Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2003, Blaðsíða 14
FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2003
14
M,
agasm
Bíómola r
Iss, bara 12 tímar
Kínverska
leikkonan
Zhang Ziyi,
sem þekktust
er fyrir hlut-
verk sitt í
Crouching Ti-
ger, Hidden
Dragon, sagði
í viðtali fyrir skömmu að hún
teldi að bandarískir leikarar
ynnu ekki nógu mikið. Að
Hollywood-stjörnur séu of-
dekraðar af því að þær vinni
„aðeins“ 12 stundir á dag og
hafi eigin húsbíl til umráða. „í
Kína þarf maður að vinna alla
vikuna 18 stundir á dag,“ sagði
Ziyi við Der Spiegel. „Banda-
rískir leikarar vinna bara á
virkum dögum og fá fri um
helgar til að slappa af.“ Ziyi hef-
ur nýlokið við að leika í nýrri
mynd, Hero, sem verður að telj-
ast til Hollywood-geirans. Hún
segir þó lífið sem leikari þar i
bæ ekki heilla sig.
Fékk heilahristing
Josh Hart-
nett þurfti
að ganga í
gegnum ým-
islegar raun-
ir við tökur
á myndinni
Hollywood
Homicide
sem verður frumsýnd vestra á
föstudag. Hann fékk til að
mynda heilahristing þegar
áhættuleikari keyröi bíl á
gervibifreið sem í voru þeir
Hartnett og meðleikari hans,
Harrison Ford. Slysið átti sér
staö á meðan á tökum stóð í jan-
úar síðastliðnum. „Þetta var all-
myndarlegt slys. Þar sem engir
loftpúöar voru í bílnum gerði
það illt verra. Ég fékk heila-
hristing og tognaði á nára,"
sagði Hartnett í útvarpsviðtali.
„En það var áhættuleikarinn
sem allt i einu tók upp á því að
gera hlutina öðruvísi en var
æft.“
Frá Grönnum til Hollywood
Fyrrum Ná-
granna-stjam-
an Emma
Harrison, er
lék Joanna
Evans i þátt-
unum árin
1995-1997, hef-
ur verið ráðin
til að leika í nýju Robert Altman-
myndinni, The Company. Neve
Campell fer einnig með hlutverk
i myndinni ásamt dönsurum úr
Joffrey-akademíunni en hún
íjallar um hinn kröfuharöa heim
ballettsins. Campbell mun leika
stúlku sem er á barmi þess að
verða fastráðinn leikari meö
virtum dansflokki en ekki er enn
vitað hvaða hlutverk Harrison
mun taka að sér. Hún hefur ný-
lokið við að leika í Intolerable
Cruelty með þeim George Cloon-
ey og Catherine Zeta Jones sem
var hennar fyrsta kvikmynda-
hlutverk.
Sharon sem
Sharon
Stone hefur
fengið boð
um að leika
fyrrum for-
setafrúna
Hillary
Clinton í
nýrri sjón-
varpsmynd sem á að fjalla um
núverandi öldungadeildarþing-
manninn. Myndin byggir hand-
rit sitt á metsölubókinni Hill-
ary's Choice en hún verður sýnd
í bandarísku sjónvarpi á næsta
ári. Bókin segir frá lífl þeirra
Bill og Hillary Clinton frá því aö
hann var kjörinn forseti lands-
ins og þau fluttu inn í Hvíta hús-
ið í Washington.
Hiilary?
John Travolta leikur aðalhlutverkið í Basic:
Endurlífgaður
á miájum ferli
leika hlutverk í unum Urban Cowboy og Blowout
John Travolta var skærasta
stjama heimsins á 8. áratugnum. Á
þeim níunda átti sér stað mikið
stjömuhrap og eyddi hann honum
og fyrstu árum þess tíunda í „ræsi“
Hollywood þar sem fáir virtu hann
viðlits. Þá kom Quinten nokkur
Tarantino til sögunnar og eftir 1994
var hann aftur orðinn einn heitasti
leikari heimsins. Ein mesta endur-
koma leikara fyrr og síöar var orð-
in staðreynd.
í Basic leikur Travolta lögreglu-
manninn Tom Hardy sem er feng-
inn til að leita uppi herflokk sem
týndist á meðan heræfing þar sem
ýmislegt fór úrskeiðis stóö yfir.
Ólíkir foreldrar
John verður fimmtugur á næsta
ári. Hann kemur frá Englewood í
New Jersey en er af itölskum og
írskum ættum. Faðir hans, Sal-
vatore, var mikill íþróttagarpur í
æsku en vann sem dekkjasölumað-
ur á sínum fuUoröinsárum. Það var
móðir hans, Helen, sem var lista-
maðurinn í fjölskyldunni. Hún lék í
útvarpsleikritum og starfaði bæði
sem leikari og leikstjóri áður en
hún tók að sér að kenna leiklist í
miðskóla. Báðir foreldramir höfðu
mikil áhrif á John og fjögur systkini
hans en Salvatore byggði fjölskyldu-
leikhús í kjallaranum þar sem börn-
in gátu notið sín.
Það varð snemma ljóst að John
vildi helga sig skemmtibransanum.
Hann elskaði Bítlana og lærði að
spila á gítar. Honum þótti líka gam-
an að dansa og vann meira að segja
tvist-danskeppni ungur að árum.
Snemma beygist krókurinn.
12 ára gamall kom hann sér að á
leiklistamámsskeiði og fór að starfa
í bæjarleikhúsum og svokölluðu
kvöldverðarleikhúsi. En hann ólm-
aðist vitaskuld eins og aðrir ungir
drengir og tókst til að mynda að
brjóta nefið á sér þegar hann lék sér
i sundlauginni.
Til stóra eplisins
Hann hætti i skóla 16 ára gamall,
með leyfi foreldra sinna, og fluttist
til systur sinnar á Manhattan í New
York til að reyna að koma sér að í
leikhúsheimi borgarinnar. Það gekk
ágætlega en hann þurfti samt sem
áður að vinna hin ýmsu „venjulegu"
störf til að ná endum saman. Hann
fékk hlutverk í mörgum off-Broad-
way uppfærslum, tO að mynda Grea-
se þar sem hann lék Doody, sem var
þó aðeins smáhlutverk. En engu að
síður var hann kominn með myndar-
lega ferilsskrá sem átti eftir að koma
honum vel síðar meir.
Snemma á 8. áratugnum var hann
ráðinn í ýmis smáhlutverk í sjón-
varpi en fyrsta stóra tækifærið birt-
ist árið 1975 þegar hann var ráöinn
í hlutverk Vinnie Barbarino í sjón-
varpsþættinum Welcome Back,
Kotter. Barbarino var mikill töffari
og var John stjarna þáttarins. í kjöl-
farið kom kall kvikmyndanna og
var hans fyrsta hlutverk í myndinni
The Tenth Level sem skartaði
einnig William Shatner. Þá kom
Devil’s Reign með Ernest Borgnine
Allt á uppleið
Brian De Palma réð John til að
Carrie og þótti
honum takast
það vel. John
vildi þó líka láta
til sín taka i al-
varlegum hlut-
verkum og lék
Tod Lubitch sem
liföi sínu lífi í
plastkúlu í mynd-
inni The Boy in
the Plastic
Bubble. Þar
kynntist hann Di-
ana Hyland sem,
þrátt fyrir að
vera 18 árum
eldri, varð ást-
kona hans. Allt
gekk honum í
haginn. Hann
hafði fundið ást-
ina, var vinsæll
leikari og tónlist-
armaður en hann
gaf út 3 plötur
sem áttu nokk-
urri velgengni að fagna.
En það besta átti enn eftir að
koma. Árið 1977 lék hann Tony
Manero, búðarstarfsmann á daginn
og diskókonung á kvöldin, í Satur-
day Night Fever. Það þarf ekki að
fara mörgum orðum um vinsældir
myndarinnar og kannski þá sér-
staklega tónlistina sem hljómsveitin
Bee Gees samdi og flutti en Travolta
sló í gegn og það allsvakalega. Næst
á dagskrá var Grease þar sem hann
söng sig inn í hjörtu unglings-
stúlkna um allan heim. Myndin
naut gífurlegrar velgengni og halaði
inn um 400 milljónir dala og varð
þar með vinsælasti kvikmyndasöng-
leikur allra tima.
Beint I ræsið
En þá urðu mistökin. Hann vildi
losa sig við töffara-tánings-ímynd-
ina og tók að sér hlutverk í mynd-
sem „floppuðu" báðar. Hann reyndi
að koma sér aftur á réttan kjöl með
þvi að leika á móti Oliviu Newton-
John (sem hafði leikið með honum í
Grease) í Two of a Kind og endur-
vekja Tony Manero í Staying Alive
í leikstjórn Sylvester Stallone. Báð-
ar þóttu hörmulegar og var þeirri
síðamefndu oft lýst sem „Rocky
dansar ballett“.
John þurfti ekki að hafa áhyggjur
af peningamálum þar sem tekjur
hans tengdar Saturday Night Fever
og Grease héldu áfram að koma um
árabil. Þar til ársins 1994 fékk hann
einfaldlega ekki mörg bitastæð hlut-
verk og ber þar helst að nefna Look
Who’s Talking-myndanna sem nutu
töluverðra vinsælda en gerðu ekki
mjög góða hluti fyrir ferilsskrá
hans.
Eins manns dauöi...
Það var hálfgerð tilviljun sem réð
þvi að Tarantino réð John sem
Vincent Vega í Pulp Fiction. Mich-
ael Madsen hafhaði hlutverkinu til
að leika í mynd Kevins Costners,
Wyatt Earp, og var þaö aðeins þess
vegna sem John fékk að spreyta sig.
Hann tók aðeins 140 þúsund dali í
sinn hlut fyrir vinnuna, sem þykir
ekki mikið í Hollywood, en myndin
lyfti honum aftur á hærra plan.
Síðan þá virðist John Travolta
vera ófeigur. Hann hefur leikið í
fjöldamörgum myndum á síðustu 9
árum og fengið himinháar fúlgur í
sinn hlut fyrir. Þrátt fyrir að sumar
þeirra mynda hafa verið afar slak-
ar, þá sér í lagi Battlefield Earth,
virðist John alltaf jafnvinsæll. Enda
þarf hann ekki að sanna neitt fyrir
neinum, hann hefur gengið í gegn-
um ýmislegt á sínum ferli og nýtur
í sjálfu sér mikillar virðingar fyrir
það eitt að hafa náð sér úr þeim
öldudal sem hann var kominn í.
Þangað fer hann aldrei aftur, svo
mikið er vist.
Samuel L. Jackson leikur eitt aðalhlutverka Basic.
Dómar
City By the Sea
„De Niro hefur ekki verið betri i mörg ár.
Sannfœrandi og áhrifamikil saga." -HK
Identity ★★★
„Með því aó vera meó b-mynda
hryllingssögu sem inngangspunkt
gengur myndin fullkomnlega upp.“ -HK
Narc ★★★
„Jason Patric og Ray Liotta eru
gysiöflugir í sterkri og áhrifamikilli
mynd. “ -HK
X-Men 2 ★★★
„X-Men 2 hefur komið með staðalinn sem
aðrar framhaldsmyndir veröa mióaðar
viðísumar." -HK
The Matrix Reloaded ★★★
„Því miður er The Matrix Reloaded dð
mestu ný útfærsla á The Matrix. Það er
fátt sem kemur á óvart. “ -HK
Confidence ★★★
„Of mikið í mun að vera smart og fyndin
að l hana vantar spennu og ástríðu. “
-SG
Bringing Down the House
„Hin sœmilegasta skemmtun þrátt fyrir
augljósa annmarka." -HK
View From the Top ★★
„í raun stórgölluð, gamaldags og illa
skrifuð." -HK
A Man Apart ★★
„Það er fátt leióinlegra en óspennandi
spennuniynd." -SG
Old School ★
„Það fjarar fljótt undan myndinni þegar
líður á og vitleysan verður meö
endemum.“ -HK
Væntanlegar
13. iúni
Agent Cody Banks . Frankie Muniz
Basic .............John Travolta
The Life of David Gale . K. Spacey
They.......................Ýmsir
2 Fast 2 Furious ..........Ýmsir
20. iúnl
Dumb and Dumberer...........Eric
Christian Olsen / Derek Richardson