Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003 Magasín I>V Jennifer Lopez tjáir sig enn um Puff Daddy: Gat ekki tek- ið áhættuna Þrátt fyrir að rúm tvö ár séu síð- an Jennifer Lopez og Puff Daddy ákváðu að skilja er enn í gangi umræöa i fjölmiðlum um storma- samt samband þeirra og ljóst er að það var Jennifer Lopez sem ákvað að slíta sambandinu. Þau Daddy og Lopez voru ekki búin að vera lengi saman þegar fréttir fóru að berast af meintu framhjáhaldi hans. Lopez viður- kennir að hún hafi ekki enn fund- ið neitt sem sanni framhjáhaldið en engu að siður viti hún það að hann hafi verið henni ótrúr. „Ég beið og beið eftir honum þegar hann sagðist ætla að skreppa á pöbb í tvo tíma. Öll nóttin leið og hann sást aldrei. Og hann gat aldrei gefið mér nákvæmar út- skýringar á því hvað hann var að gera. Ég stóð frammi fyrir því að treysta honum eða ekki. Ég gat ekki séð mig fyrir mér með börnin heima á meðan hann væri úti á nætumar að skemmta sér með öðrum konum. Það kom einfald- lega ekki til greina af minni hálfu,“ sagði Jennifer Lopez i ný- legu viðtali og þreytist seint að því er virðist að ræða samband þeirra. Engum sögum fer af þvi hvemig öll þessi endalausu ummæli söngkon- unnar fara í leikar- ann Ben Affleck, til- vonandi eiginmann hennar. Fjölmiðlar vestra hafa fullyrt að Lopez hafi gengið á milli hótela í örvæntingar- fullri leit sinni að þá- verandi eiginmanni sinum og barið á dyr með miklum látum. „Ég man þetta ekki nákvæmlega og get ekki þvertekið fyrir að þetta hafi gerst,“ segir Lopez og þetta skyndilega minnisleysi hennar hlýtur að renna stoð- um undir fréttimar. Af Puff Daddy er það nýjast að frétta að hann segist enn elska Lopez út af lif- inu og hefur lýst þvi yíir að hann ætli að gefa henni og Affleck eðalvagna af dýrustu gerð í brúðkaupsgjöf þegar og ef af brúðkaupi verður. Ungur aðdáandi Jennifer Lopez stillir sér upp við hlið vaxmyndar sem nýlega var gerð opinber. Lisa Marie Presley í Playboy: Sýnir nýjar hli&ar Lisa Marie Presley, dóttir rokkkóngsins eina sanna, mun ef til vill hneyksla marga þegar klámblaðið Playboy kemur út í næsta mánuði. í júlí- hefti blaðsins verða nefnilega birtar af henni nektarmyndir sem sagðar eru í djarfara lagi. Það er engu líkara en Presley sé í sérstakri þörf fyrir að tjá sig um kynlíf þessa dagana. I væntanlegu viðtali við Playboy fer hún frekar niðrandi oröum um Michael Jackson sem hún bjó með í nokkum tíma og segir hann í raun og sann ekki mjög æsandi kynferð- islega og hún hafi aldrei fengið það hjá honum í kynlífinu sem hún sóttist eftir. í nokkuð langan tíma hafa fjöl- miðlar í Bandaríkjunum viljað halda þvi fram að Lisa Marie Presley væri í raun meira gefin fyrir konur en karla. í viðtalinu viö Playboy slær hún þessar frétt- ir síður en svo í kaf og segist þess fullviss að hún myndi örugglega standa sig betur í rúminu sem lesbía. Mörgum kann að koma á óvart að Lisa Marie skuli hafa valið Playboy til að birta af sér nektar- myndir. Víst er hins vegar að Usa Marie Presley tekur lagið á margir munu ekki draga það lengi fyrsta úrslitaleik NJ Nets og SA Spurs að fá sér eintak. ' NBA-deildinni á dögunum. Foreldrar vikunnar Litla fjölskyldan: Guðný Kristín Loftsdóttir og Garðar Páll Jónsson með litiu Kamellu Rán og hjá þeim er eldri systir- in Lovísa Heiðrún. Magasín-mynd Þórhallur Asmundsson Lítil prinsessa kom í heiminn 6 Sauðárkróki: Munur " hafa pabbann heima „Þetta gekk bara miklu betur að eiga þessa stóru stúlku held- ur en hin börnin. Við vorum komin upp á deild upp úr fimm og þetta var búið um níuleyt- ið,“ segir Guðný Kristín Lofts- dóttir, 26 ára þriggja barna móðir á Sauðárkróki. Skírð af Döllu Það var 11. apríl sl. sem Kristínu og sambýlismanni hennar, Garðari Páli Jónssyni, fæddist rúmlega 13 marka stúlka, sem orðin er stór í dag, þar sem hún óx hratt fyrstu vikurnar, um 500 grömm á viku, en núna síðustu vikurnar er reyndar vöxturinn kominn niður í 200 grömm. Fyrsta maí sl. var stúlkan sklrð af Döllu Þórðardóttur prófasti og hlaut nafnið Kamella Rán. Kamella er fyrsta barn Garð- ars og hann er að sjálfsögðu mjög hamingusamur faðir og mjög ánægður með að vera kominn í feðraorlof, tók tvær vikur eftir fæðinguna og byrj- aði svo núna í júníbyrjun og tekur alls þrjá mánuði í orlof, eins og það var lengt í ekki alls fyrir löngu. Rosalega gaman „Ég var vitaskuld að bíða eft- ir því að þetta yrði lengt, það tók þvi ekki með þennan eina mánuð áður,“ segir Garðar og hlær. „En þetta er rosalega gaman að taka þátt i þessu. Það er reyndar mjög mikið að gera hjá okkur iðnaðarmönnum á þess- um árstíma, en vinnuveitend- urnir voru mjög liprir og skiln- ingsrikir, þannig að þetta var ekkert mál,“ segir Garðar sem er rafvirki og vinnur hjá Tengli á Sauðárkróki. Vísitöluf jölskylda „Það er rosalegur munur að hafa pabbann heima og þetta hefur gengið mjög vel. Það ber ekkert á afbrýðisemi hjá eldri systkinum þannig að það eru allir mjög ánægðir," segir Guð- ný Kristín Loftsdóttir, sem þeg- ar er búin að legga til rúmlega vísitölufjölskylduna þrátt fyrir ungan Eildur og finnst sjálfsagt að sinna hlutverkinu „bara húsmóðir" eins og það er oftast kallað. Úr fyrri sambúð á hún börn- in Lovísu Heiðrúnu og Kristó- fer Orra Hlynsbörn. -ÞÁ hjó^5ta Eitt mesta úrval landsins af'baírnd* rúmum. Nýir litir á vögnum, kerrum og bilstólum frá Bébécar QQQqQ 2naesOfnBQ Hliðasmára17, Kópavogi Sími: 564-6610 www. atlirkrakkar. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.