Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003
Magasín
I>V
Jennifer Lopez tjáir sig
enn um Puff Daddy:
Gat ekki tek-
ið áhættuna
Þrátt fyrir að rúm tvö ár séu síð-
an Jennifer Lopez og Puff Daddy
ákváðu að skilja er enn í gangi
umræöa i fjölmiðlum um storma-
samt samband þeirra og ljóst er að
það var Jennifer Lopez sem ákvað
að slíta sambandinu.
Þau Daddy og Lopez voru ekki
búin að vera lengi saman þegar
fréttir fóru að berast af meintu
framhjáhaldi hans. Lopez viður-
kennir að hún hafi ekki enn fund-
ið neitt sem sanni framhjáhaldið
en engu að siður viti hún það að
hann hafi verið henni ótrúr. „Ég
beið og beið eftir honum þegar
hann sagðist ætla að skreppa á
pöbb í tvo tíma. Öll nóttin leið og
hann sást aldrei. Og hann gat
aldrei gefið mér nákvæmar út-
skýringar á því hvað hann var að
gera. Ég stóð frammi fyrir því að
treysta honum eða ekki. Ég gat
ekki séð mig fyrir mér með börnin
heima á meðan hann væri úti á
nætumar að skemmta sér með
öðrum konum. Það kom einfald-
lega ekki til greina af minni
hálfu,“ sagði Jennifer Lopez i ný-
legu viðtali og þreytist seint að því
er virðist að ræða samband þeirra.
Engum sögum fer af þvi hvemig
öll þessi endalausu
ummæli söngkon-
unnar fara í leikar-
ann Ben Affleck, til-
vonandi eiginmann
hennar.
Fjölmiðlar vestra
hafa fullyrt að Lopez
hafi gengið á milli
hótela í örvæntingar-
fullri leit sinni að þá-
verandi eiginmanni
sinum og barið á dyr
með miklum látum.
„Ég man þetta
ekki nákvæmlega og
get ekki þvertekið
fyrir að þetta hafi
gerst,“ segir Lopez og
þetta skyndilega
minnisleysi hennar
hlýtur að renna stoð-
um undir fréttimar.
Af Puff Daddy er
það nýjast að frétta
að hann segist enn
elska Lopez út af lif-
inu og hefur lýst þvi
yíir að hann ætli að
gefa henni og Affleck
eðalvagna af dýrustu
gerð í brúðkaupsgjöf
þegar og ef af
brúðkaupi verður.
Ungur aðdáandi Jennifer Lopez stillir sér upp við
hlið vaxmyndar sem nýlega var gerð opinber.
Lisa Marie Presley í Playboy:
Sýnir nýjar hli&ar
Lisa Marie Presley, dóttir rokkkóngsins eina sanna, mun ef til vill
hneyksla marga þegar klámblaðið Playboy kemur út í næsta mánuði. í júlí-
hefti blaðsins verða nefnilega birtar af henni nektarmyndir sem sagðar eru
í djarfara lagi.
Það er engu líkara en Presley sé í
sérstakri þörf fyrir að tjá sig um
kynlíf þessa dagana. I væntanlegu
viðtali við Playboy fer hún frekar
niðrandi oröum um Michael
Jackson sem hún bjó með í
nokkum tíma og segir hann í raun
og sann ekki mjög æsandi kynferð-
islega og hún hafi aldrei fengið
það hjá honum í kynlífinu sem
hún sóttist eftir.
í nokkuð langan tíma hafa fjöl-
miðlar í Bandaríkjunum viljað
halda þvi fram að Lisa Marie
Presley væri í raun meira gefin
fyrir konur en karla. í viðtalinu
viö Playboy slær hún þessar frétt-
ir síður en svo í kaf og segist þess
fullviss að hún myndi örugglega
standa sig betur í rúminu sem
lesbía.
Mörgum kann að koma á óvart
að Lisa Marie skuli hafa valið
Playboy til að birta af sér nektar-
myndir. Víst er hins vegar að Usa Marie Presley tekur lagið á
margir munu ekki draga það lengi fyrsta úrslitaleik NJ Nets og SA Spurs
að fá sér eintak. ' NBA-deildinni á dögunum.
Foreldrar vikunnar
Litla fjölskyldan: Guðný Kristín Loftsdóttir og Garðar Páll Jónsson með litiu Kamellu Rán og hjá þeim er eldri systir-
in Lovísa Heiðrún. Magasín-mynd Þórhallur Asmundsson
Lítil prinsessa kom í heiminn 6 Sauðárkróki:
Munur " hafa
pabbann heima
„Þetta gekk bara miklu betur
að eiga þessa stóru stúlku held-
ur en hin börnin. Við vorum
komin upp á deild upp úr fimm
og þetta var búið um níuleyt-
ið,“ segir Guðný Kristín Lofts-
dóttir, 26 ára þriggja barna
móðir á Sauðárkróki.
Skírð af Döllu
Það var 11. apríl sl. sem
Kristínu og sambýlismanni
hennar, Garðari Páli Jónssyni,
fæddist rúmlega 13 marka
stúlka, sem orðin er stór í dag,
þar sem hún óx hratt fyrstu
vikurnar, um 500 grömm á
viku, en núna síðustu vikurnar
er reyndar vöxturinn kominn
niður í 200 grömm. Fyrsta maí
sl. var stúlkan sklrð af Döllu
Þórðardóttur prófasti og hlaut
nafnið Kamella Rán.
Kamella er fyrsta barn Garð-
ars og hann er að sjálfsögðu
mjög hamingusamur faðir og
mjög ánægður með að vera
kominn í feðraorlof, tók tvær
vikur eftir fæðinguna og byrj-
aði svo núna í júníbyrjun og
tekur alls þrjá mánuði í orlof,
eins og það var lengt í ekki alls
fyrir löngu.
Rosalega gaman
„Ég var vitaskuld að bíða eft-
ir því að þetta yrði lengt, það
tók þvi ekki með þennan eina
mánuð áður,“ segir Garðar og
hlær.
„En þetta er rosalega gaman
að taka þátt i þessu. Það er
reyndar mjög mikið að gera hjá
okkur iðnaðarmönnum á þess-
um árstíma, en vinnuveitend-
urnir voru mjög liprir og skiln-
ingsrikir, þannig að þetta var
ekkert mál,“ segir Garðar sem
er rafvirki og vinnur hjá Tengli
á Sauðárkróki.
Vísitöluf jölskylda
„Það er rosalegur munur að
hafa pabbann heima og þetta
hefur gengið mjög vel. Það ber
ekkert á afbrýðisemi hjá eldri
systkinum þannig að það eru
allir mjög ánægðir," segir Guð-
ný Kristín Loftsdóttir, sem þeg-
ar er búin að legga til rúmlega
vísitölufjölskylduna þrátt fyrir
ungan Eildur og finnst sjálfsagt
að sinna hlutverkinu „bara
húsmóðir" eins og það er oftast
kallað.
Úr fyrri sambúð á hún börn-
in Lovísu Heiðrúnu og Kristó-
fer Orra Hlynsbörn.
-ÞÁ
hjó^5ta
Eitt mesta úrval
landsins af'baírnd*
rúmum.
Nýir litir á vögnum,
kerrum og bilstólum
frá Bébécar
QQQqQ
2naesOfnBQ
Hliðasmára17, Kópavogi
Sími: 564-6610
www. atlirkrakkar. is