Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Page 11
s
I
i
Landið sem
HVERFUR
Kynningarverð
1 jum
N
Mál og menning
Guömundur Páll ólafsson, náttúrufræðingur og
ljósmyndari, er löngu þekktur fyrir ffábærar bækur sínar
um íslenska náttúru, meðal annars Hálendið í náttúru
íslands. Þessi bók er unnin í samstarfi við þrjá valinkunna
ljósmyndara, Friðþjóf Helgason, Jóhann Isberg og Ragnar
Axelsson og er fyrsta bókin í ritröð sem ber heitið öræfi
íslands - tign og töfrar.
Um víðerni Snæfells lýsir svæði á hálendinu sem fáir
þekkja, en brátt mun stór hluti þess hverfa undir lón
Kárahnjúkavirkjunar. Að því leyti er bókin minning um
land sem var, stórbrotinn óður í máli og myndum um
náttúru sem hefur verið fórnað.
„Ég fagna þessari nýju ritröð
um Öræfi íslands - tign og
töffa. Þessi fallega bók er um
land, þjóð og tungu."
- Frú Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti íslands, þegar
hún tók á móti fyrsta eintaki
bókarinnar 5. júní 2003.