
um blóðþrýstingsmæli) þegar
hún er í rólegheitum. Hver er
eðlilegur púls hjá börnum á
þessum aldri?
Svar: Hjartsláttur hjá 6
ára barni er ekki óeðlEegur
þótt að hann reynist um 100
slög/mín. Hjartsláttur hjá ný-
burum og ungum börnum er
hraðari en hjá fullorðnum, en
eðlUegur hjartsláttur fullorð-
inna er á milli 60 og 100 s/m.
Ekki er því ástæða til að
rannsaka frekar 6 ára barn
með hjartslátt um 100 s/m
sem annars lítur vel út.
www.Doktor.is
Oo/cfor. /s
íyf - heli$0 - sjúkdómar
DV
Ólöf Högnadóttir opnar bráðlega Fótaaðgerðastofu Grafarvogs í Spönginni 37 ásamt koliega sínum, Hildi Jakopsdóttur, sem einnig er lærður fótaaðgerðafræðing-
ur. Þær lærðu iðn sína í Noregi, en þar er fótaaðgerðafræði þriggja ára nám. Magasín-mynd ÞÖK
Fæturnir eru undirstaða líkamans og góðir
skór eru forsenda fyrir góðri heilsu:
Fæturnir gleymast
„Góðir skór eru undirstaða góðrar
heilsu. Ef notaðir eru skór sem henta ekki,
er verið að búa til ýmiss koiiar líkamleg
vandamál í ailt stoðkerfið. Þetta gildir al-
veg frá fyrstu tíð. Það sem skiptir mestu
máli er að velja góða skó í vinnu og til að
nota heima við. Grundvallarregla, sem gott
er að hafa í huga viö val á skóm, er að
skórinn fylgi lagi fótarins, hann má hvergi
kreppa að,“ segir Ólöf Högnadóttir sem er
fótaaðgerðafræðingur að mennt.
„Vöðvabólga, bakverkir og eymsli í
hnjám eru til dæmis stoðkerfisvandamál
sem oft er hægt að draga verulega úr með
því að nota skó sem henta hverju sinni.“
Fótaaógeróafræói fjölbreytt nóm
Ólöf opnar bráðlega Fótaaðgerðastofu
Grafarvogs í Spönginni 37 ásamt kollega
sínum, Hildi Jakobsdóttur sem einnig er
lærður fótaaðgerðafræðingur. Þær lærðu
iðn sina í Noregi en þar er fótaaðgerða-
fræði þriggja ára nám. Námið er fjölbreytt
og meðal annars er kennd sýklafræði, sjúk-
dómafræði og allt um uppbyggingu vöðva
og beina.
Ólöf segir muninn á fótaaðgerð og fót-
snyrtingu vera mikinn en oft sé þetta
tvennt þó sett undir sama hatt. Fótaað-
gerðafræöingar tilheyri heilbrigðisstétt-
inni en snyrtifræðingar stunda eingöngu
fegrunaraðgerðir.
„Hlutverk fótaaðgerðafræðinga er fyrst
og fremst að ráðleggja fólki varðandi rétta
fótaumhirðu og fyrirbyggja fótavandamál."
Fótaaögerðafræðingar skera til dæmis
burt sigg og líkþom, þynna þykkar neglur,
meðhöndla vörtur og iaga inngrónar negl-
ur. Eins eiga fótaaðgerðafræðingar að geta
greint til dæmis tábergssig og skekkjur í
hæl og veitt ráðleggingar varðandi rétta
skó og innlegg og búið innlegg til ef þess er
óskað.
Algengt er að veikindi séu
tengd stoökerfinu
„Ef vinnuveitendur gerðu sér grein fyr-
ir þvi hve mikið myndi sparast ef starfs-
fólk þeirra fengi ráðgjöf um val á skóm og
myndi fara eftir henni þá myndi sennilega
fyrir löngu vera búið að gera slíka ráðgjöf
að föstum lið hjá mörgum fyrirtækjum, því
oft má rekja veikindi starfsmanna tii stoð-
kerfisvandamála."
Konur hugsa oft vel um húð sína og hár
en fæturnir vilja gleymast.
„Fæturna þarf að hugsa vel um því eins
og ég hef áður sagt þá bera þeir uppi lík-
ama okkar og sé illa hugsaö um þá getur
það leitt tE stoðkerfisvandamála en sumir
þurfa að huga betur aö þeim en aðrir."
Æ&a- og taugahrörnun
„Þegar fólk eldist eru æða- og tauga-
hrörnun eðlilegur öldranarferill og þvi
minnkar oft tilfinningin í fótunum. Einnig
verður sjónin lélegri og hreyfigeta minnk-
ar. Eldra fólk á því sérstakt erindi til fóta-
aðgerðafræðinga sem geta kennt rétta
fótaumhirðu og ráðlagt þeim um rétt skó-
val. Um 50% fólks á sextugsaldri þarf á að-
stoð fótaaðgerðafræðinga að halda og hlut-
fallið eykst um 10% með hverjum áratug."
Ólöf segir að skór og sokkar sem leyfa
ekki lofti að leika um fótinn geti gert að
verkum að fólk fái fótasveppi. „Til eru
dæmi um að einstaklingar séu með slíkar
sýkingar í fæti án þess þó að vita af því.
Flestar sýkingar byija milli fjórðu og
fimmtu táar, húðin þar verður hvítleit og
springur auk þess sem kláði gerir stundum
vart við sig. Ef sýking er ekki greind nógu
snemma og meðhöndluð, getur hún dreift
sér i húðina undir fætinum og borist í
neglur og þá er erfitt að meðhöndla sýking-
una án lyfseðilsskyldra lyTja.”
Sokkar og inngrónar neglur
Alkunna er að leður andar, þvi munu
vafalaust margir telja sig vel setta í leður-
skóm því þeir ættu jú að hleypa lofti að fót-
unum. En Ólöf segir suma leðurskó vera
húðaða plastfilmu til að veija leðrið, P.U
leður er dæmi um slíkt leður. Ólöf vill því
benda fólki á að vanda val sitt þegar velja
á góða skó.
„Þröngir og óhentugir skór geta valdið
inngrónum nöglum en það geta þröngir
sokkar lika gert. Fólk ætti helst að velja
sér ullar-, bómullar- eða silkisokka og
passa að þeir séu ekki of þröngir. Einnig
eru komnar einhveijar gerðir af sokkum
úr gerviefnum sem anda og ef þeir eru ekki
of þröngir geta þess konar sokkar einnig
verið góður kostur."
-þal
Litlar
baðbombur
Blandið saman í skál.
1/2 bolli matarsóda.
1/4 bolli sítrónusýru
(citric acid).
2 matskeiðum púðursykri.
Blandið saman í aðra skál:
1 matskeið kókosolíu (ilmlausri,
í föstu formi. Yggdrasill).
1 tsk. Aloe vera gel.
1 tsk. möndluolíu (ilmlausri.
Yggdrasill, Body Shop).
1 tsk. hunangi.
1 tsk. E-vítamínolíu (Heilsuhús-
ið).
1 tsk. ilmolíu.
Til að fá lit í sykurmolana er
hægt að bæta smámatarlit í
blönduna.
Hellið þessu yfir þurru hráefn-
in og blandið vel saman, setjið í
mót. T.d. klakamót. Takið úr
mótinu og látið þoma alveg.
Hægt er að pakka molunum inn
í plastfilmu, geyma þá í litlum
pokum, eða jafnvel hafa molana
til skrauts í hillunum.
Málshátturinn
Enginn er alheimskur ef
þegja kann
r m o II
Vanilludropar
Setjið vanilludropa í
bómullarhnoðra og
geymið á litlum disk þar
sem böm ná ekki til.
Vanillan á að virka vel til
að ná burt ólykt af ýmsu
tagi. Tilvalið í bílinn,
ískápinn og svo
framvegis.
Matarsódi
Setjið matarsóda á disk
og geymið í ískápnum.
Virkar vel til að eyða
vondri lykt sem vill koma
í iskápinn. Skiptið um
matarsóda einu sinni í
mánuði og þá er gott að
hella matarsódanum í
niðurfallið því það eyðir
vondri lykt þar. Þannig er
matarsódinn nýttur til
hins ýtrasta. Það virkar
einnig vel að nota
matarsóda til að eyða lykt
í flöskum og öðrum
ilátum.
Fyllið ílátið með vatni,
setjið smáslurk af
matarsóda út í vatnið og
látið bíða yfir nótt. Þvoið
svo ílátin eins og
venjulega.
Sink og sykur
Taktu sink reglulega
og minnkaðu sykur-
neyslu, þannig er hægt að
minnka svitalykt til
muna.
Fljótandi
svitalyktareyöir
Hér eru þrjár
uppskriftir að fljótandi
svitalyktareyði.
Uppskrift 1.
Skerðu engiferrót í
bita. Settu bitana í hreina
tusku (bleyjutuska virkar
best) og kreistu safann úr
rótinni.
Uppskrift 2. Leystu 1
msk. af matarsóda upp í 2
dl. af vatni.
Uppskrift 3.
Vanilludropar
Geymdu vökvann í
lokuðu íláti og notaðu
bómullarhnoðra til að
nudda vökvanum undir
handarkrikana. -Þal