Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Blaðsíða 11
 s I i Landið sem HVERFUR Kynningarverð 1 jum N Mál og menning Guömundur Páll ólafsson, náttúrufræðingur og ljósmyndari, er löngu þekktur fyrir ffábærar bækur sínar um íslenska náttúru, meðal annars Hálendið í náttúru íslands. Þessi bók er unnin í samstarfi við þrjá valinkunna ljósmyndara, Friðþjóf Helgason, Jóhann Isberg og Ragnar Axelsson og er fyrsta bókin í ritröð sem ber heitið öræfi íslands - tign og töfrar. Um víðerni Snæfells lýsir svæði á hálendinu sem fáir þekkja, en brátt mun stór hluti þess hverfa undir lón Kárahnjúkavirkjunar. Að því leyti er bókin minning um land sem var, stórbrotinn óður í máli og myndum um náttúru sem hefur verið fórnað. „Ég fagna þessari nýju ritröð um Öræfi íslands - tign og töffa. Þessi fallega bók er um land, þjóð og tungu." - Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti íslands, þegar hún tók á móti fyrsta eintaki bókarinnar 5. júní 2003.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.